DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Woodland Fairy

Prjónaður kjóll fyrir börn úr DROPS Sky eða DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð 3-12 ára.

DROPS Children 34-25
DROPS Design: Mynstur sk-008-bn
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærð í cm: 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152
EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-300-300-350 g litur 19, múrsteinn
Eða notið:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500-550-600 g litur 33, bleikur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Aukið út með því að slá uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Þegar stykkið skiptist fyrir ermar og fram- og bakstykki er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón og ermar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 72-78-84-90-96 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með Sky. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan).
Prjónið stroff með 1 lykkju slétt og 2 lykkjur brugðið í 3-3-4-4-4 cm (= kantur í hálsi). Héðan er nú mælt. Skiptið yfir í stuttan hringprjón 4. Prjónið 2 umferðir slétt og jafnið lykkjufjöldann jafnframt út í 1. umferð til 66-72-78-84-91 lykkjur. Prjónið síðan A.1 (= 11-12-13-12-13 mynstureiningar á breidd) – sjá mynstureiningu fyrir þína stærð! ATHUGIÐ PRJÓNFESETUNA! Skiptið yfir á lengri hringprjón þegar auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur. Þegar A.1 er lokið eru 198-216-234-240-260 lykkjur í umferð. Í næstu umferð er aukið út um 14-12-10-24-20 lykkjur jafnt yfir jafnframt því sem prjónað er sléttprjón = 212-228-244-264-280 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist ca 12-13-14-15-16 cm (án stroffs). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 31-33-35-37-39 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 44-48-52-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær), fitjið upp 6 nýjar lykkjur, prjónið 62-66-70-74-78 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 44-48-52-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær), fitjið upp 6 nýjar lykkjur, prjónið 31-33-35-37-39 lykkjur slétt (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 136-144-152-160-168 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 6 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett í 1. lykkju í umferð (= í hlið), 2. prjónamerki er sett í 23.-25.-26.-27.-28. lykkju, 3. prjónamerki er sett í 47.-49.-52.-55.-58. lykkju, 4. prjónamerki er sett í 69.-73.-77.-81.-86. lykkju (= í hlið), 5. prjónamerki er sett í 91.-97.-102.-107.-114. lykkju, 6. prjónamerki er sett í 115.-121.-128.-135.144. lykkju (nú eru 21-23-24-25-24 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki). SJÁ ÚTAUKNING! Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki (12 lykkjur fleiri í hverri útaukningu), endurtakið þessa útaukningu með 1½-2-2-2-1½ cm millibili alls 4 sinnum. Síðan er aukið út þannig: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 1. og 4. prjónamerki (= hliðar), aukið út um 1 lykkju á eftir 2. og 5. prjónamerki og 1 lykkju á undan 3. og 6. prjónamerki – SJÁ ÚTAUKNING (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningu).
Aukið út í mismunandi stærðum þannig:
3/4 ára: Aukið út með ca 3 cm millibili alls 11 sinnum.
5/6 ára: Aukið út með ca 3 cm millibili alls 11 sinnum.
7/8 ára: Aukið út með ca 3 cm millibili alls 12 sinnum.
9/10 ára: Aukið út með ca 3½ cm millibili alls 12 sinnum.
11/12 ára: Aukið út með ca 4 cm millibili alls 12 sinnum.
Nú eru 272-280-296-304-312 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 38-42-43-49-53 cm. Í næstu umferð er aukið út jafnt yfir 34-35-37-38-39 lykkjur í umferð – SJÁ ÚTAUKNING (aukið er út á eftir ca 8. hverri lykkju) = 306-315-333-342-351 lykkjur. Skiptið yfir í hringprjón 3,5 og prjónið stroff með 1 lykkju slétt og 2 lykkjur brugðið þar til stroffið mælist 2 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum í næstu umferð.

ERMI:
Setjið lykkjur frá öðrum þræðinum á sokkaprjón 4, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið á fram- og bakstykki (setjið 1 prjónamerki mitt í þessar lykkjur) = 50-54-58-64-68 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 24-29-33-36-40 cm frá prjónamerki, jafnið út lykkjufjöldann til 42-42-48-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff með 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum í næstu umferð. Prjónið hina ermina alveg eins.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umferð, það eiga að myndast göt
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Woodland Fairy

Kerensa, United States

Woodland Fairy

Monika, Poland

Woodland Fairy

Ela, Germany

Woodland Fairy

Gabriela, Romania

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 34-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (50)

country flag Zsuzsa wrote:

Hogy fér bele a gyermek feje, ha a nyakkivágás csak kb. 30 cm ? A 3,5-es kötőtűvel kezdve lesz annyira rugalmas a patent a nyakán, hogy egy 3 éves 50 cm fejkörfogatú lányka fel tudja venni ? Köszönöm válaszukat előre is!

04.06.2020 - 21:03

DROPS Design answered:

Dear Zsuzsa, the rib is stretchy, so it should be ok. The problem may be with the first round (casting on). Try to do it as elastic as possible. You can use bigger needles to do it, or use two needles, please see our video HERE. Don't give up and happy knitting!

