Owl Feathers |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónað sjal úr DROPS Delight og DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum og tveggja lita blaðamynstri í klukkuprjóni.
DROPS 203-13 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJA Í GARÐAPRJÓNI: Þar sem prjónaðar eru 2 umferðir frá réttu og strax á eftir 2 umferðir frá röngu, verður að prjóna sléttu lykkjurnar þannig: * slétt frá réttu, brugðið frá réttu, brugðið frá röngu, slétt frá röngu *, prjónið frá *-*. Kantlykkjurnar eru prjónaðar með tvöföldum þræði í hvert skipti sem 2 þræðir eru frá sömu hlið. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.13. A.1 og A.4 = hliðar á sjali. A.3 = miðja á sjali. KLUKKUPRJÓN Í TVEIMUR LITUM (fram og til baka): Randarmynstur er prjónað í klukkuprjóni eins og útskýrt er í A.1 til A.13. Til að fá fram tveggja lita áhrifin, prjónið rendur til skiptist með 1 umferð í litnum kamel og 1 umferð í litnum haustskógur. * Prjónið 1 umferð frá réttu með litnum kamel, færið síðan lykkjurnar til baka á hringprjóninum, þannig að næsta umferð sé einnig prjónuð frá réttu. Prjónið síðan 1 umferð frá réttu með litnum haustskógur. Prjónið 1 umferð frá röngu með litnum kamel, færið síðan lykkjurnar til baka á hringprjóninum, þannig að næsta umferð sé einnig prjónuð frá röngu. Prjónið síðan 1 umferð frá röngu með litnum haustskógur *, prjónið frá *-* til loka. Opin rúða og fyllt rúða (utan við mynsturteikningu) sýna ef umferðin sé prjónuð frá réttu eða röngu. Rúðan sýnir einnig ef umferðin sé prjónuð með litnum kamel eða haustskógur. Sjá LEIÐBEININGAR-1 að neðan. LEIÐBEININGAR-1: Ef þú ert ekki viss um hvaða lit á að prjóna með í næstu umferð þegar klukkuprjón með tveimur litum er prjónað ef prjónað með uppslætti, þá getur þú alltaf séð hvaða lit fyrri umferð var prjónuð með á því sjá litinn á kantlykkju. LEIÐBEININGAR-2 (á við um lykkjufjölda): Allur lykkjufjöldi sem gefinn er upp þegar klukkuprjón er prjónað er án uppsláttar, þar sem uppslátturinn tilheyrir sléttu lykkjunni og er talinn sem 1 lykkja. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í röndum með tveggja lita blaðamynstri í klukkuprjóni. Klukkuprjóns mynstrið fer yfir í sléttprjón með rönguna út, með klukkuprjóns lykkjum í lóðréttum röndum á milli. Síðan ná klukkuprjóns lykkjurnar yfir í sólfjaðramynstur og sléttprjóni með rönguna út á milli þessa. SJAL: Fitjið upp 6 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum kamel. Prjónið fyrstu umferð þannig (= ranga): 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 11 lykkjur. Prjónið næstu umferð með litnum kamel þannig (= rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir (uppsláttur er prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið næstu umferð með litum kamel þannig (= ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Snúið stykkinu. Prjónið síðan KLUKKUPRJÓN Í TVEIMUR LITUM og KANTLYKKJU Í GARÐAPRJÓNI – sjá útskýringu að ofan. PRJÓNIÐ A.1A, A.2, A.3A og A.4A ÞANNIG: Prjónið með byrjun frá réttu þannig: Prjónið A.1A (= 2 lykkjur), prjónið A.2 (= 3 lykkjur), prjónið A.3A (= 1 miðju lykkja), prjónið A.2 (= 3 lykkjur) og endið með A.4A (= 2 lykkjur). Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 59 lykkjur á prjóni – sjá LEIÐBEININGAR-2. Stykkið mælist ca 9 cm meðfram miðju lykkju. PRJÓNIÐ A.1B, A.5, A.6, A.7, A.3B og A.4B ÞANNIG: Prjónið með byrjun frá réttu þannig: Prjónið A.1B (= 2 lykkjur), prjónið A.5 (= 9 lykkjur), A.6 (= 8 lykkjur), prjónið A.7 (= 10 lykkjur), prjónið A.3B (= 1 miðju lykkja), prjónið A.5 (= 9 lykkjur), prjónið A.6 (= 8 lykkjur), prjónið A.7 (= 10 lykkjur) og endið með A.4B (= 2 lykkjur). Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 75 lykkjur í umferð. Endurtakið síðan A.1B, A.5, A.6, A.7, A.3B og A.4B á hæðina, í hvert skipti sem mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, hefur verið aukið út um alls 16 lykkjur í umverð og í hverri endurtekningu á hæðina er pláss fyrir 1 einingu fleiri af A.6 á breiddina á milli hverra A.5 og A.7. Haldið svona áfram þar til A.6 hefur verið prjónað alls 13 sinnum á hæðina = 267 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 50 cm meðfram miðju lykkju. PRJÓNIÐ A.1C, A.8, A.9, A.10, A.3C og A.4C ÞANNIG: Prjónið með byrjun frá réttu þannig: Prjónið A.1C (= 2 lykkjur), prjónið A.8 (= 9 lykkjur), prjónið A.9 yfir næstu 112 lykkjur (= 14 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.10 (= 10 lykkjur), prjónið A.3C (= 1 miðju lykkja), prjónið A.8 (= 9 lykkjur), prjónið A.9 yfir næstu 112 lykkjur (= 14 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.10 (= 10 lykkjur) og endið með A.4C (= 2 lykkjur). Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar A.9 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 491 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 70 cm meðfram miðju lykkju. PRJÓNIÐ A.1D, A.11, A.12, A.13, A.3D og A.4D ÞANNIG: Prjónið með byrjun frá réttu þannig: Prjónið A.1D (= 2 lykkjur), prjónið A.11 (= 25 lykkjur), prjónið A.12 yfir næstu 192 lykkjur (= 8 mynstureiningar með 24 lykkjum), prjónið A.13 (= 26 lykkjur, prjónið A.3D (= 1 miðju lykkja), prjónið A.11 (= 25 lykkjur), prjónið A.12 yfir næstu 192 lykkjur (= 8 mynstureiningar með 24 lykkjum), prjónið A.13 (= 26 lykkjur) og endið með A.4D (= 2 lykkjur). Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar A.12 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 531 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 80 cm meðfram miðju lykkju. Fellið af með litnum haustskógur frá röngu – fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – ATH: Uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja – að auki er slegið 1 sinni aukalega á milli hverra lykkja á uppsláttar (þessi uppsláttur er prjónaður eins og 1 lykkja og er síðan felldur af eins og hinar lykkjurnar). Þetta er gert til að sólfjaðrirnar fái fallegt bogalaga form. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (67)
Heidi wrote:
Hallo, ich möchte dieses Tuch für meine Schwiegertochter stricken. Da sie sehr groß ist, möchte ich fragen, ob man das Tuch auch verlängern kann. Und wenn ja, wie. Vielen Dank für Ihre Hilfe. Liebe Grüße und danke für die tollen Anleitungen. Ich habe schon einige davon gestrickt.
11.05.2023 - 08:57DROPS Design answered:
Liebe Heidi, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder Anfrage anpassen, gerne können Sie mal Ihr DROPS Laden nach persönnlicher Hilfe bitten - oder schauen Sie vielleicht, ob Ihnen ein größres Tuch gefällt. Viel Spaß beim stricken!
11.05.2023 - 16:26Monica wrote:
Ik zit helemaal vast in het gedeelte van A1c, A8, A9, A3C en A4C. Op rij 10 staan zwarte vakjes, maar er is niet bij elke steek een omslag. Bijv. de 1e 3 zwarte vakjes van A8 kloppen, maar de 4e heeft dus geen omslag. Dit zelfde probleem is ook bij A9 en A10 van dezelfde rij. Wat doe ik hier fout? Alvast bedankt voor de hulp.
03.01.2023 - 18:16DROPS Design answered:
Dag Monica,
Bij de vierde steek in A.8 heb je op de vorige naald een omslag gemaakt en de steek averecht afgehaald. Deze omslag en afhaling brei je nu, in rij 10, samen. Bij A.10 is dit ook het geval, maar dan op het einde. Kan het zijn dat het 7e de symbool in de lijst, waarbij je 2 steken meerdert door 3 steken in een rechte steek en omslag te breien, verwarring heeft opgeleverd?
