DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Autumn Days Jumper

Prjónuð peysa úr DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, mynsturáferð á berustykki og garðaprjóni á fram- og bakstykki og ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 217-22
DROPS Design: Mynstur ks-169
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-150-150-175-200-200 g litur 33, ryð

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
23 lykkjur á breidd og 45 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón og garðaprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2, A.3 og A.4).

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 300 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 18) = 16,7.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 16. og 17. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, prjónið þá í þessu dæmi til skiptis ca 15. og 16. og 16. og 17. hverja lykkju slétt saman.

ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu í stroffi í berustykki):
Aukið út um 1 lykkju í byrjun á hverri brugðinni einingu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur brugðið.
ATH: Í 3 stærstu stærðum á að auka út 3 sinnum í brugðnu einingunum. Það er fallegast ef fyrst er aukið út í byrjun á hverri brugðinni einingu, í næsta skipti í lokin á hverri brugðinni einingu og í lokin í byrjun á hverri brugðinni einingu.

ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu í klukkuprjónslykkjum):
Aukið út um 4 lykkjur í 1 klukkuprjónslykkju með því að prjóna 5 lykkjur í sömu lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna undir næstu lykkju, en bíðið með að lyfta lykkjum af vinstri prjóni, * sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju á vinstri prjóni *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, lyftið síðan lykkjum af vinstri prjóni = 5 lykkjur (þ.e.a.s. 4 lykkjur fleiri).

ÚTAUKNING-3 (á við um í hliðum á fram- og bakstykki):
Aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 ystu lykkjurnar í hvorri hlið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í garðaprjóni.

ÚRTAKA (á við um í hvorri hlið á ermi):
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan kantlykkju og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Stykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður til þar sem stroffið byrjar. Stroffið er prjónað í hring til loka. Að lokum eru ermasaumar saumaðir, hliðarsaumar og litla opið undir hvorri ermi.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 100-104-112-116-120-124 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með 2 þráðum Kid-Silk. Takið frá annan þráðinn – afgangur af stykki er prjónaður með 1 þræði Kid-Silk.
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3 og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm.
Í næstu umferð er aukið út um 50-52-56-58-60-62 lykkjur jafnt yfir þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 150-156-168-174-180-186 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.
Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.

BERUSTYKKI:
Prjónið 2 umferðir sléttprjón (uppslátturinn frá útaukningu er prjónaður snúinn slétt í fyrstu umferð). Prjónið síðan A.1 hringinn (= 50-52-56-58-60-62 mynstureiningar með 3 lykkjum ) – JAFNFRAMT er aukið út í brugðnu einingunum eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

S, M og L:
Þegar A.1 mælist 7-8-8 cm, aukið út um 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli hvorra af 2 lykkjum brugðið = 50-52-56 lykkjur fleiri = 200-208-224 lykkjur í umferð. Haldið áfram undir ALLAR STÆRÐIR.

XL, XXL og XXXL:
Þegar A.1 mælist 3-3-3 cm, aukið út allar 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING-1 = 58-60-62 lykkjur fleiri = 232-240-248 lykkjur í umferð.
Þegar A.1 mælist 6-6-7 cm, aukið allar 3 lykkjur brugðið til 4 lykkjur brugðið = 58-60-62 lykkjur fleiri = 290-300-310 lykkjur í umferð.
Þegar A.1 mælist 9-9-10 cm, aukið allar 4 lykkjur brugðið til 5 lykkjur brugðið = 58-60-62 lykkjur fleiri = 348-360-372 lykkjur í umferð. Haldið áfram undir ALLAR STÆRÐIR.

ALLAR STÆRÐIR:
= 200-208-224-348-360-372 lykkjur í umferð.
Prjónið 2 umferðir sléttprjón (uppslátturinn frá útaukningu er prjónaður snúinn slétt í fyrstu umferð). Prjónið síðan A.2 hringinn (= 50-52-56-58-60-62 mynstureiningar með 4-4-4-6-6-6 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur, en þegar prjónaðar hafa verið 6 umferðir með A.2, á að auka út í klukkuprjónslykkjum eins og útskýrt er að neðan – sjá ÚTAUKNING-2:

S, M og L:
* Aukið út um 4 lykkjur í fyrstu/næstu klukkuprjónslykkju, prjónið 3 lykkjur brugðið, prjónið 1 klukkuprjónslykkju eins og áður án útaukningar, prjónið 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (þ.e.a.s. aukið út í annarri hverri klukkuprjónslykkju umferðina hringinn) = 300-312-336 lykkjur í umferð. Haldið áfram undir ALLAR STÆRÐIR.

