DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5456.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 199-43
DROPS Design: Mynstur ml-029
Garnflokkur D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
200-250-250-250-250-300 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
12 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 60 cm eða 80 cm.
DROPS PRJÓNAR NR 6 fyrir stroff á ermum.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

FYLGIHLUTIR: 6 st tréperlur fyrir skraut – með ½ cm gati (að þvermáli) í miðju svo að ekki verði of erfitt að þræða snúruna í gegn.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5456.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka. Framstykkið skiptist við op við miðju framan við hálsmál og héðan er prjónað í 2 hlutum upp að öxlum. Ermar eru prjónaðar fram og til baka.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 62-68-72-78-86-92 lykkjur á prjón 8 með Melody. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan í sléttprjóni með 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm í öllum stærðum er haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm.
Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 28-31-33-36-40-43 lykkjur, garðaprjón yfir næstu 6 lykkjur og sléttprjón yfir síðustu 28-31-33-36-40-43 lykkjur. Prjónið þar til prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir 6 miðju lykkjur. Nú á að skipta stykkinu upp við miðju þannig að það myndist op í hálsmáli, setjið helming af lykkjum á þráð. Héðan er hægra og vinstri hluti á framstykki prjónaður hvor fyrir sig = 31-34-36-39-43-46 lykkjur í hvorum hluta.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið sléttprjón með 3 lykkjum í garðaprjóni að miðju þar til stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm. Fellið nú af fyrir handveg í hlið í hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 0-1-2-2-3-3 sinnum og 1 lykkja 4-3-2-1-2-3 sinnum. Nú eru 24-26-27-28-29-31 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón með 3 lykkjum garðaprjón að miðju þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm og næsta umferð er frá réttu.
Nú á að setja lykkjur á þráð og fækka lykkjum fyrir hálsmáli við miðu að framan þannig: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón og 3 lykkjur sléttprjón, setjið síðan þessar 6 lykkjur á þráð. Prjónið út umferðina og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Fellið síðan af lykkjur í annarri hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni, fellið af 1 lykkju 3-3-3-4-4-4 sinnum. Nú eru 13-15-16-16-17-19 lykkjur á prjóni fyrir öxl. Fellið af allar lykkjur þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið sléttprjón með 3 lykkjur í garðaprjóni að miðju þar til stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm. Fellið nú af fyrir handvegi í hlið í hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 0-1-2-2-3-3 sinnum og 1 lykkja 4-3-2-1-2-3 sinnum. Nú eru 24-26-27-28-29-31 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón með 3 lykkjur garðaprjón að miðju þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm og næsta umferð er frá röngu.
Nú á að setja lykkjur á þráð og fækka lykkjum fyrir hálsmáli við miðu að framan þannig: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón og 3 lykkjur sléttprjón, setjið síðan þessar 6 lykkjur á þráð. Prjónið sléttprjón út umferðina og prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Fellið síðan af lykkjur í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni, fellið af 1 lykkju 3-3-3-4-4-4 sinnum. Nú eru 13-15-16-16-17-19 lykkjur á prjóni fyrir öxl. Fellið af allar lykkjur þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm.

BAKSTYKKI:
Prjónið eins og framstykki (nema án þess að skipta stykkinu upp fyrir op) þar til stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm. Nú eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli fyrir miðju frá réttu þannig: Prjónið 14-16-17-17-18-20 lykkjur sléttprjón (hægri öxl), fellið af næstu 20-20-20-22-22-22 lykkjur og prjónið 14-16-17-17-18-20 lykkjur sléttprjón (vinstri öxl). Snúið og prjónið brugðið yfir fyrstu 14-16-17-17-18-20 lykkjur, snúið og prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 13-15-16-16-17-19 lykkjur. Snúið og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum í næstu umferð frá réttu. Vinstri öxl er nú tilbúin. Klippið frá, nú á að prjóna og fækka lykkjum á hægri öxl, lykkjurnar eru enn á prjóni. Byrjið frá röngu, prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Snúið og prjónið sléttar lykkjur frá réttu þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman. Snúið og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Snúið og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Hægri öxl er nú tilbúin.

ERMI:
Fitjið upp 36-38-40-42-44-46 lykkjur á prjón 6 með Melody. Prjónið stroff fram og til baka með 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið þar til stykkið mælist 8 cm í öllum stærðum. Skiptið yfir á prjón 8, prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 12 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 48-50-52-54-56-58 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í sléttprjóni þar til stykkið mælist 14 cm. Fækkið nú um 1 lykkju í hvorri hlið með því að prjóna 2 ystu lykkjurnar slétt saman frá réttu. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 27-27-26-26-25-24 og 40-40-38-38-36-34 cm = 42-44-46-48-50-52 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist 51-50-49-48-46-44 cm. Fellið nú af fyrir ermakúpu í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig: 3 lykkjur 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 2-1-2-2-3-3 sinnum og 1 lykkja 3-3-3-2-3-4 sinnum. Fellið síðan af allar lykkjur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma, saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið kant í kringum hálsmál, byrjið með að setja lykkjur frá hægra framstykki á prjón 8 án þess að prjóna yfir þessar lykkjur, prjónið upp ca 50-58 lykkjur í kringum hálsmál, setjið lykkjur af vinstra framstykki á prjón og prjónið yfir þessar lykkjur. Nú eru ca 62-70 lykkjur í umferð. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af í næstu umferð frá réttu, klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í, saumið kant í kant með smáu spori. Saumið saum undir ermum: Byrjið við stroffið og saumið upp að handveg, síðan er hliðarsaumur saumaður þar til eftir eru 12 cm neðst niðri fyrir klauf. Endurtakið á hinni erminn og meðfram hinni hliðinni. Klippið frá og festið enda.

