DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Beyond Boots

Prjónaðar tátiljur úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í garðaprjóni og klukkuprjóni. Stærð 35-42.

DROPS 203-27
DROPS Design: Mynstur ee-676
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Skóstærð: 35/37 - 38/39 - 40/42
Lengd fótar: Ca 22-24-26 cm.

EFNI:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
200-250-250 g litur 84, páfuglablár

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 60 eða 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TRÉTALA, NR 512: 6 stykki í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

KLUKKUPRJÓN ÁN UPPSLÁTTAR (fram og til baka):
1. UMFERÐ (= ranga): Prjónið allar lykkjur slétt.
2. UMFERÐ (= rétta): * Prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkju slétt í lykkjuna undir næstu lykkju *, prjónið frá *-* og endið með 1 lykkju brugðið.
3. UMFERÐ (= ranga): * Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna undir næstu lykkju, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* og endið með 1 lykkju slétt í lykkjuna undir næstu lykkju.
Endutakið 2. og 3. umferð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, prjónað er ofan frá og niður. Tátiljan er saumuð saman í lokin.

HÆGRI TÁTILJA:
STROFF / LEGGUR:
Fitjið upp 39-41-43 lykkjur á prjón 6 með Snow. Prjónið 3 umferðir slétt. Prjónið síðan þannig: Prjónið 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið KLUKKUPRJÓN ÁN UPPSLÁTTAR – sjá útskýringu að ofan, þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni og prjónið 3 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram að prjóna klukkuprjón með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið (= kantar) þar til stykkið mælist ca 12 cm.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í næstu umferð frá réttu eru felldar af fyrstu 3 lykkjur í garðaprjóni með sléttum lykkjum, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 5-4-5 lykkjur, prjónið klukkuprjón yfir næstu 9-11-11 lykkjur eins og áður, prjónið garðaprjón yfir síðustu 22-23-24 lykkjur. Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 4 cm frá þar sem 3 lykkjur voru felldar af – stillið af að síðasta umferðin sé frá röngu. Klippið frá.

EFRI HLUTI:
Byrjið frá réttu (= í þeirri hlið þar sem felldar voru af 3 lykkjur), setjið fyrstu 5-4-5 lykkjur á þráð, haldið eftir næstu 9-11-11 lykkjur á prjóni, setjið síðustu 22-23-24 lykkjur á þráð. Nú er prjónað klukkuprjón yfir 9-11-11 lykkjur þannig: Byrjið frá réttu og fitjið upp 1 nýja lykkju, prjónið klukkuprjón yfir 9-11-11 lykkjur eins og áður, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (gerið lykkju sem er sett snúin á prjóninn) = 11-13-13 lykkjur.
Prjónið síðan með 1 kantlykkju í garðaprjóni hvoru megin við 9-11-11 lykkjur í klukkuprjóni þar til efra stykkið mælist ca 7-8½-10 cm. Í næstu umferð frá röngu er kantlykkjum fækkað með því að prjóna þær saman við lykkjuna við hliðina = 9-11-11 lykkjur. Setjið lykkjur á þráð. Klippið frá.

FÓTUR:
Byrjið frá réttu (= í þeirri hlið þar sem felldar voru af 3 lykkjur), setjið til baka fyrstu 5-4-5 lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið slétt yfir þessar lykkjur, prjónið upp 12-14-16 lykkjur innan við 1 kantlykkju meðfram efri hluta. Setjið til baka 9-11-11 lykkjur frá efri hluta á prjóninn og prjónið þær slétt. Prjónið upp 12-14-16 lykkjur innan við 1 kantlykkju meðfram hinni hliðinni á efri hluta. Setjið til baka 22-23-24 lykkjur af seinni þræði á prjóninn og prjónið þær síðan slétt. Nú eru 60-66-72 lykkjur í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Setjið 1 prjónamerki í 22.-24.-27. lykkju (mitt að framan) og 1 prjónamerki í 52.-57.-63. lykkju (mitt að aftan). Prjónið garðaprjón. Þegar stykkið mælist ca 2 cm frá þar sem stykkið var sett saman, á að fækka lykkjum mitt að framan og að aftan frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman hvoru megin við lykkjur með prjónamerki (= 4 lykkjur færri). Haldið áfram í garðaprjóni og fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu þar til stykkið mælist ca 5-5-6 cm frá þar sem það var sett saman. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

FRÁGANGUR:
Brjótið uppá tátiljuna þannig að 3 lykkjurnar sem felldar voru af (kantur) liggi yfir kant í hinni hliðinni á tátilju. Afffellingarkanturinn liggur á móti hvorum öðrum þannig að langhliðar mætast. Saumið í ysta lykkjubogann á garðaprjóni frá affellingarkanti og upp meðfram hlið á tátiljunni fram að kanti. Klippið þráðinn frá og festið. Saumið síðan saman affellingarkantinn, saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. Klippið frá og festið enda. Staðsetjið 3 tölur jafnt yfir á ysta kantinn og saumið niður í gegnum bæði lögin.

