Icefall |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð aðsniðin peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með sjalkraga, garðaprjóni, köðlum og A-formi. Stærð S - XXXL.
DROPS 216-4 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. MÁL: Öll mál á breiddina eru gerð þegar stykkið liggur flatt, án þess að strekkja á því. Öll mál á lengdina eru gerð þegar stykkinu er haldið uppi, annars kemur stykkið til með að vera of langt þegar það er mátað. ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 lykkju í lykkju með því að prjóna 1 lykkju slétt bæði framan og aftan í sömu lykkju. ÚTAUKNING-2: Aukið út um 1 lykkju í lykkju með því að prjóna 1 lykkju brugðið bæði framan í og aftan í sömu lykkju. ÚTAUKNING-3 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 75 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 7 lykkjur) og deilið þeim 68 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 3,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftri ca 4. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING OG ÚRTAKA (á við um hálsmál, handveg, hvoru megin við A.1 og í útaukningu fyrir A-form): Öll útaukning/úrtaka er gerð frá réttu! AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU ÞANNIG: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í garðaprjóni. FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI ÞANNIG: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚRTAKA-1 (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðan 2 síðustu lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu ca 2-2-2-2-3-3 cm eftir útaukningu fyrir v-hálsmáli er lokið. Fellið síðan af fyrir 3 næstu hnappagötum með ca 8-8-8-9-9-9 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki með sjalkraga og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til ermakúpan hefur verið prjónuð til loka, síðan er ermin prjónuð í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna til loka. Öll stykkin eru síðan saumuð saman. SJALKRAGI Á VINSTRA FRAMSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 22-22-24-24-26-28 lykkjur á hringprjón 3 með Merino Extra Fine. Byrjið frá réttu og prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan – með stuttum umferðum þannig: * 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur, 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir fyrstu 16-16-18-18-20-22 lykkjur við miðju að framan *, prjónið frá *-* þar til sjalkraginn mælist ca 7-7-8-8-8-9 cm meðfram stystu hliðinni (sjalkraginn mælist ca 14-14-16-16-16-18 cm mælt meðfram lengstu hliðinni). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir allar 22-22-24-24-26-28 lykkjurnar, ekki snúa stykkinu, en fitjið upp 30 nýjar lykkjur í öllum stærðum í lok þessara umferðar fyrir öxl = 52-52-54-54-56-58 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu (yfir allar lykkjur). Prjónið síðan vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 52-52-54-54-56-58 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 32-32-34-34-36-38 lykkjur í garðaprjóni, aukið út um 1 lykkju í hverja af næstu 4 lykkjum – sjá ÚTAUKNING-1, prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, aukið út um 1 lykkju í hverja af næstu 4 lykkjum og prjónið þær 10 lykkjur sem eftir eru í garðaprjóni = 60-60-62-62-64-66 lykkjur í umferð. Prjónið til baka frá röngu með 10 lykkjum í garðaprjóni, 8 lykkjur brugðið, 2 lykkjur í garðaprjóni, 8 lykkjur brugðið, 9 lykkjur í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið og 22-22-24-24-26-28 lykkjur í garðaprjóni. Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 23-23-25-25-27-29 lykkjur í umferð (séð frá réttu) – látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar auka á út fyrir hálsmáli. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 22-22-24-24-26-28 lykkjur í garðaprjóni yfir sjalkraga, 1 lykkja sléttprjón, 9 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 18 lykkjur), og endið með 10 lykkjum í garðaprjóni að handvegi. Haldið svona áfram með mynstur. Lesið MÆLING og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið síðan út fyrir handvegi og hálsmáli eins og útskýrt er að neðan, kaðallinn á að færast til og sjalkraginn á að minnka inn að kanti að framan eins og útskýrt er að neðan. Það er mikilvægt að lesa allan kaflann sem tilheyrir vinstra framstykki áður en prjónað er áfram – útaukning og úrtaka er prjónað samtímis hvort sem byrjað er að fækka lykkjum fyrst fyrir handveg eða hálsmáli er lykkjum fækkað mismunandi eftir stærðum. HANDVEGUR (vinstra framstykki): Þegar