Sky Stripes Jacket |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með röndum úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og áferðamynstri. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 34-20 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. RENDUR OG MYNSTUR: Stykkið er prjónað í mynstri A.1, A.2 og A.3 – JAFNFRAMT eru prjónaðar rendur þannig: * Prjónið 3 cm með litnum ljós gallabuxnablár (meðtalinn kragi í hálsmáli) og síðan 2 cm með litnum hvítur * - endurtakið þessa litaröð þar til prjónaðar hafa verið 5-5-6-7-8-9 rendur með litnum hvítur á berustykki/fram- og bakstykki og 6-7-8-9-10-10 rendur með litnum hvítur á berustykki/ermi. Prjónið síðan áfram með litnum ljós gallabuxnablár til loka. ÚTAUKNING (á við um jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 141 lykkjur), mínus kanta að framan (= 131 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (= 27) = 4,8. Í þessu dæmi er aukið út eftir ca 5. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í hverri umferð frá réttu þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= lykkja með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur jafnóðum og aukið er út. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 1 lykkju slétt (prjónamerki situr í þessari lykkju), prjónið 2 lykkjur slétt saman. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsi mælist ca 1 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 6 -7-6½-7-7-7½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 3 með litnum ljós gallabuxnablár. Prjónið 5 kantlykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist ca 1 cm, skiptið yfir í hringprjón 4 og fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem auknar eru út 7-5-7-5-7-5 lykkjur jafnt yfir = 95-97-103-105-111-113 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Setjið nú 4 prjónamerki fyrir LASKALÍNA í stykkið, án þess að prjóna þannig: Setjið 1. prjónamerki í 18.-18.-20.-20.-22.-22. lykkju, setjið 2. prjónamerki í 32.-32.-34.-34.-36.-36. lykkju, setjið 3. prjónamerki í 64.-66.-70.-72.-76.-78. lykkju, setjið 4. prjónamerki í 78.-80.-84.-86.-90.-92. lykkju. Prjónið síðan RENDUR OG MYNSTUR með 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan og lesið allan næsta kafla áður en prjónað er áfram! Prjónið síðan frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir 1 lykkju, prjónið A.2 yfir næstu 10-10-12-12-14-14 lykkjur, prjónið A.3 yfir 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning fyrir laskalínu). Prjónið A.2 yfir næstu 12 lykkjur, prjónið A.3 yfir 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning fyrir laskalínu). Prjónið A.2 yfir næstu 30-32-34-36-38-40 lykkjur, prjónið A.3 yfir 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning fyrir laskalínu). Prjónið A.2 yfir næstu 12 lykkjur, prjónið A.3 yfir 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning fyrir laskalínu). Prjónið A.2 yfir næstu 12-12-14-14-16-16 lykkjur og prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fyrsta útaukningin fyrir laskalínu er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri). Frá röngu er prjónað þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1/A.2/A.3 (allar umferðir frá röngu í mynsturteikningu eru prjónaðar brugið) þar til 5 lykkjur eru eftir og prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með rendur og mynstur og aukið út fyrir laskalínu þar til aukið hefur verið út alls 15-16-17-18-19-20 sinnum = 215-225-239-249-263-273 lykkjur. Haldið áfram með mynstur og rendur þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið 28-29-32-33-36-37 lykkjur mynstur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 43-45-47-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6 lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 63-67-71-75-79-83 lykkjur mynstur eins og áður (= bakstykki), setið næstu 43-45-47-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, prjónið 28-29-32-33-36-37 lykkjur mynstur eins og áður og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni (= framstykki) = 141-147-157-163-173-179 lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið síðan mynstur, rendur og kantlykkjur að framan eins og áður. ATH! Þegar prjónaðar hafa verið alls 5-5-6-7-8-9 rendur með litnum hvítur á að prjóna afganginn af stykkinu með litnum ljós gallabuxnablár. Þegar stykkið mælist 17-19-22-25-28-31 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 27-33-31-37-39-41 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 168-180-188-200-212-220 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið stroff með 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur slétt þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar stykkið mælist 19-21-24-27-30-33 cm frá skiptingu – notið e.t.v. grófari prjón til að fella af, svo að kanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 33-36-40-44-48-52 cm, mælt frá öxl og niður. ERMI: Setjið 43-45-47-49-51-53 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 49-51-53-55-57-59 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð (mitt undir ermi). Prjónið hringinn og haldið áfram með mynstur A.1 og rendur eins og áður (lykkja með prjónamerki er prjónuð slétt í hverri umferð áfram). Þegar ermin mælist 2 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, fækkið um af 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur færri) - lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-4-5-5-7-6 cm millibili alls 5-6-5-6-5-6 sinnum = 39-39-43-43-47-47 lykkjur. ATH! Þegar prjónaðar hafa verið alls 6-7-8-9-10-10 rendur með litnum hvítur á að prjóna afganginn af stykkinu með litnum ljós gallabuxnablár. Prjónið þar til stykkið mælist 19-23-27-31-35-38 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 3-3-3-3-3-3 lykkjur jafnt yfir = 36-36-40-40-44-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið. Fellið af með sléttum lykkjum þegar ermin mælist 23-27-31-35-39-42 cm frá skiptingu – notið e.t.v. grófari prjóna til að fella af, svo að kanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (44)
Sandra wrote:
Die Ärmel werden nur in Muster A1 gestrickt mit ungerader Maschenzahl? Auf dem Foto sehen aber die Ärmel wie der Körper der Jacke aus... das ist aber doch mit ungrader Maschenzahl nicht möglich?
