DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10472.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Winter Sunshine

Peysa með hringlaga berustykki og norrænu marglitu mynstri, hekluð ofan frá og niður úr DROPS Karisma. Stærð S - XXXL.

DROPS 180-15
DROPS Design: Mynstur u-812
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
600-650-750-800-900-950 g litur 55, ljós brúnn
150-150-150-200-200-200 g litur 01, natur
50-50-50-50-100-100 g litur 77, ljós eik
50-50-50-50-50-50 g litur 52, sinnepsgulur

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 stuðlar og 9 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10472.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Þegar A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.4a endurtekið til loka.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Stykkið er heklað allan tímann bæði í hring og fram og til baka. Heklað er til skiptis frá réttu og frá röngu og hver umferð endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.
Hver umferð með stuðlum byrjar með 3 loftlykkjum (kemur í stað fyrsta stuðuls) og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar, snúið stykkinu.
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, er skipt út fyrstu fastalykkjunni með 1 loftlykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun umferðar.

LITAMYNSTUR
Þegar skipt er um lit í byrjun á nýrri umferð er heklað þannig: Heklið síðasta stuðulinn með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin. Skiptið yfir í nýjan lit, dragið þráðinn í gegn í lokin og heklið 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.
Snúið stykkinu og heklið 3 loftlykkjur (= byrjun á nýrri umferð).
Þegar skipt er um lit í umferð er heklað þannig: Heklið 1 stuðul með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin. Skiptið yfir í nýjan lit, dragið þráðinn í gegn í lokin með nýja litnum.
Þegar heklað er með tveimur litum, leggið þráðinn á þeim lit sem ekki er heklað með yfir lykkjurnar frá fyrri umferð, heklið utan um þráðinn þannig að hann sjáist ekki og fylgi með hringinn. Passið uppá að fylgiþræðirnir dragi ekki stykkið saman og að þráðurinn herði ekki að þegar hann er tekinn upp frá fyrri umferð.

ÚTAUKNING-1 (á við um berustykki):
Heklið 2 stuðla í sama lit í 1 stuðul frá fyrri umferð.

ÚTAUKNING-2 (á við um fram- og bakstykki):
Heklið þar til 3 stuðlar eru eftir á undan prjónamerki, heklið 2 stuðla í næsta stuðul, 1 stuðul í hvern af næstu 4 stuðlum (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), 2 stuðlar í næsta stuðul (= 2 stuðlar fleiri). Endurtakið við næsta prjónamerki (= alls 4 stuðlar fleiri í umferð).

ÚRTAKA (á við um ermar):
Heklið þar til 4 stuðlar eru eftir á undan prjónamerki, heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er það dregið í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 4 stuðlum (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), heklið 2 næstu stuðla saman alveg eins (= 1 stuðull færri = alls 2 stuðlar færri í umferð).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður, hringinn fram og til baka. Heklað er saman í lok hverrar umferðar. Stykkið er heklað frá miðju að aftan.

BERUSTYKKI:
Heklið 106-110-115-120-124-129 loftlykkjur með heklunál 4,5 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), - lesið HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 0-4-2-0-4-2 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja og eina af næstu 6 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* = 92-96-100-104-108-112 stuðlar.
Heklið A.1 og A.2 þannig:
Heklið mynstur, aukið út í mynstri (sjá útaukning í mynsturteikningu) og aukið út jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1.
UMFERÐ 1 (rétta):
Heklið A.1 (= 2 stuðlar) yfir fyrstu 14-14-16-17-18-18 stuðla og aukið út 2-2-2-3-4-4 stuðla jafnt yfir (= hálft bakstykki).
Heklið A.2 (= 4 stuðlar), A.1 yfir næstu 10 stuðla og aukið út 2-4-4-4-4-6 stuðla jafnt yfir. A.2 yfir næstu 4 stuðla (= hægri ermi).
Heklið A.1 yfir næstu 28-30-32-34-36-38 stuðla og aukið út 4-4-4-6-8-8 stuðla jafnt yfir (= framstykki).
Heklið A.2 yfir næstu 4 stuðla, A.2 yfir næstu 10 stuðla og aukið út 2-4-4-4-4-6 stuðla jafnt yfir, A.2 yfir næstu 4 stuðla (= vinstri ermi).
Heklið A.1 yfir síðustu 14-16-16-17-18-20 stuðla og aukið út 2-2-2-3-4-4 stuðla jafnt yfir (= hálft bakstykki) = 112-120-124-132-140-148 stuðlar (meðtalin útaukning í A.2) – LESIÐ LITAMYNSTUR!

