DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11704.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

April Gold

Prjónuð peysa úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með áferðamynstri og gataumferðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 205-51
DROPS Design: Mynstur sk-056
Garnflokkur B + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-250-250-300-300-350 g litur 11, heslihneta
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-150-150 g litur 33, ryð

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með áferðamynstri og 1 þræði af hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: Lengd 40 cm og 80 cm fyrir áferðamynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: Lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11704.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (á við um v-hálsmál):
Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 1 lykkja færri).

ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman, prjónið 2 lykkjur garðaprjón (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri).

LEIÐBEININGAR:
Í þessu stykki eru lykkjur prjónaðar upp meðfram handveg og ermar eru prjónaðar ofan frá og niður. Þetta er gert til að fá betri yfirsýn yfir lengd á ermum. Það er líka hægt að prjóna ermarnar sér og sauma þær síðan á í lokin, þetta er einfalt að gera með því að fitja upp jafn margar lykkjur og prjóna á upp meðfram handveg og síðan að fylgja útskýringum fyrir ermar. Sauma ermer í innan við 2 umferðir garðaprjón meðfram handveg og sauma botninn á handveg.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg. Lykkjum er fækkað fyrir handveg. Síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón, hvort fyrir sig. Axlasaumar eru saumaðir. Síðan eru prjónaðar upp lykkjur meðfram handveg fyrir ermar. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón þar til ermakúpan er tilbúin, síðan er afgangur af ermum prjónaður í hring á sokkaprjóna /stuttan hringprjón, ofan frá og niður til loka. Að lokum er botninn saumaður við handveg og kantur í hálsi prjónaður. Allt stykkið er prjónað með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 138-146-162-170-194-210 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði Sky + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).
Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: * prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 69-73-81-85-97-105 lykkjur (= í hliðum á fram- og bakstykki).
Skiptið yfir á hringprjón 7. Næsta umferð er prjónuð þannig: * prjónið 1 lykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1A þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið A.1B (= 1 lykkja og prjónið 1 lykkju í garðaprjóni *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið þar til stykkið mælist 5-6-7-6-7-8 cm, en stillið af að næsta umferð sé umferð þar sem prjónað er slétt yfir allar lykkjur.
Nú er sett 1 prjónamerki mitt að framan og 1 prjónamerki mitt að aftan á fram- og bakstykki, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: * prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið 33-35-39-41-47-51 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju, prjónið næstu 33-35-39-41-47-51 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar.
Nú byrjar gataumferð í A.2, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið A.1A yfir næstu 30-32-36-38-44-48 lykkjur, prjónið A.2 yfir næstu 7 lykkjur (miðju lykkja í A.2 = lykkja með prjónamerki í), prjónið A.3 yfir næstu 30-32-36-38-44-48 lykkjur, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur. A.X er endurtekið á hæðina. JAFNFRAMT heldur gataumferð áfram eins langt og hægt er út að hvorri hlið (þ.e.a.s. alveg inn að 2 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið á fram- og bakstykki).
Þegar A.X hefur verið prjónað alls 3 sinnum á hæðina, prjónið A.1 eins og áður yfir allar lykkjur, en látið línurnar í A.2 halda áfram alveg út í hvorri hlið.
HANDVEGUR:
Jafnframt þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið. Þ.e.a.s. stillið af að næsta umferð sé umferð þar sem prjónað er slétt yfir allar lykkjur og prjónið næstu umferð þannig: Fellið af 2-2-4-4-6-6 lykkjur fyrir handveg, prjónið slétt yfir næstu 65-69-73-77-85-93 lykkjur, fellið af 4-4-8-8-12-12 lykkjur fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 2-2-4-4-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hlið), prjónið slétt yfir næstu 65-69-73-77-85-93 lykkjur og fellið af þær 2-2-4-4-6-6 lykkjur sem eftir eru fyrir handveg. Klippið frá. Bakstykki og framstykki er síðan prjónað hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 65-69-73-77-85-93 lykkjur. Haldið áfram með mynstur á sama hátt og á fram- og bakstykki, en nú er prjónað fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm, fellið af miðju 23-23-23-27-27-27 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 1 lykkju 2 sinnum = 19-21-23-23-27-31 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 65-69-73-77-85-93 lykkjur. Haldið áfram með mynstur á sama hátt og á fram- og bakstykki, en nú er prjónað fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm byrjar affelling fyrir v-hálsmáli. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 31-33-35-37-41-45 lykkjur slétt, setjið síðan þessar 31-33-35-37-41-45 lykkjur á þráð eða hjálparprjón, fellið af 3 lykkjur fyrir v-hálsmáli (miðju á þessum 3 lykkjum er lykkjan með prjónamerki í) og prjónið 31-33-35-37-41-45 lykkjur sem eftir eru slétt. Hvor hluti er síðan prjónaður hvor fyrir sig.

HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
= 31-33-35-37-41-45 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í næstu umferð (rétta), er fækkað um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli í byrjun á umferð frá hálsi – sjá ÚRTAKA-1. Haldið áfram með úrtöku fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 6-6-6-7-7-7 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 6-6-6-7-7-7 sinnum = 19-21-23-23-27-31 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.

VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Setjið til baka 31-33-35-37-41-45 lykkjur af þræði /hjálparprjóni á hringprjón 7.
Prjónið til baka frá kantlykkju frá röngu með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið. Í næstu umferð (rétta), er fækkað um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli í lok á umferð við háls – sjá ÚRTAKA-1. Haldið áfram með úrtöku fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð alls 6-6-6-7-7-7 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 6-6-6-7-7-7 sinnum = 19-21-23-23-27-31 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn.

ERMI:
Lesið LEIÐBEININGAR!
Prjónið upp lykkjur meðfram handveg á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. í byrjun í horni á handveg í annarri hlið á stykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg og prjónið upp frá réttu 53-55-59-61-65-67 lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á hringprjón 7 með 1 þræði í hvorri tegund (þ.e.a.s. það á ekki að prjóna upp lykkjur í botni á handveg).
Byrjið á 2. umferð í A.1 og prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1B (= 1 lykkja), prjónið A.1A þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur fram og til baka svona.
Þegar ermin mælist 1-1-3-3-4-4 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, setjið 1 prjónamerki í umferð. Prjónamerkið merkir hvar á að sauma ermina í síðar við botn á handveg og ermin er nú mæld frá þessu prjónamerki.
Prjónið síðan ermina hringinn. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 7. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Haldið áfram með A.1 hringinn með 1 lykkju í garðaprjóni hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi (= 2 lykkjur í garðaprjóni mitt undir ermi).
Þegar ermin mælist 3-3-3-3-2-2 cm frá prjónamerki, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 4-4-3-3-2½-2½ cm millibili alls 10-10-12-12-14-14 sinnum = 33-35-35-37-37-39 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 44-44-41-41-39-37 cm frá prjónamerki (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu.
Skiptið yfir á sokkaprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), en passið uppá að prjónaðar séu sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkju. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í við botn á handveg frá prjónamerki og inn að horni í hvorri hlið.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við aðra öxlina og prjónið upp ca 96-100-104-112-116-120 lykkjur frá réttu í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 6 með 1 þræði af hvorri tegund (prjónið upp innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram v-hálsmáli og passið einnig uppá að prjóna upp 3 lykkjur nákvæmlega mitt framan í v-hálsmáli).
Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), en passið uppá að það verði 1 lykkja slétt mitt framan í v-hálsmáli.
Setjið 1 prjónamerki í þessa sléttu lykkju. JAFNFRAMT í hverri umferð er fækkað um 2 lykkjur mitt að framan þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki í, takið 2 næstu lykkjur óprjónaðar eins og prjóna eigi þær slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt og steypið 2 óprjónuðu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).
Þegar úrtakan er gerð svona þá kemur slétta lykkjan mitt í v-hálsmáli til með að fylgja með allan tímann eins og bein lína við miðju að framan.
Fækkið lykkjum svona í hverri umferð þar til kantur í hálsi mælist ca 5 til 6 cm í prjónstefnu (eða að óskuðu máli, því breiðari sem kanturinn í hálsmáli er prjónaður, því minni verður opið í hálsmáli).
Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð

symbols = miðjulykkja
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-51

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Raija Tervo wrote:

En löydä ohjeesta mallipiirroksia, vain A2 näkyy .

15.02.2023 - 08:45

DROPS Design answered:

Piirrokset A.1 ja A.3 ovat mittapiirroksen oikealla puolella.

17.02.2023 - 13:20

country flag Angele Chatman wrote:

I'm so sorry to trouble you again. I'm in the States and so it's a challenge to translate the Norwegian conventions. After the ribbing what would be the next row. Is it A1B, then A1A, then A2? Where do I start A3? I appreciate your prompt reply. I know once I get started I will have a lovely garment...

