DROPS Melody uni colour 71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide |
1364.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Melody uni colour 71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide 1364.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu | |
= setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni | |
= setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur af kaðlaprjóni | |
= setjið 6 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 6 lykkjur slétt, prjónið 6 lykkjur slétt af kaðlaprjóni | |
= setjið 6 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 6 lykkjur slétt, prjónið 6 lykkjur af kaðlaprjóni |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Swirling Smoke |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa í sléttprjóni með köðlum úr DROPS Melody. Stærð S - XXXL.
DROPS 215-20 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna í stykkjum og saumuð saman í lokin. Lykkjur fyrir ermar eru prjónaðar upp í handvegi á fram- og bakstykki og ermar eru prjónaðar í hring, ofan frá og niður. Að lokum er prjónaður upp kantur í hálsmáli, sem er brotinn saman tvöfaldur og saumaður niður. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 66-74-74-82-90-98 lykkjur á hringprjóna 6 með Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað þannig – frá réttu: 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt og 1 lykkja garðaprjón. Haldið áfram með stroff í 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 11-15-15-19-23-27 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 1-2-0-0-0-1 lykkjur jafnt yfir (= 10-13-15-19-23-26 lykkjur í sléttprjóni), A.1 yfir næstu 6 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkjur yfir þessar (A.1 = 10 lykkjur), 10 lykkjur í sléttprjóni, A.2 yfir næstu 10 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir (A.2 = 18 lykkjur), sléttprjón yfir næstu 10 lykkjur, A.3 yfir næstu 6 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkjur yfir þessar (A.3 = 10 lykkjur), sléttprjón yfir næstu 11-15-15-19-23-27 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 1-2-0-0-0-1 lykkjur jafnt yfir (= 10-13-15-19-23-26 lykkjur sléttprjón) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 80-86-90-98-106-112 lykkjur í umferð. Haldið áfram með þetta mynstur. ATH! Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við hvern kaðal, þá er auðveldara að fá kaðalinn á réttan stað. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm, fellið af 2 lykkjur í hvorri hlið (merkir handveg) = 76-82-86-94-102-108 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.2. Síðan eru felldar af miðju 22-22-22-24-24-24 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan lykkjum í byrjun á næstu umferð við háls þannig: 1 lykkja 1 sinni = 22-25-27-30-34-37 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm, fækkið um 4 lykkjur yfir A.1/A.3 = 18-21-23-26-30-33 lykkjur eftir á öxl. Prjónið 1 umferð, fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, munið eftir að fella af fyrir handvegi = 76-82-86-94-102-108 lykkjur. Fækkið um 8 lykkjur yfir lykkjur í A.2. Setjið síðan miðju 16-16-16-18-18-18 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan lykkjum í byrjun á næstu umferð við háls þannig: 2 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 2 sinnum = 22-25-27-30-34-37 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm, fækkið um 4 lykkjur yfir A.1/A.3 = 18-21-23-26-30-33 lykkjur eftir á öxl. Prjónið 1 umferð, fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma og saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju upp að handvegi. VINSTRI ERMI: Prjónið upp lykkjur meðfram handveg efst á peysu og ermin er prjónuð í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Byrjið þar sem felldar voru af 2 lykkjur fyrir handveg á vinstra framstykki og prjónið upp 46-50-52-54-58-60 lykkjur frá réttu með Melody á hringprjóna 7. Prjónið upp lykkjur meðfram handvegi á framstykki og niður meðfram handvegi á bakstykki þar sem felldar voru af 2 lykkjur fyrir handvegi. Prjónið sléttprjón hringinn. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Þegar ermin mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum með 6-5½-5½-5-4½-4 cm millibili alls 6-7-7-7-8-8 sinnum = 34-36-38-40-42-44 lykkjur. Þegar stykkið mælist 44-43-42-40-38-37 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Aukið út 2-4-2-4-2-4 lykkjur jafnt yfir = 36-40-40-44-44-48 lykkjur og prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Fellið af þegar stroffið mælist 6 cm, ermin mælist nú 50-49-48-46-44-43 cm. HÆGRI ERMI: Prjónið á sama hátt og vinstri ermi, en byrjið á bakstykki. Prjónið upp lykkjur meðfram handveg á bakstykki og niður meðfram handveg á framstykki að þeim stað sem fækkað var um 2 lykkjur fyrir handveg. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 52 til 64 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði) á hringprjón 6. Passið uppá að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 4. Prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn verði teygjanlegur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (15)
Irma Manelius wrote:
Miksi ohjeessa 215-20 kädentien korkeus on eri etu-ja takakappaleessa? Onko virhe vai kuinka tämä toimii?
14.03.2023 - 09:32DROPS Design answered:
Kädentien korkeus on sama etu- ja takakappaleessa. Eli kädentien silmukat päätetään, kun työn pituus on 40-41-42-43-44-45 cm.
