Weekend Vibe Jacket |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, klukkuprjóns lykkjum á berustykki og blöðruermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-38 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 167 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið þeim 159 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 16) = 9,9. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 10. hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð ca 9. og 10. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi): Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT (ofan frá og niður): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-7-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 8-8½-7½-8-8-8½ cm millibili. LEIÐBEININGAR (á við um lengd á ermum): Hægt er að stilla af lengd á ermum að óskaðri lengd, en passið uppá að lengdin á að vera aðeins lengri en venjulega svo að ermin poki aðeins neðst niðri. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur þegar fellt er af, er hægt að nota grófari prjón eða sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er síðan felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist til fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. Allt stykkið er prjónað með 2 þráðum Melody. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 51-54-57-60-60-63 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 7 með 2 þráðum Melody. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 79-84-89-94-94-99 lykkjur í umferð. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjóni yfir garðaprjón, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat). Setjið 1 prjónamerki í umferð. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan, það á að mæla berustykkið frá prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 12. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 5 lykkjur eru á prjóni (= 14-15-16-17-17-18 mynstureiningar með 5 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 7-8-9-9-10-10 cm frá prjónamerki við hálsmál, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, haldið áfram með A.1A yfir fyrstu 5 lykkjur, prjónið A.2 þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni (= 13-14-15-16-16-17 mynstureiningar með 5 lykkjum), haldið áfram með A.1B (= 1 lykkja) og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 131-140-149-158-158-167 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, haldið áfram með A.1A yfir fyrstu 5 lykkjur, prjónið A.3 þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni (= 13-14-15-16-16-17 mynstureiningar með 9 lykkjum), haldið áfram með A.1B (= 1 lykkja) og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 18-20-22-22-24-24 cm frá prjónamerki við hálsmál. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 0-3-6-5-13-16 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 131-143-155-163-171-183 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka (prjónið sléttar lykkjur frá réttu, brugðnar lykkjur frá röngu) með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 20-22-24-25-27-29 cm frá prjónamerki við hálsmál, skiptist berustykki fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 24-26-27-29-31-33 lykkjur í garðaprjóni og sléttprjóni eins og áður (= framstykki), setjið næstu 22-24-28-28-28-30 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 39-43-45-49-53-57 lykkjur í sléttprjóni eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 22-24-28-28-28-30 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 24-26-27-29-31-33 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 95-103-107-115-127-135 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 28 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 2-1-1-3-2-3 lykkjur jafnt yfir = 93-102-105-114-126-135 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 22-24-28-28-28-30 lykkjur af öðrum þræðinum í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 12 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 4-4-4-4-6-6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 26-28-32-32-34-36 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-4-6-6 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það aðeins síðar þegar auka á út mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4½-5-7-4-4½-5 cm millibili alls 8-7-5-8-7-6 sinnum = 42-42-42-48-48-48 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 42-40-39-37-36-34 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd – sjá LEIÐBEININGAR). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykki. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 21-21-21-24-24-24 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 7. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 47-45-44-42-41-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (4)
Mira wrote:
Hej! Jättevacker kofta men skulle vilja ha lite smalare ärmar. Kan jag använda mönstret och öka mindre maskor för ärmen? Är koftan väldigt vid?
30.04.2020 - 20:53DROPS Design answered:
Hei Mira. Denne jakken har ballongermer, men istedenfor økninger på ermene kan du felle jevnt nedover når du strikker ermene. Som "vanlige" ermer. Om du ser på målene på målskissen ser du hvor vid jakken er. God Fornøyelse!
04.05.2020 - 09:56Hanne Hedeman wrote:
Hvor finder Jeg opskriften?
20.10.2019 - 11:33Kirsten Goldring wrote:
Smuk og let udseende
06.10.2019 - 09:35Annemie wrote:
Wanneer komt dit patroon uit
21.09.2019 - 18:59