TVINNUÐ SNÚRA:
Klippið 2 þræði ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Í hvorum enda á snúru eru festar 3 smáar tréperlur, hnýtið hnút í enda þannig að snúran haldist tvinnuð og perlurnar séu fastar.
Í enda á snúru á að gera litla skúfa sem eru gerðir þannig: Klippið 8 þræði ca 20 cm, leggið þræðina saman og brjótið uppá fyrir miðju. Hnýtið þá saman með þræði ca 1-2 cm neðan við uppábrotið. Festið skúfinn með því að þræða snúruna í gegnum lykkjurnar í toppi á skúfi og gerði hnút. Að lokum eru snúrunar festar yst í hvora hlið á kanti í hálsmáli við miðju að framan.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-43

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Daisie wrote:

Please photograph your model standing up so that we can see the garment better. Thank you:)

16.08.2021 - 05:03

country flag Marie wrote:

Uppdatera gärna texten att det ska maskas av till armhål även på bakstycket. Det är otydligt. Står att man ska sticka tills arbetet mäter 67 cm. Då tror man att man bara ska sticka på tills dess. Otydligt!

22.04.2021 - 08:12

country flag Mira wrote:

UND wie macht sich das bei der Gesamtmenge Garn bemerkbar? Brauche ich dann mehr Garn als angegeben oder weniger?

07.03.2021 - 23:15

DROPS Design answered:

siehe Antwort unten :)

08.03.2021 - 09:35

country flag Mira wrote:

Kann ich diesen Pullover auch mit dem Garn Drops Brushed Alpaca Silk stricken? Was muss ich bei der Maschenanzahl etc beachten?

07.03.2021 - 23:12

DROPS Design answered:

Liebe Mira, 1 Faden Melody können Sie durch 2 Fäden Brushed Alpaca Silk ersetzen (versuchen Sie unseren Garnumrechner um die neue Garnmenge kalkulieren zu lassen), und stricken Sie dann mit der gleichen Maschenprobe in beiden Fällen. Viel Spaß beim stricken!

08.03.2021 - 09:35

country flag Ingrid wrote:

Hei! Kjempefin genser og flott mønster. Men jeg er litt forvirret over den tvunnede tråden. Det står at man skal klippe to ~3 m lange tråder, tvinne de sammen, og deretter sette perler på hver av trådene. Skal man tvinne de to trådene separat eller sammen?

15.04.2020 - 16:36

DROPS Design answered:

Hej De ska tvinnas separat så att du får två stycken som sedan festes ytterst i hver side. Mvh DROPS design

16.04.2020 - 10:29

country flag Claudia wrote:

For the sleeves, is there no need to cast-off/decrease for the armholes, as in the back and front pieces?

17.03.2020 - 11:34

DROPS Design answered:

Dear Claudia, yes you do, when sleeve measures 51-50-49-48-46-44 cm, you will start to cast off for sleeve cap in each side every other row ( = 3 stitches 1-1-1-2-2-2 times, 2 stitches 2-1-2-2-3-3 times and 1 stitch 3-3-3-2-3-4 times). Happy knitting!

17.03.2020 - 11:55

country flag Vana wrote:

Hello! I would like to know if there is a pattern for the beautiful hat as well. Thank you

13.07.2019 - 08:30

DROPS Design answered:

Dear Vana, we do not have any pattern for the hat, it's not a handmade hat sorry. Happy knitting!

15.07.2019 - 09:03

country flag Carin wrote:

Dålig bild

09.06.2019 - 18:35

country flag Claudia wrote:

I don't think the instructions for the back are correct. There are not enough worked stitches. I'm working the smallest size. I cast on 62 stitches. After knitting over these for 65cm the instructions say 14 stiches for right shoulder, 20 for center, and 14 for left shoulder, that's 48 stitches, not 62. What's happened to the other 14 stitches?

31.05.2019 - 10:34

DROPS Design answered:

Dear Claudia, you cast on 62 sts and work as on front piece = you will cast off and decrease for the armholes on each side when piece measures 48 cm: 3 sts 1 time and 1 st 4 times (= 7 sts x 2 sides = 14 sts cast off and decreased for the armholes), so that you have: 62 - 14= 48 sts. Happy knitting!

31.05.2019 - 11:07

country flag Diana wrote:

Super leuk model

10.02.2019 - 01:38