Sunsets Glow Jumper |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, garðaprjóni og röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 217-26 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 9,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 9. og 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR: Í þessari peysu er garðaprjón prjónað í hring á berustykki og fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan og í uppskrift. Ef óskað er eftir að prjóna garðaprjón fram og til baka, er hægt að prjóna berustykki (á eftir kanti í hálsmáli) og fram- og bakstykki (fram að stroffi neðst á fram- og bakstykki) fram og til baka á hringprjóna með sléttum lykkjum í hverri umferð, en fitjið e.t.v. upp kantlykkjur fyrir saum. Passið einnig uppá að útaukning fyrir laskalínu sé alltaf gerð frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. RENDUR Á BERUSTYKKI OG FRAM- OG BAKSTYKKI (prjónað í garðaprjóni): 6-7-7-7-8-8 cm með 1 þræði öskugrár Kid-Silk og 1 þræði dökk blush Alpaca. 2-2-2-2-2-2 cm með 1 þræði grár Kid-Silk og 1 þræði dökk blush Alpaca. 9-10-10-10-11-11 cm með 1 þræði beige Kid-Silk og 1 þræði dökk blush Alpaca. 2-2-2-2-2-2 cm með 1 þræði beige Kid-Silk og 1 þræði blush Alpaca. 6-6-6-7-7-7 cm með 1 þræði ryð Kid-Silk og 1 þræði blush Alpaca. 6-6-6-7-7-7 cm með 1 þræði ryð Kid-Silk og 1 þræði nougat Alpaca. 6-6-6-7-7-7 cm með 1 þræði grár Kid-Silk og 1 þræði nougat Alpaca. 6-6-6-7-7-7 cm með 1 þræði beige Kid-Silk og 1 þræði lavender Alpaca. 6-6-6-7-7-7 cm með 1 þræði grár Kid-Silk og 1 þræði lavender Alpaca. Síðan er prjónað með 1 þræði öskugrár Kid-Silk og 1 þræði lavdender Alpaca til loka. RENDUR Á ERMI (prjónað í sléttprjóni): 6-6-5-3-3-1 cm með 1 þræði ryð Kid-Silk og 1 þræði blush Alpaca (þessi rönd á að mælast 7 cm í öllum stærðum, meðtaldir þeir cm sem prjónaðir voru á berustykki á undan skiptingu fyrir fram- og bakstykki og ermar). 7-7-7-7-7-7 cm með 1 þræði ryð Kid-Silk og 1 þræði nougat Alpaca. 7-7-7-7-7-7 cm með 1 þræði grár Kid-Silk og 1 þræði nougat Alpaca. 7-7-7-7-7-7 cm með 1 þræði beige Kid-Silk og 1 þræði lavender Alpaca. 7-7-7-7-7-7 cm með 1 þræði grár Kid-Silk og 1 þræði lavender Alpaca. Prjónið síðan með 1 þræði öskugrár Kid-Silk og 1 þræði lavdender Alpaca til loka. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju í lykkjuna á undan A.1 og 1 lykkju í lykkjuna á eftir A.1 – í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í útaukningsumferð). Prjónamerkið situr mitt í A.1. Aukið út um 1 lykkju með því að prjóna 1 lykkju slétt framan og aftan í sömu lykkju. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður – sjá LEIÐBEININGAR. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-80-84-88-92-96 lykkjur á stutta hringprjóna 4 með 2 þráðum í litnum öskugrár Kid-Silk og 1 þræði í litnum dökk blush Alpaca (= 3 þræðir). Takið frá annan þráðinn með Kid-Silk. Afgangur af stykkinu er prjónaður með 1 þræði í hvorri tegund, en fitjað er upp með auka þræði til að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði stífur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 9 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 8 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚTAUKNING = 84-88-92-96-100-104 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið). Teljið 30-31-32-33-34-35 lykkjur, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju (= miðja að framan). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Lesið allt berustykki áður en byrjað er að prjóna! Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 4 lykkjur (þessar lykkjur tilheyra nú bakstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 10 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 32-34-36-38-40-42 (= framstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 10 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 28-30-32-34-36-38 lykkjur eftir á bakstykki á eftir síðasta prjónamerki. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan eins og áður, þ.e.a.s. 4 lykkjur á undan 1. Prjónamerki og prjónið GARÐAPRJÓN og RENDUR Á BERUSTYKKI OG FRAM- OG BAKSTYKKI - sjá útskýringu að ofan. Að aukið er prjónað A.1 í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (prjónamerkið situr mitt í A.1). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í fyrstu umferð (þ.e.a.s. í sléttri umferð), er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 10-12-12-12-12-12 sinnum á hæðina. Eftir síðustu útaukningu, eru 244-264-284-312-332-360 lykkjur í umferð. Haldið áfram í garðaprjóni, rendur og A.1 (án útaukninga) þar til stykkið mælist 20-22-23-25-27-29 cm frá prjónamerki við hálsmál. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið að 1-1-1-1-2-3 lykkjum framhjá fyrsta prjónamerki (= þessar lykkjur tilheyra bakstykki), setjið næstu 48-52-56-62-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 74-80-86-94-102-112 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-62-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir 73-79-85-93-100-109 lykkjur sem eftir eru á bakstykki. Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjóna hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 160-172-188-204-224-244 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki aðra hlið á fram- og bakstykki, mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram hringinn í garðaprjóni og röndum þar til stykkið mælist 33-33-34-34-34-34 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 24-28-28-32-36-36 lykkjur jafnt yfir = 184-200-216-236-260-280 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-52-56-62-64-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-70-74-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerkið, prjónið sléttprjón og RENDUR Á ERMI – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 0-3-3-3-3-3 cm millibili alls 1-2-3-4-5-5 sinnum á hæðina = 52-54-58-62-64-68 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-36-36-34-32-31 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 16-18-18-22-20-24 lykkjur jafnt yfir = 36-36-40-40-44-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 43-42-42-40-38-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið uppá kant í hálsmáli tvöfalt að röngu og saumið niður með smáu, fínu spori. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (11)
Véronique wrote:
Faded effect is so nice...can you suggest more variation ? Even knitting only a band to show the range of colour .
10.06.2020 - 08:37