Holding Hearts |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með köðlum, kúlum og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-29 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 78 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 10 = 7,8. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 7. og 8. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma, þ.e.a.s. í útauknings umferð er fækkað um alls 8 lykkjur. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= 1 lykkja færri). LEIÐBEININGAR: Endurtakið A.2B eins langt og hægt er upp að hálsmáli að framan. Hluti af mynstrinu minnkar og hverfur í hvorri hlið þegar lykkjum er fækkað í laskalínu. Til þess að fá fallegan endi á A.2B mitt að framan endar miðju kaðallinn með kúlum (þ.e.a.s. miðju 16 lykkjur) eftir heila mynstureiningu á hæðina (mínus síðustu umferð í mynsturteikningu) þegar ekki er lengur pláss fyrir nýja mynstureiningu á hæðina áður en úrtöku fyrir laskalínu er lokið. Síðan er prjónað brugðið yfir miðju 16 lykkjur í mynstureiningu til loka. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg. Síðan eru ermarnar prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Að lokum eru fram- og bakstykki og ermar sett saman og berustykkið er prjónað til loka í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 162-178-198-218-234-258 lykkjur á hringprjón 4,5 með Big Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð og eitt prjónamerki eftir 78-86-98-110-118-134 lykkjur til að merkja bakstykki (= 84-92-100-108-116-124 lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki – ATH: Það er mismunandi fjöldi lykkja á fram- og bakstykki vegna mynsturs). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 92-104-120-136-148-168 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt (nú hafa 16-20-24-28-32-36 lykkjur verið prjónaðar fram hjá prjónamerki í hlið), prjónið A.1A (= 52 lykkjur), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir 16-20-24-28-32-36 lykkjur sem eftir eru í umferð. Haldið svona áfram með stroff þar til A.1A er lokið. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 78-86-98-110-118-134 lykkjurnar (þ.e.a.s. lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki) og fækkið jafnframt um 10-12-18-22-20-26 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 16-20-24-28-32-36 lykkjur og fækkið jafnframt 1-2-3-3-2-1 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.1B (= 52 lykkjur) og prjónið sléttar lykkjur yfir 16-20-24-28-32-36 lykkjur sem eftir eru jafnframt er fækkað um 1-2-3-3-2-1 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 150-162-174-190-210-230 lykkjur í umferð, þ.e.a.s. 68-74-80-88-98-108 lykkjur á bakstykki og 82-88-94-102-112-122 lykkjur á framstykki. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur á bakstykki (þ.e.a.s. fram að prjónamerki í hlið), prjónið 15-18-21-25-30-35 lykkjur sléttprjón eftir prjónamerki, prjónið A.2A (= 52 lykkjur) og endið með 15-18-21-25-30-35 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2A hefur verið prjónað til loka, prjónið A.2B yfir A.2A, þær lykkjur sem eftir eru halda áfram í sléttprjóni eins og áður, A.2B er síðan endurtekið á hæðina. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm í öllum stærðum er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 8 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 162-174-186-202-222-242 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 29 cm í öllum stærðum. Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg, prjónið sléttprjón eins og áður yfir næstu 68-74-78-86-94-104 lykkjur (þ.e.a.s. nú eru eftir 3-3-4-4-5-5 lykkjur á undan prjónamerki í hlið), fellið af 6-6-8-8-10-10 lykkjur fyrir handveg, prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður yfir næstu 82-88-92-100-108-118 lykkjurnar og fellið af 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar eins og útskýrt er að neðan. ERMI: Fitjið upp 36-36-40-40-44-48 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Big Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-3-4-4-4 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 40-40-43-44-48-52 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar auka á út undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 10-8-7-7-9-9 cm aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6-4-3½-2½-2½-2½ cm millibili alls 6-9-10-12-11-11 sinnum = 52-58-63-68-70-74 lykkjur. Prjónið áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 44-42-41-39-37-36 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg, prjónið 46-52-55-60-60-64 lykkjur slétt og fellið af 3-3-4-4-5-5 lykkjur sem eftir eru fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón 5,5 og fram- og bakstykki þar sem lykkjur eru felldar af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjur) = 242-266-280-306-322-350 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau þegar lykkjum er fækkað fyrir laskalínu. Byrjið við prjónamerki í lok bakstykkis fyrir vinstri ermi (þegar flíkin er mátuð). Haldið áfram hringinn eins og áður með sléttprjón og A.2B að framan (passið uppá að A.2B haldi áfram í réttri umferð miðað við þar sem það endaði á undan skiptingu fyrir ermum). Þegar prjónaðar hafa verið 4-2-4-4-6-4 umferðir er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA í næstu umferð – sjá útskýringu að ofan = 8 lykkjur færri. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 16-19-20-22-23-26 sinnum. Sjá LEIÐBEININGAR! Eftir síðustu úrtöku fyrir laskalínu eru 114-114-120-130-138-142 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-14-15-15-13-12 lykkjur jafnt yfir lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki = 100-100-105-115-125-130 lykkjur eftir í umferð. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4,5 og prjónið kant í hálsi eins og útskýrt er að neðan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið), en passið uppá að það koma 2 lykkjur slétt nákvæmlega mitt að framan. Þegar stroffið mælist ca 1½ cm er lykkjum fækkað í annarri hverri einingu með 3 lykkjum brugðið til 2 lykkjur brugðið (fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman) = 90-90-95-104-113-117 lykkjur. Þegar stroffið mælist ca 3 cm er þeim 3 lykkjum brugðið sem eftir eru fækkað til 2 lykkjur brugðið = 80-80-84-92-100-104 lykkjur. Haldið áfram með stroff hringinn með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til kantur í hálsmáli mælist ca 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur (ef affellingarkanturinn verður stífur er hægt að fella af með grófari prjónum). FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (18)
Marie-Claude Gignac wrote:
Rabattre les mailles pour l'emmanchure. Début rang 3 mailles, et 3 mailles à la fin. Le fil reste au milieu ??? Idem pour les manches ? Merci de préciser si je coupe le fil ? Dois je prendre un nouveau fil une fois que le dos et devant ainsi que les manches sont sur le même câble ?
16.02.2024 - 03:06DROPS Design answered:
Bonjour Mme Gignac, à la fin du dos /devant, coupez le fil à la fin du dernier tour, après avoir rabattu les 3 dernières mailles; de même pour la manche: rabattez les 3 premières mailles, tricotez jusqu'à ce qu'il reste 3 mailles et rabattez les 3 dernières mailles. Placez ensuite les mailles des manches au-dessus des mailles rabattues pour les emmanchures - cf vidéo et tricotez l'empiècement en rond. Bon tricot!
19.02.2024 - 15:53Agnieszka Janicka wrote:
Dzien dobry, prosze mi powiedziec jak mam zakonczyc oczko po zamknieciu podkroju pachy, zrobilam jak w opisie, czyli zamknelam 3 oczka, przerobilam 68, zamknelam 6 i przerobilam przod i zamknelam kolejne 3 oczka i na srodku podkroju zostalo mi oczko jak je zamknac, czy co z nim zrobic, z gory dziekuje za pomoc
26.02.2022 - 14:18DROPS Design answered:
Witaj Agnieszko, odetnij nitkę i przeciągnij ją przez to oczko. Pozdrawiamy!
27.02.2022 - 09:09Nora wrote:
Como disminuir en orilla de escote a los 1.5 cm y a los 3cm primero en la parte delantera y luego en la espalda?
13.07.2021 - 21:17DROPS Design answered:
Hola Nora, cuando el resorte mida 1½ cm, disminuir 1 punto cada segunda sección de 3 puntos reveses (disminuir 1 punto tejiendo 2 puntos juntos de revés). Cuando el resorte mida 3 cm, disminuir 1 punto en todos los secciones de 3 puntos reveses (disminuir 1 punto tejiendo 2 puntos juntos de revés). Buen trabajo!
