Jolina |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROP Kid-Silk. Stykkið er prjónað í garðaprjóni með gatamynstri og ¾ löngum blöðruermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 200-23 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um hliðar á ermum): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju og prjónið 2 lykkjur slétt saman. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti brugðið saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 18, 25 og 32 cm M: 18, 26 og 34 cm L: 19, 27 og 35 cm XL: 19, 25, 31 og 37 cm XXL: 20, 26, 32 og 38 cm XXXL: 22, 28, 34 og 40 cm ATH: Síðustu af þessum 3-3-3-4-4-4 hnappagötum eru felld af í fyrstu umferð þegar lykkjur eru prjónaðar upp fyrir kanti í hálsmáli. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, neðan frá og upp að handveg. Fellt er af fyrir handveg. Síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp. Stykkið er síðan saumað saman í lokin. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 179-195-219-243-267-299 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3,5 með 2 þráðum Kid-Silk (þetta er gert til að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði stífur). Takið frá annan þráðinn og prjónið síðan með 1 þræði Kid-Silk þannig: Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, en 5 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar brugðið í öllum umferðum til loka (= kantur að framan – þegar kantur að framan er prjónaður brugðið í hverri umferð þá verða þær aðeins meira sýnilegri miðað við afgang af stykki). Eftir 4 umferðir garðaprjón, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan brugðið, prjónið A.1 (= 4 lykkjur), prjónið A.2 þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð (= 20-22-25-28-31-35 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.3 (= 5 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjur að framan brugðið. Haldið svona áfram með mynstur þar til prjónaðar hafa verið alls 3 einingar á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið mælist nú ca 9 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið 1 prjónamerki 47-51-57-63-69-77 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 85-93-105-117-129-145 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur, en kantar að framan eru prjónaðir brugðið í hverri umferð eins og áður. Þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4-4-5-5-5-6 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 195-211-235-259-283-315 lykkjur. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan! Prjónið áfram þar til stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm. Nú byrjar affelling fyrir handveg. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 48-52-56-61-67-74 lykkjur eins og áður (= vinstra framstykki), fellið af 6-6-10-12-12-14 lykkjur fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 3-3-5-6-6-7 lykkjur hvoru megin við prjónamerki), prjónið 87-95-103-113-125-139 lykkjur slétt (= bakstykki), fellið af 6-6-10-12-12-14 lykkjur fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 3-3-5-6-6-7 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) og prjónið þær 48-52-56-61-67-74 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hægra framstykki). Framstykkin og bakstykki er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): = 48-52-56-61-67-74 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni og 5 kantlykkjur að framan við miðju að framan sem prjónaðar eru brugðið í hverri umferð. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 0-1-1-2-2-3 sinnum og síðan 1 lykkju 1-2-5-6-10-14 sinnum = 47-48-49-51-53-54 lykkjur eftir á framstykki. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 32-34-35-37-38-40 cm. Setjið nú ystu 8-8-9-9-10-10 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að klippa frá þráðinn sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráðinn. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverir umferð frá hálsi þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 4 sinnum og 1 lykkju 4 sinnum = 24-25-25-27-28-29 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Felið laust af með sléttum lykkjum frá réttu og 2 þráðum Kid-Silk (þetta er gert til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur). VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): = 48-52-56-61-67-74 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni og 5 kantlykkjur að framan við miðju að framan sem prjónaðar eru brugðið í hverri umferð. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 0-1-1-2-2-3 sinnum og síðan 1 lykkju 1-2-5-6-10-14 sinnum = 47-48-49-51-53-54 lykkjur eftir á framstykki. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 32-34-35-37-38-40 cm. Setjið nú ystu 8-8-9-9-10-10 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að klippa frá þráðinn sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverir umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 4 sinnum og 1 lykkju 4 sinnum = 24-25-25-27-28-29 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Felið laust af með sléttum lykkjum frá réttu og 2 þráðum Kid-Silk. BAKSTYKKI: = 87-95-103-113-125-139 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 0-1-1-2-2-3 sinnum og síðan 1 lykkju 1-2-5-6-10-14 sinnum = 85-87-89-93-97-99 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm. Fellið nú af miðju 33-33-35-35-37-37 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi = 24-25-25-27-28-29 lykkjur eftir. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu og 2 þráðum Kid-Silk. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 56-58-60-62-64-66 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3 með 2 þráðum Kid-Silk. Takið frá annan þráðinn og prjónið síðan með 1 þræði Kid-Silk þannig: Prjónið 10 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju í hverja lykkju með því að prjóna sléttar lykkjur bæði framan í og aftan í allar lykkjurnar í umferð = 112-116-120-124-128-132 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 5 cm, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 1½ cm millibili þar til fækkað hefur verið alls 18-17-16-15-14-14 sinnum í hvorri hlið = 76-82-88-94-100-104 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 33-33-31-31-30-28 cm. Fellið nú af í hvorri hlið fyrir ermakúpu. Þ.e.a.s. fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, 2 lykkjur 3-3-5-6-6-6 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkja 3-4-6-7-9-16 sinnum í hvorri hlið. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 37-38-38-39-39-40 cm. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið og fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru með sléttum lykkjum frá réttu og 2 þráðum Kid-Silk. Ermin mælist ca 38-39-39-40-40-41 cm ofan frá og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Saumið ermar í – saumið í ystu lykkju meðfram handveg. Saumið tölur í vinstri kant að framan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 114 til 130 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 3 með 1 þræði Kid-Silk og fellið JAFNFRAMT af fyrir síðasta hnappagatinu í hægri kanti að framan. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu, 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu og 2 þráðum Kid-Silk. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (37)
Annie JAVOY wrote:
Bonjour.pourriez vous me donner les instructions si je veux tricoter les manches en tubulaire avec les aiguilles circulaires pour qu il n y ai pas de coutures . Merci d avance
13.05.2024 - 16:06DROPS Design answered:
Bonjour Mme Javoy, pour un gilet sans coutures, vous pouvez consulter nos modèles de gilets ou vestes avec emmanchures raglan, empiècement arrondi, manches marteau ou même épaules européennes - retrouvez-les tous ici et choisissez le type d'empiècement et le type de construction, autrement dit, à tricoter de bas en haut ou de haut en bas, n'hésitez pas à ajouter des filtres si besoin. Bon tricot!
