DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10472.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Autumn Spice Cardigan

Prjónuð peysa með laskalínu úr 2 þráðum DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með áferð og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 202-14
DROPS Design: Mynstur sk-033
Garnflokkur B + B eða D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-400-450-500-550 g litur 11, hesilhneta

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUPRJÓNAR, Bogalaga (hvít) NR 522: 5-5-6-6-6-6 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10472.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 63 lykkjur), mínus lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið (= 4 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 5,9.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA (á við um ermar):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út 1 lykkju á eftir/undan prjónamerki á ermum þannig: Prjónið fram að fyrsta prjónamerki á ermi, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið fram að 1 lykkju á undan næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. Endurtakið á hinni erminni (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið, svo það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar stykkið er mátað). Fellið af frá réttu þegar eftir eru 3 lykkjur á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsi mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 10-10-9-9-10-10 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 69-71-75-77-79-81 lykkjur á hringprjón 6 með 2 þráðum Sky. Prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 3: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, brugðnar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Munið eftir HNAPPAGAT!

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið mynstur þannig – munið eftir HNAPPAGAT: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 yfir næstu lykkju, A.2 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 12-12-12-14-14-14 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= vinstra framstykki), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3-4-6-3-4-5 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= ermi), A.3 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 12-12-12-14-14-14 lykkjur, A.4 yfir næstu lykkju (= miðjulykkja að aftan), A.2 yfir næstu 12-12-12-14-14-14 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= bakstykki), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3-4-6-3-4-5 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= ermi), A.3 yfir næstu 12-12-12-14-14-14 lykkjur, A.5 yfir næstu lykkju, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= hægra framstykki). Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á ermum (= 4 lykkjur fleiri) og aukið hefur verið út um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkju (A.4) á bakstykki (= 2 lykkjur fleiri) og 1 lykkju innan við A.1/A.5 og kant að framan á framstykki (= 2 lykkjur fleiri) = 77-79-83-85-87-89 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram fram og til baka og aukið út fyrir laskalínu á ermum í annarri hverri umferð 14-16-16-19-19-19 sinnum til viðbótar (alls 15-17-17-20-20-20 sinnum), JAFNFRAMT þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 2 síðustu umferðirnar endurteknar 8-10-12-13-16-19 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. þar til það eru 25-29-33-35-41-47 lykkjur sléttprjón á milli A.3 og A.2 á bakstykki og það eru 13-15-17-18-21-24 lykkjur sléttprjón á milli kant að framan og A.2/A.3 á framstykki = 185-203-215-233-247-261 lykkjur.

Haldið síðan áfram með áferð yfir 14-14-14-16-16-16 lykkjur í A.2 og A.3, garðaprjón yfir 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru þar til stykkið mælist 23-25-27-29-31-33 cm mælt frá uppfitjunarkanti og niður mitt að framan. Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 31-33-35-38-41-44 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 35-40-42-45-46-47 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 53-57-61-67-73-79 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 35-40-42-45-46-47 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 31-33-35-38-41-44 lykkjur sem eftir eru (= vinstra framstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 135-143-155-167-183-199 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi (= 5-5-6-6-7-8 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið mynstur eins og áður yfir 14-14-14-16-16-16 lykkjur í A.2 og A.3, prjónið garðaprjón yfir miðju 4 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 2 lykkjur garðaprjón hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið) og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan eins og áður. Þær lykkjur sem eftir eru í umferð eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 15 cm frá skiptingu, setjið fyrstu og síðustu 36-38-41-44-48-52 lykkjur á þráð fyrir hægra og vinstra framstykki = 63-67-73-79-87-95 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið nú framstykki og bakstykki til loka hvort fyrir sig þannig að það myndist klauf í hvorri hlið.

