Sandstone Wrap |
|
|
|
Prjónað sjal úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum og klukkuprjóni í tveimur litum.
DROPS 203-16 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. RÖND 1: UMFERÐ 1 = ljós grágrænn. UMFERÐ 2 = turkos/grár. UMFERÐ 3 = ljós grágrænn. UMFERÐ 4 = turkos/grár. UMFERÐ 5 = ljós grágrænn. Endurtakið síðan umferð 2-5. RÖND 2: UMFERÐ 1 = grágrænn. UMFERÐ 2 = turkos/grár. UMFERÐ 3 = grágrænn. UMFERÐ 4 = turkos/grár. UMFERÐ 5 = grágrænn. Endurtakið síðan umferð 2-5. RÖND 3: UMFERÐ 1 = ljós kamel. UMFERÐ 2 = grágrænn. UMFERÐ 3 = ljós kamel. UMFERÐ 4 = grágrænn. UMFERÐ 5 = ljós kamel. Endurtakið síðan umferð 2-5. AUKIÐ ÚT UM 2 LYKKJUR: Útaukning er gerð frá réttu í sléttri lykkju með uppslætti þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en sleppið ekki uppslættinum af vinstra prjóni. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið uppsláttinn og lykkjuna aftur slétt saman. Nú er lykkjunni sleppt af vinstri prjóni. Í næstu umferð frá réttu eru þessar lykkjur prjónaðar þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftir fyrstu lykkjunni eins og prjóna eigi brugðið. Prjónið uppsláttinn brugðinn. Sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið. Nú hefur 1 lykkja slétt orðið 2 lykkjur slétt með tveimur uppsláttum og 1 lykkja brugðið á milli sléttra lykkja = 2 lykkjur fleiri. AUKIÐ ÚT UM 4 LYKKJUR: Útaukning er gerð frá réttu í sléttri lykkju með uppslætti þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en sleppið ekki uppslættinum af vinstra prjóni. * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið uppsláttinn og lykkjuna aftur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum og sleppið síðan lykkjunni og uppslættinum af vinstra prjóni. Í næstu umferð frá réttu eru þessar lykkjur prjónaðar þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftir fyrstu lykkjunni eins og prjóna eigi brugðið. * Prjónið uppsláttinn brugðinn *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum. Nú hefur 1 lykkja orðið 3 lykkjur slétt með uppslætti og 1 lykkja brugðið á milli hverrar sléttrar lykkju = 4 lykkjur fleiri. LEIÐBEININGAR-1: Ef þú ert ekki viss um hvaða lit á að prjóna með í næstu umferð, þá getur þú alltaf séð hvaða lit fyrri umferð var prjónuð með á því að skoða kantlykkjuna. LEIÐBEININGAR-2: Allur lykkjufjöldi sem gefinn er þegar klukkuprjón er prjónað er án uppsláttar, þar sem uppslátturinn tilheyrir sléttu lykkjunni og er ekki talinn sem 1 lykkja (ef ekki annað er gefið upp). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón til að fá pláss fyrir allar lykkjurnar. Stykkið samanstendur af einingum með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – og röndum með klukkuprjóni í tveimur litum. SJAL: Fitjið upp 5 lykkjur á hringprjón 4 með litnum ljós grágrænn. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 7 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt. Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt = 11 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkjuna og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Haldið svona áfram með að auka út 4 lykkjur í annarri hverri umferð þannig (innan við 1 kantlykkju og hvoru megin við miðju lykkju) þar til alls 35 lykkjur eru í umferð – uppslátturinn frá síðustu útaukningu er alltaf prjónaður snúinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú áfram í klukkuprjóni í tveimur litum ljós grágrænn og turkos/grár – SJÁ RÖND 1 í útskýringu að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 slétta kantlykkju, * prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 slétta kantlykkju. Ekki snúa stykkinu, heldur færið lykkjurnar á prjóninum þannig að næsta umferð sé einnig prjónuð frá réttu. Lesið LEIÐBEININGAR 1 og 2 í útskýringu að ofan. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 1 slétta kantlykkju, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næstu lykkju og uppsláttinn brugðið saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni. Sláið 1 sinni uppá prjóninn og takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 slétta kantlykkju. Snúið stykkinu þannig að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 1 slétta kantlykkju, * prjónið næstu lykkju og uppsláttinn brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni. Prjónið næstu lykkju og uppsláttinn brugðið saman og prjónið 1 slétta kantlykkju. Ekki snúa stykkinu, heldur færið lykkjurnar á prjóninum þannig að næsta umferð sé einnig prjónuð frá réttu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 1 slétta kantlykkju, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 slétta kantlykkju. Snúið stykkinu þannig að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Fyrir áframhaldandi útaukningu eru sett prjónamerki í næstu 3 lykkjur slétt frá réttu í stykki þannig: Setjið 1 prjónamerki í 2. lykkju í umferð, setjið 1 prjónamerki í miðju lykkjuna (þetta er sama lykkjan sem var með prjónamerki í byrjun á stykki) og setjið 1 prjónamerki í næst síðustu lykkjuna. Síðan eru lykkjur auknar út í lykkjur með prjónamerki og prjónað er frá réttu þannig: UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 1 slétta kantlykkjur, í næstu lykkju er aukið út um 2 LYKKJUR – sjá útskýringu að