VINSTRI TÁTILJA:
STROFF / LEGGUR:
Fitjið upp 39-41-43 lykkjur á prjón 6 með Snow. Prjónið 3 umferðir slétt. Prjónið síðan þannig: Prjónið 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið KLUKKUPRJÓN ÁN UPPSLÁTTAR – sjá útskýringu að ofan, þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni og prjónið 3 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram að prjóna klukkuprjón með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið (= kantar) þar til stykkið mælist ca 12 cm.
Í næstu umferð frá röngu eru felldar af fyrstu 3 lykkjur í garðaprjóni með sléttum lykkjum, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 5-4-5 lykkjur, prjónið klukkuprjón yfir næstu 9-11-11 lykkjur eins og áður, prjónið garðaprjón yfir síðustu 22-23-24 lykkjur. Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 4 cm frá þar sem 3 lykkjur voru felldar af – stillið af að síðasta umferðin sé frá röngu. Klippið frá.

EFRI HLUTI:
Byrjið frá réttu (= í gagnstæðri hlið þar sem felldar voru af 3 lykkjur), setjið fyrstu 22-23-24 lykkjur á þráð, haldið eftir næstu 9-11-11 lykkjum á prjóni, setjið síðustu 5-4-5 lykkjur á þráð. Nú er prjónað klukkuprjón yfir 9-11-11 lykkjur þannig: Byrjið frá réttu og fitjið upp 1 nýja lykkju, prjónið klukkuprjón yfir 9-11-11 lykkjur eins og áður, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (gerið lykkju sem er sett snúin á prjóninn) = 11-13-13 lykkjur.
Prjónið síðan með 1 kantlykkju í garðaprjóni hvoru megin við 9-11-11 lykkjur í klukkuprjóni þar til efra stykkið mælist ca 7-8½-10 cm. Í næstu umferð frá röngu er kantlykkjum fækkað með því að prjóna þær saman við lykkjuna við hliðina = 9-11-11 lykkjur. Setjið lykkjur á þráð. Klippið frá.

FÓTUR:
Byrjið frá réttu (= í gagnstærði hlið þar sem felldar voru af 3 lykkjur), setjið til baka fyrstu 22-23-24 lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið slétt yfir þessar lykkjur, prjónið upp 12-14-16 lykkjur innan við 1 kantlykkju meðfram efri hluta. Setjið til baka 9-11-11 lykkjur frá efri hluta á prjóninn og prjónið þær slétt. Prjónið upp 12-14-16 lykkjur innan við 1 kantlykkju meðfram hinni hliðinni á efri hluta. Setjið til baka 5-4-5 lykkjur af seinni þræði á prjóninn og prjónið þær slétt. Nú eru 60-66-72 lykkjur í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Setjið 1 prjónamerki í 9.-10.-10. lykkju (mitt að aftan) og 1 prjónamerki í 39.-43.-46. lykkju (mitt að framan). Prjónið garðaprjón. Þegar stykkið mælist ca 2 cm frá þar sem stykkið var sett saman, á að fækka lykkjum mitt að framan og að aftan frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman hvoru megin við lykkjur með prjónamerki (= 4 lykkjur færri). Haldið áfram með garðaprjón og fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu þar til stykkið mælist ca 5-5-6 cm frá þar sem það var sett saman. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

FRÁGANGUR:
Frágangur er alveg eins og á hægri tátilju.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 22.04.2021
Útskýring fyrir KLUKKUPRJÓN ÁN UPPSLÁTTAR hefur verið leiðrétt.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 203-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Mijo wrote:

Comment avoir les explications en français ? Merci de me répondre

15.03.2024 - 08:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Mijo, cliquez sur le menu déroulant à côté de l'icône de l'imprimante pour changer de langue et basculer les explications en français. Bon tricot!

15.03.2024 - 09:34

country flag Sabrina Pfeifer-Schmidt wrote:

Schlag ich für den Fußrücken "nur" 36 Maschen an?

05.11.2023 - 19:33

DROPS Design answered:

Liebe Frau Pfeifer-Schmidt, ich finde leider keine "36" Maschen in diese Anleitung, Fussrücken wird über 9 oder 11 Maschen + 2 neuen Maschen gestrickt. Was meinen Sie hier? können Sie uns mehr sagen? Danke im voraus für Ihr Verständnis.