XL:
Byrjið útaukningu í 3. klukkuprjónslykkju í byrjun á umferð og aukið síðan út 4 lykkjur í 4. hverja klukkuprjónslykkju þar til 3 klukkuprjónslykkjur eru eftir í umferð, aukið út í lokin 4 lykkjur í síðustu af þessum klukkuprjónslykkjum (þ.e.a.s. auknar eru út alls 15 klukkuprjónslykkjur í umferð) = 408 lykkjur í umferð. Haldið áfram undir ALLAR STÆRÐIR.

XXL:
Byrjið útaukningu í 3. klukkuprjónslykkju frá byrjun á umferð og aukið síðan út 4 lykkjur í 3. hverja klukkuprjónslykkju umferðina hringinn (þ.e.a.s. auknar eru út alls 20 klukkuprjónslykkjur í umferð) = 440 lykkjur í umferð. Haldið áfram undir ALLAR STÆRÐIR.

XXXL:
Byrjið útaukningu í 3. klukkuprjónslykkju frá byrjun á umferð og aukið síðan út 4 lykkjur í 3. hverja klukkuprjónslykkju umferðina hringinn þar til 2 klukkuprjónslykkjur eru eftir í umferð, aukið að lokum út 4 lykkjur í síðustu af þessum klukkuprjónslykkjum (þ.e.a.s. auknar eru út alls 21 klukkuprjónslykkjur í umferð) = 456 lykkjur í umferð. Haldið áfram undir ALLAR STÆRÐIR.

ALLAR STÆRÐIR:
= 300-312-336-408-440-456 lykkjur í umferð.
Haldið áfram alveg eins og áður, en þar sem aukið var út í klukkuprjónslykkjum eru 5 lykkjurnar prjónaðar þannig: 1 klukkuprjónslykkja, 3 lykkjur brugðið, 1 klukkuprjónslykkja (sjá A.2B).
Þegar berustykkið mælist 15-17-17-19-19-21 cm frá prjónamerki mitt að framan, prjónið A.3 hringinn, en í XL, XXL og XXXL prjónið A.4 yfir A.2B svo að mynstrið gangi fallega upp. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.3 mælist 3-3-3-5-5-5 cm.
Berustykkið mælist nú ca 18-20-20-24-24-26 cm frá prjónamerki við hálsmál.
Prjónið 2 umferðir sléttprjón þar sem aukið er út um 18-34-38-6-6-26 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 318-346-374-414-446-482 lykkjur.
Prjónið síðan GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan.
Þegar berustykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki við hálsmál, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, en stillið af að næsta umferð sé umferð sem prjónuð er brugðið. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 46-51-54-60-66-73 lykkjur brugðið (= ½ bakstykki), setjið næstu 66-70-78-86-90-94 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 93-103-109-121-133-147 lykkjur brugðið (= framstykki), setjið næstu 66-70-78-86-90-94 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 47-52-55-61-67-74 lykkjur sem eftir eru brugðið (= ½ bakstykki). Klippið frá. Framstykki, bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAMSTYKKI:
Byrjið frá réttu, mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp í annarri hlið á stykki, prjónið sléttar lykkjur yfir þessar 4-4-5-5-6-6 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir 93-103-109-121-133-147 lykkjur frá framstykki og prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 4-4-5-5-6-6 lykkjur (þ.e.a.s. helmingur af lykkjum sem fitjaðar voru upp undir hinni erminni) = 101-111-119-131-145-159 lykkjur í umferð. Aðrar lykkjur (bakstykki), hvíla nú á prjóni eða eru settar á þráð.
Haldið áfram fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-3. Aukið svona út með 6 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 109-119-127-139-153-167 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 28 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú hvíla lykkjurnar á prjóni eða settar á þráð á meðan bakstykkið er prjónað.

