DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3828.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Dandelion Dreams

Prjónaður toppur með hringlaga berustykki úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með sólfjaðramynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 201-37
DROPS Design: Mynstur vs-054
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-400-400-450-500 g litur 03, ljós beige

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – fyrir kant með garðaprjóni.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3828.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 123 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 17,6.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 17. og 18. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo að ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSI:
Fitjið upp 123-126-129-135-144-150 lykkjur á hringprjón 3 með Belle. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til prjónaðar hafa verið 4 umferðir stroff. Prjónið síðan 1 umferð slétt. Prjónið 1 umferð til viðbótar með sléttum lykkjum þar sem aukið er út um 7-14-11-15-16-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 130-140-140-150-160-170 lykkjur.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónamerkið fylgir með í stykkinu.
Prjónið nú mynstur A.1 (= 10 lykkjur) alls 13-14-14-15-16-17 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 169-182-182-195-208-221 lykkjur í umferð (og það er eitt prjónamerki í hverri einingu með A.1). Prjónið 5 lykkjur slétt, takið prjónamerkið úr í byrjun á umferð og setjið það hér (þ.e.a.s. byrjun á umferð hefur nú verið færð til um 5 lykkjur til vinstri). Takið úr þau prjónamerki sem eftir eru í stykkinu.
Nú er mynstur A.2 prjónað (= 13 lykkjur) alls 13-14-14-15-16-17 sinnum í umferð. ATH: Sólfjaðrirnar eiga að vera mitt á milli sólfjaðra frá fyrri umferð. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 208-224-224-240-256-272 lykkjur í umferð (og það er eitt prjónamerki í hverri einingu með A.2). Prjónið 7 lykkjur slétt, takið prjónamerki úr í byrjun á umferð og setjið það hér (þ.e.a.s. byrjun á umferð hefur nú verið færð til um 7 lykkjur til vinstri). Takið úr þau prjónamerki sem eftir eru í stykkinu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú mynstur A.3 (= 16 lykkjur) alls 13-14-14-15-16-17 sinnum í umferð. ATH: sólfjaðrirnar eiga að vera mitt á milli sólfjaðra frá fyrri umferð. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 221-238-238-255-272-289 lykkjur í umferð (og það er prjónamerki í hverri einingu A.3). Prjónið 7 lykkjur slétt, takið úr prjónamerki í byrjun á umferð og setjið hér (þ.e.a.s. byrjun á umferð hefur nú verið færð til um 7 lykkjur til vinstri). Takið úr þau prjónamerki sem eftir eru í stykkinu.
Prjónið nú mynstur A.4 (= 17 lykkjur) alls 13-14-14-15-16-17 sinnum í umferð. ATH: sólfjaðrirnar eiga að vera mitt á milli sólfjaðra frá fyrri umferð. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 286-308-308-330-352-374 lykkjur í umferð (og það er prjónamerki í hverri mynstureiningu). Stykkið mælist ca 16 cm frá uppfitjunarkanti og niður.
Haldið nú áfram í sléttprjóni hringinn í 1-3-5-7-9-11 cm, jafnframt er aukið út um 14-13-27-30-34-38 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 1-1-2-3-4-5 cm millibili alls 1-2-2-2-2-2 sinnum = 300-334-362-390-420-450 lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-19-21-23-25-27 cm, prjónið næstu umferð þannig:
Prjónið fyrstu 42-46-49-55-60-65 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 66-74-82-85-90-94 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 84-93-99-110-120-131 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 66-74-82-85-90-94 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 42-47-50-55-60-66 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 184-202-218-240-264-290 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið (= 4-4-5-5-6-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með ca 7 cm millibili alls 4 sinnum = 200-218-234-256-280-306 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30 cm frá skiptingu, aukið út um 31-31-36-38-41-45 lykkjur jafnt yfir = 231-249-270-294-321-351 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm.
Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar fellt er af. Toppurinn mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 66-74-82-85-90-94 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 74-82-92-95-102-108 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi. Prjónamerkið er byrjun á umferð. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 3 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 27-31-34-34-37-38 lykkjur slétt, prjónið næstu 20-20-24-26-28-32 lykkjur 2 og 2 slétt saman (= 10-10-12-13-14-16 lykkjur færri), prjónið þær 27-31-34-35-37-38 lykkjur sem eftir eru í umferð = 64-72-80-82-88-92 lykkjur. Prjónið 2 umferðir slétt. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = 1 lykkja slétt. Setjið eitt prjónamerki í þessa lykkju. Það er prjónuð sólfjöður í þessa lykkju síðar í stykkinu
symbols = setjið eitt prjónamerki í bilið á milli 2 lykkja. Það er prjónuð sólfjöður í bilið á milli þessa 2 lykkja síðar í stykkinu
symbols = sólfjöður í lykkju með prjónamerki: * Stingið prjóninum í lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn og dragið þráðinn fram að framhlið á stykki þannig að uppslátturinn verði ca 2,5 cm langur, prjónið 1 lykkju slétt *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum (= 5 uppslættir á prjóni). ATH: Passið uppá að uppslátturinn verði ca 2,5 cm langur (það er mikilvæt að uppslátturinn verði ekki of stífur til að koma í veg fyrir að prjónafestan verði stíf á hæðina). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt
symbols = sólfjöður í bilið á milli prjónamerkja á milli 2 lykkja: * Stingið prjóninum í bilið með prjónamerki í , sláið 1 sinni uppá prjóninn og dragið þráðinn fram að framhlið á stykki þannig að uppslátturinn verði ca 2,5 cm langur, prjónið 1 lykkju slétt *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum (= 5 uppslættir á prjóni). ATH: Passið uppá að uppslátturinn verði ca 2,5 cm langur (það er mikilvæt að uppslátturinn verði ekki of stífur til að koma í veg fyrir að prjónafestan verði stíf á hæðina). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt
symbols = prjónið lykkju á undan sólfjöður og lykkju yfir fyrsta uppslátt í sólfjöður slétt saman (= 1 lykkja færri)
symbols = lyfti lykkju yfir síðasta uppslátt í sólfjöður af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri)
symbols = prjónið 2 lykkjur á undan sólfjöður og lykkju yfir fyrsta uppslátt í sólfjöður slétt saman (= 2 lykkjur færri)
symbols = lyftið lykkju yfir síðasta uppslátt í sólfjöður af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur á eftir sólfjöður slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri)
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-37

