Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Candy Bar Jumper |
|
|
|
Prjónuð peysa fyrir börn með röndum úr DROPS Air, Nepal eða Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og laskalínu. Stærð 1 – 10 ára.
DROPS Children 34-23 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR: Rendur eru prjónaðar í öllu stykkinu þannig: Prjónið (10½)-11-12-13-14-15 cm með bleikur, (8½)- 9-10-11-12-13 cm gulur og (8½)- 9-10-11-12-13 cm sægrænn. Prjónið síðan stykkið til loka með ljós bleikur. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 46 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 40) = 1,15. Í þessu dæmi er aukið út næstum því á eftir hverri lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið er út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja) og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðinn svo að ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp (46)-52-54-56-60-60 lykkjur á hringprjón 4 með Air – allt stykkið er prjónað í RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 5 og setjið 1 prjónamerki í stykkið hér, HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Í næstu umferð er aukið út um (40)-42-42-44-48-50 lykkjur jafnt yfir – SJÁ ÚTAUKNING í útskýringu að ofan = (86)-94-96-100-108-110 lykkjur. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist (3)-3-3-3-3-3 cm. ATHUGRIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umferð er aukið út jafnt yfir (36)-38-38-40-46-48 lykkjur = (122)-132-134-140-154-158 lykkjur. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist (7)-7-7-7-7-7 cm. Í næstu umferð er aukið út um 30-32-38-40-42-42 lykkjur jafnt yfir = (152)-164-172-180-196-200 lykkjur. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist (11)-11-12-12-13-13 cm – munið eftir röndunum. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig: Setjið 1 prjónamerki eftir (45)-47-49-51-55-57 lykkjur (= bakstykki), setjið næsta prjónamerki eftir (31)-35-37-39-43-43 lykkjur (= ermi), setjið næsta prjónamerki eftir (45)-47-49-51-55-57 lykkjur (= framstykki) og setjið síðasta prjónamerki eftir (31)-35-37-39-43-43 lykkjur (= ermi). Prjónið síðan í sléttprjóni og í fyrstu umferð á að auka út lykkjur fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (8 lykkjur fleiri í hverri útaukningu). Aukið út í annarri hverri umferð alls (2)-3-3-4-4-5 sinnum = (168)-188-196-212-228-240 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist (13)-14-15-16-17-18 cm frá prjónamerki. Berustykki skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið (49)-53-55-59-63-67 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu (35)-41-43-47-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið (49)-53-55-59-63-67 lykkjur (= framstykki), setjið næstu (35)-41-43-47-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = (110)-118-122-130-138-146 lykkjur. Prjónið áfram í sléttprjóni og röndum eins og áður þar til stykkið mælist (12)-14-16-19-22-25 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 2 cm til loka). Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff með 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið þar til stroffið mælist ca 2 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca (30)-33-36-40-44-48 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið (35)-41-43-47-51-53 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna 5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = (41)-47-49-53-57-59 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í 6 lykkjurnar undir ermi, þetta verður byrjun á umferð. Prjónið í hring í sléttprjóni og röndum þar til stykkið mælist ca (12)-16-21-24-27-31 cm (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca (4)-4-4-4-5-5 cm til loka). Í næstu umferð er fækkað um (13)-17-17-21-23-25 lykkjur jafnt yfir í umferð = (28)-30-32-32-34-34 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið stroff hringinn með 1 lykkju slétt og 1 lykkju brugðið þar til stykkið mælist ca (4)-4-4-4-5-5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina alveg eins. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (26)
Sara Katarina wrote:
Hej Jeg strikker blusen i str. 7/8 år. Jeg har delt arbejdet i for- og bagstykke. I den forbindelse har jeg slået 6 masker op i siden af hvert ærme. Jeg forstår, at de 6 masker skal bruges, når jeg skal strikke ærmer. Derfor undrer det mig, at der under overskriften for for- og bagstykke, står at jeg skal have 138 masker. Her har man talt de 6x2 masker med, som om de skal strikkes med i for- og bagstykke. Det skal de vel ikke? Venligst Sara
30.06.2021 - 15:27DROPS Design answered:
Hei Sara. Jo, de nye maskene (6 x 2) skal telles med. Disse maskene er nye masker i sidene på genseren. Når du skal strikke ermene, skal du strikke opp 6 nye masker i disse 6 maskene, slik at ermene får 6 masker ekstra i hver erm. Ta evnt en titt på denne videoen, og rundt tiden 07:48 legges det opp nye masker til bolen, mens ved tiden 11:16 legges det opp nye masker til ermene (i denne oppskriften strikkes det opp masker under ermene istedenfor): Bluse strikket ovenfra og ned mvh DROPS design
05.07.2021 - 11:21Ana wrote:
Hola buenas tardes, para este patron que se teje con DROPS Air, Nepal o Paris. como lo adapto para lana grupo B Baby Merino Extra Fine. Se me ocurre hacer la muestra y ahi obtengo los puntos, pero como adapto los aumentos y disminuciones. Muchas gracias. Saludos Ana
22.12.2020 - 00:28DROPS Design answered:
Hi Ana, unfortunately we are not able to adjust our patterns to any individual requests. Should you need any individual assistance, please contact the store where you bought the yarn, even per mail or telephone. Happy knitting!
22.12.2020 - 17:13Kerstin Stenhol wrote:
Hej! På st 12/18 månader börjar man att lägga upp 46 maskor men i det lilla hålet kan inte ett barn få igenom sitt huvud. Hur är det tänkt?
