DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 205-43
DROPS Design: Mynstur ai-215
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-200-200-200-250-250 g litur 06, svartur
150-150-150-150-200-200 g litur 26, beige
50-50-50-100-100-100 g litur 13, appelsína
50-50-50-50-100-100 g litur 02, hveiti

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: Lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: Lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni og rendurnar halda áfram alveg eins og útskýrt er í A.1 alveg út í hvorri hlið á framstykki og bakstykki.
Prjónið með 3, 5 eða 7 dokkum í umferð (eftir því hvar í mynstrinu þú ert), þannig sleppur þú við langa þræði á bakhlið. Þ.e.a.s. að t.d. neðst á peysunni þegar fyrsta röndin byrjar, er prjónað með 1 dokku í litnum beige hvor megin á peysunni og 1 dokku í litnum appelsína fyrir miðju á peysu. ATH: Til að koma í veg fyrir göt við litaskipti verður að tvinna þræðina um hvorn annan.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 100 lykkjur) mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þessum 98 lykkjum með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 9) = 10,8. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 10. og 11. hverja lykkju slétt saman. Ekki er lykkjum fækkað yfir kantlykkjur.

ÚRTAK-2 (á við um V-hálsmál):
Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli innan við 5 kantlykkjur í garðaprjóni við miðju að framan. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 5 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan 5 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan 5 kantlykkjum og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Axlasaumar eru saumaðir. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram handveg fyrir ermar. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón þar til ermakúpan hefur verið prjónuð til loka, síðan er afgangur af ermi prjónaður í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður til loka. Að lokum er botninn saumaður í handveg. Peysan er saumuð saman í lokin.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 94-100-108-118-126-138 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum beige. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 9-9-9-11-11-13 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 85-91-99-107-115-125 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 9-10-11-12-13-14 cm frá uppfitjunarkanti, byrja rendur – sjá MYNSTUR. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni með litnum beige, prjónið 21-24-28-32-36-41 lykkjur í sléttprjóni með litnum beige, prjónið A.1 (= 41 lykkjur), prjónið 21-24-28-32-36-41 lykkjur í sléttprjóni með litnum beige og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni með litnum beige. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af 2 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 81-87-95-103-111-121 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur eins og áður.
Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 38-41-45-49-53-58 lykkjur eins og áður, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 38-41-45-49-53-58 lykkjur sem eftir eru eins og áður.
Í næstu umferð (rétta), eru prjónaðar sléttar lykkjur fram að 5 lykkjum brugðið við miðju að framan. Prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja af 5 lykkjum brugðið, en prjónið upp á bakhlið á þessum 5 lykkjum.
Haldið eftir þessum 43-46-50-54-58-63 fyrstu lykkjum á prjóni (þ.e.a.s. 38-41-45-49-53-58 lykkjur + 5 lykkjur sem voru prjónaðar upp).
Setjið 43-46-50-54-58-63 lykkjur á þráð eða hjálparprjón.
Hvor hlið á v-hálsmáli er prjónuð til loka fyrir sig.

VINSTRI HLIÐ AÐ FRAMAN (þegar flíkin er mátuð):
Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum í garðaprjóni við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið. Mynstrið heldur áfram alveg eins og áður þar til allar lykkjur eru prjónaðar með litnum svartur.
JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu, fækkið um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli við miðju að framan – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3-3-4-4-4-4 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 4-4-4-4-5-5 sinnum.
Eftir síðustu úrtöku eru 36-39-42-46-49-54 lykkjur eftir í umferð.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm frá uppfitjunarkanti. Byrjið frá réttu og fellið af fyrstu 31-34-37-41-44-49 lykkjur frá öxl (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur) = 5 lykkjur garðaprjón eftir á prjóni. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þessar 5 lykkjur í ca 8-8-9-9-9-9 cm. Fellið af.

HÆGRI HLIÐ AÐ FRAMAN (þegar flíkin er mátuð):
Setjið til baka 43-46-50-54-58-63 lykkjur af þræði/hjálparprjóni á hringprjón 5,5. Byrjið frá réttu og prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum í garðaprjóni við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið. Mynstrið heldur áfram alveg eins og áður þar til allar lykkjur hafa verið prjónaðar með litnum svartur.
JAFNFRAMT í í næstu umferð frá réttu, fækkið um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli við miðju að framan – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3-3-4-4-4-4 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 4-4-4-4-5-5 sinnum.
Eftir síðustu úrtöku eru 36-39-42-46-49-54 lykkjur eftir í umferð.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm frá uppfitjunarkanti. Byrjið frá röngu og fellið af fyrstu 31-34-37-41-44-49 lykkjur frá öxl (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur) = 5 lykkjur garðaprjón eftir á prjóni. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þessar 5 lykkjur í ca 8-8-9-9-9-9 cm. Fellið af.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 94-100-108-118-126-138 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum beige. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 9-9-9-11-11-13 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1= 85-91-99-107-115-125 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 9-10-11-12-13-14 cm frá uppfitjunarkanti, byrja rendur og prjónað er alveg eins og á framstykki (þ.e.a.s. að rendur á framstykki og bakstykki eru alveg eins).
Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af 2 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 81-87-95-103-111-121 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til allar lykkjur hafa verið prjónaðar með litnum svartur. Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð eru felldar af miðju 17-17-19-19-21-21 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið síðan sléttprjón og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 31-34-37-41-44-49 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn.

