DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Sweet Nothing Cardigan

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 199-19
DROPS Design: Mynstur sk-039
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100-100-100-100-100 g litur 13, ljós gallabuxnablár
100-150-150-150-150-200 g litur 12, gallabuxnablár
100-100-150-150-150-150 g litur 07, ljós sægrænn

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Hringlaga (blá) NR 612: 6-6-6-6-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 95 lykkjur) mínus kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið (= 4 lykkjur) og deilið lykkjunum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 4,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI:
Rendur eru prjónaðar þannig:
Rönd-1: Prjónið 18-19-19-20-21-21 cm með litnum ljós gallabuxnablár.
Rönd-2: Prjónið 18-18-19-20-20-21 cm með litnum gallabuxnablár.
Rönd-3: Prjónið með litnum ljós sægrænn til loka (= 17-18-19-19-20-21 cm).

RENDUR Á ERMI:
Haldið áfram með litinn gallabuxnablár þar til röndin mælist alls 23 cm í öllum stærðum, prjónið síðan með litnum ljós sægrænn til loka.

LASKALÍNA (á við um ermar):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir prjónamerki á ermum þannig: Prjónið fram að fyrsta prjónamerki á ermi, (prjónamerki situr hér), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið fram að 1 lykkju á undan næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, (= prjónamerki situr hér). Endurtakið á hinni erminni (= 4 lykkjur fleiri í umferð. Í næstu umferð (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Fellið af næstu 2 lykkjur, prjónið næstu 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroffið í hálsi mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-6-6 næstu með ca 9-9-10-10-9-9 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka í eitt niður að klauf í hliðum, síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka til loka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 103-107-111-115-119-123 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3,5 með litnum ljós gallabuxnablár. Prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (rétta): prjónið slétt.
UMFERÐ 3: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, brugðnar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, 5 kantlykkjur í garðaprjóni.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan og mynstur þannig:
5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 1 lykkja), A.2 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (= 16-16-16-20-20-20 lykkjur), setjið 1 prjónamerki hér (= vinstra framstykki), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn 11-13-15-9-11-13 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= ermi), A.3 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (= 16-16-16-20-20-20 lykkjur), A.4 (= 1 lykkja, þ.e.a.s. miðja að aftan), A.2 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð, setjið eitt prjónamerki hér (= bakstykki), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 11-13-15-9-11-13 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= ermi), A.3 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð, A.5 (= 1 lykkja) (= hægra framstykki), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á ermi, auknar hafa verið út 2 lykkjur mitt að aftan (hvoru megin við miðjulykkju = A.4), aukin hefur verið út 1 lykkja í hvort framstykki (á eftir A.1 og á undan A.5) = 111-115-119-123-127-131 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram fram og til baka og aukið út fyrir laskalínu á ermum í annarri hverri umferð 21-25-26-31-31-30 sinnum til viðbótar (alls 22-26-27-32-32-31 sinnum), JAFNFRAMT þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru endurteknar síðustu 2 umferðirnar á hæðina 20-23-27-28-33-36 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. þar til það eru 49-55-63-65-75-81 lykkjur sléttprjón á milli A.2 og A.3 á bakstykki og það eru 25-28-32-33-38-41 lykkjur sléttprjón á milli A.2/A.3 og á kanti að framan á hvoru framstykki) = 295-327-351-379-403-415 lykkjur. Haldið síðan áfram með áferð yfir 18-18-18-22-22-22 lykkjur í A.2 og A.3, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og sléttprjóni yfir þær lykkjur sem eftir eru þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm mælt frá uppfitjunarkanti og niður mitt að framan.
Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 48-51-55-60-65-68 lykkjurnar (= hægra framstykki), setjið næstu 57-67-71-75-77-77 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-18 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 85-91-99-109-119-125 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 57-67-71-75-77-77 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-18 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 48-51-55-60-65-68 lykkjur sem eftir eru í umferð eins og áður (= vinstra framstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 201-213-233-253-277-297 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermum (= 5-5-6-6-7-9 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið síðan áfram með 2 síðustu umferðir í A.2 og A.3, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan, prjónið garðaprjón yfir 4 miðjulykkjur undir ermum (= 2 lykkjur í garðaprjóni hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið) og þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 16 cm eru fyrstu og síðustu 53-56-61-66-72-77 lykkjur settar á þráð fyrir vinstra og hægra framstykki. Síðan er fram- og bakstykki prjónað til loka hvort fyrir sig þannig að það myndist klauf í hvorri hlið.