14.07.2021 - 13:43Agnes DIRICQ wrote:
Y a-t-il une erreur ? en taille M, au début du tricot, si l'on fait *2m end, 2 m env* et répété sur les 104 mailles suivantes, 2m end, A1 (52 m), *2m end, 2m env* répété au dessus des 20 restantes = total de 182 m et non 178. Et aussi 20 mailles après le 2e marqueur -> 96 mailles et non 110. Merci d'avance de votre réponse
27.12.2020 - 22:11DROPS Design answered:
Bonjour Mme Diricq, vous tricotez: 104 m en côtes 2 m end/2 m env puis 2 m end, puis les 52 m de A.1 et vous terminez par 20 m en côtes 2/2, autrement dit vous avez: 104+2+52+20=178 mailles. Bon tricot!
04.01.2021 - 09:56Susana wrote:
Hola! No veo qué medidas se consideran para cada talla en las prendas y me sería de mucha utilidad (quizás no lo se encontrar yo). También además de verla en la modelo sería bueno saber las medidas porque ellas suelen ser altas y delgadas y con frecuencia lo que a les llega a la cadera a nosotras nos resulta bastante más largo o la proporción de los dibujos varía mucho. Muchas gracias.
31.12.2019 - 09:48DROPS Design answered:
Hola Susana. Para elegir la talla correcta tienes que mirar las medidas que están en el diagrama bajo cada patrón. Siempre viene el largo de la prenda, las medidas del pecho, las medidas de las sisas etc. Si tienes dudas entre dos tallas , siempre recomendamos elegir la talla más grande.
09.02.2020 - 19:44Anna wrote:
Dzień dobry, w opisie jest "po zakończeniu zamykania oczek na reglan zostaje 114-114-120-130-138-142 oczka. Przerobić 1 okrążenie na prawo, równomiernie zamykając 14-14-15-15-13-12 oczek ponad oczkami przodu między markerami = zostaje 100-100-105-115-125-130 oczek" . Czy te 14 oczek zamykam tylko ponad 46 oczkami przodu ( w rozmiarze S) czy ponad całością (114 oczkami)?
07.12.2019 - 10:46DROPS Design answered:
Witaj Anno! Zamykasz te oczka tylko ponad oczkami przodu. Pozdrawiamy serdecznie!
07.12.2019 - 23:10Lidia wrote:
W opisie przy karczku, piszecie, ze po 4 (rozmiar L) okrążeniu zamykamy 8 oczek i później mam zamykać po 8 oczek 20 razy co dwa okrążenia. Czy to znaczy, że 1 rząd przerabiam bez zamykania a w kolejnym zamykam 8 oczek i znów 1 bez zamykania i 1 z zamykaniem, czyli po 40 rzędach uzyskuję pożądaną liczbę oczek? Czy też może w jednym rzędzie zamykam oczka, potem przerabiam dwa rzędy bez zamykania i w kolejnym znów zamykam 8 oczek?
23.11.2019 - 13:47DROPS Design answered:
Witaj Lidio! W okrążeniu 1 zamykasz 8 oczek, w okrążeniu 2 nie zamykasz oczek, w okrążeniu 3 zamykasz 8 oczek, w okrążeniu 4 nie zamykasz oczek, itd. Po 40 okrążeniach uzyskasz pożądaną liczbę oczek. Powodzenia!
24.11.2019 - 23:22Ellen Groot wrote:
Wanneer komt dit patroon online? Ik wil zo graag starten maar het duurt zoooo lang.
23.10.2019 - 17:41DROPS Design answered:
Dag Ellen,
De verwachting is dat hij deze maand online komt, maar ik kan dat niet met 100% zekerheid toezeggen.
23.10.2019 - 20:16Jeanette wrote:
Very nice patten, I can’t wait to start with it! Nice elegant model!
22.10.2019 - 10:55Ellen wrote:
Why is it taking so long to post the instructions? I really want to start this one...
18.10.2019 - 12:48