Dandelion Dreams |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónaður toppur með hringlaga berustykki úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með sólfjaðramynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 201-37 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 123 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 17,6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 17. og 18. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo að ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSI: Fitjið upp 123-126-129-135-144-150 lykkjur á hringprjón 3 með Belle. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til prjónaðar hafa verið 4 umferðir stroff. Prjónið síðan 1 umferð slétt. Prjónið 1 umferð til viðbótar með sléttum lykkjum þar sem aukið er út um 7-14-11-15-16-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 130-140-140-150-160-170 lykkjur. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónamerkið fylgir með í stykkinu. Prjónið nú mynstur A.1 (= 10 lykkjur) alls 13-14-14-15-16-17 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 169-182-182-195-208-221 lykkjur í umferð (og það er eitt prjónamerki í hverri einingu með A.1). Prjónið 5 lykkjur slétt, takið prjónamerkið úr í byrjun á umferð og setjið það hér (þ.e.a.s. byrjun á umferð hefur nú verið færð til um 5 lykkjur til vinstri). Takið úr þau prjónamerki sem eftir eru í stykkinu. Nú er mynstur A.2 prjónað (= 13 lykkjur) alls 13-14-14-15-16-17 sinnum í umferð. ATH: Sólfjaðrirnar eiga að vera mitt á milli sólfjaðra frá fyrri umferð. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 208-224-224-240-256-272 lykkjur í umferð (og það er eitt prjónamerki í hverri einingu með A.2). Prjónið 7 lykkjur slétt, takið prjónamerki úr í byrjun á umferð og setjið það hér (þ.e.a.s. byrjun á umferð hefur nú verið færð til um 7 lykkjur til vinstri). Takið úr þau prjónamerki sem eftir eru í stykkinu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú mynstur A.3 (= 16 lykkjur) alls 13-14-14-15-16-17 sinnum í umferð. ATH: sólfjaðrirnar eiga að vera mitt á milli sólfjaðra frá fyrri umferð. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 221-238-238-255-272-289 lykkjur í umferð (og það er prjónamerki í hverri einingu A.3). Prjónið 7 lykkjur slétt, takið úr prjónamerki í byrjun á umferð og setjið hér (þ.e.a.s. byrjun á umferð hefur nú verið færð til um 7 lykkjur til vinstri). Takið úr þau prjónamerki sem eftir eru í stykkinu. Prjónið nú mynstur A.4 (= 17 lykkjur) alls 13-14-14-15-16-17 sinnum í umferð. ATH: sólfjaðrirnar eiga að vera mitt á milli sólfjaðra frá fyrri umferð. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 286-308-308-330-352-374 lykkjur í umferð (og það er prjónamerki í hverri mynstureiningu). Stykkið mælist ca 16 cm frá uppfitjunarkanti og niður. Haldið nú áfram í sléttprjóni hringinn í 1-3-5-7-9-11 cm, jafnframt er aukið út um 14-13-27-30-34-38 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 1-1-2-3-4-5 cm millibili alls 1-2-2-2-2-2 sinnum = 300-334-362-390-420-450 lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-19-21-23-25-27 cm, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið fyrstu 42-46-49-55-60-65 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 66-74-82-85-90-94 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 84-93-99-110-120-131 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 66-74-82-85-90-94 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 42-47-50-55-60-66 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 184-202-218-240-264-290 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið (= 4-4-5-5-6-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með ca 7 cm millibili alls 4 sinnum = 200-218-234-256-280-306 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30 cm frá skiptingu, aukið út um 31-31-36-38-41-45 lykkjur jafnt yfir = 231-249-270-294-321-351 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar fellt er af. Toppurinn mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 66-74-82-85-90-94 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 74-82-92-95-102-108 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi. Prjónamerkið er byrjun á umferð. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 3 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 27-31-34-34-37-38 lykkjur slétt, prjónið næstu 20-20-24-26-28-32 lykkjur 2 og 2 slétt saman (= 10-10-12-13-14-16 lykkjur færri), prjónið þær 27-31-34-35-37-38 lykkjur sem eftir eru í umferð = 64-72-80-82-88-92 lykkjur. Prjónið 2 umferðir slétt. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (20)
Helga Eggen wrote:
Skjønner ikke hvordan vifta blir laget Kastet skal være 2,5 cm. Brukes det en ekstra pinne? Prøvde å se om det var en video.
22.06.2019 - 13:38Bjørg wrote:
Oppskriften er feil, etter å ha strikket A 3 viser oppskriften 221 masker ? beklagelig at diagram ikke er korrigert !
06.06.2019 - 09:10DROPS Design answered:
Hei Bjørg. Dette stemmer. Det er 17 masker i hver A.3 på siste omgang. Du strikker 13 rapporter av A.3 i bredden. 17 x 13 = 221 masker. God fornøyelse
06.06.2019 - 09:37Inger-Lise Skartlien wrote:
Når man lager kast og strikker en maske og gjentar 5 x, så kan ikke jeg forstå at når man feller 2 masker på neste omgang, så blir den totale økningen masker pr rapport 3? (A1)
05.06.2019 - 21:14DROPS Design answered:
Hei Inger-Lise, Du først øker 5 masker ved å lage 5 kast og på neste omgang feller 2 masker. Da blir det totalt øket 3 masker på disse 2 omgangene, God fornøyelse!
06.06.2019 - 07:22Doris wrote:
Wann wird die Anleitung für dieses schöne Modell veröffentlicht?
15.02.2019 - 16:35Isabelle R. wrote:
Bonjour à votre équipe, j'aimerais savoir quand ce patron sera disponible, j'aimerais bien le tricoter pour cette été, merci.
06.02.2019 - 14:38Gerda Craps wrote:
Waar vind ik het patroon ?
31.01.2019 - 16:21Manuela wrote:
Dieses Modell gefällt mir sehr gut, tolles Muster! Würde mich freuen, wenn die Anleitung schnell eingestellt wird.
04.01.2019 - 20:40Beti wrote:
Dieses Modell ist traumhaft, würde es gern nacharbeiten.
20.12.2018 - 13:24Renate wrote:
Das feine kleine Muster harmoniert perfekt mit der Struktur von Belle. Würde ich sofort nachstricken!
13.12.2018 - 11:21Ma wrote:
Så många modeller i denna kollektion som har alldeles för vid halsringning, inte vad jag vill ha.
12.12.2018 - 21:28