BAKSTYKKI:
Nú eru 63-67-73-79-87-95 lykkjur fyrir bakstykki. Prjónið mynstur A.2/A.3, sléttprjón og 2 lykkjur í garðaprjón í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist 26 cm frá skiptingu, aukið út um 10-10-10-12-14-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 73-77-83-91-101-109 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir í grófari prjóna þegar fellt er af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka lykkjur af bandi á hringprjón 7 = 36-38-41-44-48-52 lykkjur. Prjónið mynstur A.3, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur í garðaprjóni að hlið og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar stykkið mælist 26 cm frá skiptingu (stillið af eftir bakstykki) aukið út um 5-5-6-7-7-7 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 41-43-47-51-55-59 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í annarri hliðinni og 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hinni hliðinni. Þegar stroffið mælist 4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar fellt er af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki.

ERMI:
Setjið 35-40-42-45-46-47 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjón 7 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 45-50-54-57-60-63 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp (= 5-5-6-6-7-8 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4-4-3-5-4-3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með ca 4-3-3-2-2-2 cm millibili alls 8-10-11-12-12-13 sinnum = 29-30-32-33-36-37 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 38-37-35-34-32-31 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-6-6-7-8-9 lykkjur jafnt yfir = 34-36-38-40-44-46 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 6 og prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 42-41-39-38-36-35 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið (það eiga að myndast göt).
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Harriet wrote:

This pattern doesn't say how much yarn you need for each size!

14.02.2024 - 13:49

DROPS Design answered:

Dear Harriet, you will find the requested amount of yarn under the header, ie in Size S for example you will need 350 g DROPS Sky / 50 g a ball = 7 balls. Happy knitting!

14.02.2024 - 16:29

country flag Cecilia wrote:

No entiendo esto: recoger 1 punto en cada uno de los 10-10-12-12-14-16 puntos montados bajo la manga

04.06.2022 - 01:01

DROPS Design answered:

Hola Cecilia. Puedes ver la técnica en el siguiente link: https://www.garnstudio.com/video.php?id=59&lang=es.

04.06.2022 - 16:56

country flag Raquel wrote:

Muchas gracias por vuestro trabajo. He hecho varios proyectos de Drops y estoy muy satisfecha con los resultados. Tengo una duda con este, ¿se puede hacer este patrón con un solo hilo?

03.05.2022 - 09:38

DROPS Design answered:

Hola Raquel, si quieres seguir el patrón, tendrías que trabajar con un solo hilo de una lana del grupo D (Melody); para trabajar con un solo hilo de Sky tendrías que recalcular el número de puntos.

05.05.2022 - 21:34

country flag Christine wrote:

Bonjour. Je confirme le commentaire de Sandrine sur l'échantillon. J'ai rencontré exactement le même problème, le mien faisait 18 mailles pour 10 cm. Que ce soit avec des aiguilles 7 ou 6 (le numéro n'est pas précisé pour l'échantillon du modèle), il est impossible d'obtenir les 13 mailles pour 10 cm.

28.01.2022 - 16:51

country flag Sandrine wrote:

Je tiens à signaler que mon échantillon est assez différent de celui annoncé. Je suis à 15 mailles et 20 rangs pour 10 cm. C'est assez inhabituel, j'ai rarement une telle différence. Je tricote donc ce beau modèle que je tiens vraiment à porter, en XXL au lieu de M/L.

15.04.2021 - 10:47

country flag Katarina Elisabeth Nordlund wrote:

Hej! Kan jag använda drops karisma till denna kofta??? Mvh Katarina

14.09.2020 - 20:41

DROPS Design answered:

Hej Katarina. Karisma tillhör garngrupp B så det ska gå bra att använda det garnet istället ( 2 trådar). Koftan kommer bli tyngre eftersom DROPS Sky är ett lättare garn, bara så du tänker på det. Se bara till att få den stickfasthet som står i mönstret och att beräkna riktig garnåtgång. Mvh DROPS Design

15.09.2020 - 07:32

country flag Catherine wrote:

J'aurais souhaité faire ce modèle en alpaca et en fil simple. Pouvez-vous m'indiquer le nombre de pelotes nécessaires et quelle quantité de mailles dois-je faire pour commencer l'ouvrage ? En vous remerciant

11.03.2020 - 13:04

DROPS Design answered:

Bonjour Catherine, ce modèle a été écrit sur la base d'un échantillon de 13 x 15 rangs = 10 x 10 cm; soit avec 2 fils du groupe B (= Sky) soit avec 1 fil du groupe D (plus d'infos sur les alternatives- si vous avez un autre échantillon, il vous faudra entièrement recalculer les explications (cf FAQ. Nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir réécrire chaque modèle pour répondre à chaque demande, mais vous pouvez contacter votre magasin ou un forum tricot; Merci pour votre compréhension. Bon tricot!

