DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3451.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Quiet Moments

Prjónuð peysa úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, stroffi og blaðamynstri í fölsku klukkuprjóni á berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 206-9
DROPS Design: Mynstur fl-047
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokkur A)
350-350-400-400-450-500 g litur 09, ametist

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
A.1 mælist ca 11-11-12-12-13-13 cm á hæðina.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: Lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón og blaðamynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: Lengd 40 cm og 80 cm fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3451.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 273 lykkjur) og deilið með þeim fjölda útaukningar/úrtöku sem á að gera (t.d. 59) = 4,6.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum er prjónuð til skiptis ca 3. og 4. hver lykkja og 4. og 5. hver lykkja saman.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki).
Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Eða að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 104-112-120-120-128-136 lykkjur á stuttan hringprjón 2,5 með Flora. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= mitt að framan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið A.1 hringinn (= 13-14-15-15-16-17 mynstureiningar með 8 lykkjum).
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 273-294-315-315-352-374 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 11-11-12-12-13-13 cm frá prjónamerki í hálsi.
Prjónið 2 umferðir garðaprjón – JAFNFRAMT í síðustu umferð eru auknar út 59-76-81-85-90-106 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 332-370-396-400-442-480 lykkjur.
Prjónið nú stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-4-4-5-5 cm. Prjónið 2 umferðir sléttprjón – JAFNFRAMT í síðustu umferð eru auknar út 36-38-40-42-46-48 lykkjur jafnt yfir = 368-408-436-442-488-528 lykkjur.
Prjónið aftur stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-4-4-5-5 cm.
Prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 46-46-42-16-34-34 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ ÚRTAKA = 322-362-394-426-454-494 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 18-18-21-21-24-24 cm frá prjónamerki við hálsmál.
Prjónið sléttprjón (án útaukninga og úrtöku) þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki við hálsmál.
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 48-53-57-63-69-76 lykkjur í sléttprjóni (= ½ bakstykki), setjið næstu 64-74-82-86-88-94 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 97-107-115-127-139-153 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 64-74-82-86-88-94 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 49-54-58-64-70-77 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 210-230-250-274-302-330 Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 undir hvorri ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3-3-3-4-4-4 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 3½-3½-3½-3-3-3 cm millibili alls 7-7-7-8-8-8 sinnum í hvorri hlið = 238-258-278-306-334-362 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 28-28-28-27-27-27 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 64-70-74-80-88-96 lykkjur jafnt yfir = 302-328-352-386-422-458 lykkjur. Aukið út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna, dragi stykkið saman.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 64-74-82-86-88-94 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-82-92-96-100-106 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum og auka út mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2-2-2-2-1-1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 2½-1½-1-1-1-1 cm millibili alls 5-9-12-12-13-15 sinnum = 62-64-68-72-74-76 lykkjur.
Þegar ermin mælist 16 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2-2-1½-1-1-½ cm millibili alls 10-11-12-12-13-14 sinnum = 82-86-92-96-100-104 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 39-37-35-32-30-28 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-26-28-28-30-32 lykkjur jafnt yfir = 106-112-120-124-130-136 lykkjur. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 42-40-38-36-34-32 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = brugðin lykkja
symbols = slétt lykkja
symbols = prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna undir næstu lykkju
symbols = 2 lykkjur snúnar brugðið saman
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt eða brugðið eins og útskýrt er í mynsturteikningu (það eiga að myndast göt)
symbols = aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er í mynsturteikningu (það eiga ekki að myndast göt)
symbols = fækkið um 2 lykkjur til vinstri þannig: lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri)
symbols = fækkið um 2 lykkjur til hægri þannig: Prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri)
symbols = fækkið um 4 lykkjur þannig: lyftið 3 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, steypið 3 lyftu lykkjunum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 4 lykkjur færri)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Barbara wrote:

I have never made a sweater from the neck down and need some help. My yarn that was suggested gives me 24 sts to 12 cm and I don’t know how to adjust the pattern to make the correct measurements. Right now it is huge. Can you please help me?

31.01.2023 - 19:34

DROPS Design answered:

Dear Barbara, you need to calculate the pattern. You could use a rule-of-three and make calculations as described in the following lesson: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=25&cid=19. Happy knitting!

31.01.2023 - 22:56

country flag Carol wrote:

Is the yarn supposed to be used double? I've nearly done the small size and got loads of yarn left over. I'm an experienced knitter so know all about guage and that isn't a problem

24.04.2022 - 21:04

DROPS Design answered:

Dear Carol, this is only worked with 1 thread and the amount seems to be correct. The average amount of Flora for a sweater size S would be 300 gr (which may increase depending on the length and width of sleeves, the length of the sweater, the pattern on the jumper). Happy knitting!