14.05.2024 - 07:27Annie JAVOY wrote:
Bo jour j aimerai me tricoter ce beau gilet jolina . J ai acheté 6 pelotes kid s'il et un kit d aiguilles circulaires drops romance Je ne comprends pas pour les explications du modèle si la taille 3,5 corresponds à une taille us ou en taille mm Cordialement
08.05.2024 - 16:34DROPS Design answered:
Bonjour Mme Javoy, pour trouver votre taille, mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma (indiquées en cm), retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!
10.05.2024 - 07:42Christine Schwarz wrote:
Hallo zusammen, ich stricke gerade das Modell 200-23 und würde gerne wissen, ob in der Rückrunde bei dem Muster der Umschlag auch rechts gestrickt wird, oder ob man die Masche von der Nadel fallen lässt. Ich würde mich über eine zeitnahe Antwort von Ihnen freuen. Viele Grüße Christine Schwarz
25.01.2023 - 11:24DROPS Design answered:
Liebe Frau Schwarz, die Diagramme zeigen alle Reihen im Muster, dh bei den Rückreihen werden alle Maschen sowie Umschläge rechts gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
25.01.2023 - 12:16Antoinette Allocco Edlund wrote:
När jag skrev ut mönstret kom inte diagrammet med
01.03.2022 - 20:41Antoinette Allocco Edlund wrote:
På mönstret står det att 10x10 cm Är 23 m på bredde och 45 varv på höjden På garnbanderollen står det 10x10 cm 23 m på bredden och 30 på höjden Allt på drivor 3 1/2 Vilket är det rätta
01.03.2022 - 20:28DROPS Design answered:
Hej Antoinette. Stickfastheten på banderollen är i slätstickning och på mönstret är det uppgett i rätstickning. Du ska alltså få den stickfasthet som uppges på mönstret i rätstickning. Mvh DROPS Design
02.03.2022 - 11:50Vasantha Nathan wrote:
Total how many 12 rows of pattern do you knit?r . You say 3 repeats of pattern according to diagram. so total 4 pattern set of 12 rows. am I right? Thanks
26.02.2022 - 01:34DROPS Design answered:
Dear Vasantha, you work 3 repeats in total, so you need to work 3 x 12 pattern rows. The rest is worked in garter stitch. Happy knitting!
27.02.2022 - 17:40Vasantha Nathan wrote:
I am making this for my grand daughter who is 14 years 9 months. I am not sure what size to make? You have given the finished size in the pattern. How do I correlate the finished size to actual bust size? If her bust is 30", do I make small size or medium? I am having problem understanding the diagram. I am making jolina drops 200-23
26.02.2022 - 01:04DROPS Design answered:
Dear Vasantha, the measurements in the schematic are in cm. You could work size S, which has a bust of 31.50". However, due to the shape of the jacket, you need to measure the waist, which is approx. 30" as well. If the waist is larger, you would need to work the medium size. Happy knitting!
27.02.2022 - 17:38Antoinette Edlund Till Mönster Jolina wrote:
Har ni någon storleksguide och när får ni in färg månsken i kid silk
19.02.2022 - 11:30DROPS Design answered:
Hei Antoinette. Du finner størrelseoversikten / målskissen til denne jakken nederst på oppskriften. Der er alle mål i cm. Fargen måneskinn nr. 44 er på hovedlagret, så om din butikk er tom, er det bare å be de bestille inn fargen. mvh DROPS Design
21.02.2022 - 11:34Zee wrote:
Hello, this jacket looks so beautiful, light and soft. I was actually looking for a knee-long cardigan when stumbled upon this one... and was thus wondering, would it be possible for this combination of yarn/needle/pattern to keep on knitting until the total length of about 110cm? Would it work, in your opinion? Thank you so much for a reply!
24.01.2022 - 12:45DROPS Design answered:
Dear Zee, you will find some long jackets or long coat in Vivaldi (Brushed is a good alternative) or another long coat wiht 2 strands Kid-Silk, maybe you can find even more inspiration among all our patterns for cardigans?
25.01.2022 - 08:33Alex wrote:
Is it possible to knit this knit with 2 threads of kid-silk instead of 1 thread?
07.06.2021 - 19:47DROPS Design answered:
Dear Alex, while it is of course possible, you have to be aware, that knitting it with double strands would throw off the gauge, and you will have to entirely recalculate the stitchcounts and such. Happy Knitting!
07.06.2021 - 23:33