04.01.2023 - 21:01Carolyn Bremner wrote:
Why did you take the zoom feature off your patterns? I really miss it.
21.07.2022 - 17:19Monika Koster wrote:
Kann ich alles bei Drops einssehen
08.06.2022 - 21:50DROPS Design answered:
Liebe Frau Koster, alle unsere Anleitungen können kostenlos gelesen und gedruckt werden. Am Ende jeder Anleitung-Seite finden Sie auch eine Liste von Lektionnen sowie Videotutorials, die Ihnen auch helfen kann. Gerne können Sie auch Ihre Frage hier stellen. Viel Spaß beim stricken!
09.06.2022 - 08:28Sab wrote:
Ce modèle est très joli mais pour tricoteurs/euses confirmé/es. J'ai pas mal galéré à le réaliser. Je tricote serré donc le châle est plus petit que sur l'image même si je l'ai étiré au maximum
05.02.2022 - 12:50DELATTRE Marie-Pierre wrote:
Bonjour. J. ai fait des essais, vu les vidéos ms je n. arrive pas à démarrer ce modèle. Je n. arrive pas à comprendre, lorsqu. on arrive aux rangs envers 1°) suit-on le diagram de gauche à droite ou continue-t-on à suivre de droite à gauche ? 2°) Faut-il inverser 1 jete/ une m glissée à l. envers par 1 m glissée à l. endroit ? Et du coup le jeté se fait il après ? Merci de votre aide. J. ai hâte de le démarrer....
11.11.2021 - 00:02DROPS Design answered:
Bonjour Mme Delattre, dans ce modèle, vous alternez 2 rangs sur l'endroit et 2 rangs sur l'envers (cf côtes anglaises bicolores). Vous devez donc lire les 2 rangs sur l'endroit de droite à gauche et les 2 rangs sur l'envers de gauche à droite - suivez la légende des symboles, elle est adaptée aux rangs sur l'endroit et aux rangs sur l'envers. Pensez également que vous pouvez ralentir les vidéos pour prendre plus de temps à bien regarder si besoin. Bon tricot!
11.11.2021 - 08:58George wrote:
Your instructions made absolutely no sense at all. Who taught you how to write patterns??
11.10.2021 - 22:53Chaignepain Francoise wrote:
Bonjour,dois je insérer un motif de A6 à côté du premier de chaque côté de la maille centrale ou bien juste avant la maille centrale de chaque côté. Cela bien sûr après avoir augmenté les 16 mailles. Merci de votre réponse
11.04.2021 - 10:09DROPS Design answered:
Bonjour Mme Chaignepain, quand A.5, A.6 et A.7 son terminés, vous avez 11+9+16 m (=35m); tricotez-les ainsi: A.5, 2x A.6, A.7 (=9+8+8+10 m), la fois suivante, vous aurez 3xA.6 de la même façon (=9+8+8+8+10m) et ainsi de suite. Et ceci de chaque côté de la maille centrale. Bon tricot!
12.04.2021 - 09:37Irunn Bakkane wrote:
Hvis jeg har fortått riktig, og det tviljer jeg på men...: 2. og 4. omgang hver syklus skal strikkes fra vrangen pga. at en tar arbeidet over på ny pinne. Dermed leser en 3. og 4. rad fra venstre mot høyre og speiler det en skal gjøre. (Vrangt blir rett osv.) Men hvorfor ikke strikke vanlig? Da leser en 2. og 4. omgang vrangt istedet og får like mye stress med det, men slipper å ta over masker. Evt. tar maskene over hele tiden slik at en slipper å lese mønsteret vrangt.
07.03.2021 - 23:31Bettina Nielsen wrote:
Jeg er i gang med dette smukke sjal, jeg har strikket pind 13 i første mønster, efter denne pind kan jeg ikke få maskeantallet til at passe jeg mangler 2 masker på hver side af midtermasken, jeg har lavet det om 100 gange uden resultat. Jeg er en virkelig erfaren strikker og har aldrig opgivet et projekt.
04.01.2021 - 14:28DROPS Design answered:
Hej Bettina, har du set videoen hvor vi strikker pind nr 13? Du skal få 2 nye masker i hver side af diagrammet (ialt 4 nye masker ifølge diagrammet). God fornøjelse!
15.01.2021 - 13:34