UMFERÐ 2 (= ranga):
Heklið A.1 yfir fyrstu 16-18-18-20-22-24 stuðla, A.2, endurtakið A.1 yfir næstu 12-14-14-14-14-16 stuðla, A.2, endurtakið A.1 yfir næstu 32-34-36-40-44-46 stuðla, A.2, endurtakið A.1 yfir næstu 12-14-14-14-14-16 stuðla, A.2, endurtakið A.1 yfir síðustu 16-16-18-20-22-22 stuðla = 120-128-132-140-148-156 stuðlar (meðtalin útaukning í A.2). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

UMFERÐ 3 (= rétta):
Heklið mynstur = 8 stuðlar fleiri í A.2 = 128-136-140-148-156-164 stuðlar.

UMFERÐ 4 (= ranga):
Heklið A.1 yfir fyrstu 16-18-18-20-22-24 stuðla og aukið út 2-0-0-3-4-4 stuðla jafnt yfir, A.2, heklið A.1 yfir næstu 12-14-14-14-14-16 stuðla og aukið út 0-4-4-4-4-6 stuðla jafnt yfir, A.2, heklið A.1 yfir næstu 32-34-36-40-44-46 stuðla og aukið út 4-2-4-6-8-8 stuðla jafnt yfir, A.2, heklið A.1 yfir næstu 12-14-14-14-14-16 stuðla og aukið út 0-4-4-4-4-6 stuðla jafnt yfir, A.2, heklið A.1 yfir síðustu 16-16-18-20-22-22 stuðla og aukið út 2-2-2-3-4-4 stuðlar jafnt yfir = 144-156-162-176-188-200 stuðlar (meðtalin útaukning í A.2).

UMFERÐ 5 (= rétta):
Heklið A.1 yfir fyrstu 18-18-20-23-26-26 stuðla, A.2, heklið A.1 yfir næstu 12-18-18-18-18-22 stuðla, A.2, heklið A.1 yfir næstu 36-36-40-46-52-54 stuðla, A.2, heklið A.1 yfir næstu 12-18-18-18-18-22 stuðla, A.2, heklið A.1 yfir síðustu 18-18-18-23-26-28 stuðla = 152-164-170-184-196-208 stuðlar (meðtalin útaukning í A.2).

Stykkið mælist nú ca 7 cm. Heklið nú A.2 áfram eins og áður og A.3 er heklað yfir A.1 þannig:

UMFERÐ 6 (= ranga):
Heklið A.3 yfir fyrstu 18-18-18-23-26-28 stuðlana og aukið út 3-3-3-4-4-2 stuðla jafnt yfir, A.2, heklið A.3 yfir næstu 12-18-18-18-18-22 stuðla og aukið út 0-0-3-3-3-5 stuðla jafnt yfir, A.2, heklið A.3 yfir næstu 36-36-40-46-52-54 stuðla og aukið út 3-6-5-5-8-9 stuðla jafnt yfir, A.2, heklið A.3 yfir næstu 12-18-18-18-18-22 stuðla og aukið út 0-0-3-3-3-5 stuðla jafnt yfir, A.2, heklið A.3 yfir síðustu 18-18-20-23-26-26 stuðla og aukið út 0-3-4-4-4-4 stuðla jafnt yfir = 162-180-192-207-222-237 stuðlar (meðtalin útaukning í A.2).

UMFERÐ 7 (= rétta):
Heklið A.3 yfir fyrstu 18-21-24-27-30-30 stuðla, A.2, heklið A.3 yfir næstu 12-18-21-21-21-27 stuðla, A.2, heklið A.3 yfir næstu 39-42-45-51-60-63 stuðla, A.2, heklið A.3 yfir næstu 12-18-21-21-21-27 stuðla, A.2, heklið A.3 yfir síðustu 21-21-21-27-30-30 stuðla = 166-184-196-211-226-241 stuðlar (meðtalin útaukning í A.2).

UMFERÐ 8 (= ranga):
Heklið mynstur eins og áður.