19.01.2022 - 16:17

DROPS Design answered:

Dear Mrs Chatman, you will first diagram like this: *1 stitch in garter stitch, repeat A.1A until 2 sts remain before marker on the side, work A.1B (= 1 st), and 1 st in garter stitch*, repeat from *-*. Then when piece meeasures 5-8 cm (see size), you will work: *1 st in garter st, A.1A over 30-48 sts, A.2 (= 7 sts over the middle 7 sts in A.1A, the middle stitch on front/back piece should be the stitch with the marker) , A.3 over 30-48 sts, 1 st in garter st* and repeat from*-*. Happy knitting!

19.01.2022 - 17:19

country flag Angele Chatman wrote:

I have found A.1B, A.1A, and A.3 stitch patterns in the instructions but I'm unclear when to use them because they don't appear horizontally. In the photo of the finished garment it shows the lace block A.2 in the middle. Where do I incorporate the others? Second, is the back of the sweater same as the front? Please advise. Thank you.

17.01.2022 - 05:35

DROPS Design answered:

Dear Mrs Chatman, back and front piece will be worked the same way: with A.2 on both pieces (stitch with arrow in A.2 = middle stitch on front and back piece). Start working as shown in the diagram, then continue the diagonal lines as before until they reach the side and repeat the 26 rows shown in A.x to create a new Lace-V. Happy knitting!

17.01.2022 - 09:35

country flag Colen Anne wrote:

Modèle 205-51 taile 3XL. Vous dites 350 g de Drops Sky et 150 g de Kid silk. La premire pelote de Kid Silk est terminée avant celle de Sky. Combien faut-il réellement de pelotes de Kid Silk? Merci

30.12.2021 - 18:30

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Colen, les quantités indiquées correspondent à l'échantillon, pensez à bien conserver la bonne tension, et, pour éviter que Kid-Silk ne s'enroule de trop autour du fil Sky, vous pouvez préparer une pelote avec les deux laines. Bon tricot!

03.01.2022 - 10:13

country flag Evaluna wrote:

Beste, Hoewel mijn stekenverhouding klopt, krijg ik in maat XL niet de belijning zoals op de foto. Ter hoogte van het armsgat (40cm), komt pas de laagste driehoek tot aan de zijkant ipv de tweede. De derde lijn komt in mijn geval veel hoger over de schouder. Kunt u mij zeggen bij welke herhaling (eventueel welke nld) het armsgat moet worden gemaakt om het effect te bekomen zoals op de foto? Mij lijkt dat ik de trui hiervoor 10 cm langer zou moeten maken. Graag uw antwoord.

21.01.2020 - 12:37

DROPS Design answered:

Dag Evaluna,

De trui die is afgebeeld op de foto is in maat S. Als je een andere maat breit, kan het iets anders uitkomen met het patroon, omdat de verhoudingen ook anders zijn (bredere schouders, bredere panden, etc.). Daardoor is het niet mogelijk om letterlijk hetzelfde effect te krijgen. Ik weet niet of je ook de verdeling van de strepen aan wilt passen, zodat het aan de onderkant ook ongeveer hetzelfde is. Aan de hand van de tekening onderaan het patroon en de stekenverhouding zou je uit kunnen rekenen waar je de strepen en armsgaten moet beginnen.

26.01.2020 - 15:51

country flag DURAND Renée wrote:

Bonjour, tous vos modèles sont tricotés avec des aiguilles circulaires ou doubles pointes. Pouvez vous me dire si je peux tricoter ce modèle avec des aiguilles normales ? Par avance, merci, de votre réponse.

18.12.2019 - 18:49

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Durand, la plupart de nos modèles peuvent être adaptés pour des aiguilles droites, vous trouverez ici plus d'informations. Bon tricot!

19.12.2019 - 07:48

country flag Elise Pedersen wrote:

Fin model, den må jeg strikke.

18.09.2019 - 17:55

country flag Shirke wrote:

Il manque le diagramme A1 et A3....

04.09.2019 - 12:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Shirke, vous trouverez les diagrammes A.1A. A.1B et A.3 sous la manche du schéma des mesures. Bon tricot!

04.09.2019 - 13:58

country flag Shirke wrote:

Il manque en effet le diagramme A1 et A 3 comme l'a indiqué Laura en première ligne...

04.09.2019 - 12:49

country flag Laura wrote:

Hallo, ik wil graag deze trui breien maar de beschrijving is niet helemaal duidelijk. In het patroon wordt gesproken van telpatroon A1, A2 en A3. Maar ik kan de telpatronen A1 en A3 nergens vinden. Staan die in telpatroon A2 erbij? Hopelijk kunnen jullie hierbij helpen. Alvast dank.

18.08.2019 - 12:03

DROPS Design answered:

Dag Laura,

Deze staan in de schematekening helemaal onderaan, onder de mouw .

08.09.2019 - 18:19