DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5720.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Jolina

Prjónuð peysa úr DROP Kid-Silk. Stykkið er prjónað í garðaprjóni með gatamynstri og ¾ löngum blöðruermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 200-23
DROPS Design: Mynstur ks-144
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-125-125-125-150-150 g litur 30, karrí

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 45 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 80 cm fyrir garðaprjón og gatamynstur.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 3-3-3-4-4-4 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5720.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um hliðar á ermum):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman.
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju og prjónið 2 lykkjur slétt saman.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti brugðið saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 18, 25 og 32 cm
M: 18, 26 og 34 cm
L: 19, 27 og 35 cm
XL: 19, 25, 31 og 37 cm
XXL: 20, 26, 32 og 38 cm
XXXL: 22, 28, 34 og 40 cm
ATH: Síðustu af þessum 3-3-3-4-4-4 hnappagötum eru felld af í fyrstu umferð þegar lykkjur eru prjónaðar upp fyrir kanti í hálsmáli.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, neðan frá og upp að handveg. Fellt er af fyrir handveg. Síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp. Stykkið er síðan saumað saman í lokin.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 179-195-219-243-267-299 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3,5 með 2 þráðum Kid-Silk (þetta er gert til að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði stífur). Takið frá annan þráðinn og prjónið síðan með 1 þræði Kid-Silk þannig: Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, en 5 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar brugðið í öllum umferðum til loka (= kantur að framan – þegar kantur að framan er prjónaður brugðið í hverri umferð þá verða þær aðeins meira sýnilegri miðað við afgang af stykki).
Eftir 4 umferðir garðaprjón, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan brugðið, prjónið A.1 (= 4 lykkjur), prjónið A.2 þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð (= 20-22-25-28-31-35 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.3 (= 5 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjur að framan brugðið. Haldið svona áfram með mynstur þar til prjónaðar hafa verið alls 3 einingar á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið mælist nú ca 9 cm frá uppfitjunarkanti.
Setjið 1 prjónamerki 47-51-57-63-69-77 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 85-93-105-117-129-145 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki.
Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur, en kantar að framan eru prjónaðir brugðið í hverri umferð eins og áður.
Þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4-4-5-5-5-6 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 195-211-235-259-283-315 lykkjur. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan! Prjónið áfram þar til stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm.
Nú byrjar affelling fyrir handveg. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 48-52-56-61-67-74 lykkjur eins og áður (= vinstra framstykki), fellið af 6-6-10-12-12-14 lykkjur fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 3-3-5-6-6-7 lykkjur hvoru megin við prjónamerki), prjónið 87-95-103-113-125-139 lykkjur slétt (= bakstykki), fellið af 6-6-10-12-12-14 lykkjur fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 3-3-5-6-6-7 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) og prjónið þær 48-52-56-61-67-74 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hægra framstykki). Framstykkin og bakstykki er síðan prjónað hvert fyrir sig.

HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
= 48-52-56-61-67-74 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni og 5 kantlykkjur að framan við miðju að framan sem prjónaðar eru brugðið í hverri umferð. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 0-1-1-2-2-3 sinnum og síðan 1 lykkju 1-2-5-6-10-14 sinnum = 47-48-49-51-53-54 lykkjur eftir á framstykki. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 32-34-35-37-38-40 cm. Setjið nú ystu 8-8-9-9-10-10 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að klippa frá þráðinn sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráðinn.
Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverir umferð frá hálsi þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 4 sinnum og 1 lykkju 4 sinnum = 24-25-25-27-28-29 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Felið laust af með sléttum lykkjum frá réttu og 2 þráðum Kid-Silk (þetta er gert til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur).

VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
= 48-52-56-61-67-74 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni og 5 kantlykkjur að framan við miðju að framan sem prjónaðar eru brugðið í hverri umferð. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 0-1-1-2-2-3 sinnum og síðan 1 lykkju 1-2-5-6-10-14 sinnum = 47-48-49-51-53-54 lykkjur eftir á framstykki. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 32-34-35-37-38-40 cm. Setjið nú ystu 8-8-9-9-10-10 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að klippa frá þráðinn sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn.
Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverir umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 4 sinnum og 1 lykkju 4 sinnum = 24-25-25-27-28-29 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Felið laust af með sléttum lykkjum frá réttu og 2 þráðum Kid-Silk.

BAKSTYKKI:
= 87-95-103-113-125-139 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 0-1-1-2-2-3 sinnum og síðan 1 lykkju 1-2-5-6-10-14 sinnum = 85-87-89-93-97-99 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm. Fellið nú af miðju 33-33-35-35-37-37 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi = 24-25-25-27-28-29 lykkjur eftir. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu og 2 þráðum Kid-Silk.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 56-58-60-62-64-66 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3 með 2 þráðum Kid-Silk. Takið frá annan þráðinn og prjónið síðan með 1 þræði Kid-Silk þannig: Prjónið 10 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju í hverja lykkju með því að prjóna sléttar lykkjur bæði framan í og aftan í allar lykkjurnar í umferð = 112-116-120-124-128-132 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur.
Þegar stykkið mælist 5 cm, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 1½ cm millibili þar til fækkað hefur verið alls 18-17-16-15-14-14 sinnum í hvorri hlið = 76-82-88-94-100-104 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 33-33-31-31-30-28 cm. Fellið nú af í hvorri hlið fyrir ermakúpu. Þ.e.a.s. fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, 2 lykkjur 3-3-5-6-6-6 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkja 3-4-6-7-9-16 sinnum í hvorri hlið. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 37-38-38-39-39-40 cm. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið og fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru með sléttum lykkjum frá réttu og 2 þráðum Kid-Silk. Ermin mælist ca 38-39-39-40-40-41 cm ofan frá og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Saumið ermar í – saumið í ystu lykkju meðfram handveg. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp frá réttu ca 114 til 130 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 3 með 1 þræði Kid-Silk og fellið JAFNFRAMT af fyrir síðasta hnappagatinu í hægri kanti að framan.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu, 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu og 2 þráðum Kid-Silk.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu
symbols = brugðið frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = 1 mynstureining á hæðina
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 200-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (36)

country flag Annie JAVOY wrote:

Bo jour j aimerai me tricoter ce beau gilet jolina . J ai acheté 6 pelotes kid s'il et un kit d aiguilles circulaires drops romance Je ne comprends pas pour les explications du modèle si la taille 3,5 corresponds à une taille us ou en taille mm Cordialement

08.05.2024 - 16:34

country flag Christine Schwarz wrote:

Hallo zusammen, ich stricke gerade das Modell 200-23 und würde gerne wissen, ob in der Rückrunde bei dem Muster der Umschlag auch rechts gestrickt wird, oder ob man die Masche von der Nadel fallen lässt. Ich würde mich über eine zeitnahe Antwort von Ihnen freuen. Viele Grüße Christine Schwarz

25.01.2023 - 11:24

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schwarz, die Diagramme zeigen alle Reihen im Muster, dh bei den Rückreihen werden alle Maschen sowie Umschläge rechts gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

25.01.2023 - 12:16

country flag Antoinette Allocco Edlund wrote:

När jag skrev ut mönstret kom inte diagrammet med

01.03.2022 - 20:41

country flag Antoinette Allocco Edlund wrote:

På mönstret står det att 10x10 cm Är 23 m på bredde och 45 varv på höjden På garnbanderollen står det 10x10 cm 23 m på bredden och 30 på höjden Allt på drivor 3 1/2 Vilket är det rätta

01.03.2022 - 20:28

DROPS Design answered:

Hej Antoinette. Stickfastheten på banderollen är i slätstickning och på mönstret är det uppgett i rätstickning. Du ska alltså få den stickfasthet som uppges på mönstret i rätstickning. Mvh DROPS Design

02.03.2022 - 11:50

country flag Vasantha Nathan wrote:

Total how many 12 rows of pattern do you knit?r . You say 3 repeats of pattern according to diagram. so total 4 pattern set of 12 rows. am I right? Thanks

26.02.2022 - 01:34

DROPS Design answered:

Dear Vasantha, you work 3 repeats in total, so you need to work 3 x 12 pattern rows. The rest is worked in garter stitch. Happy knitting!

27.02.2022 - 17:40

country flag Vasantha Nathan wrote:

I am making this for my grand daughter who is 14 years 9 months. I am not sure what size to make? You have given the finished size in the pattern. How do I correlate the finished size to actual bust size? If her bust is 30", do I make small size or medium? I am having problem understanding the diagram. I am making jolina drops 200-23

26.02.2022 - 01:04

DROPS Design answered:

Dear Vasantha, the measurements in the schematic are in cm. You could work size S, which has a bust of 31.50". However, due to the shape of the jacket, you need to measure the waist, which is approx. 30" as well. If the waist is larger, you would need to work the medium size. Happy knitting!

27.02.2022 - 17:38

country flag Antoinette Edlund Till Mönster Jolina wrote:

Har ni någon storleksguide och när får ni in färg månsken i kid silk

19.02.2022 - 11:30

DROPS Design answered:

Hei Antoinette. Du finner størrelseoversikten / målskissen til denne jakken nederst på oppskriften. Der er alle mål i cm. Fargen måneskinn nr. 44 er på hovedlagret, så om din butikk er tom, er det bare å be de bestille inn fargen. mvh DROPS Design

21.02.2022 - 11:34

country flag Zee wrote:

Hello, this jacket looks so beautiful, light and soft. I was actually looking for a knee-long cardigan when stumbled upon this one... and was thus wondering, would it be possible for this combination of yarn/needle/pattern to keep on knitting until the total length of about 110cm? Would it work, in your opinion? Thank you so much for a reply!

24.01.2022 - 12:45

DROPS Design answered:

Dear Zee, you will find some long jackets or long coat in Vivaldi (Brushed is a good alternative) or another long coat wiht 2 strands Kid-Silk, maybe you can find even more inspiration among all our patterns for cardigans?

25.01.2022 - 08:33

country flag Alex wrote:

Is it possible to knit this knit with 2 threads of kid-silk instead of 1 thread?

07.06.2021 - 19:47

DROPS Design answered:

Dear Alex, while it is of course possible, you have to be aware, that knitting it with double strands would throw off the gauge, and you will have to entirely recalculate the stitchcounts and such. Happy Knitting!

07.06.2021 - 23:33

country flag Frederike wrote:

Wat wordt er bedoeld met 'Naai de schoudernaden aan de binnenkant van de afkantrand' ? wat is de binnenkant van de afkantrand?

23.04.2021 - 10:04

DROPS Design answered:

Dag Frederike,

Het is de bedoeling dat je de schoudernaden aan de binnenkant, dus aan de verkeerde kant dicht naait, zodat je het aan de buitenkant niet ziet.

25.04.2021 - 18:25