BAKSTYKKI:
Byrjið frá réttu, mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp í annarri hlið á stykki, prjónið sléttar lykkjur yfir þessar 4-4-5-5-6-6 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir 93-103-109-121-133-147 lykkjur frá bakstykki og prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 4-4-5-5-6-6 lykkjur (þ.e.a.s. helmingur af lykkjum sem fitjaðar voru upp undir hinni erminni) = 101-111-119-131-145-159 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan bakstykki alveg eins og framstykki. Stillið lengdina eftir framstykki. Nú er prjónað stroff hringinn yfir allar lykkjur eins og útskýrt er að neðan.

STROFF:
Setjið lykkjur frá framstykki og bakstykki á sama hringprjón 3,5 = 218-238-254-278-306-334 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 52-59-64-70-75-83 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 270-297-318-348-381-417 lykkjur. ATH: Það er aukið út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi stykkið saman.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Fitjið upp 4-4-5-5-6-6 lykkjur á hringprjón 3,5 með Kid-Silk, prjónið sléttar lykkjur yfir 66-70-78-86-90-94 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki og fitjið upp 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur í lok umferðar = 74-78-88-96-102-106 lykkjur í umferð.
Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur.
JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-1½-1½-1-1 cm millibili alls 7-8-12-15-16-17 sinnum í hvorri hlið = 60-62-64-66-70-72 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-35-34-32-31-29 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. ATH: Það er styttra máli í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis.
Afgangur af ermi (stroff) er prjónaður í hring á sokkaprjóna. Skiptið öllum lykkjum niður á sokkaprjóna 3. Prjónið 2 umferðir sléttprjón þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 60-63-63-66-69-72 lykkjur í fyrstu umferð.
Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING!
Ermin mælist ca 47-45-44-42-41-39 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í mitt undir – saumið kant í kant í ystu lykkjubogana, þannig að saumurinn verði flatur. Saumið hliðarsauma frá ermi og niður þar sem stroffið byrjar alveg eins. Saumið saman op undir ermum (þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp).

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna undir næstu lykkju (= klukkuprjónslykkja)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Autumn Days

Adila, New Zealand

Autumn Days Jumper

Nele, Belgium

Autumn Days Jumper

Lena, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 217-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Valentina wrote:

In effetti, forse non serve con il legaccio ...

03.10.2023 - 11:55

country flag Valentina wrote:

Quando si passa dal lavoro in circolare a quello avanti e indietro per il davanti/dietro, è utile aggiungere una maglia di vivagno per lato? Grazie

02.10.2023 - 15:46

DROPS Design answered:

Buonasera Valentina, se non indicato, non è necessario aggiungere maglie di vivagno. Buon lavoro!

03.10.2023 - 22:19

country flag Andrea wrote:

Hej, Är det möjligt att sticka bålen på rundstickor istället för att dela upp det i fram- och bakstycke? Självklart skulle ökningarna från instruktionerna för framstyckes läggas in. Eller finns det någon speciell anledning till att bålen delas i fram- och bakstycke? Mvh, Andrea

14.12.2021 - 19:32

DROPS Design answered:

Hej Andrea. Ja jag kan inte se någon anledning till att du inte ska kunna göra det. Jag tror att vi har valt att sticka den fram och tillbaka för att slippa sticka några aviga varv när det stickas rätstickning. Mvh DROPS Design

15.12.2021 - 11:22

country flag Marie-lise Marcon wrote:

Bonjour, Puis-je tricoterle corps de ce modèle ainsi que les manches en rond? Faut-il apporter des modifications? Ou faut-il tout simplement reprendre toutes les mailles: devant , les mailles ajoutées sous les bras et le dos puis procéder en suivant les explications données ? Merci de votre réponse

23.11.2021 - 07:47

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Marcon, on tricote le dos et le devant séparément en allers et retours car on les tricote au point mousse et qu'il est souvent plus facile de tricoter le point mousse en rangs plutôt qu'en allers et retours, on a ainsi une couture de chaque côté (en rond, vous aurez une démarcation = début des tours, sur un des côtés). Bon tricot!

23.11.2021 - 08:32

country flag Mikke wrote:

Wouw!!

05.06.2020 - 16:20