Inner City Jacket |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð síð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með áferðamynstri og sjalkraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-12 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur) mínus 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 18) = 5,8. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 94 lykkjur) mínus 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 5) = 18,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 18. og 19. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT (neðan frá og upp): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat. Fellið af fyrri hnappagötum þannig: Fyrsta hnappagat: Fellið af fyrir hnappagati í 7. umferð í A.1 annað skiptið sem mynsturteikning er prjónuð á hæðina. Annað hnappagat: Fellið af fyrir hnappagötum þegar prjónaðir hafa verið 6-7-8-7-8-7 cm með mynstri A.3. Þriðja hnappagat: Fellið af fyrir hnappagati í 7. umferð í A.1 þriðja skiptið sem mynsturteikning er prjónuð á hæðina. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 108-112-128-132-140-156 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 5 cm er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu, þar sem fækkað er um 18-18-22-22-22-26 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 90-94-106-110-118-130 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 yfir A.1. Endurtakið A.2 á hæðina alls 2 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið mælist ca 17 cm. Prjónið nú A.1 yfir A.2. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina prjónið A.3 yfir A.1. Haldið áfram þar til stykkið mælist alls 32-34-36-34-36-34 cm – stillið af þannig að endað sé eftir umferð frá réttu (þ.e.a.s. 1.,3.,5. eða 7. umferð í mynsturteikningu). Klippið frá og prjónið síðan frá réttu (þannig að það verða 2 umferðir frá réttu á eftir hvorri annarri) þannig: Prjónið A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í næst síðustu umferð í A.1 er aukið út 0-5-2-0-1-0 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 90-99-108-110-119-130 lykkjur. Prjónið nú mynstur mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S, L, XL, XXXL: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 3-3-4-5 lykkjur slétt, A.4 (= 18 lykkjur) alls 4-5-5-6 sinnum á breidd, A.5 (= 10 lykkjur), 3-3-4-5 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Stærð M og XXL: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 3-4 lykkjur slétt, A.4 (= 18 lykkjur) alls 5-6 sinnum á breidd, 4-5 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Allar stærðir: Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm fellið af 3-3-3-4-4-5 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 84-93-102-102-111-120 lykkjur. Haldið síðan áfram með mynstur og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm fellið af miðju 20-21-22-22-23-24 lykkjurnar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 31-35-39-39-43-47 lykkjur. Haldið síðan áfram með eins margar lykkjur í mynstur og pláss er fyrir, þar til handvegurinn mælist ca 18-19-20-21-22-23 cm (stykkið mælist alls 63-65-67-69-71-73 cm) – stillið af að endað sé eftir 4.,8.,14. eða 18. umferð í A.4/A.5. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Stykkið mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl og niður. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 59-63-67-75-79-83 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 5 cm er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu, þar sem fækkað er um 8-8-8-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 51-55-59-63-67-71 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (kantlykkja og kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni eins og áður). Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 yfir A.1. Prjónið A.2 á hæðina alls 2 sinnum. Stykkið mælist ca 17 cm. Prjónið nú A.1 yfir A.2 – munið eftir HNAPPAGAT á hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina prjónið A.3 yfir A.1. Haldið áfram þar til stykkið mælist alls 32-34-36-34-36-34 cm – stillið af þannig að endað sé eftir umferð frá réttu (þ.e.a.s. 1.,3.,5. eða 7. umferð í mynsturteikningu). Klippið frá og prjónið síðan frá réttu (þannig að það verða 2 umferðir frá réttu á eftir hvorri annarri) þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (þ.e.a.s. 6 lykkjur brugðið í þessari umferð), A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni (brugðið í þessari umferð). Í næst síðustu umferð í A.1 er lykkjufjöldinn jafnaður út í umferð til 47-56-56-57-66-67 lykkjur (fækkið/aukið út yfir 6 kantlykkjur að framan). Prjónið síðustu umferð í A.1. Nú er mynstrið prjónað mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S, XXL, XXXL: 6 kantlykkjur í garðaprjóni, A.4 (= 18 lykkjur) alls 2-3-3 sinnum á breidd, 4-5-6 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Stærð M, L og XL: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.4 (= 18 lykkjur) alls 2-2-2 sinnum á breidd, A.5 (= 10 lykkjur), 3-3-4 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Allar stærðir: Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm fellið af 3-3-3-4-4-5 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 44-53-53-62-62 lykkjur. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 13-14-14-14-15-15 lykkjur (= sjalkragi), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 31-39-39-39-47-47 lykkjur og fækkið jafnframt 0-4-0-0-4-0 lykkjur jafnt yfir = 31-35-39-39-43-47 lykkjur fyrir öxl. Snúið og prjónið sléttar lykkjur fyrir öxl (lykkjur fyrir sjalkraga eru áfram eftir á prjóni), snúið og fellið af. Klippið frá. Stykkið mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl og niður. Prjónið nú sjalkraga yfir 13-14-14-14-15-15 lykkjur með byrjun frá röngu þannig: UMFERÐ 1-5: Prjónið slétt yfir allar lykkjur. UMFERÐ 6: Prjónið slétt yfir fyrstu 6-7-7-7-7-7 lykkjur, snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 7: Prjónið slétt til baka. UMFERÐ 8: Prjónið slétt yfir allar lykkjur. Endurtakið umferð 1-8 þar til kraginn mælist 7-7-7½-7½-8-8 cm þar sem stykkið er styst, mælt frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir öxl. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 59-63-67-75-79-83 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) þar til 6 lykkjur eru eftir, 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 5 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu, þar sem fækkað er um 8-8-8-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 51-55-59-63-67-71 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (kantlykkja og kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni eins og áður). Prjónið nú mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 yfir A.1. Prjónið A.2 á hæðina alls 2 sinnum. Stykkið mælist ca 17 cm. Prjónið nú A.1 yfir A.2. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina prjónið A.3 yfir A.1. Haldið áfram þar til stykkið mælist alls 32-34-36-34-36-34 cm – stillið af þannig að endað sé eftir umferð frá réttu (þ.e.a.s. 1.,3.,5. eða 7. umferð í mynsturteikningu). Klippið frá og prjónið síðan frá réttu (þannig að það verða 2 umferðir frá réttu á eftir hvorri annarri) þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni (brugðið í þessari umferð), A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (þ.e.a.s. 6 lykkjur brugðið í þessari umferð). Í næst síðustu umferð í A.1 er lykkjufjöldinn jafnaður út til 47-56-56-57-66-67 lykkjur (fækkið/aukið út yfir 6 kantlykkjur að framan). Prjónið síðustu umferð í A.1. Nú er mynstrið prjónað mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S, XXL, XXXL: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 4-5-6 lykkjur slétt, A.4 (= 18 lykkjur) alls 2-3-3 sinnum á breidd, 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Stærð M, L og XL: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 3-3-4 lykkjur slétt, A.5 (= 10 lykkjur), A.4 (= 18 lykkjur) alls 2-2-2 sinnum á breidd, 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Allar stærðir: Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm fellið af 3-3-3-4-4-5 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá hlið fyrir handveg = 44-53-53-62-62 lykkjur. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 31-39-39-39-47-47 lykkjur og fækkið jafnframt 0-4-0-0-4-0 lykkjur jafnt yfir (= 31-35-39-39-43-47 lykkjur fyrir öxl), prjónið slétt yfir síðustu 13-14-14-14-15-15 lykkjur (sjalkragi). Snúið og prjónið slétt yfir allar lykkjur í umferð. Snúið og fellið af fyrstu 31-35-39-39-43-47 lykkjur fyrir öxl. Stykkið mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl og niður. Prjónið nú sjalkraga fram og til baka yfir 13-14-14-14-15-15 lykkjur með byrjun frá réttu þannig: UMFERÐ 1-5: Prjónið slétt yfir allar lykkjur. UMFERÐ 6: Prjónið slétt yfir fyrstu 6-7-7-7-7-7 lykkjur, snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 7: Prjónið slétt til baka. UMFERÐ 8: Prjónið slétt yfir allar lykkjur. Endurtakið umferð 1-8 þar til kraginn mælist 7-7-7½-7½-8-8 cm þar sem stykkið er styst, mælt frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir öxl. Fellið af. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á stuttan hringprjón. Fitjið upp 76-76-88-88-96-96 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-16-16-16-16 lykkjur jafnt yfir = 64-64-72-72-80-80 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan mynstur A.1 umferðina hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið mynstur A.2. Endurtakið A.2 á hæðina alls 2 sinnum. Stykkið mælist nú ca 17 cm. Prjónið nú A.1, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 4-0-4-2-6-4 lykkjur jafnt yfir = 60-64-68-70-74-76 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina prjónið A.3. Haldið áfram þar til stykkið mælist alls 42-40-38-38-37-35 cm. Haldið nú áfram með A.3 en prjónið fram og til baka þannig að það myndist smá klauf mitt undir ermi (þetta er gert til að auðveldara sé að setja ermina við fram- og bakstykki, þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg á fram- og bakstykki). Þegar ermin mælist alls 44-42-40-41-40-38 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermi. Síðasta hluta á ermi sem prjónaður er fram og til baka er saumaður við þar sem 3-3-3-4-4-5 lykkjur voru felldar af fyrir handveg á fram- og bakstykki. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Endurtakið á hinni hliðinni. Saumið sjalkragann saman við miðju að aftan innan við affellingarkantinn og saumið kragann við hálsmálið að aftan. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Klippið frá og festið enda. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (20)
Brigitte wrote:
Hallo, auf dem Bild ist zu sehen, dass am Ärmel auch Muster A4 gestrickt wird. In der Anleitung ist davon aber nichts zu lesen ??
