DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5984.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 214-14
DROPS Design: Mynstur sk-114
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Hæð: Mælt meðfram miðju = ca 43 cm.
Breidd: Mælt meðfram efri hlið frá hlið að hlið = ca 176 cm.

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200 g litur 08, lavender

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 39 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.
16 lykkjur á breidd og 40 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5984.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 2 lykkjur í ystu sléttu lykkjuna í hvorri hlið þannig:
Prjónið 3 lykkjur í eina lykkju þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en ekki sleppa uppslættinum af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið uppsláttinn og lykkjuna aftur slétt saman, sleppið lykkjunni af vinstri prjóni (= 2 lykkjur fleiri).
Í næstu umferð eru útauknar lykkjur prjónaðar án uppsláttar, þar sem ekki er neinn uppsláttur þar.

Aukið út um 4 lykkjur í miðju lykkju þannig:
Prjónið 5 lykkjur í eina lykkju þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en ekki sleppa uppslættinum af vinstri prjóni. * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið uppsláttinn og lykkjuna aftur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum og sleppið síðan lykkjunni og uppslættinum af vinstri prjóni (= 4 lykkjur fleiri).
Í næstu umferð eru útauknar lykkjur prjónaðar án uppsláttar, þar sem ekki er neinn uppsláttur þar.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjur. Prjónaðar eru rendur í garðaprjóni og klukkuprjóni.

SJAL:
Fitjið upp 5 lykkjur á hringprjón 4,5 með Sky. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, 1 uppsláttur, 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur og prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 7 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt.
Prjónið 1 lykkju slétt, 1 uppsláttur, 2 lykkjur slétt, 1 uppsláttur, 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur, prjónið 2 lykkjur slétt, 1 uppsláttur og 1 lykkja slétt = 11 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu (= miðjulykkja).
Haldið áfram að auka út 4 lykkjur í annarri hverri umferð þannig (innan við 1 kantlykkju hvoru megin við miðjulykkju) þar til það eru alls 35 lykkjur í umferð – uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú þannig:

RÖND Í KLUKKUPRJÓNI:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju garðparjón.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju garðaprjón.
UMFERÐ 1: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 lykkju garðaprjón.
Endurtakið umferð 2 og 3 þar til prjónaðar hafa verið alls 16 umferðir í klukkuprjóni, JAFNFRAMT í 5. og 11. umferð er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið á sjali og 4 lykkjur mitt í sjali – sjá ÚTAUKNING (= 8 lykkjur fleiri í hverri umferð með útaukningu = 51 lykkjur. Þegar 16. umferð hefur verið prjónuð til loka, prjónið næstu umferð frá réttu eins og útskýrt er að neðan.

RÖND Í GARÐAPRJÓNI:
Prjónið frá réttu þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * prjónið 1 lykkju slétt í uppslátt sem tilheyrir sléttri lykkju, prjónið 1 lykkju slétt í slétta lykkju, prjónið 1 lykkju slétt í brugðna lykkju *, prjónið frá *-* alls 10 sinnum (nú hafa verið auknar út 10 lykkjur yfir ystu 21 lykkjur).
Prjónið sléttar lykkjur þar til 21 lykkja eru eftir í lok umferðar, ** prjónið 1 lykkju slétt í brugðna lykkju, prjónið 1 lykkjur slétt í uppslátt sem tilheyrir sléttri lykkju og prjónið 1 lykkju slétt í slétta lykkju **, prjónið frá **-** alls 10 sinnum og prjónið 1 kantlykkju slétt (nú hafa verið auknar út 10 lykkjur í ystu 21 lykkjur) = 71 lykkja.
UMFERÐ 2 (= ranga): 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, 1 uppsláttur og 1 lykkja slétt = 2 lykkjur fleiri.
UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, 1 uppsláttur, prjónið sléttar lykkjur fram að miðjulykkju, 1 uppsláttur, 1 lykkja slétt (= miðjulykkja), 1 uppsláttur, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, 1 uppsláttur og 1 lykkja slétt = 4 lykkjur fleiri.
Endurtakið umferð 2 og 3 alls 12 sinnum = 143 lykkjur. Snúið og prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur (án þess að auka út). Mynstureining með garðaprjóni á nú að mælast ca 6 cm.