ERMI:
Prjónið upp lykkjur meðfram handveg á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. byrjið í horni á handveg í annarri hlið á stykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg og prjónið upp frá réttu 58-60-64-68-70-74 lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á hringprjón 5,5 með litnum svartur (þ.e.a.s. það á ekki að prjóna upp lykkjur meðfram botni á handveg).
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 2 cm í öllum stærðum frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp, setjið 1 prjónamerki í byrjun og í lok umferðar. Prjónamerkin merkja hvar ermin er saumuð siðar að botni á handveg og ermin er nú mælt frá þessum prjónamerkjum!
Skiptið yfir á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5,5 og prjónið sléttprjón hringinn. Prjónið þar til ermin mælist 41-40-39-37-36-33 cm frá prjónamerki (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 64-66-70-74-78-82 lykkjur.
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Ermin mælist ca 47-46-45-43-42-39 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju.
Saumið ermi við botn á handveg frá prjónamerki og inn að horni í hvora hlið.
Saumið kant í hálsmáli saman við miðju að aftan og saumið kant í hálsmáli við hálsmál aftan í hnakka – passið uppá að saumurinn snúi inn að röngu.

Mynstur

symbols = beige
symbols = appelsína
symbols = hveiti
symbols = svartur
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-43

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Alice wrote:

Je ne suis pas sûre de comment commencer les manche. Je relève 30 mailles devant et 30mailles dans le dos ?

15.01.2024 - 08:53

DROPS Design answered:

Bonjour Alice, c'est exact pour la taille M. Bon tricot!

15.01.2024 - 10:17

country flag Katleen wrote:

Beste, Ik begrijp niet wat u bedoelt met deze beschrijving ivm aanzet V hals. Graag wat meer uitleg. ‘Brei op de volgende naald (goede kant) recht tot de 5 steken averecht midden voor. Neem dan 1 steek op in elk van de 5 averechte steken, maar neem deze op aan de achterkant van deze 5 steken.’ Thanks !

15.05.2023 - 18:25

DROPS Design answered:

Dag Katleen,

In plaats van de rechter naald in de voorste lus van de steek te steken, steek je de naald nu in de achterste lus van de steek. In elke steek brei je 2 steken. Dus in de eerste steek brei je twee steken, in de tweede steek brei je 2 steken, enzovoorts.

17.05.2023 - 18:01

country flag Annie wrote:

Je ne comprends pas les 5 mailles au point mousse côté encolure pouvez vous m expliquer svp d avance merci

21.02.2021 - 20:28

DROPS Design answered:

Bonjour Annie, quand on tricote les 2 devants séparément, on les tricote en jersey = comme avant, mais avec 1 maille lisière au point mousse côté emmanchure et 5 mailles au point mousse côté encolure, autrement dit, sur l'endroit, tricotez toutes les mailles à l'endroit et sur l'envers, tricotez les 5 mailles côté encolure (en début de rang sur l'envers pour le devant gauche/en fin de rang sur l'envers pour le devant droit) à l'endroit (tout comme la maille lisière côté emmanchure). Bon tricot!

22.02.2021 - 09:26

country flag Anne Vowinckel wrote:

Gehen die Streifen über die ganze Breite? Im Diagramm sieht es so aus, als ob an der Seite noch beige gestrickt wird. Auf dem Foto sieht es anders aus.

24.10.2020 - 17:11

DROPS Design answered:

Liebe Frau Vowinckel, ja genau, die streifen gehen über die ganze Breite, dh so wie in A.1 beidseitig weitestricken bis die Randmaschen mit der unteren bzw neuen Farbe gestrickt wird, dh Sie werden dann bei einigen Reihen mit 5 und eben mit 7 knäuel stricken. Viel Spaß beim stricken!

26.10.2020 - 08:04

country flag Catherine Cortesi wrote:

Bonjour, Je ne suis pas sûre de comprendre les explications pour les manches : au début, elles sont ouvertes, c'est ça ? Ce sont les deux centimètres qui permettent de donner l'aisance du dessous de bras ? Merci de votre réponse.

02.10.2020 - 14:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Cortesi, vous avez tout à fait compris, ces 2 cm du haut de la manche seront cousues le long des mailles rabattues pour les emmanchures dos/devant sur les côtés, et on termine ensuite la manche en rond. Bonne continuation!

02.10.2020 - 15:11

country flag CArolina wrote:

Hola, a mi no me quedo claro en la parte del escote cuando indica levantar 5 puntos del lado de atrás...como se hace eso sin cerrar los puntos? Muchas gracias

10.02.2020 - 18:01

DROPS Design answered:

Hola Carolina. Aquí tienes el video de cómo se recogen los puntos en el borde:

16.02.2020 - 23:02

country flag Elke Jahn wrote:

Ich möchte gerne wissen, ob in dem Diagramm A1 nur die Hinreihen oder die Hin- und Rückreihen angegeben sind. Können Sie mir da bitte helfen? Vielen Dank!

22.01.2020 - 09:48

DROPS Design answered:

Liebe Frau Jahn, alle Reihen sind im Diagramme gezeichnet, dh die Hin- sowie die Rückreihen - hier lesen Sie mehr über Diagramme. Viel Spaß beim stricken!

22.01.2020 - 10:18

country flag Monika wrote:

Toller Pullover mit mit genialem Farbkontrast durch den Roten und Weissen Zacken - FANTASTISCH

15.11.2019 - 23:04

country flag Marga wrote:

Cuando estará el patrón?

11.11.2019 - 20:39

country flag Pascale O wrote:

Magnifique....! ma laine attend les explications avec impatience...!

11.10.2019 - 18:25