Wake the Wind Jacket |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með áferðamynstri og tilfærslum á lykkjum. Stærð XS - XXL.
DROPS 212-7 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið næstu 6 lykkjur (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚRTAKA-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 44 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 5,5. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 4. og 5. hverja lykkju og 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT (neðan frá og upp): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í fyrstu umferð í kanti í hálsmáli): XS: 3, 9, 15, 21, 27 og 33 cm S: 4, 11, 17, 23, 29 og 35 cm M: 4, 11, 17, 24, 30 og 37 cm L: 3, 10, 17, 24, 31 og 38 cm XL: 3, 10, 18, 25, 33 og 40 cm XXL: 4, 12, 20, 27, 34 og 42 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka upp að handveg. Síðan eru lykkjur felldar af fyrir handveg og stykkið skiptist í hægra og vinstra framstykki og bakstykki. Síðan er hvert stykki prjónað til loka fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/hringprjóna. Að lokum er kantur í hálsi prjónaður fram og til baka á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 224-240-256-272-304-320 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 5 lykkjur (= kantur að framan), * prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með A.2 yfir síðustu 5 lykkjur (= kantur að framan). Haldið svona áfram með stroff í 4 cm- munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið eina umferð frá réttu þar sem allar 2 lykkjur brugðið er fækkað til 1 lykkja brugðið með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman (lykkjum er ekki fækkað yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) = 171-183-195-207-231-243 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og áður). Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Síðar í stykkinu á að prjóna áferðamynstur og tilfærslur á lykkjum í hliðum. En vegna tilfærslna á lykkjum í hliðum þá kemur stykkið til með að verða bogalaga niður í hliðum og upp að miðju að framan og að aftan. Til að koma í veg fyrir að stykkið beygist upp að miðju að aftan er hægt að prjóna stuttar umferðir þannig: Byrjið frá réttu og prjónið A.1 (= kantur að framan), 2 lykkjur slétt, A.3 (= 3 lykkjur – ATH: Þær 2 lykkjur slétt í A.3 eiga að passa yfir 2 lykkjur slétt í stroffi) yfir næstu 78-84-90-96-108-114 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= á undan miðju lykkju í umferð = 1 lykkja garðaprjón). Haldið áfram að prjóna A.3 til baka yfir 17-23-29-35-47-53 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið A.3 yfir 20-26-32-38-50-56 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið A.3 yfir 23-29-35-41-53-59 lykkjur. Haldið áfram svona fram og til baka með því að prjóna yfir 3 lykkjur fleiri en fyrri umferð í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónaðar hafa verið 20 stuttar umferðir. Síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Snúið, prjónið A.3 þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, A.2 (= kantur að framan). Snúið og prjónið 1 umferð til baka frá röngu með A.3 og A.1/A.2 eins og áður. Nú er mynstrið prjónað þannig: A.1 (= kantur að framan), 2 lykkjur slétt, A.3 yfir næstu 9-12-15-18-24-27 lykkjur (= 3-4-5-6-8-9 mynstureiningar með 3 lykkjum), A.4 yfir næstu 29 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í hlið), A.5 yfir næstu 29 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.3 yfir næstu 21-27-33-39-51-57 lykkjur (= 7-9-11-13-17-19 mynstureiningar með 3 lykkjum), A.4 yfir næstu 29 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í hlið), A.5 yfir næstu 29 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.3 yfir næstu 9-12-15-18-24-27 lykkjur (= 3-4-5-6-8-9 mynstureiningar), A.2 (= kantur að framan). Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Þau merkja hliðar og það á að nota þau síðar í stykkinu. Haldið svona áfram fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.4 og A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina er mynsturteikningin endurtekin á hæðina 2 sinnum til viðbótar (= alls 3 sinnum). Prjónið síðan með sléttprjóni yfir sléttprjón og garðaprjón yfir garðaprjón yfir 29 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið. Þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar eins og áður. Í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3 sinnum = 159-171-183-195-219-231 lykkjur. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm mælt frá uppfitjunarkanti og meðfram prjónamerki í hlið (þ.e.a.s. þar sem stykkið er lengst), fellið af 8-8-8-14-14-14 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (= 4-4-4-7-7-7 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið). Nú eru 67-73-79-79-91-97 lykkjur fyrir bakstykki og 38-41-44-44-50-53 lykkjur fyrir hvort framstykki. Prjónið síðan stykkin hvert fyrir sig. BAKSTYKKI: = 67-73-79-79-91-97 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með áferðamynstri (= A.3) eins og áður. Að handveg eru prjónaðar 2 lykkjur slétt innan við 1 kantlykkju garðaprjón. Þegar stykkið mælist 11-12-13-14-15-16 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg, fellið af miðju 33-33-33-39-39-39 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 16-19-22-19-25-28 lykkjur fyrir öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. Fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið síðan hina öxlina á sama hátt. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður (mælt þar sem stykkið er lengst). HÆGRA FRAMSTYKKI: = 38-41-44-44-50-53 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan (= A.1) og áferðamynstur eins og áður. Að handveg eru prjónaðar 2 lykkjur slétt innan við 1 kantlykkju garðaprjón. Þegar stykkið mælist 8-9-10-10-11-12 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, prjónið þannig: Prjónið fyrstu 16-16-16-19-19-19 lykkjur (= 5 lykkjur kantur að framan + 11-11-11-14-14-14 lykkjur mynstur) og setjið þær á þráð fyrir hálsmáli, prjónið A.7 yfir næstu 13 lykkjur (= að hálsi), prjónið eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.7 hefur verið prjónað til loka á hæðina = 16-19-22-19-25-28 lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg, fellið af með sléttum lykkjum. Peysan mælist cm 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður (mælt þar sem stykkið er lengst). VINSTRA FRAMSTYKKI: = 38-41-44-44-50-53 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með áferðamynstri eins og áður og 5 kantlykkjur að framan (= A.2) eins og áður. Að handveg eru prjónaðar 2 lykkjur slétt innan við 1 kantlykkju garðaprjón. Þegar stykkið mælist 8-9-10-10-11-12 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu, prjónið þannig: Prjónið fyrstu 16-16-16-19-19-19 lykkjur (= 5 lykkjur kantur að framan + 11-11-11-14-14-14 lykkjur mynstur) og setjið þær á þráð fyrir hálsmáli, prjónið síðan út umferðina eins og áður. Nú er mynstrið prjónað frá réttu þannig: Prjónið mynstur eins og áður þar til 13 lykkjur eru eftir í umferð, A.6 yfir síðustu 13 lykkjurnar (= að hálsi). Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina = 16-19-22-19-25-28 lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg, fellið af með sléttum lykkjum. Peysan mælist cm 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður (mælt þar sem stykkið er lengst). ERMI: Fitjið upp 44-44-48-48-48-52 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-8-10-8-6-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-2 (jafnt yfir) = 36-36-38-40-42-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 8-8-8-9-8-8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 7-5-5-4-3½-3½ cm millibili alls 6-8-8-9-10-10 sinnum = 48-52-54-58-62-64 lykkjur. Þegar ermin mælist 47-47-46-46-43-42 cm (styttri ermi í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið ermina áfram fram og til baka frá byrjun á umferð með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þetta er gert svo að það myndist op undir ermi sem er síðar saumað að lykkjum sem felldar voru af undir handveg á fram- og bakstykki. Þegar ermin mælist alls 50-50-49-50-47-46 cm, fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermi. Saumið hlið á opi á ermi að 4-4-4-7-7-7 lykkjum sem felldar voru af fyrir handveg hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið á fram- og bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan (fellið af fyrir síðasta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist ca 2 cm og saumið tölur í kant að framan í lokin). KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) og hringprjón 4,5 og prjónið upp 92 til 104 lykkjur í kringum kant í hálsmáli meðtaldar lykkjur af þræði (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4 + 2 + 10 lykkjur að kanti að framan). Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og áður). Prjónið kant í hálsmáli fram og til baka í stroffi (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið), kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og áður og það er byrjað og endað með 2 lykkjum slétt innan við kantlykkjur að framan í hvorri hlið. Þegar kantur í hálsmáli mælist 8 cm, er skipt yfir á hringprjón 5,5. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Brjótið kantinn í hálsmáli niður þannig að hann liggi tvöfaldur og saumið kantinn niður þannig að það verði tvöfaldur kantur í hálsmáli. Passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (19)
Lia De Wind wrote:
Ik snap de lege velden van A4 en A5 niet. Moet ik de steken van de bovenste rij erbij optellen? Want dan zijn er veel meer dan 29 steken. Wel een prachtig patroon trouwens
19.01.2023 - 22:08DROPS Design answered:
Dag Lia,
Nee, deze tel je er niet bij op. De eerstvolgende steek op je linker naald brei je in de eerstvolgende steek zoals aangegeven in het telpatroon. Het lege stuk sla je dus gewoon over, m.a.w. je zou het er tussen uit kunnen knippen en de hokjes aan elkaar plakken.
22.01.2023 - 19:10Tina Petersen wrote:
Til diagram forklaring A5. Lav 3 omslag mellem 2 masker. Der står at der kun er taget 2 masker ud - er det ikke 3 masker taget ud? Og hvordan skal det sidste omslag strikkes ? Der er kun anført hvordan de 2 første omslag skal strikkes.
13.05.2021 - 18:07DROPS Design answered:
Hej Tina, det skal være 2 omslag og det er nu blevet rettet. Tak for info :)
14.05.2021 - 09:10Angèle wrote:
Quelle quantité de pelotes de laine est nécessaire pour la grandeur XL. Ma laine à le même échantillon suggéré. Merci!
02.01.2021 - 18:28DROPS Design answered:
Bonjour Angéle. Il faut 6 pelotes DROPS ALPACA et 6 pelotes DROPS KID-SILK pour la grandeur XL. Bon tricot!
