DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 399.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5187.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Enchanted Evening

Prjónaður kjóll úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, hnútamynstri og stuttum ermum. Stærð S -XXXL.

DROPS 211-1
DROPS Design: Mynstur r-762
Garnflokkur E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
650-700-750-800-900-1000 g litur 76, ljós gallabuxnablár

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni og hnútamynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 60 cm og 80 cm fyrir sléttprjón og hnútamynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 399.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5187.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1).

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 18) = 6,7.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 6. og 7. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca 5. og 6. hver lykkja og 6. og 7. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING-2 (á við um formið á fram- og bakstykki):
Aukið út um 1 lykkju á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki eins og útskýrt er að neðan.
AUKIÐ ÚT Á EFTIR PRJÓNAMERKI ÞANNIG:
Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuliðinn sem liggur utan um fyrstu lykkju á vinstri prjóni (þ.e.a.s. í lykkjuna frá fyrri umferð).
AUKIÐ ÚT Á UNDAN PRJÓNAMERKI ÞANNIG:
Prjónið fram að prjónamerki, prjónið síðan 1 lykkju slétt í lykkjuna sem liggur utan um ystu lykkjuna á hægri prjóni (þ.e.a.s. í lykkjuna frá fyrri umferð).

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Aukið út alveg eins á undan og á eftir prjónamerki eins og útskýrt er í ÚTAUKNING-1, en aukið út til skiptis á undan og á eftir prjónamerki. Þ.e.a.s. aukið einungis út 1 sinni í hvorri hlið með 1½ cm millibili og þetta er gert til skiptist á undan og á eftir prjónamerki (ekki í hvorri hlið).

ÚRTAKA (á við um aðsnið á fram- og bakstykki):
Fyrstu úrtökur koma til með að gerast samtímis og mynstrið er prjónað. Stillið af þannig að lykkjum sé fækkað án hnúta og takið vel eftir að það verða færri lykkjur sléttprjón á milli 2 hnúta eftir eina úrtöku.
Fækkið um 1 lykkju eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki eins og útskýrt er að neðan.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR PRJÓNAMERKI ÞANNIG:
Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN PRJÓNAMERKI ÞANNIG:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 120-124-130-134-138-140 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með Muskat. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-26-32-16-22-35 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 138-150-162-150-160-175 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= mitt að framan). Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Berustykkið er síðan prjónað eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið A.1 hringinn (= 23-25-27-30-32-35 mynstureiningar með 6-6-6-5-5-5 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 230-250-270-300-320-350 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.2 hringinn (= 23-25-27-30-32-35 mynstureiningar með 10 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og A.2 sýnir. Eftir síðustu útaukningu í A.2 eru 276-300-324-360-384-420 lykkjur í umferð.

Prjónið áfram þar til stykkið mælist 17-19-21-23-25-27 cm frá prjónamerki við hálsmál – ATH: A.2 er prjónað eins langt og hægt er að réttu máli og í einhverjum stærðum verður að endurtaka A.x á hæðina að réttu máli (mynstrið á að halda áfram á fram- og bakstykki).
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og kanta á ermum, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá miðju að aftan þannig:
Prjónið 38-42-45-51-56-62 lykkjur í mynstri eins og áður (= ½ bakstykki), setjið næstu 62-66-72-78-80-86 lykkjur á þráð fyrir kant á ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 76-84-90-102-112-124 lykkjur í mynstri eins og áður (= framstykki), setjið næstu 62-66-72-78-80-86 lykkjur á þráð fyrir kant á ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 38-42-45-51-56-62 lykkjur sem eftir eru í mynstri eins og áður (= ½ bakstykki).
Klippið frá. Fram- og bakstykki og kantar á ermum er síðan prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 164-180-196-220-244-268 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Að auki eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig:
Teljið 21-24-27-32-37-42 lykkjur frá prjónamerki í annarri hlið á stykki, setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 40-42-44-46-48-50 lykkjur, setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 42-48-54-64-74-84 lykkjur (prjónamerki í hlið situr mitt á milli þessa lykkja), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 40-42-44-46-48-50 lykkjur, setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 21-24-27-32-37-42 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum og auka út.
Haldið nú áfram með A.x JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hliðum á fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan:
Byrjið umferð við prjónamerki í annarri hlið á stykki og prjónið síðan A.x hringinn, en passið uppá að halda áfram í réttri umferð í mynsturteikningu miðað við þar sem stykkið skiptist og passið uppá að hnútarnir séu staðsettir beint yfir hnútum á berustykki. Þær 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi, eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu í öllum stærðum, endið A.x, en endið eftir 1 umferð með hnútum.
Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur.

JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 1 lykkju á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri).
Fækkið lykkjum svona með 2½ cm millibili alls 4 sinnum á hæðina = 148-164-180-204-228-252 lykkjur.

