Sweet Heather Jacket |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 201-19 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. GATARÖÐ: Útaukning fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki lýkur á undan útaukningu á ermum. Til þess að gataröðin sem er gerð með útaukningum innan við A.2 haldi áfram, prjónið niður að fram- og bakstykki með gatamynstri (A.3/A.4) innan við A.2 þannig: Prjónið A.3 þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.2 og ermi á bakstykki og þegar eftir eru 2 lykkjur á undan síðustu einingu með A.2 á framstykki. Prjónið A.4 eftir fyrstu mynstureiningu A.2 á framstykki og á eftir erum og A.2 á bakstykki. ÚTAUKNING-1 (á við um fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju innan við A.2 á framstykki og bakstykki (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið þannig að það myndist gat. Í hvert skipti sem aukið er út, eykst fjöldi lykkja í sléttprjóni á milli 2 eininga A.2 á bakstykki og á milli A.2 og 5 kantlykkjum að framan á framstykkjum. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 217 lykkjur), mínus kanta að framan og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 31) = 6,7. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 6. og 7. hverja hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Endurtakið á hinni hliðinni (= 4 lykkjur færri í umferð). ÚRTAKA-2 (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 6 næstu hnappagötum með ca 7½-8-8½-8½-9-9½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/ stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 149-149-157-157-165-165 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með Muskat. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 lykkja slétt, A.1 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir fyrstu 28-28-30-30-32-32 lykkjur, 1 lykkja slétt, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 8 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, A.1 yfir næstu 28-28-30-30-32-32 lykkjur, 1 lykkja slétt, A.1 yfir næstu 28-28-30-30-32-32 lykkjur, 1 lykkja slétt (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 8 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, A.1 yfir næstu 28-28-30-30-32-32 lykkjur, 1 lykkja slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina = 145-145-153-153-161-161 lykkjur. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú mynstur þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur (= vinstra framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= ermi), A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= miðju lykkja á bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= ermi), A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= hægra framstykki). Nú hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 20-24-26-30-35-38 sinnum = 305-337-361-393-441-465 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með sömu útaukningu fyrir laskalínu á ermum 4-4-5-3-0-1 sinnum til viðbótar (= alls 24-28-31-33-35-39 útaukningar á ermum). Á framstykki og bakstykki er nú prjónað mynstur A.3 og A.4, þannig að haldið er áfram með GATARÖÐ – sjá útskýringu að ofan, í annarri hverri umferð eins og áður án útaukningar. Þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í mynstri eins og áður. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka eru 321-353-381-405-441-469 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti og niður að miðju að framan. Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 53-57-61-65-72-75 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 60-68-74-78-82-90 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 95-103-111-119-133-139 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 60-68-74-78-82-90 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 53-57-61-65-72-75 lykkjur sem eftir eru í umferð (= framstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 217-233-253-269-301-317 lykkjur. Setjið prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum (= 4-4-5-5-6-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður, þ.e.a.s. prjónið þannig (frá réttu): 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón fram að A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur, sléttprjón yfir næstu 8-8-10-10-12-14 lykkjur og fækkið jafnframt út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hlið – sjá ÚRTAKA-1, prjónið A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, sléttprjón fram að næstu mynstureiningu A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur, sléttprjón yfir næstu 8-8-10-10-12-14 lykkjur og fækkið jafnframt um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – munið eftir ÚRTAKA-1, A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju innan við A.2 á framstykki og bakstykki – sjá ÚTAUKNING-1 (= 4 lykkjur fleiri) og fækkað hefur verið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið (= 4 lykkjur færri). Þ.e.a.s. lykkjufjöldinn er allan tímann sá sami. Haldið svona áfram með úrtöku og útaukningu í annarri hverri umferð alls 31-31-34-34-37-38 sinnum, þar til allt mynstrið í hliðum er horfið. Eftir umferð þar sem lykkjur í mynstri hafa horfið í hliðum, prjónið eins margar lykkjur í mynstri og pláss er fyrir. Þ.e.a.s. þegar ekki er lengur pláss til að prjóna úrtöku og uppslátt í gatamynstri í A.2, prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur. Þegar búið er að prjóna þannig að allt mynstrið í hliðum er horfið mælist stykkið ca 22-22-24-24-26-27 cm frá skiptingu. Prjónið nú sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 28 cm frá skiptingu (= ca 6-6-4-4-2-1 cm með sléttprjóni eftir mynstri í hlið). Aukið nú út um 31-35-39-39-43-47 lykkjur jafnt yfir = 248-268-292-308-344-364 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar fellt er af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 60-68-74-78-82-90 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 68-76-84-88-94-104 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp (= 4-4-5-5-6-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4-4-4-3-3-2 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermum – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 0-4-2-1½-1-1 cm millibili alls 1-4-7-7-9-12 sinnum (einungis 1 úrtaka í stærð S) = 66-68-70-74-76-80 lykkjur. Þegar ermin mælist 29-28-26-25-23-22 cm, aukið út um 6-8-6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir í umferð = 72-76-76-80-84-88 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir í grófari prjóna þegar fellt er af. Ermin mælist ca 32-31-29-28-26-25 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (20)
Figueras wrote:
Je ne comprends pas augmenter 20 fois tous les 2 rangs,ces augmentations se font elles sur tout le tricot -les 10 de bordure,ils disent 305 m je ne vois pas merci
16.07.2019 - 19:41DROPS Design answered:
Bonjour Mme Figueras, vous allez augmenter 20 fois au total comme au 1er rang décrit, c'est-à-dire 1 m avant et après chaque A.2 - cf RAGLAN tous les rangs sur l'endroit = on augmente 8 maille par rang tous les 2 rangs. cette vidéo montre comment tricoter un pull de haut en bas en augmentant tous les 2 tours, pour un gilet, on va augmenter tous les rangs sur l'endroit. Bon tricot!
17.07.2019 - 11:03Martina wrote:
Hallo, A3 und A4 finde ich in der Anleitung nicht....Vielen Dank für Ihre Hilfe! Ich habe gerade mit dieser schönen Jacke begonnen!
13.05.2019 - 12:44DROPS Design answered:
Liebe Martina, A.3 und A.4 finden Sie rechts der Maßskizze - unter die Ärmel - sie werden beide über 2 Maschen und 10 Reihen gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
13.05.2019 - 13:53Will wrote:
Ik snap de corrective niet, is deze al opgenomen in het patroon
05.05.2019 - 22:57DROPS Design answered:
Dag Will,
De correcties die online staan zijn al verwerkt in het patroon. Als je het patroon af hebt gedrukt voor de datum van de correctie, zou je hem even opnieuw af kunnen drukken.
09.05.2019 - 21:57FRECON Francoise wrote:
J'adore, j'espère que ce ravissant modèle sera très bientôt publié !
22.02.2019 - 13:17Lizzi Ghislaine wrote:
J ai vraiment hâte de le faire prévenez moi des que les 3xplocations seront en ligne cordialement ghislaine lizzi
09.02.2019 - 13:21Lone Meyland wrote:
Very much as My design “ New Dawn” Ligner rigtig meget min model Lavendels New Dawn! Selv farven. New Dawn kan ses flere steder, som åbenbart ikke må henvises til her.
29.01.2019 - 10:28Sarda wrote:
Original
19.12.2018 - 21:29Sahar Taha wrote:
Great
16.12.2018 - 16:43Soerno wrote:
Superbe aspect dentelle
12.12.2018 - 11:20Angelika wrote:
Eine tolle und schicke Jacke, schlicht und elegant, mit sehr schönem Raglan-Muster.
11.12.2018 - 19:14