20.11.2020 - 08:47

country flag Emilie wrote:

Hva betyr stjernen i starten av diagrammet?

23.05.2020 - 10:10

DROPS Design answered:

Hei Emilie, Stjernen betyr at du skal strikke en vrangmaske. God fornøyelse!

25.05.2020 - 07:38

country flag Jillyknits wrote:

Thanks for this pattern. In this pattern there are two types of YO, one to create a hole and the other to be twisted knit on the next row. Some rows have both. Would it be OK to increase by the knit front and back method where we don’t want a hole to be? Would make it easier.

08.05.2020 - 00:34

DROPS Design answered:

Dear Jillyknits, if you don't want to increase with the yarn overs, you can also tray to increase with the M1 (make one) technique, this would avoid the small demarcation you would get with knitting front and back loop of a stitch. But feel free to test different increase techniques on a swatch and choose the one you rather. Happy knitting!

08.05.2020 - 09:16

country flag Hermine wrote:

Hallo, kann es sein, dass die linken Maschen im Diagramm nicht versetzt, sondern immer übereinander gestrickt werden. Vielen Dank!

05.05.2020 - 23:07

DROPS Design answered:

Liebe Hermine, ja genau, sie sind im Diagram wegen Zunahmen in der Mitte vom Diagram versetzt aber sie werden immer übereinander gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

06.05.2020 - 10:32

country flag Iben Gredsted wrote:

Jeg strikker str 11/12 og er nået tilsat sætte 6 markører . Når ærmerne er formet starter omgangen jo midt bag, men i opskriften står der at første markør er siden . Der er ikke nogen markør i siden men før og efter ærmet og midt for og midt bag. Er det forkert? Vh Iben

08.04.2020 - 09:11

DROPS Design answered:

Hei Iben. De 6 merkene som settes i plagget, er der hvor du skal øke. 1. merke indikerer hvor du skal øke første gang. Det skal økes med 1 maske på hver side av hvert merke (12 masker økt pr økning), da vil det bli en jevn økning rundt hele kjolen. 1. og 4. merke viser også sidene i kjolen. God Fornøyelse!

27.04.2020 - 12:04

country flag Stine wrote:

Hei. Strikker denne kjolem og er nå på økningene under arm. I følge str 3-4 år skal det økes 4 ganger hver 1.5 cm og 11 ganger hver 3 cm. Dette blir jo 39 cm. Så står det at mam videre skal strikke til arbeidet måler 38 cm. Det stemmer ikke for meg når jeg allerede har 39 cm. Har jeg regnet feil?

30.03.2020 - 23:43

DROPS Design answered:

Hej Den första ökningen blir när arbetet mäter 0 cm, den andra efter 1,5 cm osv så det innebär att arbetet är 4,5 cm efter de 4 första ökningarna och när alla ökningar är klara mäter arbetet ca 37,5 cm (4,5 + 33 ). Mvh DROPS Design

31.03.2020 - 07:11

country flag Karla Silva wrote:

Mi hija acaba de cumplir 4 años esta bien realizar la prenda en talla de 3 a 4 años.....? por que la talla de 5 a 6 creo que sera muy grande para ella.

28.03.2020 - 19:36

DROPS Design answered:

Hola Karla. Para elegir la talla correcta como referencia puedes usar las medidas de la prenda bajo el patrón. Cuando tengas dudas entre dos tallas recomendamos elegir la talla más grande.

29.03.2020 - 23:11

country flag Christina Christensen wrote:

Når jeg har taget 11 gange ud i størrelse 5/6 år, så får jeg 282 masker og ikke 280. De 282 passer også med regnestykket 144+50 (5x12)+88(11x8). Hvor regner jeg forkert? Mvh Christina

19.03.2020 - 22:53

DROPS Design answered:

Hej Den första ökningen gör du totalt 4 gånger; 4 x 12 =48 m. 144+48+88= 280 m. Lycka till!

20.03.2020 - 06:57

country flag Nicky Middleton wrote:

I have reached the point in this pattern where I have separated for sleeves and body. All good so far, but please can you explain why the first and fourth markers indicate (=side) instead of mid -front and mid-back? Are these the correct places for increasing? Thank you in advance!

09.03.2020 - 23:20

DROPS Design answered:

Dear Nicky, you have to put the markers , and decrease and increase at the sides for waist shaping and shaping the skirt of the dress, which you don't do at the middle of the front and back BUt at the sides. I hope this helps. Happy Knitting!

10.03.2020 - 05:22

country flag Marie wrote:

Tack för svar! Jag var nog otydlig. Det är på varv 2 och 3 i diagrammet som det blir tokigt. Gör jag ingen förskjutning på första aviga så stämmer det, men blir fel på tredje...

05.03.2020 - 17:08

DROPS Design answered:

Hej Marie Är inte helt säker på att jag förstår vad du menar, men den första aviga i diagrammet gör du alltid på den första maskan på varvet, då ska mönstret stämma. Hålmönstret ska komma i linje uppåt. Mvh DROPS Design

06.03.2020 - 13:30