Baby Plum |
|
|
|
Prjónuð húfa og smekkur fyrir börn í klukkuprjóni úr DROPS BabyMerino. Stærð 1 mánaða – 4 ára.
DROPS Baby 36-7 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KLUKKUPRJÓN – á við um smekk: UMFERÐ 1 (= frá röngu): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 uppslætti, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju garðaprjón. UMFERÐ 2 (= frá réttu): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið frá *-* þar til 1 uppsláttur og 2 lykkjur er eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 lykkju garðaprjón. Endurtakið umferð 1 og 2. ÚTAUKNING-1: Prjónið 3 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn með prjónamerki þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóninum, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar, sleppið síðan lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni = 3 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (= frá röngu) prjónið útauknar lykkjur í klukkuprjóns mynstri, en lykkjurnar eru prjónaðar án uppsláttar. ÚTAUKNING-2: Prjónið 5 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn með prjónamerki þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóninum, * sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar, án þess að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, sleppið síðan lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni = 5 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (= frá röngu) prjónið útauknar lykkjur í klukkuprjóns mynstri, en lykkjurnar eru prjónaðar án uppsláttar. KLUKKUPRJÓN – á við um húfu: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 lykkju garðaprjón. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 uppslætti, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju garðaprjón. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið frá *-* þar til 1 uppsláttur og 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 lykkju garðaprjón. Endurtakið umferð 2 og 3. ÚRTAKA: Við 1. prjónamerki er lykkjum fækkað þannig: Prjónið 3 lykkjur slétt saman (uppslátturinn er ekki talinn sem eigin lykkja, þ.e.a.s. 2 lykkjur færri). Við 7. prjónamerki er prjónað þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir (uppslátturinn er ekki talinn sem eigin lykkja, þ.e.a.s. 2 lykkjur færri). Við 3. og 5. prjónamerki er lykkjum fækkað þannig: Prjónið 5 lykkjur og 3 uppslætti (= alls 8 lykkjur) saman þannig: Lyftið yfir fyrstu 3 lykkjurnar og 2 uppslætti á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið næstu 2 lykkjur og 1 uppslátt slétt saman, lyftið 5 lausu lykkjunum (meðtalinn uppsláttur) frá hægri prjóni yfir lykkjur sem prjónaðar voru saman (þ.e.a.s. 4 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SMEKKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Stykkið er prjónað í klukkuprjóni og aukið er út í klukkuprjóns lykkjum í hvorri hlið og í miðju á stykki. SMEKKUR: Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 2,5 með Baby Merino. Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu, þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Snúið stykkinu og setjið 3 prjónamerki í stykkið þannig (= frá réttu): 1. prjónamerki í 2. lykkju í umferð, 2. prjónamerki í 4. lykkju í umferð og 3. prjónamerki í 6. lykkju í umferð. Prjónið þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, aukið út 2 lykkjur í næstu lykkju og uppslátt – sjá ÚTAUKNING-1, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, aukið út 4 lykkjur í næstu lykkju og uppslátt – sjá ÚTAUKNING-2, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið lykkju eins og prjóna eigi brugðið, aukið 2 lykkjur í næstu lykkju og uppslátt – sjá ÚTAUKNING-1, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 15 lykkjur í umferð. Eftir útaukningu eru prjónamerkin færð, 1. prjónamerkið er sett í fyrstu klukkuprjóns lykkjuna í umferð (eftir kantlykkju), 2. prjónamerki er sett í miðjulykkjuna í umferð (miðjulykkjan af 5 lykkjum sem prjónaðar voru í 1 lykkju) og 3. prjónamerki er sett í síðustu klukkuprjóns lykkju í umferð (= á undan kantlykkju). Í næstu umferð (= frá röngu) er prjónað KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Útauknar lykkjur eru prjónaðar án uppsláttar í fyrstu umferð. Haldið áfram með klukkuprjón og útaukningar, aukið út í 4. hverri umferð í hliðum (prjónamerki 1 og 3) og í 8. hverri umferð í miðju (prjónamerki 2). Færið prjónamerkin eftir hverja útaukningu, þannig að alltaf er aukið út í miðjulykkjuna og í lykkjum við kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 10-12 cm (eða að óskuðu máli), er fellt af. Festið tölu í annan endann á smekknum (hneppið tölunni á milli kantlykkju og fyrstu lykkju í klukkuprjóni í hinum endanum). ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. HÚFA: Fitjið upp 17 lykkjur í öllum stærðum á prjón 2,5 með Baby Merino. Prjónið fyrstu umferð með KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Snúið stykkinu og setjið 7 prjónamerki í stykkið þannig (án þess að prjóna): 1. prjónamerki í 3. lykkju, 2. prjónamerki í 5. lykkju, 3. prjónamerki í 7. lykkju, 4. prjónamerki í 9. lykkju, 5. prjónamerki í 11. lykkju, 6. prjónamerki í 13. lykkju, 7. prjónamerki í 15. lykkju. Það á að auka út lykkjum við prjónamerki 2, 4 og 6 síðar og fækka lykkjum við prjónamerki 1, 3, 5 og 7. Prjónið 2. umferð með klukkuprjóni, JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkjur með 2., 4. og 6. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 = 29 lykkjur. Eftir útaukningu eru prjónamerkin færið að miðju af 5 lykkjum sem prjónaðar voru í 1 lykkju. Haldið áfram með klukkuprjón, JAFNFRAMT er aukið út við þessi 3 prjónamerki. Aukið í 8. hverri umferð alls 7-8-9-10-11 sinnum = 101-113-125 (137-149) lykkjur. Haldið áfram með klukkuprjón, en nú á að fækka lykkjum í viðbót við útaukningar. Fækkið um 2 lykkjur við 1. og 7. prjónamerki og fækkið 4 lykkjur við 3. og 5. prjónamerki – SJÁ ÚTAUKNING. Fækkið lykkjum og aukið út í 8. hverri umferð, lykkjufjöldinn er sá sami (fækkið um 12 lykkjur og aukið út 12 lykkjur). Haldið áfram með klukkuprjón, útaukningu og úrtöku þar til stykkið ælist ca 12-13-14 (16-17) cm, eða að óskuðu máli (nú eru eftir 2 cm. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * 1 lykkja brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju garðaprjón. Haldið áfram með stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Þræðið þráðinn í gegnum uppfitjunarkantinn, herðið að og festið vel. Saumið húfuna saman mitt að aftan, innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. SNÚRA: Fitjið upp 4 lykkjur á prjón 2,5 með Baby Merino. Prjónið þannig: * 1 lykkja slétt, leggið þráðinn framan við stykkið (að þér), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, leggið þráðinn aftur aftan við stykkið (frá þér) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar og haldið svona áfram í öllum umferðum. Nú myndast hringlaga snúra. Fellið af þegar snúran mælist ca 20-22-24 (26-28) cm. Prjónið aðra snúru alveg eins. Saumið snúruna neðst í hvora hlið á húfunni. DÚSKUR: Gerið dúsk ca 4 cm að þvermáli og festið efst á húfuna. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (14)
Bettina Jensen wrote:
Skal der bruges rundpind til hagesmæk, eller kan man bruge to pinde i stedet?
20.01.2021 - 14:33DROPS Design answered:
Hej Bettina, du må gerne strikke den på jumperpinde :)
20.01.2021 - 16:21Kerstin Bartel wrote:
Ich blicke bei der Mütze nicht durch...warum muss ich Maschen abnehmen? Macht doch keinen Sinn, wenn ich die Anzahl der zugenommenen Maschen gleich wieder abnehmen muss...wie soll die Mütze dann jemals mehr als 29 Maschen kriegen??? Wir sitzen hier zu 2. und haben ein mega Fragezeichen überm Kopp....
11.09.2020 - 19:20DROPS Design answered:
Liebe Frau Bartel, nach der 1. Zunahme haben Sie 29 Maschen, dann stricken Sie die Zunahmen weiter (= 4 Zunahmen x 3 Markierungsfäden = 12 Maschen) noch 6-7-8-9-10 Mal (= insgesamt 7-8-9-10-11 x )= nach allen Zunahmen haben Sie 101-113-125 (137-149) Maschen. Erst dann stricken Sie Abnahmen gleichzeitig zu den Zunahmen, und so bleibt die Maschenanzahl gleich. Viel Spaß beim stricken!
14.09.2020 - 08:10Simone wrote:
Liebes Drops-Team, das Set ist wunderschön geworden. Vielen Dank für die tolle Anleitung. Eine Frage: kann man die Mütze theoretisch auch rund stricken?
15.07.2020 - 11:47DROPS Design answered:
Liebe Simone, danke für Ihre Rückmeldung - die Mütze können Sie sicher in Runden stricken, aber dann sollte die Anleitung angepasst werden. Viel Spaß beim stricken!
15.07.2020 - 12:46Simone wrote:
Liebes Drops Team, bedeutet das dann, dass ich immer in der Rückreihe nach einer Zunahme mehrere Maschen einfach rechts abstricken muss, da ich die zugenommen Maschen ja einarbeiten soll. In der Anleitung zum Vollpatent soll man eigentlich abwechselnd mit und ohne Umschlag stricken.
03.07.2020 - 15:12DROPS Design answered:
Liebe Simone, bei den Rückreihen nach den Zunahmen werden die neuen Maschen im Vollpatent gestrickt - aber ohne die Maschen zusammen mit ihrem Umschlag stricken, denn diese Maschen noch keinen Umschlag haben - dieses Video zeigt, wie man mehrere Maschen bei den Hinreihen zunimmt und bei den Rückreihen strickt. Viel Spaß beim stricken!
03.07.2020 - 15:28