11.03.2020 - 13:59

country flag Isabelle wrote:

Bonjour, merci pour votre réponse. Mais vos explications ne correspondent pas à ce que je peux lire des diagramme : vous dites : A.3 (qui se termine par 1 jeté aux rangs 1 et 3), or sur le diagramme de ce gilet A3 commence par 1 jeté aux rangs 1 et 3. A.4. C’est l.inverse également pour A.2 qui fini par 1 jeté aux rangs 1 et 3. Par ailleurs je ne comprends pas comment se fonts les trous sur chaque devant. Merci.

24.11.2019 - 19:44

DROPS Design answered:

Bonjour Isabelle, le 1er rang des diagrammes se tricote sur l'endroit; ainsi on lit A.3 de droite à gauche au 1er rang: ex en taille S-M-L: on tricote 12 m: 2 m end, 1 m env, 3 m end, 1 m env, 3 m end, 1 m env, 1 m end, 1 jeté (= on a maintenant 13 m). Les jetés des manches se font après la m end du début de la manche et avant la m end de la fin de la manche, donc pas dans A.3 ni A.4. Les trous que l'on voit sur la photo sont les augmentations du raglan: côté devant par ex. c'est le jeté au début de A.1/ à la fin de A.1 (devant gauche), et celui après A.2 (qui n'est pas dans le diagramme = augmentation manche). Bon tricot!

25.11.2019 - 10:30

country flag Isabelle wrote:

Bonjour, j’ai commencé le tricot mais j’ai l’impression qu’il faut lire les indications de chaque diagramme de droite vers la gauche. Est ce bien cela? Ce qui me fait dire cela c’est lorsque je lis qu’il y a « + 1 maille de chaque côté de la maille du milieu dos (A4) » donc le cycle A3 doit se terminer par le jeté puis A4 puis A2 qui commence avec 1 jeté. Est ce que ma lecture est correcte? Merci

11.11.2019 - 19:21

DROPS Design answered:

Bonjour Isabelle, les diagrammes se lisent de gauche à droite sur l'endroit et de droite à gauche sur l'envers. Au début du dos on tricote: A.3 (qui se termine par 1 jeté aux rangs 1 et 3), A.4 (= 1 m pendant 4 rangs) et A.2 (qui commence par 1 jeté aux rangs 1 et 3). Bon tricot!

12.11.2019 - 08:21

country flag Dekkers Natalie wrote:

Hallo! Ik kom met het proeflapje niet uit ik kom met naaldgrote 8 op 13 steken op 18 rijen voor 10 bij 10 en niet op 15 rijen. Op 7 ook geprobeerd daar word het veels te klein. Vierkante naalden geprobeerd. Heb nog nooit een patroon omgerekend. Heb wel jullie wol gekocht Sky mix maar in kleur nummer 17. Snap er niks van heb gewoon los gebreid.

04.07.2019 - 17:12

DROPS Design answered:

Dag Natalie,

Het is natuurlijk het mooist als de stekenverhouding in de hoogte ook klopt, maar het is het belangrijkst dat hij in de breedte klopt. In dit patroon kun je na het breien van de meerderingen voor de raglan doorbreien in textuurpatroon tot je op de juiste lengte bent om het werk te splitsen voor het lijf en de mouwen (zie paragraaf die boven 'LIJF' staat), dus waarschijnlijk zal dit niet een probleem zijn, zolang de stekenverhouding in de breedte maar overeenkomt.

08.07.2019 - 11:11