DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS Super Sale

Moss Print Jacket

Prjónuð síð peysa úr DROPS Big Delight og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað í tvöföldu perluprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 207-31
DROPS Design: Mynstur db-109
Garnflokkur C + A eða D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
500-600-700-700-800-900 g litur 20, regnskógur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-150-150 g litur 19, dökk grænn

PRJÓNFESTA:
12 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með tvöföldu perluprjóni á hæðina og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm fyrir perluprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með 1 númeri grófari prjónum.

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum):
Aukið út um 2 lykkjur í 1 lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju en sleppið ekki þessari lykkju af prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið nú aðra lykkju í lykkjuna, en þessi lykkja er prjónuð í aftari lykkjubogann á lykkjunni = 2 lykkjur fleiri. Prjónið síðan nýjar lykkjur í perluprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig upp að klauf. Síðan eru stykkin sett saman og prjónað er fram og til baka frá miðju að framan, neðan frá og upp að handveg. Síðan eru framstykki og bakstykki prjónuð fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, síðan fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 63-69-73-79-87-93 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði Big Delight + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Prjónið síðan þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu lykkjuna, síðan er endurtekið A.2 (= 2 lykkjur) út umferðina. Haldið áfram með þetta mynstur – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 18 cm – stillið af eftir síðustu umferð í mynstri, er klaufin tilbúin. Geymið stykkið og prjónið framstykki.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 36-39-42-45-50-53 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði Big Delight + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Prjónið síðan þannig: Endurtakið A.2 (= 2 lykkjur) þar til eftir er 0-1-0-1-0-1 lykkja, prjónið A.3 (= 1 lykkja) 0-1-0-1-0-1 sinni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist ca 18 cm – stillið af eftir bakstykki og síðustu umferð í mynstri, er klaufin tilbúin. Geymið stykkið og prjónið hægra framstykki.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 36-39-42-45-50-53 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði Big Delight + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Prjónið síðan þannig: Prjónið A.3 (= 1 lykkja) alls 0-1-0-1-0-1 sinnum, endurtakið A.4 (= 2 lykkjur) út umferðina. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist ca 18 cm – stillið af eftir bakstykki og síðustu umferð í mynstri, er klaufin tilbúin.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið framstykkin og bakstykkið á sama hringprjón 8 (passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu í öllum stykkjunum, þannig að mynstrið haldi áfram eins og áður) = 135-147-157-169-187-199 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, þ.e.a.s. prjónið frá réttu þannig: Prjónið A.3 (= 1 lykkja) alls 0-1-0-1-0-1 sinni, endurtakið A.4 (= 2 lykkjur) þar til eftir er 0-1-0-1-0-1 lykkja, prjónið A.3 (= 1 lykkja) 0-1-0-1-0-1 sinni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 61-62-63-64-65-66 cm prjónið næstu umferð þannig:
Prjónið 34-37-40-41-44-47 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af næstu 4-4-4-8-12-12 lykkjur fyrir handveg, prjónið 59-65-69-71-75-81 lykkjur eins og áður (= bakstykki), fellið af næstu 4-4-4-8-12-12 lykkjur fyrir handveg og prjónið 34-37-40-41-44-47 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Prjónið síðan hvort stykki til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 59-65-69-71-75-81 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 76-78-80-82-84-86 cm fellið af miðju 9-9-11-11-13-13 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 24-27-28-29-30-33 lykkjur á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 78-80-82-84-86-88 cm og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 34-37-40-41-44-47 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist 78-80-82-84-86-88 cm. Fellið af fyrstu 24-27-28-29-30-33 lykkjur fyrir öxl í næstu umferð frá röng – fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur = 10-10-12-12-14-14 lykkjur fyrir sjalkraga.

SJALKRAGI:
Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, með byrjun frá miðju að framan: * Prjónið 2 umferðir yfir fyrstu 8-8-10-10-10-10 lykkjur, 2 umferðir yfir allar lykkjur *, prjónið frá *-* þar til stykkið mælist ca 6-6-7-7-8-8 cm þar sem það er styst (mælt næst öxl). Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 34-37-40-41-44-47 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist 78-80-82-84-86-88 cm. Fellið af fyrstu 24-27-28-29-30-33 lykkjur fyrir öxl í næstu umferð frá réttu – fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur = 10-10-12-12-14-14 lykkjur fyrir sjalkraga. Prjónið sjalkraga alveg eins og á hægra framstykki.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna/hringprjón.
Fitjið upp 33-33-35-37-39-39 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði Big Delight + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi), látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.
Prjónið A.2 (= 2 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir, prjónið A.3 (= 1 lykkja). Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 13-9½-9½-7½-7-5½ cm millibili alls 4-5-5-6-6-7 sinnum = 41-43-45-49-51-53 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 50-48-49-47-44-42 cm. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en nú er prjónað fram og til baka á hringprjón í 2-2-2-3-5-5 cm (þessa 2-2-2-3-5-5 cm á að sauma við lykkjur sem felldar voru af fyrir handveg á fram- og bakstykki). Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 52-50-51-50-49-47 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið sjalkragann saman mitt að aftan og passið uppá að saumurinn snúi að röngu þegar kraginn er brotinn niður. Saumið sjalkragann við hálsmál aftan í hnakka. Saumið ermar í (affellingarkant) og saumið hliðar á ermi við botninn á handveg – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki þykkur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 18.11.2021
Leiðrétting: Mynsturteikning hefur verið leiðrétt í vinstra framstykki.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Jette Pedersen wrote:

Str L En ret en vrang, - det mønster kan jo ikke lade sig gøre, når bagstykket er ulig antal .Højre forstykke slutter med vrang og ryg starter og slutter med ret så skal venstre jo starte med vrang hvis det skal stemme.

05.04.2020 - 00:03

DROPS Design answered:

Hej Jette, hele jakken skal strikkes skiftevis ret og vrang i bredden, og det som er vigtigt er at mønsteret kan fortsætte når stykkerne bliver sat sammen. God fornøjelse!

21.04.2020 - 11:32

country flag Maria Adela wrote:

El modelo ahora aparece con número 65- 17, gracias. Antes estaban las dos fotos en el mismo modelo

18.03.2020 - 23:07

country flag María Adela wrote:

Las indicaciones d l modelo 207 31 no son las de la foto. Yo compré hace tiempo para la foto de 207 31 y ahora no tengo el patrón. Podrían corregirlo.? Sale otro modelo verde y no el matizado azul que se ve al principio

18.03.2020 - 15:53

DROPS Design answered:

Hola Maria Adela. ¿Puedes especificar el número del diseño que viene bajo la foto? 207-31 es una chaqueta de color verde con transición.

18.03.2020 - 18:33

country flag Maura Porrati wrote:

Vorrei realizzare questo modello con Drops Nepal rigio scuro (colore 0506) di cui ho acquistato 800 g, Che filato posso aggiungere per arrivare allo spessore necessario e quanto ne devo acquistare? Vorrei mantenere il colore grigio scuro, preferibilmente non troppo peloso. Grazie!

08.12.2019 - 09:48

DROPS Design answered:

Buongiorno Maura. Per un aiuto sulla scelta dei filati, le suggeriamo di contattare il suo rivenditore Drops di fiducia che saprà consigliarla al meglio. Buon lavoro!

09.12.2019 - 16:15

country flag Mani wrote:

Danke für die Antwort! Wie steht es um den zweiten Teil meiner Frage: Wenn ich A4 die Reihe durchstricke, habe ich einen Maschenversatz zwischen Rückenteil und dem zweiten Vorderteil und da es eine ungerade Maschenzahl ist, stimmt es auch zum Schluss nicht (letzte Masche wäre rechts und in der 2. Reihe würde ich wieder mit rechts beginnen...—> um im Muster zu bleiben, müsste ich mit linker Masche enden und mit rechter Masche beginnen und andersherum)? LG

02.12.2019 - 11:05

DROPS Design answered:

Liebe Mani, unser Design Team wird die Anleitung noch mal schauen. Danke im voraus für Ihren Geduld.

02.12.2019 - 13:15

country flag Mani wrote:

Ich stricke die Jacke in Gr. L und habe beide Vorderteile und das Rückenteil bis zum Ende der Seitenschlitze (18cm) gestrickt. Nun habe ich die 3 Teile auf der Nadel um den Rumpfteil zu stricken, in Gr. L sind nun 157 Maschen auf der Nadel. Da in der Größe A3 null mal gestrickt werden soll, wird also alles in A4 gestrickt!? Dann gibt es einen Maschenversatz zwischen Rückenteil (ungerade Maschenzahl) und einem Vorderteil, A4 durchgängig stricken nicht möglich!?

30.11.2019 - 21:44

DROPS Design answered:

Liebe Mani, ja genau, in Gr. L stricken Sie A.4 die ganze Reihe (= bis zur Ende der Reihe), in diese Grösse wird A.3 nicht gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

02.12.2019 - 09:53

country flag Sophia Vasiliadou wrote:

Where is the diagram A1-A4.?

05.11.2019 - 07:59

DROPS Design answered:

Dear Mrs Vasiliadou, thanks for your feedback, we add them asap. Happy knitting!

05.11.2019 - 09:10

country flag Judith wrote:

Sieht super gemütlich aus!

03.10.2019 - 19:58

country flag Lina wrote:

Perfekt grundmodell!

16.07.2019 - 09:21

country flag Marion wrote:

Sehr schöne Länge. Mit Knöpfen zum Schließen würde es mir noch besser gefallen.

11.06.2019 - 09:41