BAKSTYKKI:
= 95-101-111-121-133-143 lykkjur. Prjónið mynstur A.1/A.3, sléttprjón og 2 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist 27 cm er aukið út um 20-20-22-24-26-28 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 115-121-133-145-159-171 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 2 kantlykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir í grófari prjóna ef affellingarkanturinn verður stífur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka 53-56-61-66-72-77 lykkjur af þræði á hringprjón 4,5. Prjónið mynstur fram og til baka eins og áður. Þegar stykkið mælist 27 cm er prjónuð 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 9-9-11-11-13-15 lykkjur jafnt yfir = 62-65-72-77-85-92 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 2 kantlykkjur í garðaprjóni að hlið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Þegar stoffið mælist 4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir í einu númeri grófari prjónum þegar fellt er af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki nema spegilmynd.

ERMI:
Setjið 57-67-71-75-77-77 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 67-77-83-87-91-95 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi (= 5-5-6-6-7-9 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn og RENDUR ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum í mismunandi stærðum þannig:
Stærð S: Fækkið lykkjum með 2 cm millibili 7 sinnum og með 3 cm millibili 6 sinnum.
Stærð M: Fækkið lykkjum með 2 cm millibili 12 sinnum og 3 cm millibili 3 sinnum.
Stærð L: Fækkið lykkjum með 1 cm millibili 5 sinnum og með 2 cm millibili 12 sinnum.
Stærð XL: Fækkið lykkjum með 1 cm millibili 9 sinnum og með 2 cm millibili 9 sinnum.
Stærð XXL: Fækkið lykkjum með 1 cm millibili 12 sinnum og með 2 cm millibili 7 sinnum.
Stærð XXXL: Fækkið lykkjum með 1 cm millibili 16 sinnum og með 2 cm millibili 4 sinnum.
Þegar allar úrtökur hafa verið gerðar til loka eru 41-47-49-51-53-55 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 39-38-36-35-33-32 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9-9-9-11-11-11 lykkjur jafnt yfir = 50-56-58-62-64-66 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn erði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 43-42-40-39-37-36 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt (það eiga að myndast göt)
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Conny Fahrendorf wrote:

Zijn alleen de heengaande naalden in het patroon getekend?

22.08.2021 - 11:49

DROPS Design answered:

Dag Conny,

Nee, zowel de heengaande als de teruggaande naalden zijn in het telpatroon getekend.

03.09.2021 - 10:22

country flag Anne wrote:

Hej igen, bare glem mit “knaphuls spørgsmål” jeg havde åbenbart ikke fået skrevet hele opskriften ud !

31.08.2019 - 13:38

DROPS Design answered:

Hej Anne, Super - god fornøjelse! :)

02.09.2019 - 15:32

country flag Anne wrote:

Er lige begyndt på denne model og har strikket de første 4 pinde. I opskriften står der så “husk knaphul”. Dette skal selvfølgelig strikkes i de 5 ret m kanten, men over hvor mange masker og hvor i opskriften står der noget om det?

31.08.2019 - 10:04

DROPS Design answered:

Hej Anne, ser at du har fundet svaret selv :)

02.09.2019 - 15:31

country flag Gry Rønnevik wrote:

Hei. Hvis jeg legger sammen alle mønstrene som er oppgitt får jeg 132 masker, mens det i oppskrifta bare står oppført 119masker. På størrelse L. Får da 5 stolper rille, A1=1m, A2=16-m, 1mr, 1k, 15r, 1k, 1r, A3=16m, A4=1m, A2=16m, 1r, 1k, 15 m, 1k, 1r, A3=16-m, A5=1m, 5stolpemasker. Dette blir 132 m, men det står oppført 119m. Hvor er feilen?

02.08.2019 - 10:39

DROPS Design answered:

Hej Gry, hvis du lægger dine tal sammen så får du 111 m (uden kast) + 4 kast (på hver side af ærmet) + 4 kast (fra diagrammerne) = 119 masker. God fornøjelse!

02.08.2019 - 11:43

country flag Christa wrote:

Toll ich habe gerade die deutsche Uebersetzung gefunden,freue mich sehr,bin am nachdenken ob ich beide Jacke und Pullover stricke. Besten Dank Christa.

28.03.2019 - 15:19

country flag Martine wrote:

Proposez le même au crochet. Merci

18.12.2018 - 08:43

country flag Ilovedogs wrote:

Bello e adatto a qualunque età

17.12.2018 - 19:46

country flag Chantal wrote:

Bonsoir ... J'adore ce modèle, il est chic tout en étant tout allé... Bien Habillée pour les jeunes aux ainées ! BRAVO à tous vos CRÉATEURS et grand merci de nous donner la possibilité de les réaliser avec tous vos tutos que vos nous proposés ! ... Cordialement Vôtre Chantal

13.12.2018 - 00:24

country flag Angelika wrote:

Raglan-Teile bevorzuge ich besonders, da sie sich viel besser stricken und individuell anpassen lassen. Außerdem entfällt das lästige Zusammennähen. Diese Jacke gefällt mir sehr gut in ihrer Farb- und Formgebung.

11.12.2018 - 19:10