ofan. * Sláið 1 sinni uppá prjóninn og takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman *, prjónið frá *-* fram að miðju lykkju með prjónamerki í (= slétt lykkja með uppslætti). Í næstu lykkjur er aukið út um 4 LYKKJUR – sjá útskýringu að ofan, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, í næstu lykkju eru aukið út um 2 LYKKJUR. Endið með 1 sléttri kantlykkju. Ekki snúa stykkinu, heldur færið lykkjurnar til á prjóninum þannig að næsta umferð sé einnig prjónuð frá réttu. Endurtakið síðan umferð 2-5, en passið uppá að auka út 2 LYKKJUR í ystu lykkju slétt í hvorri hlið á stykki og auka út 4 LYKKJUR í miðju lykkju. Prjónið svona þar til eining með klukkuprjóni mælist ca 10 cm, stillið af að síðasta umferð sem prjónuð er sé eins og 4. umferð og að næsta umferð sé frá réttu. Klippið frá þráðinn með ljós grágrænn – turkos/grár er síðan notaður. Prjónið MILLI EINING í útskýringu að neðan. MILLI EINING: Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 1 slétta kantlykkju, * prjónið 1 lykkja slétt í uppslátt sem tilheyrir sléttu lykkjunni, prjónið 1 lykkju slétt í sléttu lykkjuna, prjónið 1 lykkju slétt í brugðnu lykkjuna *, prjónið frá *-* alls 10 sinnum (nú hefur verið aukið út um 10 lykkjur yfir ystu 21 lykkjurnar). Prjónið sléttar lykkjur þar til 21 lykkjur eru eftir í lok umferðar, ** prjónið 1 lykkju slétt í brugðnu lykkjuna, prjónið 1 lykkju slétt í uppsláttinn sem tilheyrir sléttu lykkjunni og prjónið 1 lykkju slétt í sléttu lykkjuna **, prjónið frá **-** alls 10 sinnum og prjónið 1 slétta kantlykkju (nú hefur verið aukið út um 10 lykkjur yfir ystu 21 lykkjurnar). Nú á að prjóna stuttar umferðir. Það verður að reikna þær út, þar sem lykkjufjöldinn er ekki gefinn upp. Teljið fjölda lykkja fram að miðju lykkju (ekki telja miðju lykkjuna með). Deilið síðan þessum fjölda með 9. Fjöldann sem þú færð er ca sá fjöldi lykkja sem á að vera á milli hversu oft snúið er við í stuttu umferðunum. Þessi fjöldi er í texta þar sem orðið SNÚNINGSLYKKJUR er notað. Prjónið með byrjun frá réttu þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur fram að miðju lykkju (ekki prjóna miðju lykkjuna), snúið stykki. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju (prjónið í fremri og aftari lykkjubogann) og snúið stykkinu (nú er lokið 1. stutta umferðin). UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til SNÚNINGSLYKKUR eru eftir á undan fyrri snúning, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju (prjónið í fremri og aftari lykkjubogann) og snúið stykkinu (nú er lokið 2. stuttu umferðinni). Haldið áfram að prjóna eins og umferð 3 og 4 þar til prjónaðar hafa verið alls 10 stuttar umferðir (= 20 umferðir garðaprjón og 10 lykkjur fleiri yst að hlið á stykki). Í næstu umferð er aukið út um 2 lykkjur með því að prjóna 2 lykkjur í hverja og eina af ystu 2 lykkjum, prjónið síðan sléttar lykkjur út umferðina frá röngu. Prjónið með byrjun frá réttu þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur fram að miðju lykkju (ekki prjóna miðju lykkjuna), snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju (prjónið í fremri og aftari lykkjubogann) og snúið stykkinu (nú er lokið 1. stuttu umferðinni). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til SNÚNINGSLYKKJUR eru eftir frá fyrri snúningi, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju (prjónið í fremri og aftari lykkjubogann) og snúið stykkinu (nú er lokið 2. stuttu umferðinni). Haldið áfram að prjóna eins og umferð 3 og 4 þar til prjónaðar hafa verið alls 10 stuttar umferðir (= 20 umferðir garðaprjón og 10 lykkjur fleiri yst að hlið). Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 2 lykkjur með því að prjóna 2 lykkjur í hverja og eina af ystu 2 lykkjum, prjónið síðan sléttar lykkjur út umferðina frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið nú áfram í klukkuprjóni í tveimur litum turkos/grár og grágrænn – sjá RÖND 2 og prjónið umferð 1-5 eins og útskýrt er að ofan. Endurtakið síðan umferð 2-5, en passið uppá að auka út 2 LYKKJUR alltaf í ystu lykkju slétt í hvorri hlið á stykki og auka út 4 LYKKJUR alltaf í miðju lykkjuna. Prjónið svona þar til klukkuprjón mælist ca 10 cm, stillið af að síðasta umferðin sem er prjónuð sé eins og 4. umferð og næsta umferð sé frá réttu. Klippið frá. Skiptið yfir í ljós grágrænn og prjónið MILLI EINING. Prjónið nú áfram í klukkuprjóni í tveimur litum ljós kamel og grágrænn – sjá RÖND 3 og prjónið umferð 1-5 eins og útskýrt er að ofan. Endurtakið síðan umferð 2-5, en passið uppá að auka út 2 LYKKJUR alltaf í ystu lykkju slétt í hvorri hlið á stykki og auka út 4 LYKKJUR alltaf í miðju lykkju. Prjónið svona þar til eining í klukkuprjóni mælist 10 cm, stillið af að síðasta umferðin sem er prjónuð sé eins og 4. umferð og næsta umferð sé frá réttu. Klippið frá. Skiptið yfir í litinn turkos/grár og prjónið MILLI EINING. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (15)
Petra Ansorg wrote:
Gefällt mir sehr gut. Warte schon auf die Anleitung.
26.08.2019 - 13:28Britt Svaneblom wrote:
När kommer mönstret väntar
18.08.2019 - 10:22Lena wrote:
This one looks great.
15.07.2019 - 23:26Sandra☆ wrote:
Prachtige kleuren combinatie
26.06.2019 - 22:44Claire wrote:
Me gusta mucho este original chal
17.06.2019 - 21:05