UMFERÐ 9 (= rétta):
Heklið mynstur eins og áður og aukið út 2-0-4-5-6-7 stuðla jafnt yfir í umferð = 168-184-200-216-232-248 stuðlar.
Stykkið mælist ca 11 cm.
Heklið síðan eftir mynsturteikningu A.4 (= 8 stuðlar) – sjá útaukning í mynsturteikningu, alls 21-23-25-27-29-31 sinnum á breidd þar til stykkið mælist 25-26-28-30-32-34 cm. Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 252-276-300-324-348-372 stuðlar í umferð.
Nú skiptist fram- og bakstykki og ermar þannig: Heklið A.4 yfir fyrstu 36-41-45-49-54-57 stuðla (= hálft bakstykki), 8-8-8-10-10-10 loftlykkjur, setjið 1 merkiþráð í miðju á þessum lykkjum, hoppið yfir næstu 53-56-60-63-65-71 stuðla (= ermi), heklið A.4 yfir næstu 73-82-90-99-109-115 stuðla (= framstykki, 8-8-8-10-10-10 loftlykkjur, setjið 1 merkiþráð í miðju á þessum lykkjum, hoppið yfir næstu 53-56-60-63-65-71 stuðla (= ermi), heklið A.4 yfir síðustu 37-41-45-50-55-58 stuðla (= hálft bakstykki). Klippið frá.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 146-164-180-198-218-230 stuðlar og 16-16-16-20-20-20 loftlykkjur (= alls 162-180-196-218-238-250 lykkjur). Stykkið er nú heklað með byrjun frá merkiþræði í hlið. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, merkiþráðurinn í hlið fylgir áfram með í stykkinu. Haldið áfram með A.4. Stuðlarnir sem ekki ganga upp í mynstri í hvorri hlið eru heklaðir með litnum ljós brúnn.
Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 2 stuðla við hvort prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING-2!
Aukið svona út með 5-9-9-9-9-9 cm millibili alls 4-3-3-3-3-3 sinnum = 178-192-208-230-250-262 stuðlar. Jafnóðum í útaukningu eru stuðlar heklaðir inn í mynstur, stuðlar sem ekki ganga upp í mynstrið í hlið eru heklaðir með litnum ljós brúnn. Haldið áfram þar til stykkið mælist 29-30-30-30-30-30 cm frá prjónamerki (= 54-56-58-60-62-64 cm frá kanti í hálsi) – endið eftir 4 umferðir með litnum ljós brúnn. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
= 53-56-60-63-65-71 stuðlar. Haldið áfram með A.4. Byrjið á að hekla í 5.-5.-.5-6.-6.-6. loftlykkju í þær 8-8-8-10-10-10 loftlykkjur sem heklaðar voru i handveg á fram- og bakstykki þannig: Heklið 1 keðjulykkju, 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3-3-3-4-4-4 loftlykkjum, 1 stuðull í hvern stuðul yfir ermi, 1 stuðull í hverja og eina af síðustu 4-4-4-5-5-5 loftlykkjum undir ermi = 61-64-68-73-75-81 stuðlar. Stuðlar sem ekki ganga upp í mynstri undir ermi eru heklaðir með litnum ljós brúnn. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Setjið 1 prjónamerki í stykkið.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Látið prjónamerkið vera eftir í stykkinu, merkiþráðurinn fylgir með í stykkinu.
Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 2 stuðla hvoru megin við prjónamerkið – LESIÐ ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 2½-2-2-1½-1½-1 cm millibili alls 10-12-12-14-13-16 sinnum = 41-40-44-45-49-49 stuðlar. Haldið áfram þar til stykkið mælist 36-36-34-33-31-30 cm frá prjónamerki (61-62-62-63-63-64 cm frá kanti í hálsi) – endið eftir 4 umferðir með ljós brúnn. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

HÁLSMÁL:
Stykkið er heklað í hring frá miðju að aftan. Heklið loftlykkju þar sem 1. umferð með stuðlum var hekluð (þ.e.a.s. loftlykkjur sem hoppað var yfir er ekki heklað í = 92-96-100-104-108-112 lykkjur).
Heklið með ljós brúnn þannig:
UMFERÐ 1: Heklið upphækkun aftan í hnakka þannig: Festið þráðinn með 1 keðjulykkju og heklið 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul, heklið 1 stuðul í hverja og eina af fyrstu 18-19-20-21-22-23 lykkjum, 1 hálfur stuðull í hverja og eina af næstu 10 lykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 34-36-38-40-42-44 lykkjum, 1 hálfur stuðull í hverja af næstu 10 lykkjum, 1 stuðull í hverja af síðustu 19-20-21-22-23-24 lykkjum.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju og fækkið um 12 lykkjur jafnt yfir = 80-84-88-92-96-100 fastalykkjur. Klippið frá og frestið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 01.09.2017
Mynsturteikning A.4 hefur verið uppfærð

