Beach Rite |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Heklaður toppur úr DROPS Muskat. Stærð S-XL.
DROPS 211-17 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING: Aukið út lykkjur meðfram umferð með stuðlum með því að hekla 2 lykkjur í sömu lykkju. 2 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN: Heklið 2 stuðla saman í sömu lykkju þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni). Heklið 1 stuðul til viðbótar í sömu lykkju alveg eins (= 3 lykkjur á heklunálinni). Bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Toppurinn er heklaður neðan frá, heklað er upp og út í hvorri hlið eins og þríhyrningur. Síðan skiptist stykkið við miðju og heklað er áfram upp og út í hvorri hlið fyrir sig. Kantur er heklaður meðfram efri hlið á stykki og snúra er gerð í lokin. TOPPUR: Notið heklunál 3 með litnum ljós gallabuxnablár. Heklið eftir mynsturteikningu A.1. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka er heklað og aukið út alveg eins þar til stykkið mælist ca 14-16-18-20 cm mælt frá loftlykkjuhring í miðju á A.1 og upp. Nú á að hekla fram og til baka yfir aðra hlið á stykki, byrjið frá réttu í loftlykkjuboga á miðju á stykki (við miðju á mynsturteikningu A.1). Heklið stuða og aukið út í ystu hlið eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.2. Haldið áfram að hekla og auka út svona þar til stykkið mælist 11-11-12-13 cm mælt í heklstefnu frá þar sem stykkið skiptist, stykkið mælist alls ca 20-21-24-27 cm í heklstefnu frá loftlykkjuhring í byrun á A.1 og upp að síðustu umferð. Endurtakið alveg eins meðfram hinni hliðinni á A.1, en byrjið frá röngu. KANTUR: Heklið nú kant meðfram 4 efstu hliðum á stykki. Í fyrstu umferð sem er hekluð er mikilvægt að jafna lykkjufjöldann út (jafna úr frekar upp en niður) þannig að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 3 lykkjur í hverri og einni af 3 fyrstu hliðunum, meðfram síðustu hliðinni á lykkjufjöldinn að vera deilanlegur með 3 + 1 lykkju til að mynstrið verði alveg eins í báðum hliðum – sjá ÚTAUKNING í útskýringu að ofan. UMFERÐ 1: Notið litinn ljós grár, festið enda með 1 keðjulykkju yst í hlið á A.2 (punktur E á teikningu). Heklið fastalykkjur meðfram öllum 4 hliðum og passið uppá að lykkjuföldinn verði deilanlegur eins og útskýrt er að ofan meðfram hverri hlið. Klippið frá og festið enda. Snúið ekki stykkinu, næsta umferð er hekluð frá sömu hlið. UMFERÐ 2: Notið litinn ljós gallabuxnablár, festið þráðinn með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju, heklið 3 loftlykkjur og 1 stuðul í fyrstu lykkju, * heklið 2 loftlykkjur og hoppið yfir 2 fastalykkjur, í næstu lykkjur eru heklaðir 2 STUÐLAR SAMAN – sjá útskýringu að ofan *, heklið frá *-* yfir 2 fyrstu hliðarnar (síðasta lykkjan sem er hekluð meðfram 2. hlið er 2 stuðlar sem heklaðir eru saman). Heklið 1 loftlykkju (= punktur B á teikningu) og hoppið yfir 4 fastalykkjur. Í næstu lykkjur eru heklaðir 2 stuðlar saman, heklið síðan frá *-* meðfram 2 síðustu hliðunum (síðasta lykkjan sem er hekluð meðfram 4. hlið er 2 stuðlar sem eru heklaðir saman). Klippið frá og festið enda. Snúið ekki stykkinu, næsta umferð er hekluð frá sömu hlið. UMFERÐ 3: Notið litinn natur, festið þráðinn með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju, heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul sem heklaður var saman og heklið 2 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga fram að loftlykkjuboga við punkt A. Heklið 3 fastalykkjur um þennan loftlykkjuboga. Heklið eins og áður fram að loftlykkju við punkt B. Heklið 1 fastalykkju um þessa loftlykkju. Heklið eins og áður fram að punkt C. Heklið 3 fastalykkjur um þennan loftlykkjuboga. Heklið eins og áður út umferðina. Klippið frá og festið enda. BAND: Gerið 4 bönd með litnum ljós gallabuxnablár. Á teikningu er merkt hvar festa á böndin. Bönd við punkt D og E eru bönd sem eru hnýtt á baki. Bönd við punkt A og C eru bönd sem eru hnýtt um hnakka. Band við punkt A og C er gert þannig: Klippið 9 þræði sem eru ca 140-150-160-170 cm langir. Dragið þræðina í gegnum loftlykkjuboga við punkt A og leggið þá saman þannig að þeir liggi tvöfaldir = 18 þræðir. Skiptið þráðunum niður í 3 hluta með 6 þráðum í hverjum. Fléttið, en skiljið eftir ca 16-18 cm neðst niðri. Hnýtið þráð utan um þræðina þannig að fléttan haldist saman. Skiptið þráðunum aftur í 3 jafn marga hluta, ef óskað er eftir þá er hægt að þræða perlu uppá hvern og einn hlutann og gera e.t.v. hnút neðan við perluna til að festa hana. Gerið 3 fléttur og hnýtið þráð utan um hverja fléttu. Endurtakið alveg eins við punkt C. Band við punkt D og E er gert þannig: Klippið 3 þræði sem eru ca 120-130-140-150 cm langir. Dragið þræðina í gegnum stykkið við punkt D og leggið þá saman þannig að þeir liggi tvöfaldir = 6 þræðir. Skiptið þráðunum niður í 3 hluta með 2 þráðum í hverjum hluta. Fléttið, en skiljið eftir ca 16 cm neðst niðri. Hnýtið þráð utan um þræðina þannig að fléttan haldist saman. Ef óskað er eftir þá er hægt að þræða perlu uppá hvern og einn hlutann og gera e.t.v. hnút neðan við perluna til að festa hana. Endurtakið alveg eins við punkt E. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (32)
Odile Cazade wrote:
Je ne sais pas commencer le diagramme A1
24.05.2021 - 19:29DROPS Design answered:
Bonjour Mme Cazade, commencez le diagramme A.1 par le rond de mailles en l'air (= 1er symbole de la légende), puis crochetez le premier rang à partir de la flèche: de droite à gauche dans le diagramme et les rangs impairs de gauche à droite. Bon crochet!