18.04.2021 - 16:15DROPS Design answered:
Liebe Brigitte, der Teil A.4, der an den Ärmeln zu sehen ist, wird bei den Vorderteilen/beim Rückenteil gestrickt. Durch die Oversized-Größe hängen die Schultern recht weit über und der eigentliche Ärmel setzt erst etwas tiefer an. Viel Spaß beim Stricken!
18.04.2021 - 22:04Pauline wrote:
Was ist der Grund, warum die letzte Reihe (Rückreihe) von A.3 nicht gestrickt wird und dadurch 2 Hinreihen aufeinander folgen? Könnte man nicht stattdessen nach der letzten Hinreihe von A.3 eine Rückreihe linke Maschen stricken und dadurch das Abschneiden des Fadens vermeiden?
14.10.2020 - 12:59DROPS Design answered:
Liebe Pauline, das gehört zur Designerin Wahl. Viel Spaß beim stricken!
14.10.2020 - 16:25Jenny De Jong wrote:
Waarom laat u magere modellen poseren in Plus-size kleding? Het is geen gezicht! Zonde van het mooie vest; het lijkt wel een vuilniszak zo.
02.07.2020 - 14:25Siri wrote:
Hei! Hvilken størrelse bruker modellen på bildene i denne oppskriften?
17.03.2020 - 21:02DROPS Design answered:
Hej Siri, Det går ikke at sige. Vælg de mål i måleskitsen (nederst på siden) i den størrelse som passer dig. God fornøjelse!
18.03.2020 - 16:01Caromok wrote:
Bonjour, je ne comprends pas après A3 dans le dos. « Couper le fils et continuer sur l’endroit (2 rangs sur l’endroit l’un après l’autre) »pourriez-vous me l’expliquer merci.
27.10.2019 - 23:17DROPS Design answered:
Bonjour Mme Caromok, le dernier rang de A.3 se tricote sur l'endroit, quand vous l'avez tricoté, coupez le fil, ne tournez pas l'ouvrage, et tricotez le rang suivant comme indiqué sur l'endroit de nouveau = on va avoir 2 rangs sur l'endroit tricotés l'un après l'autre. Bon tricot!
04.11.2019 - 12:38Gisa wrote:
Finde die Jacke sehr schön. Laut Anleitung soll ein Schalkragen gestrickt werden, dieser ist bei der Abbildung nicht zu sehen, dort ist die Jacke mit V -Ausschnitt abgebildet. Gibt es noch eine andere Anleitung ?
25.10.2019 - 11:47DROPS Design answered:
Liebe Gisa, die Anleitung ist korrekt, der Kragen wird hier als Schalkragen bezeichnet, da einige Maschen der Vorderteile ab den Schultern als Kragen weitergestrickt werden und später hinten an den Halsausschnitt genäht werden. An den Vorderteilen entspricht der Kragen aber in der Tat einem V-Ausschnitt. Viel Spaß beim Stricken!
29.10.2019 - 22:44Else wrote:
Fin jakke, men hvorfor kaller dere dette sjalskrage? Det er ikke det.
19.08.2019 - 09:55DROPS Design answered:
Hei Else. Jakken har en liten sjalskrage. Det kommer ikke så godt frem på bildene (håret ligger over), men se på målskissen.
21.08.2019 - 11:43Carmen wrote:
Me encanta la chaqueta. Muy original pero no puedo abrir el patrón
05.08.2019 - 18:07DROPS Design answered:
Hola Carmen. Este patrón todavía no está publicado. Publicamos cada día los patrones de la nueva colección. En breve podrás comenzar con la labor.
06.08.2019 - 19:21Strickse wrote:
Wunderschön! Würde ich gerne nachstricken :-)
20.07.2019 - 16:12Strickse wrote:
Wunderschön! Würde ich gerne nachstricken :-)
20.07.2019 - 16:07