Spring Fever |
|
|
|
Prjónuð síð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tveggja lita klukkuprjóni og köðlum. Stærð S – XXXL.
DROPS 206-28 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN (= prjónað í hring): Þegar tveggja lita klukkuprjón er prjónað hringinn, prjónið fyrstu 1 umferð með litnum beige, síðan er prjónuð 1 umferð með litnum rauður múrsteinn. Skipt er um lit í hverri umferð í gegnum allt stykkið. Ef þú ert ekki viss hvaða lit á að prjóna með, þá getur þú alltaf athugað hvaða lit fyrri umferð var prjónuð með, með því að sjá uppsláttinn. LASKALÍNA: Öll útaukning fyrir laskalínu er gerð í umferð með litnum beige. Það eru 8 prjónamerki og það eru auknar út 2 lykkjur við hvert prjónamerki (= 16 lykkjur fleiri alls í umferð). Útaukningin er gerð í 12.-12.-10.-10.-10.-8. hverri umferð alls 8-9-10-11-12-14 sinnum. AUKIÐ ÚT UM 2 LYKKJUR. Prjónið svona í lykkjur með prjónamerki: * Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman án þess að sleppa þeim af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman 1 sinni til viðbótar. Nú er hægt að sleppa uppslættinum og lykkjunni af vinstra prjóni (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru útauknar lykkjur prjónaðar inn í klukkuprjóns mynstur. TILFÆRSLA Á PRJÓNAMERKJUM: Það er mikilvægt að útaukning fyrir laskalínu sé gerð í réttri lykkju. Þess vegna á að færa prjónamerkin upp jafnframt því sem aukið er út. Eftir útaukningu hefur hver lykkja með prjónamerki aukist til 3 lykkjur og prjónamerkið á að færast til í eina af þessum 3 lykkjum. Færið prjónamerkin þannig: 1. prjónamerki – setjið prjónamerki í fyrstu af 3 lykkjunum. 2. prjónamerki – setjið prjónamerki í þriðju af 3 lykkjunum. 3. prjónamerki – setjið prjónamerki í fyrstu af 3 lykkjunum. 4. prjónamerki – setjið prjónamerki í þriðju af 3 lykkjunum. 5. prjónamerki – setjið prjónamerki í fyrstu af 3 lykkjunum. 6. prjónamerki – setjið prjónamerki í þriðju af 3 lykkjunum. 7. prjónamerki – setjið prjónamerki í fyrstu af 3 lykkjunum. 8. prjónamerki – setjið prjónamerki í þriðju af 3 lykkjunum. VINSTRI OG HÆGRI KAÐALL: Það kemur kaðall í fyrsta skipti eftir 13. umferð í klukkuprjóni (þ.e.a.s. í 7. umferð með beige), síðan kemur kaðall áfram í 28. hverri umferð í klukkuprjóni (þ.e.a.s. í 14. umferð með beige). Kaðlar eru prjónaðir á milli 2. og 3. prjónamerkis, milli 4. og 5. prjónamerkis, á milli 6. og 7. prjónamerkis og milli 8. og 1. prjónamerkis. Prjónið VINSTRI KAÐALL þannig: Setjið fyrstu 6 lykkjur (fyrsta lykkja er í litnum rauður múrsteinn) + 3 uppslættir sem tilheyra (= 3 klukkuprjóns lykkjur í litnum beige) á kaðlaprjón framan við stykkið, * sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum (= 6 lykkjur + 3 uppslættir sem tilheyra). Prjónið 6 lykkjur af kaðlaprjóni þannig: ((1 uppsláttur um prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman )), prjónið frá ((-)) alls 3 sinnum. Endið með að slá 1 sinni uppá prjóninn og lyfta næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt. Prjónið HÆGRI KAÐALL þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið fyrstu lykkju af prjóni, setjið næstu 6 lykkjur (fyrsta lykkja er í litnum beige) + 3 uppslættir sem tilheyra (= 3 klukkuprjóns lykkjur í litnum beige) á kaðlaprjón aftan við stykkið, * prjónið næstu lykkju og uppslátt slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum (6 lykkjur + 3 uppslættir sem tilheyra). Prjónið 6 lykkjur af kaðlaprjóni þannig: ((prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið)), prjónið