Mynstur

symbols = natur
symbols = 2 stuðlar í sama stuðul með natur
symbols = ljós brúnn
symbols = 2 stuðlar í sama stuðul með ljós brúnum
symbols = sinnepsgulur
symbols = 2 stuðlar í sama stuðul með sinnepsgulum
symbols = ljós eik
symbols = 2 stuðlar í sama stuðul með ljósri eik
symbols = engin lykkja
symbols = heklstefna
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (87)

country flag Magali wrote:

EMPIÈCEMENT: Crocheter -110- mailles en l'air (pour le modèle M) et fermer en rond avec 1 maille coulée dans la 1ère maille en l'air. Crocheter 3 mailles en l'air (= 1 bride) 1 bride dans chacune des 0-4-2-0-4-2 mailles en l'air suivantes, *sauter 1 maille en l'air, 1 bride dans chacune des 6 mailles en l'air suivantes*, répéter de *-* = 96- brides. Que signifie crocheter 1 bride dans la maille 0 puis 4 puis 2 puis 0 ?

30.04.2022 - 22:28

DROPS Design answered:

Bonjour Magali, chaque chiffre correspond à la taille, autrement dit, en fonction de la taille vous devrez crocheter soit 0 brides (taille S et XL) ou bien 4 brides (taille M et XXL) ou 2 brides (taille L et XXXL). Bon crochet!

02.05.2022 - 08:37

country flag Lisbeth Eliassen wrote:

Hei igjen. Har for så vidt kommet meg gjennom mønsteret. Å får det til. Men valgte å rekke opp å prøve på nytt da jeg ikke ble fornøyd med overgangene bake på genseren( begynnelsen av omgangen) og under armen (begynnelsen på omgangen etter armhull) Noen som har tips til videoer som viser hvordan du går fra å helle rundt, til fram og tilbake? Eller hvordan få «pene» skjøter/overganger/begynnelse på omgang. Takknemlig for alle tips dere kan gi meg.

19.04.2022 - 20:20

DROPS Design answered:

Hej Lisbeth, vi har videoer hvor vi viser hvordan man hækler rundt. Her er feks en hvor vi viser start og slut på hver omgang: Hækle rundt det kan være at den kan hjælpe dig videre :)

22.04.2022 - 13:47

country flag Lisbeth Eliassen wrote:

Hei. Prøver å lage str Xl. Har kommet til 3.rad. Men her stopper det opp å jeg forstår ikke hvordan jeg skal gjøre det videre. Jeg har 140 staver. Men hvis jeg hekler A.2, rad3 får jeg ikke 148 som det står i oppskriften. Hva er det jeg gjør galt?

03.03.2022 - 10:06

DROPS Design answered:

Hei Lisbeth. Du hekler fremdeles etter mønster (som er både A.1 og A.2) I rad 1 og 2 økte du jevnt fordelt i A.1 og i A.2 økte du etter diagram. Når du skal hekle 3. rad er det kun i A.2 det skal økes (8 økte staver), og du hekler A.1 over A.1. Når du skal hekle 4. rad er det beskrevet i oppskriften hvordan du skal øke jevnt fordelt i A.1. mvh DROPS Design

07.03.2022 - 13:52

country flag Kathrin wrote:

Hallo.Lese ich das Diagramm in der Hinrunde von rechts nach links und in der Rückrunde von links nach rechts?Oder grundsätzlich in jeder Runde von rechts nach links.

15.02.2022 - 15:38

DROPS Design answered:

Liebe Kathrin, ja genau, bei den Rückrunden sollen Sie die Diagramme links nach rechts lesen - hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim häkeln!

