DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3344.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Late Nights

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað með gatamynstri. Stærð XS - XXL.

DROPS 212-11
DROPS Design: Mynstur as-129
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL – XXL

EFNI:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-125-125-150-150-175 g litur 22, ljós ryð

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3344.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1).

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 180 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 24) = 7,5. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 6. og 7. hverja lykkju og 7. og 8. hverja lykkju slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LASKALÍNA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur færri) þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki situr hér, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg. Síðan eru ermarnar prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón upp að handveg. Síðan eru ermarnar settar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki. Berustykkið og kantur í hálsmáli er prjónað í hring á hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 180-196-208-236-248-264 lykkjur á hringprjón 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 24-28-28-32-32-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 156-168-180-204-216-228 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= í aðra hlið á peysunni). Prjónið A.1 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð, hringinn í umferð (= 26-28-30-34-36-38 mynstureiningar með 6 lykkjum).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar eftir er 1 umferð í A.1, mælist stykkið ca 23 cm.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 5-5-5-6-6-6 lykkjur, prjónið næstu 69-75-81-91-97-103 lykkjur, fellið af næstu 9-9-9-11-11-11 lykkjur fyrir handveg, prjónið næstu 69-75-81-91-97-103 lykkjur, fellið af síðustu 4-4-4-5-5-5 lykkjur. Nú hafa verið felldar af 9-9-9-11-11-11 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg. Klippið frá. Leggið stykkið til hliðar og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 52-56-56-64-64-68 lykkjur á sokkaprjóna 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-8-8-10-10-8 lykkjur jafnt yfir = 42-48-48-54-54-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi).
Prjónið nú mynstur A.1 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð, hringinn í umferð (= 7-8-8-9-9-10 mynstureiningar með 6 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, mælist ermin ca 23 cm.
Prjónið nú eins margar einingar með gatamynstri í A.3 og pláss er fyrir í umferð – stillið af að stjarnan í A.3 sé prjónuð yfir stjörnu í A.1! Hinar lykkjurnar í umferð eru prjónaðar í sléttprjóni. JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 3-4-3-2-1-1 cm millibili alls 6-5-6-7-10-10 sinnum = 54-58-60-68-74-80 lykkjur. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, haldið áfram í sléttprjón til loka. Þegar ermin mælist 41-43-41-40-38-37 cm, fellið af 9-9-9-11-11-11 lykkjur undir ermi (fellið af 5-5-5-6-6-6 lykkjur á undan prjónamerki og 4-4-4-5-5-5 lykkjur á eftir prjónamerki) = 45-49-51-57-63-69 lykkjur fyrir ermi. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 228-248-264-296-320-344 lykkjur. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið. Setjið prjónamerkin 2-0-2-2-0-2 inn á fram- og bakstykki. Þ.e.a.s. í stærð S og XL setjið prjónamerki í skiptinguna á milli fram- og bakstykkis og erma í stærð XS, M, L, XXL setjið prjónamerkin þannig að 2 lykkjur í hvorri hlið á fram- og bakstykki komi inn á ermar.
Byrjið umferð við prjónamerki í skiptingunni á milli hægri ermi og bakstykkis.
Prjónið mynstur þannig: * Prjónið 5-4-5-4-3-4 lykkjur í sléttprjóni, A.2 (= 4 lykkjur), A.3 yfir næstu 48-60-60-72-84-84 lykkjur (= 4-5-5-6-7-7 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.4 (= 3 lykkjur), prjónið 5-4-5-4-3-4 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki/framstykki), prjónamerkið situr hér, prjónið sléttprjón yfir næstu 49-49-55-61-63-73 lykkjur (= ermi) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Haldið áfram hringinn svona. Þegar berustykkið mælist 3-3-2-1-2-2 cm, byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 18-19-21-24-25-28 sinnum = 84-96-96-104-120-120 lykkjur. Stykkið mælist ca 19-19-21-23-25-27 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar var sett saman.
Prjónið síðan kant í hálsmáli eins og útskýrt er að neðan.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 8-16-12-16-28-28 lykkjur jafnt yfir = 76-80-84-88-92-92 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjóni stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 46-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = lykkjan með stjörnu í mynsturteikningu A.2 og A.3 á að passa yfir lykkju með stjörnu í A.1
symbols = til að mynstrið gangi jafnt upp í umferð með ör, byrjar umferðin 1 lykkju á undan prjónamerki í hlið/mitt undir ermi, þ.e.a.s. 1 lykkja til hægri á undan prjónamerki. Byrjið umferð þegar eftir er 1 lykkja í umferð á undan þeirri með ör
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Late Nights

Marianna, Italy

Late Nights

Andrea, United States

Late Nights

Pilar, Spain

Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (70)

country flag Anne wrote:

Hi😊 S-holdet this sweater be knitted Winther 2 threads? Thanks in advance😉🙃

25.03.2024 - 19:41

DROPS Design answered:

Dear Anne, this pattern was designed for the DROPS Brushed Alpaca Silk. You can substitute with other DROPS yarn from the same yarn group without major modification. As with any piece, make sure, you do a gauge swatch and recalculate if necessary. Happy Knitting!

25.03.2024 - 22:09

country flag Anne Konradsen wrote:

Skal der strikkes med to tråde?