frá ((-)) alls 3 sinnum (= 6 lykkjur + 3 uppslættir sem tilheyra). ÚRTAAKA (á við um ermi): Öll úrtaka er gerð í umferð með litnum beige. Fækkið um 4 lykkjur þannig: Prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á undan sléttri lykkju með prjónamerki, prjónið næstu 5 lykkjur saman þannig: Lyftið 1 uppslætti, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 uppsláttur, 1 lykkja slétt (= lykkja með prjónamerki) (= 3 lykkjur og 2 uppslættir) af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju brugðið, 1 uppsláttur, 1 lykkja slétt (= 2 lykkjur og 1 uppsláttur) slétt saman, steypið 3 óprjónuðu lykkjunum og 2 uppsláttum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru slétt saman (= 4 lykkjur færri). ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, prjónað er ofan frá og niður. Allt stykkið er prjónað í tveggja lita klukkuprjóni, aukið er út fyrir laskalínu og kaðlar gerðir í skiptingunni á milli fram- og bakstykki og erma. Þegar búið er að skipta stykkinu upp við ermar og fram- og bakstykki, prjónið fram- og bakstykki í hring á hringprjón og ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón. BERUSTYKKI: Fitjið upp 62-64-67-71-74-78 lykkjur á stuttan hringprjón 6 með litnum beige. Prjónið 2 umferðir sléttprjón, en í síðustu umferð er aukið út jafnt yfir 14-12-13-9-10-6 lykkjur = 76-76-80-80-84-84 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Setjið 1 prjónamerki í stykkið hér, það á að nota þetta prjónamerki til að mæla frá síðar. Í næstu umferð eru sett 8 prjónamerki í stykkið, JAFNFRAMT er prjónað TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 1 (= með litnum beige): BAKSTYKKI: Prjónið 1 lykkjur slétt og setjið 1. prjónamerki í þessa lykkju, * 1 uppsláttur um prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næstu lykkju slétt *, prjónið frá *-* alls 2-2-3-3-4-4 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Prjónið 1 lykkju slétt og setjið 2. prjónamerki í þessa lykkju. KAÐALL (= hér er vinstri kaðall prjónaður síðar): Prjónið *-* 6 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið = 13 lykkjur. ERMI: Prjónið 1 lykkju slétt og setjið 3. prjónamerki í þessa lykkju. Prjónið *-* 1 sinni, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Prjónið 1 lykkju slétt og setjið 4. prjónamerki í þessa lykkju. KAÐALL (= hér er hægri kaðall prjónaður síðar): Prjónið *-* 6 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið = 13 lykkjur. FRAMSTYKKI: Prjónið 1 lykkju slétt og setjið 5. prjónamerki í þessa lykkju. Prjónið *-* alls 2-2-3-3-4-4 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Prjónið 1 lykkju slétt og setjið 6. prjónamerki í þessa lykkju. KAÐALL (= hér er vinstri kaðall prjónaður síðar): Prjónið *-* 6 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjón eigi brugðið = 13 lykkjur. ERMI: Prjónið 1 lykkju slétt og setjið 7. prjónamerki í þessa lykkju. Prjónið frá *-* 1 sinni, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Prjónið 1 lykkju slétt og setjið 8. prjónamerki í þessa lykkju. KAÐALL (= hér er hægri kaðall prjónaður síðar): Prjónið *-* 6 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið = 13 lykkjur. UMFERÐ 2 (= með litnum rauður múrsteinn): * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næstu lykkju og uppsláttinn brugðið saman *, prjónið *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 3 (= með litnum beige): * Prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 4 (= með litnum rauður múrsteinn): Prjónið