15.02.2022 - 17:14

country flag Marion wrote:

Ik snap toer 3 niet als ik de tekening volg dan meerder ik per herhaling al 2 keer maar in de tekst staat dat ik maar 8 steken moet meerderen. Dat snap ik niet

09.01.2022 - 13:19

DROPS Design answered:

Dag Marion,

Je haakt toer 3 verder in patroon, dus zoals uitgelegd in toer 2, waarbij er dus in totaal 8 stokjes worden gemeerderd omdat je A.2 4 keer haakt op de toer (daar tussen zit A.1)

10.01.2022 - 17:58

country flag Lene Petri wrote:

Hej med jer. Jeg er ny indenfor hækleverden. Er lige begyndt på Drop design sweater winter sunshine str. XL... er nået til række 3... er gået i stå.. jeg forstår ikke hvad jeg skal gøre. Hvis jeg følger A2 diagrammet, får jeg alt for MANGE masker. Der skal være 148 masker... hvad menes der med (hækle mønster = 8 stangmasker taget ud i A2??? ) Hvordan skal jeg hækle rækken, så maskeantallet passer? På forhånd tak Lene Petri

27.10.2021 - 06:55

DROPS Design answered:

Hej Lene, du har 104 masker og du kan se at udtagningerne er tegnet ind i diagram A.2, det vil sige at på første omgang tager 2 masker ud hver gang du hækler A.2 = 8m + 20m ifølge forklaringen i opskriften = 132 masker. På 2. og 3. omgang tager du kun ud ifølge A.2 = 8 + 8 masker = 148 masker. God fornøjelse!

28.10.2021 - 13:52

country flag Kendall wrote:

Hi there! I am working on the M version of this sweater and running into trouble before I even get to the charts. I have chained 110 and ss together. However when I chain 3, dc in the next 4, and sk 1 dc 6 in the remaining stitches I end up with 95 dc rather than 96. What am I doing wrong here? I can’t seem to figure it out. Thank you in advance!

21.09.2021 - 23:43

country flag Jackie Jarvis wrote:

How do I determine which size garment (sweater, in this case) to make? I can't find any measurements on the pattern's page, and sizes can vary widely by studio.

24.07.2021 - 03:23

DROPS Design answered:

Dear Jackie, you can find all the relevant measurements of the finished piece on the schematic drawing at the bottom of the pattern. We suggest you measure a sweater that fits you and compare. Happy Stitching!

24.07.2021 - 09:35

country flag Estelle wrote:

Bonjour, je ne comprends pas bien le début du diagramme A4. Le carré noir indique pas de maille. Mais si je saute cette maille, j’ai 9 brides et le compte n’est pas bon... alors que si je fais 8 brides, je peux le répéter 21 fois pour la taille S comme indiqué. à quoi correspond ce carré noir, et que dois-je faire? Merci !

03.06.2021 - 17:47

DROPS Design answered:

Bonjour Estelle, ce carré noir n'est pas une maille, autrement dit, A.4 se crochète sur 8 mailles jusqu'au rang 3 où vous augmentez en crochetant 2 brides dan sla même bride en chêne clair = 8ème symbole de la légende = vous avez désormais 9 brides dans A.4. Au tour suivant, vous augmentez de nouveau 1 bride (au début de A.4) = 10 brides. Bon crochet!

04.06.2021 - 07:00

country flag Annemette Bovbjerg Thøgersen wrote:

Jeg har prøvet at lave til omgang 4 et par gange, men kan ikke helt få det til at passe. Såvidt jeg kan se på opskriften, skal man hækle A1 oveni A1 og A2 oveni A2 fra forrige række, og hver række starter og slutter skiftevis med 16 og 18 stangmasker (A1). Men når jeg vender går det galt. Jeg laver en kædemaske i 3. luftmaske, vender og derefter 3 nye luftmasker (=stangmaske), men har nu stadig f.eks. yderligere 18 masker hen til (A2), så derfor i alt 19 stangmasker (inkl luftmasker)

07.04.2021 - 22:21

DROPS Design answered:

Hei Annemette. Litt usikker på hvor det går feil hos deg. Hvilken str hekler du? Husk at de 3 luftmaskene du starter med erstatter 1 stav. Har du fått med deg alle økningne i diagrammene, både i A.1 og A.2? Prøv å sett hjelpemarkører mellom hver diagram, da har man lettere oversikt og kan sjekke etter hver rad at man har det maskeantallet som står i oppskriften. mvh DROPS design

26.04.2021 - 10:10