22.03.2024 - 21:22

DROPS Design answered:

Hej Anne, den er strikket i DROPS Brushed Alpaca Silk med kun én tråd :)

03.04.2024 - 14:17

country flag Rene Gould wrote:

Hi can I do this lacy top on straight needles as I don’t like dons thank you

15.03.2024 - 18:50

DROPS Design answered:

Dear Rene, first, please understand that with thousands of patterns on our site, we cannot modiy them to each individual request. Especially since this is a sweater , and its yoke is knitted on the round. You can try to modify it, but you do have to knit the sleeves separately then. We do have a lesson, that might help you, HERE . Happy Knitting!

17.03.2024 - 09:46

country flag Barbara wrote:

Bonjour, J'ai une question simple, très basique: comment savoir à quelles mesures correspondent les tailles? J'ai cherché sur le site sans trouver... Merci du petit coup de main!

13.01.2024 - 17:36

DROPS Design answered:

Bonjour Barbara, pour trouver votre taille, mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma pour trouver la taille correspondante. Retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!

15.01.2024 - 09:16

country flag Doris wrote:

Ich möchte gerne zusätzlich die "Glitter" als Beilauffaden für einen festlichen Pullover nehmen. Geht das und sieht es gut aus? Wie läßt es sich stricken? Gibt es ihrerseits Kombinationsvorschläge hinsichtlich der Farben?

17.12.2023 - 12:41

DROPS Design answered:

Liebe Doris, ja sicher, die Maschenprobe wird mit Glitter nicht ändern, auch wenn Sie 2 Fäden Glitter dazu stricken; Ihr DROPS Händler wird Ihnen damit gerne helfen, die besten passenden Farben (auch per Telefon oder per E-Mail) empfehlen. Viel Spaß beim stricken!

18.12.2023 - 08:36

country flag Catherine Boureau wrote:

Bonjour, Je souhaiterais avoir les explications en français, svp! Mercie! Catherine

01.10.2023 - 19:20

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Boureau, cliquez sur le menu déroulant sous la photo pour sélectionner "français" dans la liste. Bon tricot!

02.10.2023 - 11:54

country flag Gabriela wrote:

Hola, Al cerrar los puntos del cuellos me queda demasiado angosto, hay algún truco para que al cerrar los puntos no se angoste tanto? O solo me queda destejer y quedarme con más puntos? Saludos

24.09.2023 - 14:16

DROPS Design answered:

Hola Gabriela, puedes probar a cerrar con una aguja de medio número más, para que el borde de remate quede más elástico. Si toda la cenefa queda demasiada estrecha, tienes que deshacer y trabajar de nuevo, para tener más puntos al final. Ten en cuenta que este modelo tiene una cenefa bastante estrecha ya de por sí.

24.09.2023 - 23:19

country flag Camille wrote:

Bjr, je fais le XS. Au 3e rg de A1 je ne tricote pas la dernière m du 2e rg (m avt le marqueur), je tricote ens les 2 premières m du 3e rg et passe la m non tricotée par dessus la nouvelle m créée : c'est le motif du triangle puis je continue A1 et ainsi de suite 26 fois. À la fin du rg il reste 1m avt le marqueur que je tricote à l'end puis le 4e rg tout à l'end. Je commence le 5e rg juste après le marqueur (26 A1). Mais à la fin de ce 5e rg j'ai 157m et non plus 156 : pourquoi ?

15.04.2023 - 17:40

DROPS Design answered:

Bonjour Camille, à la fin du tour, vous devez terminer (après la dernière diminution) par 1 m end, 1 jeté, 1 m end, 1 jeté, 1 m end, ainsi votre marqueur se trouve juste avant la 1ère diminution du 1er motif au début du tour. Pensez à bien vérifier votre nombre de mailles par A.1 (vous devez toujours avoir 6 m pour chaque A.1). Bon tricot!

17.04.2023 - 09:04

country flag Inge wrote:

Ik brei maat S maar de mouwen vallen te kort uit. Vanaf waar kan ik het telpatroon A1 hernemen zodat het toch mooi uitkomt eens ik de steken van de mouw samen zet met die van het lijf?

21.02.2023 - 17:00

DROPS Design answered:

Dag Inge,

Je kunt steeds 1 herhaling in de hoogte er bij doen van A.4. In principe zou je dan goed uit moeten komen als je de mouwen en het lijf samenvoegt.

22.02.2023 - 13:02

country flag Lisa Chr wrote:

Hallo, Deze vraag is al enkele keren gesteld, maar ik kom er toch nog niet uit. Misschien dat een antwoord in het Nederlands mij kan verderhelpen. In het patroon staat: "Adjust so that star in A.3 is worked over star in A.1" Kunnen jullie dit misschien verder toelichten? Begin ik na A.1 gewoon met A.3 of moet ik eerst enkele steken breien voor ik aan het patroon begin? Alvast heel erg bedankt! Lisa

21.02.2023 - 16:11

DROPS Design answered:

Dag Lisa,

Het gaat erom dat je A.3 precies boven A.1 breit en dat de steken niet verschoven zijn, zodat het patroon mooi doorloopt. Dus de 12 steken van A.3 brei je boven 2 herhalingen van 6 steken van A.1

22.02.2023 - 13:05