á sama hátt og 2. umferð. UMFERÐ 5 (= með litnum beige): Í þessari umferð er fyrsta útaukningin gerð fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Prjónið eins og umferð 3, en í öllum lykkjum með prjónamerki er aukið út, sjá aukið út 2 LYKKJUR í útskýringu að ofan. Það eru 8 prjónamerki og aukið er út alls um 16 lykkjur í umferð = 92-92-96-96-100-100 lykkjur í umferð. UMFERÐ 6 (= með litnum rauður múrsteinn): Prjónið eins og umferð 2, en í lykkjum með prjónamerki hefur 1 lykkja orðið að 3. Þessar lykkjur eru prjónaðar inn í klukkuprjóns mynstur þannig: sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næstu lykkju brugðið (= uppsláttur frá fyrstu umferð), sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. UMFERÐ 7 (= með litnum beige): Prjónið eins og umferð 3. UMFERÐ 8 (= með litnum rauður múrsteinn): Prjónið eins og umferð 2. UMFERÐ 9 (= með litnum beige): Prjónið eins og umferð 3. UMFERÐ 10 (= með litnum rauður múrsteinn): Prjónið eins og umferð 2. UMFERÐ 11 (= með litnum beige): Prjónið eins og umferð 3. UMFERÐ 12 (= með litnum rauður múrsteinn): Prjónið eins og umferð 2. Sjá TILFÆRSLA Á PRJÓNAMERKJUM í útskýringu að ofan og færið núna prjónamerkin. UMFERÐ 13 (= 7. umferð með litnum beige): Þessi umferð er prjónuð eins og umferð 3, en í þessari umferð eru kaðlarnir gerðir í fyrsta skipti – sjá HÆGRI OG VINSTRI KAÐALL í útskýringu að ofan og prjónið þannig: Prjónið eins og áður fram til og með lykkju með 2. prjónamerki, prjónið VINSTRI KAÐALL yfir næstu 13 lykkjur. Prjónið eins og áður fram til og með lykkju með 4. prjónamerki, prjónið HÆGRI KAÐALL yfir næstu 13 lykkjur. Prjónið eins og áður fram til og með lykkju með 6. prjónamerki, prjónið VINSTRI KAÐALL yfir næstu 13 lykkjur. Prjónið eins og áður fram til og með lykkju með 8. prjónamerki, prjónið HÆGRI KAÐALL yfir síðustu 13 lykkjur. Endurtakið síðan umferð 2 og 3, JAFNFRAMT er útaukning gerð fyrir laskalínu í 12.-12.-10.-10.-10.-10. hverri umferð (alveg eins og var gert í 6. umferð) og kaðallinn er gerður í 28. hverri umferð (alveg eins og það var gert í 13. umferð). Þegar öll útaukning fyrir laskalínu hefur verið gerð eru 204-220-240-256-276-308 lykkjur í umferð. Prjónið áfram eins og áður þar til stykkið mælist ca 31-33-34-36-38-40 cm frá prjónamerki við hálsmál – stillið af að næsta umferð sé ekki umferð þar sem kaðallinn fléttast. Skiptið nú stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið eins og áður frá lykkju með 1. prjónamerki og fram til og með lykkju með 3. prjónamerki, setjið næstu 37-41-45-49-53-61 lykkjur á þráð fyrir ermi. Fitjið upp 7-7-7-7-7-7 nýjar lykkjur í hlið (= undir ermi). Prjónið eins og áður frá lykkju með 4. prjónamerki og fram til og með lykkju með 7. prjónamerki. Setjið næstu 37-41-45-49-53-61 lykkjur á þráð fyrir ermi. Fitjið upp 7-7-7-7-7-7 nýjar lykkjur í hlið (= undir ermi). Prjónið eins og áður frá lykkju með 8. prjónamerki og fram til lykkju með 1. prjónamerki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Það eru 144-152-164-172-184-200 lykkjur í umferð. Í næstu umferð eru nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi prjónaðar inn í klukkuprjóns mynstrið. Haldið áfram að prjóna eins og áður og gerið kaðla þar til kaðlarnir hafa fléttast alls 7-7-7-7-7-7 sinnum frá byrjun á stykki. Héðan er haldið áfram með klukkuprjón yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist ca 36-37-39-40-41-41 cm frá skiptingu. Stillið af að næsta umferð sem er prjónuð sé með litnum beige. Til að koma í veg fyrir að kanturinn verði stífur, fellið af með sléttum lykkjum þannig: * fellið af uppsláttinn sem tilheyrir til næstu lykkju, fellið af 2 næstu lykkjur hvora fyrir sig *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Klippið þræðina frá og festið enda. ERMI: Setjið 37-41-45-49-53-61 lykkjur af öðrum þræðinum á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 7. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 7-7-7-7-7-7 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið á fram- og bakstykki = 44-48-52-56-60-68 lykkjur. Í næstu umferð eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í klukkuprjóns mynstur og það er sett 1 prjónamerki í miðju af nýjum lykkjum (= slétt lykkja í litnum beige, látið prjónamerkið fylgja með í miðju lykkjunni). Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist ca 2-2-2-2-2-2 cm frá þar sem stykkið skiptist upp – stillið af að næsta umferð sé umferð með litnum beige. Sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan og fækkið um 4 lykkjur mitt undir ermi. Endurtakið úrtöku í 8. hverri umferð (þ.e.a.s. í 4. hverri umferð með litnum beige) þar til fækkað hefur verið alls 4-5-6-6-7-9 sinnum = 28-28-28-32-32-32 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 34-32-32-30-29-27 cm frá skiptingu (passið uppá að mæla frá miðju á ermi en ekki meðfram úrtöku undir ermi, annars verða málin styttri á erminni þegar hún er tilbúin). Stillið af þannig að næsta umferð sem á að prjóna sé með litnum beige. Til að koma í veg fyrir að kanturinn verði stífur, fellið af með sléttum lykkjum þannig: * fellið af uppsláttinn sem tilheyrir næstu lykkju, fellið af 2 næstu lykkjur hvora fyrir sig *, endurtakið *-* umferðina hringinn. Klippið frá og festið enda. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (13)
Hinke wrote:
Waarom is dit patroon niet in het nederlands te krijgen? Zo mooie trui.
03.09.2022 - 19:53DROPS Design answered:
Beste Hinke,
Het patroon is inmiddels voor je vertaald ☺ en beschikbaar in het Nederlands. Klik hier voor de Nederlandstalige versie. Veel breiplezier!
04.09.2022 - 12:17Elin wrote:
Bildet stemmer ikke med oppskriften. På bildet ser man tydelig at d er økt 9 ganger til raglan, i oppskriften står d 12 ganger. Hvis jeg øker 12 ganger blir det mye mere enn 33 cm fra hals til armhull. Jeg har den strikkefastheten som står i oppskriften. Hvordan løser jeg dette?
12.07.2020 - 15:17Mona wrote:
Denne oppskriften er merket med en liten urskive øverst til høyre på bildet av genseren. Hva betyr det?
19.11.2019 - 20:46DROPS Design answered:
Hei Mona. De oppskriftene med en liten urskive betyr at dette er en av de nyeste oppskriftene som er blitt publisert. Om du bruker PC, skal det komme en liten tekst (NY) over ikonet når du drar musen over ikonet. Det samme gjelder de andre ikonene. mvh DROPS design
25.11.2019 - 13:49Birte wrote:
Hvornår lægger I opskriften op? Jeg vil frygtelig gerne i gang med at strikke :-)
12.11.2019 - 16:22DROPS Design answered:
Hej Birte, den kommer om et par uger :)
14.11.2019 - 12:33Tove wrote:
Så fin! Vill sticka nu.
15.10.2019 - 17:26Feerik wrote:
Magnifique--un côté elfique qui donne envie de grandes balades !
01.10.2019 - 23:39Feerik wrote:
Magnifique-parfait pour les promenades automnales !!!
22.09.2019 - 20:13Margareth Keune wrote:
Maravilhoso!!!
15.07.2019 - 02:37Geneviève wrote:
Les points de tricots employés, rend ce modèle particulier et fort beau,
14.07.2019 - 14:31Ingrid wrote:
Absolutely beautiful!
04.07.2019 - 15:43