Dragonfly Wings Jacket |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð síð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með gatamynstri, sjalkraga og v-hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 212-27 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar): Öll úrtaka er gerð í umferð frá réttu. Passið uppá að fækka ekki lykkjum mitt í gatamynstri, þ.e.a.s. ef það er gatamynstur sem er byrjað nákvæmlega þar sem úrtakan á að vera, fækkið fyrst lykkjum þegar gatamynstrið hefur verið prjónað til loka. Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í hlið, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚRTAKA-2 (á við um v-hálsmál): Öll úrtaka er gerð í umferð frá réttu. Hægra framstykki: Fækkið lykkjum í byrjun á umferð frá réttu: Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð slétt. Vinstra framstykki: Fækkið lykkjum í lok umferðar frá réttu: Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt saman, prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). HNAPPAGAT (neðan frá og upp): Öll affelling fyrir hnappagötum er gerð í umferð frá réttu. Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið = gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 5, 14, 23, 31 og 39 cm M: 5, 14, 23, 32 og 41 cm L: 5, 14, 23, 32 og 41 cm XL: 5, 13, 21, 29, 36 og 43 cm XXL: 5, 13, 21, 29, 36 og 43 cm XXXL: 5, 13, 21, 29, 37 og 45 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka. Lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli, þar er fellt af fyrir handveg og framstykkin og bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar fram og til baka. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 190-202-218-222-246-262 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: Prjónið 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur garðaprjón. Þegar stroffið mælist 5 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan), prjónið sléttar lykkjur og fækkið 13-11-13-11-13-11 lykkjur jafnt yfir þar til 6 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur garðaprjón yfir kanta að framan = 177-191-205-211-233-251 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Fellið af fyrir HNAPPAGAT á hægra kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð frá röngu með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón. Setjið 1 prjónamerki 47-51-54-56-61-66 lykkjur inn frá hvorri hlið, prjónamerkin merkja hliðar á stykki og það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum í hvorri hlið (= 83-89-97-99-111-119 lykkjur á bakstykki). Í næstu umferð frá réttu er mynstrið prjónað þannig: Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið (= kantur að framan), 0-0-0-3-0-2 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 5 lykkjur), prjónið A.2 (= 14 lykkjur) yfir 154-168-182-182-210-224 lykkjur (= 11-12-13-13-15-16 sinnum á breidd), A.3 (= 6 lykkjur), 0-0-0-3-0-2 lykkjur sléttprjón og 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur garðaprjón yfir kant að framan. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Lykkjum er fækkað í hvorri hlið, lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli og það eru felldar af lykkjur fyrir handveg þannig: Ef gatamynstrið gengur ekki jafnt upp á breiddina, prjónið þær lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni. FÆKKIÐ LYKKJUM Í HLIÐUM ÞANNIG: Þegar stykkið mælist 12 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 4½-4½-5-5-5½-5½ cm millibili alls 7 sinnum. FÆKKIÐ LYKKJUM FYRIR V-HÁLSMÁLI ÞANNIG: Þegar stykkið mælist 39-41-41-43-43-45 cm, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig: Fækkið um 1 lykkju innan við 6 kantlykkjur að framan – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 6-5-7-7-8-8 sinnum, síðan í annarri hverri umferð alls 8-11-8-9-8-9 sinnum (= alls 14-16-15-16-16-17 lykkjur færri). FÆKKIÐ LYKKJUM FYRIR HANDVEG ÞANNIG: Þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm, fellið af lykkjur fyrir handveg í næstu umferð frá réttu þannig: Fellið af 3-4-5-5-5-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki (= 6-8-10-10-10-12 lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið). Stykkin eru nú prjónuð til loka hvert fyrir sig (haldið áfram að fækka lykkjum fyrir v-hálsmáli á framstykki). Klippið frá. Látið lykkjur fyrir framstykki hvíla á prjóninum, á meðan prjónað er yfir lykkjur á bakstykki. BAKSTYKKI: = 63-67-73-75-87-93 lykkjurnar. Haldið áfram með gatamynstur eins og áður, en ysta lykkjan í hvorri hlið er prjónuð í garðaprjóni. Prjónið einungis gatamynstur sem gengur jafnt upp á breiddina, þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af miðju 25-27-27-27-29-29 lykkjur í næstu umferð frá réttu (= 19-20-23-24-29-32 lykkjur á hvorri öxl). Ef gatamynstur er byrjað er það prjónað til loka á hæðina, en ekki eru prjónaðar fleiri mynstureiningar á hæðina – lykkjurnar eru síðan prjónaðar í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Axlirnar eru nú prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 1 lykkju 2 sinnum = 17-18-21-22-27-30 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið hina öxlina á sama hátt. VINSTRA FRAMSTYKKI: Haldið áfram að fækka lykkjum fyrir v-hálsmáli á framstykki, eins og útskýrt er að ofan. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið gatamynstur sem e.t.v. eru byrjuð á hæðina til loka, en ekki prjóna fleiri mynstureiningar á hæðina – lykkjurnar eru síðan prjónaðar í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar öll úrtaka fyrir v-hálsmáli hefur verið gerð til loka, eru 23-24-27-28-33-36 lykkjur eftir í umferð. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af fyrstu 17-18-21-22-27-30 lykkjur í næstu umferð frá réttu = 6 lykkjur eftir fyrir sjalkraga. Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir 6 lykkjur þar til sjalkraginn mælist ca 6-7-7-7-9-9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, garðaprjón yfir garðaprjón og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið eins og vinstra framstykki þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm frá uppfitunarkanti. Í næstu umferð frá réttu er mynstrið prjónað yfir fyrstu 6 lykkjur eins og áður, fellið af þær 17-18-21-22-27-30 lykkjur sem eftir eru. Klippið frá. Haldið áfram með mynstur yfir 6 lykkjur fyrir sjalkraga í ca 6-7-7-7-9-9 cm, stillið af við vinstra framstykki. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, garðaprjón yfir garðaprjón og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. ERMI: Fitjið upp 62-66-66-66-70-70 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, 1 lykkja slétt * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar stroffið mælist 5 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 4-6-6-4-6-6 lykkjur jafnt yfir = 58-60-60-62-64-64 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, 0-1-1-2-3-3 lykkjur sléttprjón, A.2 alls 4 sinnum á breidd, 0-1-1-2-3-3 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkja garðaprjón. Endurtakið mynstur á hæðina. Þegar ermin mælist 16 cm, aukið út 0-0-1-1-1-1 lykkjur í hvorri hlið á stykki innan við 1 kantlykkju (= 0-0-2-2-2-2 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6 cm millibili alls 0-0-1-2-3-4 sinnum = 58-60-62-66-70-72 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 47-46-45-44-43-41 cm frá uppfitjunarkanti, setjið 1 prjónamerki innan við 1 kantlykkju í byrjun ánæstu umferð – prjónamerki merkir hvar botninn á handveg byrjar. Nú eru ekki prjónuð fleiri gatamynstur, þau sem eru e.t.v. byrjuð eru prjónuð til loka. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Fellið af þegar ermin mælist alls 49-49-48-47-46-45 cm – sjá AFFELLING! Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið sjalkragann saman mitt að aftan með lykkjuspori og saumið við hálsmál aftan í hnakka – saumurinn á að snúa inn að röngu. Saumið saman ermasauma, en skiljið eftir smá op 3-3-3-3-4-4 cm efst á ermi (þ.e.a.s. að prjónamerki á ermi). Saumið opið saman efst á ermi við botn á handveg og saumið síðan ermina við fram- og bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (28)
Aly Kiers wrote:
Als ik het eerste patroonrij wil breien, begin ik met 10 tricotsteken . \r\nDat betekent dus, dat ik het eind van de pen 3 steken over houdt. Klopt dit?\r\n\r\nElke patroonlijn heeft dus 21
17.02.2021 - 15:44DROPS Design answered:
Dag Aly,
Je breit eerst 6 voorbiessteken (2 ribbelsteek, 2 recht, 2 averecht), dan 0-0-0-3-0-2 steken in tricotsteek, dan A.1, daarna herhaal je A.2 steeds in de breedte (over het aantal steken zoals aangegeven in jouw maat). Tot slot brei je A.3 ,dan 0-0-0-3-0-2 steken in tricotsteek en weer 6 voorbiessteken.
21.02.2021 - 11:04Jenni Dorndorf wrote:
Hallo, zeigt das Diagramm nur die Hinrunde oder auch die Rückrunde? Wenn nur die Hinrunde, stricke ich die Maschen in der Rückrunde so wie sie erscheinen?
22.01.2021 - 05:12DROPS Design answered:
Liebe Frau Dorndorf, die Diagramme zeigen alle Reihen, die Hin- sowie die Rückreihen. Rückreihen lesen Sie links nach rechts. Hier lesen Sie mehr über Diagramme. Viel Spaß beim stricken!
22.01.2021 - 08:13Ann Jakobsson wrote:
Nu har jag stickat 12 cm och maskat av i sidorna. Det innebär ju att jag har färre maskor på stickan när jag ska sticka nästa rad hålmönstrar i diagrammet. Framsidan stämmer men sen kommer hålmönstrat närmare hålmönstrat under. Då kommer de ju inte att ligga mitt i mellan varandra? Jag ska minska flera gånger i sidan och då kommer väl hålmönstrat att ligga rakt över varandra tillslut?
05.10.2020 - 07:13DROPS Design answered:
Hej Ann, hulmønsteret skal være der det hele tiden har været, når du ikke har nok masker til et hulmønster i siden, så skal disse masker slätstickas. God fornøjelse!
07.10.2020 - 10:27Edith wrote:
I need help understanding this part of the pattern: Work 2 stitches in garter stitch, knit 2, purl 2 (= band), knit and decrease 13-11-13-11-13-11 Does this mean I decrease a stitch every 13 and 11 stitches?
