Midnight Fire |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Air. Stykkið er heklað ofan frá og niður með stuðlakrókum og röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-44 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju. HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umferðir eru heklaðar fram og til baka og eru heklaðar saman í lok/byrjun á umferð þannig: Allar umferðir með fastalykkjum byrja með 1 loftlykkju (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju) og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, snúið stykkinu. Allar umferðir með stuðlum byrja með 3 loftlykkjum (koma í stað fyrsta stuðul) og enda með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, snúið stykkinu. Allar umferðir með tvíbrugðnum stuðlum byrja með 4 loftlykkjum (koma í stað fyrsta tvíbrugðna stuðul) og enda með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð, snúið stykkinu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. LITASKIPTI: Þegar skipt er um lit í byrjun á umferð, heklið keðjulykkju í lok fyrri umferðar með nýja litnum. ÚTAUKNING/ÚRTAKA: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 58 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 5,8. Þ.e.a.s. í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 fastalykkjur í sömu lykkju í ca 6. hverja lykkju. RENDUR BERUSTYKKI: ATH: Þegar skipt er um lit þá er það alltaf gert á eftir umferð með fastalykkjum! Rendurnar eru heklaðar ofan frá og niður þannig: 7-7-7-7-9-9 umferðir með hveiti. 4 umferðir með svartur. 2 umferðir með bleikur. 2 umferðir með appelsína. 4 umferðir með svartur. 2 umferðir með appelsína. 2 umferðir með hveiti. * 2 umferðir með appelsína, 2 umferðir með bleikur *, heklið *-* alls 1-1-1-2-2-2 sinnum. 2 umferðir með hveiti. 2 umferðir með bleikur. 2 umferðir með svartur. Heklið síðan með svartur og mynstur A.5Y til loka. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermi): Fækkið um 2 lykkjur með því að hekla eins og útskýrt er í A.7. Fækkið lykkjum til skiptis á undan og á eftir prjónamerki. HEKLIÐ 2 TVÍBRUGÐNA STUÐLA SAMAN (á við um ermi): Heklið 2 tvíbrugðna stuðla saman þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í fyrstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul til viðbótar alveg eins í næstu lykkju. Bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 tvíbrugðinn stuðull færri). RENDUR STROFF: ATH: Þegar skipt er um lit þá er það alltaf gert á eftir umferð með fastalykkjum! Rendurnar eru heklaðar ofan frá og niður þannig: 3 umferðir með svartur. 2 umferðir með appelsína. 2 umferðir með bleikur. 2 umferðir með svartur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er heklað fram og til baka (þ.e.a.s. til skiptis frá réttu og röngu) og er heklað saman í lok hverrar umferðar, ofan frá og niður. Ermar eru heklaðar fram og til baka og eru heklaðar saman í lok hverrar umferðar, ofan frá og niður. Að lokum er heklaður kantur í hálsmáli. BERUSTYKKI: Heklið 58-60-62-66-70-72 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJ, með heklunál 5,5 með litnum svartur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. Heklið 1 loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju umferðina hringinn = 58-60-62-66-70-72 fastalykkjur. Skiptið yfir í litinn hveiti – sjá LITASKIPTI. Í næstu umferð er byrjað á RENDUR BERUSTYKKI – sjá útskýringu að ofan, með byrjun frá röngu þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og aukið út 10-10-10-12-12-12 fastalykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 68-70-72-78-82-84 fastalykkjur. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju = 68-70-72-78-82-84 stuðlar. Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig: * A.1 (= 2 lykkjur), endurtakið A.2 yfir næstu 32-32-34-36-38-40 lykkjur (= 16-16-17-18-19-20 mynstureiningar með 2 lykkjum) *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, heklið A.2 yfir síðustu 0-2-0-2-2-0 lykkjur (= 0-1-0-1-1-0 mynstureiningar yfir 2 lykkjur). Þegar A.1 og A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina eru 132-136-140-152-160-164 lykkjur í síðustu umferð. Endurtakið síðan A.1X og A.2X. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 13-13-14-14-15-15 cm – stillið af eftir umferð frá réttu. Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig: Heklið A.3 yfir næstu 0-4-2-2-4-2 lykkjur (= 0-2-1-1-2-1 mynstureiningar yfir 2 lykkjur), endurtakið A.4 yfir næstu 132-132-138-150-156-162 lykkjur (= 22-22-23-25-26-27 mynstureiningar yfir 6 lykkjur). Þegar A.3 og A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina eru 176-180-186-202-212-218 lykkjur í síðustu umferð. Endurtakið síðan A.3X og A.4X. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 20-20-22-22-24-24 cm – stillið af eftir umferð frá réttu. STÆRÐ S-M: Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig: * Endurtakið A.5 yfir fyrstu 86-16 maskorna (= 43-8 mynstureiningar yfir 2 lykkjur), A.6 (= 2 lykkjur) *, heklið frá *-* alls 2-10 sinnum. Heklið til og með A.5X og A.6X = 180-200 lykkjur í síðustu umferð. Endurtakið A.5X og A.6X þar til síðasta röndin hefur verið gerð. Heklið síðan A.5Y yfir allar lykkjur. Endurtakið síðan A.5Y. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 23-24 cm – stillið af eftir umferð frá réttu. STÆRÐ L–XL–XXXL: Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig: * Endurtakið A.5 yfir fyrstu 6-10-4 lykkjur (= 3-5-2 mynstureiningar yfir 2 lykkjur), A.6 (= 2 lykkjur), endurtakið A.5 yfir næstu 8-12-6 lykkjur (= 4-6-3 mynstureiningar yfir 2 lykkjur), A.6 (= 2 lykkjur) *, heklið frá *-* alls 10-7-14 sinnum, endurtakið A.5 yfir næstu 4-18-20 lykkjur (= 2-9-10 mynstureiningar yfir 2 lykkjur) og endið með A.6 (= 2 lykkjur). Heklið til og með A.5X og A.6X = 228-232-276 lykkjur í síðustu umferð. Endurtakið A.5X og A.6X þar til síðasta röndin hefur verið gerð. Heklið síðan A.5Y yfir allar lykkjur. Endurtakið síðan A.5Y. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 25-27-31 cm – stillið af eftir umferð frá réttu. STÆRÐ XXL: Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig: * Endurtakið A.5 yfir fyrstu 6 lykkjurnar (= 3 mynstureiningar yfir 2 lykkjur), A.6 (= 2 lykkjur) *, heklið *-* alls 24 sinnum, endurtakið A.5 yfir síðustu 20 lykkjurnar (= 10 mynstureiningar með 2 lykkjum). Heklið til og með A.5X og A.6X = 260 lykkjur í síðustu umferð. Endurtakið A.5X og A.6X þar til síðasta röndin hefur verið gerð. Heklið síðan A.5Y yfir allar lykkjur. Endurtakið síðan A.5Y. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 29 cm – stillið af eftir umferð frá réttu. ALLAR STÆRÐIR: = 180-200-228-232-260-276 lykkjur. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki frá röngu þannig: Heklið eins og áður yfir fyrstu 56-62-70-72-80-86 lykkjur (= bakstykki), heklið 6-6-6-8-8-8 lausar loftlykkjur (= mitt undir ermi), hoppið yfir næstu 34-38-44-44-50-52 lykkjur (= ermi), heklið eins og áður yfir næstu 56-62-70-72-80-86 lykkjur (= framstykki), heklið 6-6-6-8-8-8 lausar loftlykkjur (= mitt undir ermi), hoppið yfir 34-38-44-44-50-52 lykkjur sem eftir eru (= ermi). Fram- og bakstykki og ermar er nú heklað hvort fyrri sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 124-136-152-160-176-188 fastalykkjur. Haldið áfram með A.5Y eins og áður yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 28-29-39-30-30-30 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd) – stillið af eftir umferð frá röngu. Klippið frá og festið enda. ERMI: Stykkið er heklað fram og til baka (þ.e.a.s. til skiptis