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Jaan wrote:

Ik heb een black-out geloof ik , Hoe meerder ik nadat ik steken op hulpnaald heb gezet? Doe ik dat breiend? En zo ja hoe en als het anders moet ook hoe? Bedankt

27.04.2024 - 18:07

DROPS Design answered:

Dag Jaan,

Je meerdert inderdaad tijdens het breien door omslagen te maken die je op de volgende naald gedraaid breit.

28.04.2024 - 10:05

country flag Chantal wrote:

C’est la première fois que sa m’ arrive , pas mal de pet défaut dans la pelote de Drops Belle uni colour . Dommage .

20.07.2023 - 19:38

country flag Wendy wrote:

My apologies. In my previous comment on July 4, 2022, I should have clarified that the yarn was Drops Belle and given an email address to enable you to reply. Many thanks.

05.07.2022 - 00:37

DROPS Design answered:

Dear Wendy, we are sorry to hear your experience, please contact any other DROPS Store in your country sending them all informations. Thank you. Happy knitting!

05.07.2022 - 15:49

country flag Wendy wrote:

I have used many Drops patterns and yarns for several years and always been satisfied and pleased with the results. 3/4 of the way into my current project, the ball of yarn is badly flawed. 8 grams of broken threads and loops of extra threads had to be cut off. l am now hoping to have enough yarn to finish. I knew I was cutting it close. The store I purchased the yarn in, Yarn2 in Kamloops BC has closed. Can send a photo to show yarn, brand band, and weight to verify. Thank you

04.07.2022 - 22:54

country flag Anna wrote:

Bonjour, j'ai commencé à tricoter ce projet du grandeur S. Mais je ne comprends pas la partie: ... Tricoter maintenant 13-14-14-15-16-17 fois A.1 (= 10 mailles) au total tout le tour. - 13 fois de toute la grille A.1 ?? au total toute le tour (10 mailles) ? j'ai hâte de les comprendre pour pouvoir continuer à tricoter ;) Merci Impatiente

08.04.2021 - 21:22

DROPS Design answered:

Bonjour Anna, A.1 est le nom du diagramme à tricoter en premier; il se tricote sur 10 m au 1er rang; il y a 13 m dans chaque A.1 à la fin du diagramme; autrement dit, vous augmentez le nombre de mailles. Cette leçon devrait vous aider à comprendre comment tricoter les diagrammes. Bon tricot!

09.04.2021 - 07:43

country flag Rosella Matt wrote:

Are there more tutorials for this pattern? I have difficulty following the diagrams. Has anyone made this pattern? If so maybe you can help me. Thank you!

18.08.2020 - 00:09

DROPS Design answered:

Dear Mrs Matt, you will read more about diagrams here - and find 2 videos showing how to work diagrams and fans in diagram A.1 and A.3 and in diagram A.2 and A.4. Happy knitting!

18.08.2020 - 09:00

country flag MissT wrote:

I think there may be an error on Chart A3 and stitch counts after this section (XL size lists 252 sts but should be 304 if following pattern consistently) All the other charts increase by 3 stitches. A3 only has an increase of 2 stitches. That makes chart A4 increase by 5 stitches. The problem seems to be in the 7th row of chart A3 where 5 stitches should be on either side of the decreases made on either side of the fan instead of 4 as shown. That error throws off all the numbers.

09.03.2020 - 12:38

DROPS Design answered:

Dear MissT, you increase 3 sts in each A.1 (= 195 sts after A.1), 3 sts in each A.2 (= 240 sts after A.2), 1 st in each A.3 (= you increase 5 sts and decrease 4 sts) (= 255 sts after A.3) and 5 sts in each A.4 (= 330 sts after A.4). Happy knitting!

09.03.2020 - 13:04

country flag Father wrote:

Bonjour, J’aimerai faire une rehausse pour le dos. Pouvez-vous me préciser si le début du tour correspond au milieu du dos. Merci

11.08.2019 - 16:09

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Father, le début des tours au tout début de l'empiècement ne se trouve pas au milieu dos, on sera au milieu dos seulement quand on aura terminé l'empiècement (on décale le fil marqueur entre chaque diagramme en hauteur pour que les éventails soient intercalés). Bon tricot!

12.08.2019 - 08:29

country flag Nancy Reed wrote:

I would love to read the comments in English. Also I plan to make this top in plain knitting in the round, without the fan pattern. Hopefully it will be possible to do this! Can you confirm or advise against this? If possible, perhaps you have a pattern for a plain top, from the top, short sleeves, for sizes 3X and 4X. Hard to find! I want to make several for myself - I've been given some lovely yarns and plan to use them. Thank you for your help!!

25.06.2019 - 08:31

DROPS Design answered:

Dear Mrs Reed, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, you are welcome to contact your store for any individual assistance - you will find here some other top patterns with round yoke. Happy knitting!

25.06.2019 - 08:36

country flag Helga Eggen wrote:

Sendte dessverre spørsmålet som kommertar. Jeg fikk ikke til "vifta" Skal den virkelig være 2,5 cm? Finnes det en video for dette?

22.06.2019 - 13:41

DROPS Design answered:

Hei Helga. Ja, tråden skal trekkes lik at den blir 2,5 cm lang. Det ligger 2 videoer av viftene til venstre for oppskriften, fekse denne: . God fornøyelse

24.06.2019 - 08:24