23.09.2020 - 07:04DROPS Design answered:
Dear Edith, you work this row as follows: 2 sts in garter stitch, knit 2, purl 2, then knit the next stitches until 6 sts remain but decrease evenly 11 or 13 sts (see your size) over these stitches (see how to decrease evenly here), and work the last 6 sts = purl 2, knit 2, 2 sts in garter stitch. Happy knitting!
23.09.2020 - 08:23Sabrina wrote:
Thank you for your response, but I am still unclear. If I decrease one stitch on each side of the markers as instructed, it leaves me with 81 stitches in the middle and 46 stitches on each side. Neither of these numbers can fit any of the lace pattern equally?
21.09.2020 - 19:31DROPS Design answered:
Dear Sabrina, you have to line up the pattern worked on each piece (front piece/back piece/front piece) ie skip the decreased sts as if they were worked in pattern (but work them in stocking stitch if you cannot work them with the lace pattern = every yarn over should be compensated by a decrease). This means you will work lace pattern over the stitches as before, but on the side, pattern will not fit anymore, the number of sts between each repeat will be here different, most important is that it fits in height. Which size are you working on?
22.09.2020 - 11:22Inger J wrote:
Har 233 maskor på stickan till st. X XL hur får jag mönstret att stämma ?? Nu vill jag ha klara besked hur jag skall sticka så allt stämmer, har frågat två återförsäljare men ingen vill hjälpa, jag har kanske missat något som jag inte ser nu nät jag har försökt i flera veckor ? Hjälp snarast!
21.09.2020 - 10:27DROPS Design answered:
Hei Inger. Om du strikker str XXL skal du ha 233 masker når du bytter til rundpinne 5,5. Og når mønstret skal strikkes strikker du 2 masker i riller, 2 rett og 2 vrang (=6 masker), så strikker du A.5 (=5 masker), deretter strikkes det A.2 over 210 masker (1 rapport av A.2 = 14 masker), så A.3 (=6 masker) og tilslutt 2 vrang + 2 rett + 2 masker i riller = 233 masker. N<år du har strikke diagrammene 1 gang i høyden, fortsetter du på 1. rad i diagrammene igjen. God Fornøyelse!
21.09.2020 - 15:24Sabrina wrote:
Hi, I decreased the four stitches on the body at 12 cm per the pattern, but now I’m back to working the pace pattern a couple rows above and because of the decrease, the pattern seems to not be centered/there are not enough stitches for the pace pattern in any of the back section? I am able to get the lace pattern centered on the two sides beyond the two thread markers, but can’t adjust the lace pattern to fit any of the middle back section? Is there something I’ve got wrong?
18.09.2020 - 16:23DROPS Design answered:
Dear Sabrina, the 4 sts decreased at 12 cm are decreased on the sides, ie2 sts decreased on each side, then you continue working the lace patterns as before but it won't fit on the sides anymore - on the sides, work the sts in stocking stitchif there are not enough sts to work a whole lace pattern. Happy knitting!
21.09.2020 - 08:05Inger Jansson wrote:
Jag förstår det ni svarade Ann Jacobsen men på XXXL så får jag 12 maskor kantmadkor men då finns det 14 masker kvar? Ja
16.09.2020 - 18:08Ann Jakobsson wrote:
Jag är ganska van vid att sticka mönster men här fastnade jag nästan redan i början. I början av arbetet då jag börjat mönsterstickningen ska jag upprepa A.2 12 ggr. Avslutar med A.3 en gång. ”Fortsätt mönstret så” skriver ni. Men sen när jag stickat 7 varv slätstickning och ska sticka nästa hål, ska jag sticka A.2 då också 12 ggr? Känns som att inte det blir rätt? Eller jag ska upprepa hela raden A.1 A.2 A.3? Varje varv?
13.09.2020 - 08:33DROPS Design answered:
Hei Ann. Ja, du skal gjenta stolpen + A.1 + A.2 (12 ganger) + A.3 + stolpen hver rad . Når du har strikket alle 3 diagram i høyden (24 pinner), gjentar du alle diagrammene i høyden. Husk fellingene til v-hals og ermehull, se i oppskriften når. God Fornøyelse!
14.09.2020 - 13:32Janina wrote:
Ich verstehe nicht so ganz wie ich das Muster trotz der Abnahmen bei den Makierungsfäden umsetzen soll, so dass es gleichmässig aussieht
13.06.2020 - 00:21DROPS Design answered:
Liebe Janina, wenn Sie nicht genügend Maschen für ein komplettes Rapport auf beiden Seiten haben, dann stricken Sie lieber die Maschen glatt rechts. Das Muster stricken Sie wie zuvor weiter, dh wenn das Muster nicht mehr an den Seiten anpasst, soll es immer in der Höhe wie zuvor wiederholt sein. Viel Spaß beim stricken!
15.06.2020 - 08:18