frá réttu og röngu) og heklað saman með 1 keðjulykkju í hverri umferð. Byrjið á að hekla í 4. loftlykkju af 6-6-6-8-8-8 loftlykkjur sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki þannig: Heklið 1 keðjulykkju, 4 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull), 1 tvíbrugðinn stuðull í hverja og eina af næstu 2-2-2-3-3-3 loftlykkjum, haldið áfram með A.5Y eins og áður yfir næstu 34-38-44-44-50-52 lykkjur, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af síðustu 3-3-3-4-4-4 loftlykkjum undir ermi = 40-44-50-52-58-60 tvíbrugðnir stuðlar. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, það á að nota það síðar fyrir úrtöku. Haldið áfram með mynstur A.5Y eins og áður yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 2-2-4-4-6-4 sinnum = 36-40-42-44-46-52 lykkjur. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 35-34-34-32-30-29 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 10 cm að loka máli – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis) – stillið af eftir umferð frá röngu. Heklið næstu umferð og fækkið lykkjum þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af fyrstu 0-1-0-2-1-1 lykkjum, * 2 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN – sjá útskýringu að ofan, 1 tvíbrugðinn stuðull í næstu lykkju *, heklið frá *-* út umferðina = 24-27-28-30-31-35 tvíbrugðnir stuðlar. Heklið 1 umferð með fastalykkjum. Heklið næstu umferð með tvíbrugðnum stuðlum og fækkið um 2-3-4-4-3-7 tvíbrugðna stuðla jafnt yfir = 22-24-24-26-28-28 tvíbrugðnir stuðlar. Heklið síðan stroff með stuðlakrókum og RENDUR STROFF – sjá útskýringu að ofan, þannig: Heklið A.8 yfir allar lykkjur (= 11-12-12-13-14-14 mynstureiningar með 2 lykkjum). Þegar A.8 hefur verið heklað til loka, klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið fram og til baka yfir loftlykkjuröð í hálsi með svartur þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Byrjið mitt að aftan, festið þráðinn við stykkið með 1 keðjulykkju í fastalykkju, heklið 2 loftlykkjur (= 1 hálfur stuðull), heklið 1 hálfan stuðul í hverja fastalykkju út umferðina = 58-60-62-66-70-72 hálfir stuðlar. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Heklið 1 hálfan stuðul í hvern hálfan stuðul = 58-60-62-66-70-72 hálfir stuðlar. UMFERÐ 3 (= frá réttu): Heklið 1 hálfan stuðul í hvern hálfan stuðul = 58-60-62-66-70-72 hálfir stuðlar. UMFERÐ 4 (= frá röngu): Heklið 1 fastalykkju í hvern hálfan stuðul 58-60-62-66-70-72 hálfir stuðlar. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (33)
Carla wrote:
Foutje van mij........de rel stokjes komen maar aan 1 kant..............die snap ik.
24.10.2019 - 12:53DROPS Design answered:
Dag Carla,
Dankjewel voor de terugkoppeling, ik begrijp dat je nu verder kunt. Veel haakplezier!
29.10.2019 - 10:05Carla wrote:
Ik snap het nog niet helemaal. Komt er na elke toer met Rel stokjes, nou een toer vasten?? En.... komen er dan rel. stokjes zowel aan de goed- als verkeerder kant??
24.10.2019 - 12:50DROPS Design answered:
Dag Carla,
Ja, dat klopt, er worden steeds afwisselend toeren van vasten en toeren van stokjes gehaakt. De reliëfstokjes komen op de goede kant.
30.10.2019 - 12:00Magdalena wrote:
❤️❤️❤️
19.09.2019 - 21:42Magdalena wrote:
Moc si přeji udělat si svetr s vyplétaným sedlem, ale na pletení si netroufám. Toto je sen pro můj háček!
13.08.2019 - 16:54ANGELIQUE Van Heijst wrote:
Geweldig!! heel mooi!
31.07.2019 - 22:26Anke wrote:
Schöner Pulli
19.07.2019 - 14:14Barbara Van Der Bij wrote:
Ellis is een azijnpisser
16.07.2019 - 18:01Kerstin wrote:
Jättefin!
22.06.2019 - 22:54Johanna wrote:
Beautiful ! Love crocheted sweaters !
15.06.2019 - 08:43Regina wrote:
Sehr häkelbar. Lädt ein zum Nachmachen. Vielleicht auch in anderen Farben.
12.06.2019 - 22:31