11.05.2020 - 17:36DROPS Design answered:
Liebe Sandra, die Ärmel werden über ungerader Maschenanzahl so gestrickt: A.2 (= 2 M) wiederholen und mit A.3 (= 1 M) enden (so beginnt und endet das Muster beidseitig gleich und so ist es auch symetrisch). Viel Spaß beim stricken!
12.05.2020 - 09:13Sandra Vierheller wrote:
Bei Größe 134/140 habe ich für das Vorderteil am Anfang des Raglanteils im Muster 16 M... dann nehme ich 19 M zu, macht 35 M... d. h. hier kann ich die glatt re Raglanmasche schon nicht mehr re stricken im weiteren Verkauf bis die Jacke 17 cm misst... sie wird links... so kommt es dann, dass ich mit den 6 M für die Ärmel nicht mehr mustergerecht stricken kann... wie schon Matina schrieb... oder hab ich einen Denkfehler?
11.05.2020 - 17:19DROPS Design answered:
Liebe Frau Vierheller, die Raglanmaschen werden immer glatt rechts gestrickt, die Zunahmen werden im Muster gestrickt, aber auch wenn alle Zunahmen fertig sind stricken Sie die Raglanmaschen immer noch glatt rechts bis die Arbeit 17 cm mist. Viel Spaß beim stricken!
12.05.2020 - 09:10Sandra wrote:
Was bedeutet eine Rück-Reihe rechts stricken? Soll ich tatsächlich rechte Maschen stricken, damit sie von der Vorderseite links erscheinen oder links damit sie von der Vorderseite rechts erscheinen?
08.05.2020 - 23:23DROPS Design answered:
Liebe Sandra, diese Rückreihe stricken Sie rechts, so haben Sie eine Krausrippe (Hinreihe rechts mit Zunahmen, Rückreihe rechts). Viel Spaß beim stricken!
11.05.2020 - 08:55Elina Rytsölä wrote:
Mitä tarkoittaa, kun sanotaan, että hihaa neulotaan piirroksen A1 mallineuletta? Eli ei A2 mallineuletta. Kuvan mukaan hihat ovat myös A2 mallineuletta.
05.05.2020 - 10:38DROPS Design answered:
Hi Elina, Work the entire piece (sleeves included) in pattern A.1, A.2 and A.3. Please see RAIDOITUS JA MALLINEULE. Happy knitting!
23.11.2020 - 16:53Martina wrote:
Die Maschenanzahl stimmt bei mir, aber ich weiß nicht wie ich die 6 Maschen unter dem Ärmel stricken soll um im Muster zu bleiben (rechts und links dieser Maschen sind rechts Maschen)? Vielen Dank!
26.03.2020 - 13:04DROPS Design answered:
Liebe Martina, alle Maschen werden jetzt im Muster gestrickt, dh auch die Raglan-Maschen, die zuvor glatt rechts gestrickt waren, stricken Sie enfach alle Maschen wie zuvor und einfach weiter auf die neuen Maschen unter den Arm. Sollte die Maschenanzahl korrekt sein, dann wird das Muster auch passen. Viel Spaß beim stricken!
26.03.2020 - 13:22Martina wrote:
Ich weiß nicht wie ich unter dem Ärmel im Muster bleiben kann, da ich eine ungerade Anzahl an Maschen für die Ärmel stillege und dann eine gerade Anzahl an Maschen unter die Ärmel aufnehme. Kann mir bitte jemand diesbezüglich helfen? Vielen Dank!
25.03.2020 - 21:33DROPS Design answered:
Liebe Martine, die Raglanmaschen wird zu den beiden Vorderteile und zum Rückenteil gestrickt, damit stimmt dann die Maschenanzahl. Viel Spaß beim stricken!
26.03.2020 - 09:47Annette Pedersen wrote:
Hej I skriver at 21 masker i glatstrikket er 10 cm . men trøjen er ikke strikket i glatstrikning hvad er strikkefastheden i mønsterstrik ? Venlig hilsen Annette
24.01.2020 - 16:00Edith wrote:
Hallo, welchen Durchmesser braucht man für die Knöpfe ?
06.01.2020 - 13:45DROPS Design answered:
Liebe Edith, hier finden Sie die knöpfe, diese messen 15 mm. Viel Spaß beim stricken!
06.01.2020 - 14:28Amina wrote:
Esque je peux tricoter les Manches en aller-retour car je maîtrise pas tricot en rond ? Merci
21.12.2019 - 18:36DROPS Design answered:
Bonjour Amina, tout à fait, vous trouverez ici quelques informations complémentaires à ce sujet; Bon tricot!
02.01.2020 - 09:36Amina wrote:
Esque je peux tricoter les Manches en aller-retour car je maîtrise pas tricot en rond ? Merci
21.12.2019 - 18:34