24.04.2022 - 22:31

country flag Jeri wrote:

How do I change the yarn from an "A" yarn to a "B" yarn? I'd also like to change the sleeves to a short sleeve. How would I do this? Thanks for your help.

16.04.2022 - 05:26

DROPS Design answered:

Dear Jeri, to use a group B yarn, you need to work a gauge and recalculate the stitches in the pattern according to your gauge, with cross-multiplication/ rule of three. To make a shorter sleeve, after the decreases of the sleeve you can work the sleeve edge, without increasing to make the trumpet sleeve. You could also work less rounds with increases, so as to have the trumpet form but in a shorter sleeve. Happy knitting!

17.04.2022 - 11:53

country flag Arlen wrote:

Nello schema A1 deve esserci un errore all'inizio del motivo della foglia perché non è possibile fare un gettato formando il buco (pallino chiaro) se poi deve essere lavorata una maglia doppia (ripresa dal ferro sottostante). Viene fuori un pasticcio con un buco enorme che tra l'altro non risulta nemmeno sulla foto del modello. Come fare?

30.11.2021 - 09:15

DROPS Design answered:

Buonasera Arlen, il diagramma A.1 è corretto, deve lavorare come indicato. Buon lavoro!

08.12.2021 - 18:27

country flag Sabrina wrote:

Buongiorno. Nel diagramma c'è una maglia descritta con un rombo pieno in un quadrato, mentre, nel video tutorial viene spiegata la maglia il cui simbolo è un rombo vuoto in un quadrato. Si riferiscono alla stessa tecnica o sono diverse? In cosa differiscono?

25.10.2021 - 01:03

DROPS Design answered:

Buonasera Sabrina, deve seguire la legenda del diagramma riportato nel modello. Buon lavoro!

04.11.2021 - 23:43

country flag Małgorzata wrote:

Udało się, zrobiłam sweter według tego wzoru. Wszystko bardzo dobrze wyjaśnione , chociaż jak zaczęłam czytać, to bałam się, że nie dam rady. Ale udało się sweter dla córki zrobiony . Dziękuję za wzór

10.03.2021 - 06:50

DROPS Design answered:

Witaj Małgosiu, cieszymy się bardzo. Koniecznie zamieść zdjęcie gotowej pracy na naszej grupie DROPS Workshop na facebooku albo prześlij zdjęcie swetra do galerii dropsfan TUTAJ, abyśmy mogli wszyscy go podziwiać. Pozdrawiamy!

11.03.2021 - 08:47

country flag Essie wrote:

Ook bij de mouw: "Begin de naald bij de markeerdraad en brei in tricotsteek in de rondte": Als je de 8 steken hebt opgenomen/opgezet met een nieuwe draad, zit je draad al 4 steken voorbij de markeerdraad. Hoe moet je dit doen? (ik heb nu zowel opgenomen als gebreid (dus steek opnemen, gelijk breien, volgende steek opnemen met draad, en breien). Maar voor mijn gevoel is dit zo ingewikkeld dat als dat de bedoeling is, er zeker een video over gemaakt zou zijn. Hoe moet je dit dus doen?

30.06.2020 - 11:38

DROPS Design answered:

Dag Essie,

Je hebt dan inderdaad al 4 steken voorbij het midden, waar de markeerdraad moet zitten gebreid. Na de volgende toer is het begin van de naald bij de markeerdraad.

30.06.2020 - 15:53

country flag Essie wrote:

2 vragen over het breien van de mouw, ik kan er nergens uitleg of video's over vinden: MOUW: plaats steken van hulpdraad terug, en neem 1 steek op in elk van de 8 opgezette steken onder de mouw. --> ik kan alleen iets vinden over opnemen van steken bij een afgekante rand. Werkt dat hier hetzelfde? met een nieuwe draad, en onder de steek door met je naald? Uitleg is handig, voor alle rondgebreide topdown patronen. Ik heb het zo gedaan, maar krijg wel een groot gat na de 8 opgenomen steken.

30.06.2020 - 11:37

DROPS Design answered:

Dag Essie,

Na het breien van de pas heb je het werk verdeeld om eerst het lijf verder te breien. Toen heb je onder de oksel 8 steken opgezet. In deze 8 steken neem je nu weer 8 steken op, dus aan de onderkant van de mouw, in de oksel zeg maar.

30.06.2020 - 15:51

country flag Van Baelen Monique wrote:

Ik heb deze trui gebreid en het is een mooie geworden, eerst goed lezen en dan komt het goed. je moet alle instructies goed nalezen voor je begint; Groetjes Monique

13.04.2020 - 10:41

country flag Matilda wrote:

Ein sehr schöner Pullover, leider finde ich die Anleitung unübersichtlich, z.B. steht nirgends, dass die Passe bis auf das Muster links gestrickt wird.

11.04.2020 - 17:47