02.01.2021 - 19:45PG wrote:
Please demonstrate for the armholes: "knit 2 inside the 1 edge stitch in garter stitch".
16.10.2020 - 16:36DROPS Design answered:
Dear PG, this means you work from RS: 1 edge st in garter st, knit 2, work as before until 3 sts remain, finish with knit 2, 1 edge st in garter st, from WS work: 1 edge st in garter st, purl 2, work as before until 3 sts remain, finish with purl 2, 1 edge st in garter st. Happy knitting!
19.10.2020 - 07:52Pia Tangen wrote:
Hei, når man skal begynne å strikke de første forkortede pinnene på bolen(strikker XS), midt bak, så står det at man skal strikke 9 masker etter merket for så å snu pinnen og strikke 17 tilbake, når man snur igjen da for å strikke 20 masker med A.3, skal den første masken i A.3(den vrange) strikkes først da? Da havner den over den første av de rette i vrangborden. Eller skal man strikke slik at alle vrange masker(sett fra rett) i A.3 havner over den vrange masken i raden under?
10.10.2020 - 22:49DROPS Design answered:
Hej Pia, ja vrangmaskerne skal havne på en lige linje over hinanden som du kan se i diagrammet. God fornøjelse!
28.10.2020 - 13:38Kerstin wrote:
Beskrivningen säger 6 knappar och anger var knapphålen ska komma räknat från uppläggnningskanten: Sjätte knapphålet 39 cm från uppläggningskanten vilket jag har men då har jag ännu inte kommit upp till halskanten. Mina mått i övrigt stämmer med beskrivningen och knapphålet i halskanten kommer alltså att vara det 7:e . Det behövs alltså 7 st knappar.
09.10.2020 - 13:25PG wrote:
Thank you for the quick response. The instructions say to knit 20 short rows, but that is not what your response says. I am making size medium. Am I adding new stitches with each short row or creating new stitches in A.3? Please be specific: how many stitches will there be when the short rows are completed? Can you (or any readers) send a photo of the lower back of this sweater?
03.09.2020 - 14:25DROPS Design answered:
Dear PG, sorry my mistake, I missed that part ... you continue working 3 sts more at the end of each row until you have worked a total of 20 short rows, then work next row over all sts on left needle (no more short rows here), turn and work A.3 with front band sts as before over all sts on next row. We do not have any photo from the back piece, but it's jsut a few rows worked over A.3 on mid back. Happy knitting!
03.09.2020 - 15:51PG wrote:
I am having trouble with the short rows in the Body, after the ribbing. Am I suppose to add 3 stitches (1 pattern of A.3) with each of the short rows or use the next 3 stitches on the needle? How many stitches are on the needle in total after the short rows? Can you send a photo of the back of the sweater?
03.09.2020 - 03:39DROPS Design answered:
Dear PG, you should work 3 more sts in A.3 at the end of each row, ie you work first 9-12-15-18-24-27 sts in A.3 after marker, then turn now 17-23-29-35-47-53 in A.3, turn and work now these sts + 3 more sts = 20-26-32-38-50-56 sts in A.3, turn and work 3 more sts = 23-29-35-41-53-59 sts in A.3, turn and work 3 more sts in A.3 = 26-32-38-45-56-62 sts and so on until 5 sts remain (=A.2) at the end of the row, then turn and work all sts with A.2, A.3 to the end of row and finish with A.1. Happy knitting!
03.09.2020 - 09:09Laura wrote:
Hello, I have knitted many of your beautiful patterns over the years but with reference to Drops 212-7 pattern, I am having trouble understanding what the blank spaces, the gaps, in A.4 and A.5 mean, I can’t find an explanation, in A.4 for example what do I do after stitch 1 with the next 12 stitches (row 1). I am unfamiliar with the ‘gap’ when working within a specific number of stitches. Kind regards, Laura
29.04.2020 - 04:50DROPS Design answered:
Dear Laura, you will increase (with 2 yarn overs) and decrease (with k3 tog) in A.4 and A.5, let's take A.4: you increase first after the first stitch (on 5th row) and then decrease after the next 13 sts. The new stitches increased on this row do not exist before row 6, that's why they are not drawn before row 6. Same for the decreases but reversed, the 2 sts decreased on row 5 are not there anymore on row 6, reason why they are not there anymore. Just read diagram row after row, if there weren't no space - you should always have 29 sts in diagram and increase/decrease on either side of the same 13 stitches. Hope this helps, happy knitting!
29.04.2020 - 09:14Mila wrote:
Hallo lieber Drops - Team! Wäre es möglich ein Bild vom Rücken zu veröffentlichen? Ich finde, es wäre sehr nützlich! Danke!
20.04.2020 - 10:40DROPS Design answered:
Liebe Mila, wir haben leider kein Foto vom Rücken, wir können Ihnen aber sicher irgendwie helfen, gerne können Sie Ihre Frage hier stellen. Viel Spaß beim stricken!
20.04.2020 - 11:30