12.12.2020 - 17:26DROPS Design answered:
Hei Kerstin. Garnet er nokså tøyelig, men om du ønsker å legge opp flere masker kan du gjøre det, bare avpass å øke færre masker etter de 3 rillene. Slik at du har et maskeantall som stemmer videre med oppskriften. Så om du f.eks legger opp 56 masker, må du kun øke med 30 masker jevnt fordelt (= 86 masker). mvh DROPS design
16.12.2020 - 15:03Lene Christiansen wrote:
Jeg har nu pillet bærestykket op 2 gange. Det bliver ikke pænt, når jeg tager ud på bærestykket ( der er strikket ret på rundpind). Skal jeg slå om på retpinden eller på vrangpinden? På forhånd tak. venlig hilsen Lene
23.11.2020 - 11:44Elise wrote:
Jeg strikker denne i str 1 år og opplever at målene ikke henger på greip. F.eks på ermet skal jeg strikke striper til arbeidet måler 12 cm, ifølge oppskriften. Da blir det jo en t-skjorte. Og stripene er på 8,5 cm hver, noe som virker mer riktig. Men vet ikke helt hvor langt jeg skal strikke med den siste fargen for å få ermet langt nok?
16.11.2020 - 20:51DROPS Design answered:
Hei Elise, Hvis du vil ha flere striper på minste størrelsen er det nok lurt å forkorte hver stripe. Ermene er forlenget ved at bolen kommer ned over skulderen, men du kan gjerne strikke til ønsket lengde, som beskrevet i teksten. God fornøyelse!
18.11.2020 - 10:32Judith wrote:
Hallo, is het de bedoeling om van ribbel naar tricot te veranderen op het moment dat je van kleur verandert, of wanneer het aangegeven wordt in het patroon, namelijk in mijn geval (maat 5/6), na 12cm breien en het werk in 4 verdeeld te hebben? Bij de beschrijving van de strepen staat dat roze na 13cm verandert in geel. Op de foto verandert de steek naar tricot als het kleur ook verandert (en dat lijkt me ook mooier) In welke steek brei ik die ene cm tussen 12 en 13cm?
09.11.2020 - 21:57DROPS Design answered:
Dag Judith,
Volgens het patroon brei je ribbelsteek tot een bepaalde hoogte en dan ga je over naar ribbelsteek. Bij sommige maten eindigt de ribbelsteek wanneer je over gaat in een andere kleur, bij andere mate niet. Dit is dus niet precies gelijk voor alle maten. Je kunt zelf kijken wat je het mooiste vindt, het heeft verder geen invloed op het patroon of de afmetingen.
18.11.2020 - 18:55Maren wrote:
Nachdem ich die 4 Markierer gesetzt habe, verstehe ich die Raglanzunahmen beginnen nicht ganz es steht siehe oben (ist für mich ok) dann der Satz in Klammern: 8 Maschen zugenommen pro Zunahmerunde? 8 M auf einmal zunehmen bei den M vom Raglan und dann 5x in jeder Runde wiederholen? Oder wie? Danke für eine Antwort Gruß Maren
23.10.2020 - 23:18DROPS Design answered:
Liebe Maren, es wird 1 Masche beidseitig jeder Markierung zugenommen = 2 Maschen bei jeder Markierung x 4 Markieurngen = 8 Maschen werden pro Zunahmenrunde zugenommen. In die letzte Grösse wiederholen Sie diese Zunahmen in jede 2. Runde insgesamt 5 Mal (= 8 Maschen x 5 = 40 Maschen werden zugenommen). Viel Spaß beim stricken!
26.10.2020 - 07:40Bonvoisin wrote:
Bonjour, j'ai monté 54 mailles en 4 pour une encolure 3-4 ans. Le tour de cou me semble ridiculement petit pour un enfant de cet âge. J'ai refait avec 74 mailles en 5 pour un tour de cou qui passe. Ai-je bien tout compris ?
30.09.2020 - 15:51DROPS Design answered:
Bonjour Mme Bonvoisin, ce modèle se tricote sur la base d'un échantillon de 17 m x 33 rangs point mousse/22 rangs jersey = 10 x 10 cm - si vous n'avez pas le bon échantillon, essayez avec des aiguilles différentes - vous trouverez plus d'infos sur l'échantillon ici. Bon tricot!
30.09.2020 - 16:08ROLANDE PICARD wrote:
Vous ne mentionnez pas l'encolure! combien de rang en rib?
25.03.2020 - 00:31DROPS Design answered:
Bonjour Mme Picard, vous montez 46 à 60 mailles en fonction de la taille avec l'aiguille circulaire 4 et tricotez 3 côtes mousse. Changez ensuite pour l'aiguille circulaire 5 et tricotez au point mousse en augmentant comme indiqué. Bon tricot!
25.03.2020 - 10:09Elisabeth wrote:
Hej. Jeg vil gerne strikke denne Candy Bar Jumper i str. 11/12 år. Hun er 12 år og 162 cm høj. Det er måske en str. small. Vil I hjælpe med at omdanne mønstret / maskeantal osv ? Det er kun denne trøje hun ønsker sig 😊 Mvh Elisabeth
21.01.2020 - 21:23DROPS Design answered:
Hei Elisabeth. Det har dessverre ikke design avdligen tid til. Men ta en titt på en damestørrelse og se på målskissen om det kan passe din datter bedre. mvh DROPS design
27.01.2020 - 14:53