25.05.2021 - 09:01Claudia wrote:
Buonasera, non capisco come si passa dal diagramma A. 1 al diagramma A.2. Devo tagliare il filo e ripartire dall'anello di catenelle centrale al vertice oppure c'è un altro modo? Se sì, quale?
23.04.2021 - 23:35DROPS Design answered:
Buonasera Claudia, può procedere come ha spiegato. Buon lavoro!
24.04.2021 - 22:14Noa wrote:
Hoe maakt je de strikbanden?
21.04.2021 - 15:25DROPS Design answered:
Dag Noa,
Dit doe je door vlechten te maken. Dit staat beschreven in de laatste twee paragrafen van de patroon tekst.
25.04.2021 - 13:55Yosha wrote:
Als je de rand gaat haken in de eerste toer, hoe maak je dan de vaste aan de bovenkant, in de zijkant van de stokjes?
19.04.2021 - 16:37DROPS Design answered:
Dag Yosha,
Ja, deze kun je inderdaad om de zijkant van de stokjes haken.
21.04.2021 - 12:32Angela Luksch wrote:
Can you PLEASE provide a VIDEO tutorial of the Beach Rite pattern?? DROPS 211/17 The diagram is confusing and the written instructions say "follow the diagram" which is not helpful at all. Either a stitch by stitch written instruction or a video would be VERY helpful! Thanks!
02.04.2021 - 01:20DROPS Design answered:
Dear Angela, all the videos relevant to make this piece available currently is linked below the pattern. Also here is a lesson on how to follow crochet diagrams. And do not forget, that if you are still stuck, you can always ask for help (either in person, or over the phone, in the stopr where you bought your DROPS yarn from. Happy Crafting!
02.04.2021 - 09:49Yosha wrote:
Dank je wel, maar ik snap A2 nog steeds niet. Je bent met drie losse, stokje in de lossering. Je maakt de eerste toer af keert en gaat terug, de tweede toer. Je eindigt met stokje in de bovenste steek van de drie lossen. Dan begin je weer opnieuw...? Met drie lossen. Maar er is nu geen lossering meer om een stokje in te maken... Dit als je van het telpatroon uitgaat en steeds opnieuw die eerste en tweede regel heen en terug volgt. Wil iemand me alsjeblieft nog helpen?
26.02.2021 - 19:55Yosha wrote:
Dank je wel voor het eerdere antwoord. Wordt zeer gewaardeerd :) De —> is de haakrichting. Je begint met drie lossen en dan stokje in de lossenring. Is dat de aanhechting? Sorry... ik wil het zo graag snappen haha
23.02.2021 - 14:55DROPS Design answered:
Dag Yosha,
De pijul is inderdaad de haakrichting. Je begint met 4 lossen (zwarte ovaal), dan 3 lossen, dan 3 stokjes in de lossenring. Aan het eind van de toer haak je een dubbel stokje en aan het begin van de toer zijn het 4 lossen ipv een dubbel stokje, vandaar eerst 4 lossen en dan nog 3 lossen.
26.02.2021 - 14:30Yosha wrote:
Ik begrijp telpatroon A2 niet. Hoe je daar begint, en dan als je eindigt bij de tweede rij (twee keer stokje in de steek), hoe je dan verder gaat. Weer opnieuw zoals eronder weergegeven en hoe dan, of drie keer lossen en gewoon weer verder met stokjes in de steek. Iemand die me kan helpen alsjeblieft?
23.02.2021 - 14:51DROPS Design answered:
Dag Yosha,
Bij A.2 herhaal je steeds de eerste en tweede rij in de hoogte. Dus als je terug hebt gehaakt en het laatste stokje in de 3e losse van de eerste toer hebt gehaakt, keer je het werk en haak je terug, beginnend met 3 lossen en eindigend met 2 stokjes in de 3 lossen, 3 lossen en een stokje om de lossenring.
26.02.2021 - 14:33Yosha wrote:
Waar staan de drie streepjes voor aan het begin van telpatroon A2?
23.02.2021 - 09:58DROPS Design answered:
Dag Yosha,
Dit zijn 3 lossen.
23.02.2021 - 11:31Despina Vegas wrote:
Is it possible to have a video to start us off, i am having troubles understanding the diagram
26.08.2020 - 13:06DROPS Design answered:
Dear Mrs Vegas, read more about diagrams here, ie start working A.1 from RS at the arrow = row 1, towards the left, then turn and read row 2 from the right towards the left, and continue like this - see diagram key for each symbol. Happy crocheting!
26.08.2020 - 16:20