Endurtakið síðan til skiptis rönd í garðaprjóni og rönd í klukkuprjóni 2 sinnum til viðbótar (= alls 3 sinnum) þannig:
Prjónið 2. rönd í klukkuprjóni alveg eins og áður. Þegar 16. umferð í klukkuprjóni hefur verið prjónuð til loka eru 159 lykkjur í umferð.
Prjónið 2. rönd í garðaprjóni alveg eins og áður. Þegar 2. og 3. umferð hefur verið endurtekin 12 sinnum eru 251 lykkjur í umferð.
Prjónið 3. rönd í klukkuprjóni alveg eins og áður. Þegar 16. umferð í klukkuprjóni hefur verið prjónuð til loka eru 267 lykkjur í umferð.
Prjónið 3. rönd í garðaprjóni alveg eins og áður. Þegar 2. og 3. umferð hefur verið endurtekin 12 sinnum eru 359 lykkjur í umferð.
Prjónið 4. rönd í klukkuprjóni alveg eins og áður. Haldið svona áfram með útaukningu í 6. hverri umferð alls 5 sinnum = 399 lykkjur. Prjónið áfram í klukkuprjóni þar til þessi rönd mælist 8 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum. Til að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið uppsláttinn af eins og eigin lykkja. Klippið frá og festið enda. Sjalið mælist ca 43 cm mælt meðfram útaukningu mitt að framan.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Cristina wrote:

Ciao, prima riga, cosa vuol dire “Lavorare 1 ferro diritto dal rovescio del lavoro”. Grazie

16.07.2021 - 02:08

DROPS Design answered:

Buongiorno Cristina, deve semplicemente lavorare 1 ferro a diritto sul rovescio del lavoro. Buon lavoro!

20.07.2021 - 17:28

country flag Tiina Wires wrote:

En ymmärrä kumpaakaan lisäysvinkkiä, miten alussa voi neuloa 1. silmukan ja langankierron yhteen ja sama uudelleen, kuinka 3 lisättyä silmukkaa neulotaan seuraavalla kerroksella? Samoin keskisilmukan lisäysten neulominen ja seuraavan kerroksen kohdalla kuinka ne neulotaan? Onko missään videota näistä lisäyksistä , en löydä ainakaan. Kiitos

31.01.2021 - 14:39

DROPS Design answered:

Hei ohjeen tekstin alta löydät linkin videoon, jossa näytetään miten kyseiset lisäykset tehdään: "Patenttineuleen lisäys neulomalla samaan silmukkaan useita silmukoita"

12.03.2021 - 13:16

country flag Tina wrote:

Når jeg har taget ud på pind 5 i helpatenten - hvordan strikker jeg maskerne, når jeg strikker tilbage . Jeg kan ikke få det pænt ,

29.01.2021 - 12:48

DROPS Design answered:

Hej Tina, prøv at se hvordan vi gør ved udtagning i nr 2 video nederst i opskriften. God fornøjelse!

29.01.2021 - 13:00

country flag Morat Michelle wrote:

Il est dit de commencer par du point mousse alors que sur le modèle on voit des côtes anglaises ? Il est dit de faire 1augm chaque côté bords et 1augm ch. côté maille centrale; donc ne pas tenir cpte du paragr. AUGMENT. + haut qui dit augm. 2m ch. côté.... Merci par avance

17.01.2021 - 12:32

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Morat, le châle se tricote de haut en bas, en commençant par du point mousse, on augmente jusqu'à ce qu'il y ait 35 m, puis on va tricoter des rayures en côtes anglaises et au point mousse en augmentant comme indiqué pour chaque rayure. Bon tricot!

18.01.2021 - 09:50

country flag Monika wrote:

Utknęłam robiąc szal, mogę prosić o pomoc? Nie rozumiem, jak zrobić pierwszy rząd w pasku ściegiem francuskim, który jest za pierwszym paskiem ściegiem angielskim. Nie rozumiem, jak tam dodawać oczka i przerobić środek robótki. Mogę otrzymać jakiś filmik wspomagający na mój adres mailowy? Albo link, gdzie to jest pokazane?

04.01.2021 - 13:51

DROPS Design answered:

Witaj Moniko, jak dodać 4 o. na środku szala zobacz na filmie TUTAJ. Pozdrawiamy!

04.01.2021 - 19:26

country flag Morat wrote:

Ce modèle ne se tricote pas en rond mais à plat sur les aiguilles circulaires apparemment ? Je débute avec les aiguilles circulaires, je n'ai fait qu'une paire de chaussettes en magic loop. Merci de votre réponse.

13.12.2020 - 22:20

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Morat, on tricote effectivement ce modèle en rangs (= allers et retours) avec une aiguille circulaire pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles (on commence avec peu de mailles mais on va augmenter régulièrement). cette vidéo vous montre comment tricoter du jersey, en rangs, sur aiguille circulaire par exemple. Bon tricot!

14.12.2020 - 09:40

country flag Thérèse Bordessoules wrote:

Un trendy chale qui a l'air bien sympa à tricoter, et qui change des chales à trous-trous, très joli modèle

15.06.2020 - 23:24

country flag Rosy wrote:

Ce modèle de châle est très original, il me tarde de pouvoir le tricoter !

05.06.2020 - 09:12

country flag Deb wrote:

I LOVE this pattern and I certainly hope that I can purchase. Your patterns are amazing and I appreciate all of your designs and special tips!

04.06.2020 - 19:23