06.11.2023 - 08:56

country flag Maria wrote:

Je ne comprends pas ce que "Continuer ainsi jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 4 cm depuis les 3 mailles rabattues – ajuster pour que le dernier rang soit tricoté sur l'envers" veut dire. Est-ce qu'il faut faire des mailles endroits là où il y a les mailles endroits et cotes là où il y a des cotes ?

22.03.2023 - 16:28

DROPS Design answered:

Bonjour Maria, tricotez jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 4 cm, mais vous devez arrêter après un rang sur l'envers, autrement dit, tricotez un rang de plus / de moins (en fonction de votre tension en hauteur), de sorte que votre dernier rang sera tricoté sur l'envers, ainsi, le rang suivant pourra être tricoté sur l'endroit de l'ouvrage. Mais les mailles se tricoteront exactement comme avant. Bon tricot!

23.03.2023 - 09:23

country flag Pam Matuszewski wrote:

Hi - Can you please explain the foot section on the right side? I think it didn’t translate well and I’m having trouble understanding everything before ‘THE PIECE IS NOW MEASURED FROM HERE’ Thanks!

29.11.2022 - 04:37

DROPS Design answered:

Dear Mrs Matuszewski, this video shows how to work a similar slipper (with another number of stitches) - ie how to slip sts aside and how to work the middle stitches for uppper part, then how to pick up sts (just before the section "measure from here"). Hope it can help. Happy kniting!

29.11.2022 - 10:21

country flag Piera wrote:

Buongiorno, sto eseguendo questo modello e mi sembra un po' fuorviante la dicitura del posizionamento dei segnaposti alla 22/24/27 e 52/57/63 esimo punto perchè io inizilmente li ho inseriti nel ferro a rovescio del lavoro in quanto era il ferro che si stava lavorando. Però così facendo i punti non corrispondono al centro davanti e dietro. Li ho poi inseriti nel ferro davanti e finalmente mi sono risultati giusti. Grazie Piera

25.10.2022 - 18:07

DROPS Design answered:

Buonasera Piera, i segnapunti vanno inseriti dopo il ferro a rovescio. Buon lavoro!

25.10.2022 - 20:13

country flag Alessandra wrote:

Semplice e scorrevole come lavoro, si realizza velocemente, tuttavia non riesco ad individurare dove sbaglio visto che quando la confeziono vien fuori un quadrato e nn un ovale.... Ho provato sia con la spiegazione fornita, sia con la chiusura invisibile.... ma il risultato è lo stesso.

26.02.2022 - 23:00

country flag Holly wrote:

I'm stuck on the "knit 16 stitches inside the 1 edge stich'

30.11.2021 - 02:45

DROPS Design answered:

Dear Holly, if you mean "Knit up stitches inside the edge stitch" it means you have to pick up the stitches at the ende, in the holes next to the edge stitch. Happy Stitching!

30.11.2021 - 03:31

country flag Donna Fleming wrote:

I am stuck on the foot instructions. continue...until the piece measures approx. 5-5-6 cm = 2”-2”-2 3/8” from where the piece was put together. To where does this refer?

23.11.2021 - 23:54

DROPS Design answered:

Dear Mrs Fleming, this refers to the beg of this section called FOOT, ie from where you placed sts from the thread back on needle, picked up sts and knitted the sts from upper piece. Happy knitting!

24.11.2021 - 07:49

country flag Jenny wrote:

"14 Maschen innerhalb 1 Rd Masche aus dem Fussrücken auffassen"... leider kann ich damit nichts anfangen bzw. was genau damit gemeint ist...bitte um Hilfe...lieben Dank

28.10.2021 - 21:47

DROPS Design answered:

Liebe Jenny, die je 14 Maschen fassen Sie aus den beiden senkrechten Rändern des Fußrückens auf. In den verlinkten Videos unter der Anleitung ("Hier finden Sie 22 passende Videos) finden Sie ein Video "Maschen auffassen - seitlich", dort können Sie sehen, wie man Maschen aus dem senkrechten Rand auffasst. Viel Spaß beim Weiterstricken!

28.10.2021 - 22:22

country flag Christine wrote:

I haven't done fisherman's rib before, and I'm a little confused by the repeating of row 2. I'm casting on 39, and 6 of those are the garter stitch band. So I'm doing the fisherman's rib over 33 stitches. Since it's worked flat over an odd # of stitches, then it seems to me when I flip it, if I repeat row 2 then I'm purling into a knit so I won't end up with ribbing. I know I must be missing something, but I can't figure it. Thanks for your help!

28.02.2021 - 17:56

DROPS Design answered:

Dear Christine, sorry for late answer - this video shows how to work fishmerman's rib back and forth - hope it will help. Happy knitting!

20.05.2021 - 08:51