Þegar stykkið mælist 16 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út 1 lykkju á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1. Að auki er aukið út um 1 lykkju við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2 (= alls 6 lykkjur fleiri í umferð). Aukið svona út með 2 cm millibili alls 21 sinnum á hæðina í öllum stærðum = 274-290-306-330-354-378 lykkjur.
Prjónið áfram án útaukninga þar til stykkið mælist ca 61-62-63-64-65-66 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 2 cm til loka, mátið e.t.v. kjólinn og prjónið að óskaðri lengd).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 20-22-24-26-26-28 lykkjur jafnt yfir = 294-312-330-356-380-406 lykkjur (það er aðeins aukið út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna, dragi kantinn saman).
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Kjóllinn mælist ca 85-88-91-94-97-100 cm frá öxl og niður.

KANTUR Á ERMI:
Setjið 62-66-72-78-80-86 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-80-86-90-96 lykkjur. Byrjið umferð mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi og prjónið 3 umferðir sléttprjón. JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 4-4-4-4-2-2 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 64-68-76-82-88-94 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Kantur á ermum mælist ca 4 cm frá skiptingu.
Prjónið hinn kantinn á ermi á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 28.04.2020
Ný mynsturteikning: A.1 (S-M-L) - umferð 10. A.1 (XL-XXL-XXXL) - umferð 14.
Yfirfarið á vefsvæði: 18.01.2021
Leiðrétting: Mynsturteikning hefur verið uppfærð

Mynstur

symbols = slétt lykkja

symbols = Hnútur: Prjónið 3 lykkjur brugðið saman, sleppið ekki lykkjum af prjóni, en prjónið sömu 3 lykkjurnar slétt saman og síðan brugðið saman 1 sinni til viðbótar, sleppið að lokum öllum 3 lykkjunum af vinstri prjóni
symbols = aukið út 1 lykkju með því að prjóna 1 lykkju slétt efst á lykkju frá fyrri umferð (þ.e.a.s. í lykkjuna aftan við fyrstu lykkju á vinstri prjóni), sleppið ekki lykkjunni af prjóninum, prjónið sjálfa lykkjuna í umferð slétt og sleppið lykkjunni af prjóni

diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 211-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (63)

country flag Helena wrote:

Hej, Jag har stickat Enchanted evening men har problem med att mudden längst ner på kjolen viker upp sig. Det är inte att den rullar sig utan hela mudden viker upp sig (den viker sig i brytningen mellan slätstickning och mudd) Vad kan jag göra för att få den att inte vika upp sig?

17.12.2022 - 16:34

DROPS Design answered:

Hei Helena. Prøv å dampe kanten lett eller fukte den og sett den fast med nåler og la den tørke flatt. mvh DROPS Design

19.12.2022 - 08:21

country flag Neuloosi wrote:

"lisää 1. ja 3.merkkilangan jälkeen 1 silmukka ja lisää ennen 2. ja 4.merkkilankaa 1 silmukka Lisää myös kummankin sivun merkin molemmin puolin 1 silmukka (= työhön lisättiin yhteensä 6 silmukkaa)" Eikö silmukoita tule lisää 8 eikä 6?

07.12.2022 - 15:16

DROPS Design answered:

Hei, ohjeessa oli virhe. Merkkien kohdalla lisätään vain 1 silmukka, eli työhön lisätään yhteensä 6 silmukkaa. Ohjeeseen on tehty korjaus.

16.01.2023 - 18:11

country flag Eva wrote:

Hello! How large is the waist of different sizes? I can't find the measurements in the pattern.

23.04.2022 - 14:36

DROPS Design answered:

Dear Eva, the waist measurements are in the chart below the pattern instructions, in cm. They are: 35-39-43-49-54-60. Happy knitting!

23.04.2022 - 16:34

country flag Debbie wrote:

Drops enchanted evening . Hi I am now at section where I have put the sleeve stitches on waste yarn . Why would I cut the thread after knitting the last 45 stitches of back ? Wouldn’t I knit to the middle of the 8 stitches under the arm and that would be the new beginning of the round ? Also is it necessary to use thread marker or can I use regular stitch markers for the 4 markers where thread would be ? In addition to the 2 side markers in contrasting color so I would know difference?

24.11.2021 - 20:23

DROPS Design answered:

Dear Debbie, you cut the thread at the end of yoke so that you can start again with pattern from on of both sides; you can use markers if you like to, most important is to place anything to mark these places to increase on the right places - and good idea to use different colours for both kind of markers. Happy knitting!

25.11.2021 - 08:51

country flag Debbie wrote:

Drops enchanted evening . Yes ! That helps . Yay , I finally figured it out . Next question is on the first increase round . How many stitches should I have on needles after this round? Knot over 3, make 1, k, m1. \\r\\nShould that be an increase of 54 stitches ? 27x2? Thank you so much for your help .