20.03.2023 - 16:53Nicola Warnants wrote:
I am confused by the instructions for the back piece from where it starts to decrease for the neck - "cast off middle 22 stitches for the neck 'and' each shoulder is finished separately"...onwards to end. Please can you write out again for me so it's clearer English, and explains how you get to 22 stitches. Thanks
26.05.2022 - 09:09DROPS Design answered:
Dear Nicola, you can place a marker between the middle stitches in the back and, from there, count 11 stitches outwards. This way, you will cast off the middle 22 stitches. Then, you will have 23 stitches remaining on each side, for each shoulder. Now you start working each shoulder separately (only work on the 23 stitches on one side first, repeat later on the other side). In the next row from the neck, decrease 1 stitch, obtaining 22 stitches for the shoulder. Happy knitting!
26.05.2022 - 23:07Thea wrote:
Hei, strikker denne nydelige genseren, men stusser på at lengde opp til ermehull er forskjellig for forstykke og bakstykke. Eksempel str S: bakstykke 40cm og forstykke 52cm. Skal det være slik? Og eventuelt hvorfor?
09.04.2022 - 08:16DROPS Design answered:
Hei Thea. Du skal strikke forstykket lik bakstykket (altså felle av til ermhull når arbeidet måler 40-41-42-43-44-45 cm), MEN for og bakstykket strikkes bare likt til arbeidet måler 52-54-56-58-60-62 cm. For da skal det felles 8 masker jevnt fordelt over maskene i A.2 (på forstykket). Deretter settes de midterste 16-16-16-18-18-18 maskene på en tråd til hals, og hver skulder strikkes ferdig for seg. mvh DROPS Design
19.04.2022 - 08:17Bärbel wrote:
Förstår inte när ökningen på första a1 ska göras. Över 6 maskor. Ska ju sätta 5 maskor bakom arbetet på flätsticka, sedan bara en kvar av 6…
09.11.2021 - 14:26Daniella wrote:
Hallo liebes DROPS-Team, können Sie mir kurz schreiben, welche Stärke die Zopfnadel haben sollte? Vielen Dank!
12.09.2021 - 12:23DROPS Design answered:
Liebe Daniella, die Zopfnadel haben wir als 2 Größe, iher können Sie die größere benutzen. Viel Spaß beim stricken!
13.09.2021 - 08:58Elena wrote:
Buonasera nel fare i vari diagrammi A1-A2-A3, non ho capito, su quali maglie eseguire gli aumenti come descritto. Ad esempio A1 devo intrecciare 5 maglie (trasferendo 5 maglie dietro il lavoro ecc e c’è scritto di aumentare 4 maglie su queste maglie … La mia domanda è : gli aumenti ovvero le 4 maglie da aumentare in questo caso devono essere fatti ad esempio sulle maglie che metto dietro il lavoro (5 maglie e anche sulle altre 5 maglie) o come? Grazie
22.05.2021 - 21:16DROPS Design answered:
Buonasera Elena, questi 4 aumenti vanno fatti sul primo ferro di A.1 e A.3 che sono lavorati tutti a diritto, per portare le maglie da 6 a 10. Buon lavoro!
22.05.2021 - 22:51Krista Buckley wrote:
Is there any reason why this pattern should not be knit in the round?
05.03.2021 - 19:31DROPS Design answered:
Dear Krista, some simply prefer patterns that are knitted in the traditional way, in pieces. There are advantages, like seams ad stability to such a soft and fluffy sweater as this. However, if you want, you can try to knit it, on the round, until the armhole, then separate the stitches, cast off 12 stitches for the armhole, and from there you have to finish the piece back and forth anyway. Happy Knitting!
07.03.2021 - 21:37Anki wrote:
Har stickat denna tröja och blev hur fin som helst. Viktigt dock att läsa beskrivningen noga. Gärna rad för rad när det gäller ökningarna för fätorna. Ser krångligare ut än vad det är. Missade det själv och fick repa upp. Jag stickade bålen på rundsticka och det funkade finemang, räknade bort kantmaskan. Happy knitting
27.11.2020 - 22:44Inger Johanne wrote:
Er det noen som har strikket denne på rundpinne i stedet for fram og tilbake ?
09.11.2020 - 19:32DROPS Design answered:
Hej Inger, Ja det kan der ikke ske noget ved... men vil du have svar fra vores strikkeentusiaster, så prøv at skrive dit spørgsmål i DROPS workshop på Facebook, så er jeg sikker på at du vil få svar :)
10.11.2020 - 09:17Katharina wrote:
Liebes Drops-Team, Ich bin beim Halsausschnitt des Vorderteils und verstehe nicht, wie ich für die Schultern abketten soll. In der Beschreibung steht: Jede Schulter einzeln weiterstricken, dabei am Anfang der nächsten Reihe, die am Halsrand beginnt, wie folgt abketten: 2 Maschen 1 x, 1 Masche 2x —> wie kette ich denn eine Masche zweimal ab? Sie ist doch schon beim ersten Mal abketten „fertig“? Vielen Dank und viele Grüße Katharina
02.10.2020 - 18:26Katharina answered:
Sorry! Meine Mutter konnte mir den entsprechenden Hinweis geben, das abketten passiert in unterschiedlichen Reihen! Problem gelöst und danke für diesen wunderhübschen Pulli ❤️
02.10.2020 - 18:38