17.11.2021 - 13:24

DROPS Design answered:

Dear Debbie, yes correct :) On the 10th round in A.1 you will increase 2 sts = there will be 8 sts in every A.1 x 27 repeats = 216 sts (162 sts + 54 sts increased). And in the next to last row inA.1 you increase 2 more sts = 10 sts x 27 = 270 sts (again 54 sts increased + 216). Happy knitting!

17.11.2021 - 16:44

country flag Debbie wrote:

Drops enchanted evening . So perhaps I am following chart incorrect . From what you say now: for first round would it be all knit ? Since it’s 6 knits ? Next round would be knot over 3 , k3- repeat to end of round ? Next round 3 rounds are knit , next round is repeat of k3, knot over 3 etc? By the top of the chart that would be 25 rounds and then would I start at bottom again and do 2 more rounds to make 27? Otherwise I don’t know what 27 reps mean ? Sorry to be such a bother .

16.11.2021 - 18:10

DROPS Design answered:

Dear Debbie, that's exactly how to read the diagram A.1 and how to work it. When it says to repeat A.1 a total of 27 times, it means to work: row 1: K6 x 27 (= 6*27= 162 sts); Round 2: (Knot, K3) x 27 = still 162 sts and 27 knots etc... After these 25 rows are done, work now A.2 (there were 10 sts at the end of each A.1, work now A.2 lined up over each A.1: the knots in A.2 will be lined up over the knots in A.1. And you will still repeat A.2 a total of 27 times in the round. Can this help somewhat more?

17.11.2021 - 07:35

country flag Debbie wrote:

Drops enchanted evening . Yes that does help. I believe I’m following chart correct . My original question was : following the 5th repetition of the chart and starting the 6th repetition , should the row match up exactly? K6, knot over 3, k3 etc... ? I found it odd to be back at same starting point of the chart over top of the 5th repetition. Also , I feel my knots look more Spread out than in the picture . I am just going to follow the chart without knots the 27 reps til 270 stitches-size L

16.11.2021 - 14:17

DROPS Design answered:

Dear Debbie, I'm still not sure to understand what you mean here with "repetition", diagram will be worked the same way all the round, ie repeat row 1 to the end of the round, then repeat row 2 to the end of the round (= 1 knot x 27 repeats in L) etc.. If you mean 5th knot in height (= 18th row in diagram) then work (from right to left: *1 knot, K5* and repeat from *-* all the round). Can this help?

16.11.2021 - 16:26

country flag Debbie wrote:

Drops enchanted evening . Sorry , perhaps I’m not following chart properly . I am following from bottom right to left . Next row again from left to right . Ex . Start with K 6 , Make knot over next 3,stitches , knit 24, make knot over next 3, k24, knot over next 3 stitches , make 1, k1, M1, K8 etc following up. By repetition I meant the 5th and 6th reps in repeating the chart 27 times . Following the chart , the beginning of the round continues to change. Am I following incorrectly?

16.11.2021 - 04:50

DROPS Design answered:

Dear Debbie, since diagram is worked in the round, you will always read it from the right towards the left, ie the knot on 2nd row will be worked over the first 3 sts, then knit 3. Can this help?

16.11.2021 - 09:13

country flag Debbie wrote:

Drops enchanted evening . Sorry I still am confused by the knots . I am being very careful to count and place knots in correct spaces. But does it make sense. That on the 6th repetition and starting the row That below it is exact same stitches ? Sorry if I’m not explaining clearly. I may just follow the chart without making knots at all . I’ve unripped too many times now .

12.11.2021 - 21:46

DROPS Design answered:

Dear Debbie, I'm sorry, I'm not sure what you call here "repetition", do you mean the 6th knot in height? Then you have 8 sts in every repetition of A.1 and work: K3, increase 1 stitch (last symbol), 1 knot over the next 3 sts, increase 1 st (= 8 sts worked and increased to 10 sts). Can this help?

15.11.2021 - 07:15

country flag Debbie wrote:

Drops enchanted evening . Just to clarify , do you mean yes the 4th and 5th row of the chart repeat each other (lined up over precious repeat ) or have I miscounted somewhere ? It’s pretty hard to do those make one stitches over the previous row if it is correct that these rows align. Thank you

12.11.2021 - 14:06

DROPS Design answered:

Dear Debbie, knots should be lined up just as shown in diagram, ie the 4th in height (= 14th row in A.1 smaller sizes) over the 2nd ( = 6th row in same diagram), the 3rd (= 10th row in same diagram) over the 1st (2nd row same diagram), just follow the stitches as shown in diagram to locate the knots over the correct sts. Hope this will help. Happy knitting!

12.11.2021 - 14:19