stykkið mælist 19-17-16-17-14-12 cm frá öxl, aukið út um 1 lykkju fyrir handveg innan við ystu 3 lykkjur að handvegi (þ.e.a.s. innan við 3 síðustu lykkjur í lok umferðar frá réttu) – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 1-4-6-7-10-13 sinnum. Síðan eru fitjaðar upp 4-5-7-11-13-15 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok næstu umferðar frá réttu = alls 5-9-13-18-23-28 lykkjur fleiri fyrir handveg. Eftir útaukningu fyrir síðustu lykkjur í hlið fyrir handveg, mælist stykkið ca 20-21-22-23-24-25 cm frá öxl. Prjónið til baka frá röngu eins og áður. HÁLSMÁL (tilfærsla á kaðli á vinstra framstykki): JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14-14-15-16-16-16 cm frá öxl, byrjar útaukning fyrir hálsmáli, en til að kaðall í A.1 geti fylgt hálsmáli, verður einnig að fækka lykkjum á undan A.1 og auka út á eftir A.1 í sömu umferð og aukið er út fyrir hálsmáli. Þetta er gert þannig: Aukið út um 1 lykkju fyrir hálsmáli eftir prjónamerki (þ.e.a.s. á eftir lykkju í sléttprjóni sem situr strax eftir sjalkraga), fækkið um 1 lykkju til hægri á undan A.1 og aukið út um 1 lykkju á eftir A.1 – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Aukið út og fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 6-6-6-6-6-6 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 6-6-7-7-8-9 sinnum. Þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið, endar einnig tilfærslan á kaðli. Stykkið mælist nú ca 27-28-29-30-31-32 cm frá öxl og það hafa verið auknar út alls 12-12-13-13-14-15 lykkjur fyrir hálsmáli. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður. SJALKRAGI/KANTUR AÐ FRAMAN (vinstra framstykki): JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14-14-15-16-16-16 cm frá öxl, fækkið um 1 lykkju yst á sjalkraga með því að prjóna aðra og þriðju lykkju í byrjun á umferð frá réttu, slétt saman. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 6-6-6-6-6-6 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 6-6-7-7-8-9 sinnum (þessar 12-12-13-13-14-15 úrtökur eru gerðar í sömu umferð og aukið er út fyrir hálsmáli) og fækkið að lokum lykkjum í annarri hverri umferð alls 4-4-5-5-6-7 sinnum (þ.e.a.s. úrtaka heldur áfram 4-4-5-5-6-7 sinnum eftir að útaukningu fyrir hálsmáli er lokið). Eftir síðustu úrtöku fyrir kant að framan, eru 6 lykkjur í garðaprjóni við miðju að framan og stykkið mælist ca 29-30-31-32-34-35 cm frá öxl og niður. ÚRTAKA Í HLIÐ (vinstra framstykki): Þegar stykkið mælist 2 cm frá botni á handveg (þ.e.a.s. ca 22-23-24-25-26-27 cm frá öxl), fækkið um 1 lykkju til hægri í hlið með því að fækka lykkjum innan við ystu 3 lykkjur að hlið – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 3 sinnum. A-FORM (vinstra framstykki): Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm frá öxl, byrjar útaukning fyrir A-formi. Öll úrtaka og útaukning fyrir handveg, hálsmáli og kanti að framan á að vera lokið og það eru 58-62-67-72-78-84 lykkjur í umferð áður en útaukning byrjar. Aukið út í hliðum með því að auka út 1 lykkju innan við 3 ystu lykkjur í hlið, að auki er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur garðaprjón mitt í A.1 – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA (= 3 lykkjur fleiri). Haldið áfram með útaukningu hvoru megin við lykkjur í garðaprjóni mitt í A.1 með 3-3-3½-3½-3½-3½ cm millibili alls 10 sinnum á hæðina – þ.e.a.s. eining með garðaprjóni á milli kaðla verður stærri og stærri og alltaf er aukið út hvoru megin við einingu í garðaprjóni við kaðla. Að aukið heldur útaukning áfram í hlið með 6-6-7-7-7-7 cm millibili alls 5 sinnum á hæðina. Eftir síðustu útaukningu eru 83-87-92-97-103-109 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til framstykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl – munið eftir MÆLING! Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjur og fækkið JAFNFRAMT um 8 lykkjur með því að prjóna lykkjur í hverjum kaðli slétt saman 2 og 2 = 75-79-84-89-95-101 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 6 kantlykkurað framan í garðaprjóni við miðju að framan þar sem aukið er út um 18-18-19-22-22-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-3 = 93-97-103-111-117-125 lykkjur. ATH: Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna, dragið stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð og aukið út um 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Framstykkið mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl. SJALKRAGI Á HÆGRA FRAMSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 22-22-24-24-26-28 lykkjur á hringprjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið síðan garðaprjón fram og til baka með stuttum umferðum frá röngu þannig: * 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur, 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir fyrstu 16-16-18-18-20-22 lykkjur við miðju að framan *, prjónið frá *-* þar til sjalkraginn mælist ca 7-7-8-8-8-9 cm meðfram stystu hliðinni (sjalkraginn mælist ca 14-14-16-16-16-18 cm mælt meðfram lengstu hliðinni). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar 22-22-24-24-26-28 lykkjur, ekki snúa stykkinu, en fitjið upp 30 nýjar lykkjur í öllum stærðum í lok þessara umferðar fyrir öxl = 52-52-54-54-56-58 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu (yfir allar lykkjurnar). Prjónið síðan hægra framstykki eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 52-52-54-54-56-58 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 10 lykkjur í garðaprjóni, aukið út um 1 lykkju í hverja af næstu 4 lykkjum – sjá ÚTAUKNING-1, prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, aukið út um 1 lykkju í hverja af næstu 4 lykkjum og prjónið 32-32-34-34-36-38 lykkjur í garðaprjóni = 60-60-62-62-64-66 lykkjur í umferð. Prjónið til baka frá röngu með 22-22-24-24-26-28 lykkjum í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, 9 lykkjur í garðaprjóni, 8 lykkjur brugðið, 2 lykkjur í garðaprjóni, 8 lykkjur brugðið og 10 lykkjur í garðaprjóni. Setjið 1 prjónamerki á undan síðustu 23-23-25-25-27-29 lykkjum í umferð (séð frá réttu) – látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar auka á út fyrir hálsmáli. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 10 lykkjur í garðaprjóni að handvegi, A.1 (= 18 lykkjur), 9 lykkjur í garðaprjóni, 1 lykkja sléttprjón og 22-22-24-24-26-28 lykkjur í garðaprjóni yfir sjalkraga. Haldið svona áfram með mynstur – munið eftir MÆLING. Aukið síðan út fyrir handvegi og hálsmáli eins og útskýrt er að neðan, kaðallinn á að færast til og sjalkraginn á að minnka inn að kanti að framan eins og útskýrt er að neðan. Það er mikilvægt að lesa allan kaflann sem tilheyrir vinstra framstykki áður en prjónað er áfram – vegna þess að útaukning og úrtaka kemur til með að gerast samtímis og það er gert mismunandi eftir mismunandi stærðum ef þú byrjar á útaukningu fyrir handvegi eða hálsmáli. HANDVEGUR (hægra framstykki): Þegar stykkið mælist 19-17-16-17-14-12 cm frá öxl, aukið út um 1 lykkju fyrir handveg innan við ystu 3 lykkjur að handvegi (þ.e.a.s. innan við 3 fyrstu lykkjur í byrjun umferðar frá réttu) – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 1-4-6-7-10-13 sinnum. Síðan eru fitjaðar upp 4-5-7-11-13-15 nýjar lykkjur við handveg í lok næstu umferðar frá röngu = alls 5-9-13-18-23-28 lykkjur fleiri fyrir handveg. Eftir útaukningu fyrir síðustu lykkjur í hlið fyrir handveg, mælist stykkið ca 20-21-22-23-24-25 cm frá öxl. HÁLSMÁL (tilfærsla á kaðli á hægra framstykki): JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14-14-15-16-16-16 cm frá öxl, byrjar útaukning fyrir hálsmáli, en til að kaðall í A.1 geti fylgt hálsmáli, verður einnig að auka út lykkjum á undan A.1 og fækka lykkjum á eftir A.1 í sömu umferð og aukið er út fyrir hálsmáli. Þetta er gert þannig: Aukið út um 1 lykkju á undan A.1, fækkið um 1 lykkju til vinstri á eftir A.1 og aukið út 1 lykkju fyrir hálsmáli á undan prjónamerki (þ.e.a.s. á undan lykkju í sléttprjóni sem situr strax á undan sjalkraga – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Aukið út og fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 6-6-6-6-6-6 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 6-6-7-7-8-9 sinnum. Þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið, endar einnig tilfærslan á kaðli. Stykkið mælist nú ca 27-28-29-30-31-32 cm frá öxl og það hafa verið auknar út alls 12-12-13-13-14-15 lykkjur fyrir hálsmáli. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. SJALKRAGI/KANTUR AÐ FRAMAN (hægra framstykki): JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14-14-15-16-16-16 cm frá öxl, fækkið um 1 lykkju yst á sjalkraga með því að prjóna eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð frá réttu, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 6-6-6-6-6-6 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 6-6-7-7-8-9 sinnum (þessar 12-12-13-13-14-15 úrtökur eru gerðar í sömu umferð og aukið er út fyrir hálsmáli) og fækkið að lokum lykkjum í annarri hverri umferð alls 4-4-5-5-6-7 sinnum (þ.e.a.s. úrtaka heldur áfram 4-4-5-5-6-7 sinnum eftir að útaukningu fyrir hálsmáli er lokið). Eftir síðustu úrtöku fyrir kant að framan, eru 6 lykkjur í garðaprjóni við miðju að framan og stykkið mælist ca 29-30-31-32-34-35 cm frá öxl og niður. ÚRTAKA Í HLIÐ (hægra framstykki): Þegar stykkið mælist 2 cm frá botni á handveg (þ.e.a.s. ca 22-23-24-25-26-27 cm frá öxl), fækkið um 1 lykkju til vinstri í hlið með því að fækka um 1 lykkju innan við ystu 3 lykkjur að hlið – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 3 sinnum. A-FORM (hægra framstykki): Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm frá öxl, byrjar útaukning fyrir A-formi. Allar útaukningar og úrtökur fyrir handveg, hálsmáli og kanti að framan er nú lokið og það eru 58-62-67-72-78-84 lykkjur í umferð áður en útaukning byrjar. Aukið út í hliðum með því að auka út 1 lykkju innan við 3 ystu lykkjur í hlið, að auki er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur garðaprjón mitt í A.1 – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA (= 3 lykkjur fleiri). Haldið áfram með útaukningu hvoru megin við lykkjur í garðaprjóni mitt í A.1 með 3-3-3½-3½-3½-3½ cm millibili alls 10 sinnum á hæðina – þ.e.a.s. eining með garðaprjóni á milli kaðla verður stærri og stærri og alltaf er aukið út hvoru megin við einingu í garðaprjóni við kaðla. Að aukið heldur útaukning áfram í hlið með 6-6-7-7-7-7 cm millibili alls 5 sinnum á hæðina. Eftir síðustu útaukningu eru 83-87-92-97-103-109 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til framstykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl – munið eftir MÆLING! Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjur og fækkið JAFNFRAMT um 8 lykkjur með því að prjóna lykkjurnar í hverjum kaðli slétt saman 2 og 2 = 75-79-84-89-95-101 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 6 kantlykkurað framan í garðaprjóni við miðju að framan þar sem aukið er út um 18-18-19-22-22-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-3 = 93-97-103-111-117-125 lykkjur. ATH: Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna, dragið stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. BAKSTYKKI: Bakstykkið er prjónað í garðaprjóni og köðlum á sama hátt og á framstykki. Byrjið með hægri öxl að aftan eins og útskýrt er að neðan, prjónið síðan vinstri öxl að aftan, fitjið upp lykkjur yfir hálsmáli og setjið stykkin saman. Afgangur af bakstykki er prjónað eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 30 lykkjur á hringprjón 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 10 lykkjur í garðaprjóni, aukið út um 1 lykkju í hverja af næstu 4 lykkjum – sjá ÚTAUKNING-1, prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, aukið út um 1 lykkju í hverja af næstu 4 lykkjum og endið með 10 lykkjur í garðaprjóni = 38 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu með 10 lykkjum í garðaprjóni, 8 lykkjur brugðið, 2 lykkjur í garðaprjóni, 8 lykkjur brugðið og 10 lykkjur í garðaprjóni. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 10 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 18 lykkjur) og endið með 10 lykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í næstu umferð frá röngu er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok umferðar við hálsmál (þessi lykkja er einnig prjónuð í garðaprjóni) = 39 lykkjur. Prjónið 2 umferðir fram og til baka og endið eftir síðustu umferð frá röngu. Stykkið mælist ca 2 cm frá uppfitjunarkanti. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl að aftan. VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 30 lykkjur á hringprjón 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 10 lykkjur í garðaprjóni, aukið út um 1 lykkju í hverja af næstu 4 lykkjum – sjá ÚTAUKNING-1, prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, aukið út um 1 lykkju í hverja af næstu 4 lykkjum og endið með 10 lykkjur í garðaprjóni = 38 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu með 10 lykkjur í garðaprjóni, 8 lykkjur brugðið, 2 lykkjur í garðaprjóni, 8 lykkjur brugðið og 10 lykkjur í garðaprjóni. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 10 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 18 lykkjur) og endið með 10 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok umferðar við hálsmál (þessi lykkja er einnig prjónuð í garðaprjóni) = 39 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 2 cm frá uppfitjunarkanti, endið í sömu umferð frá röngu í A.1 og á hægri öxl að aftan. Prjónið síðan bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Nú á að setja 2 stykkin saman JAFNFRAMT eru fitjaðar upp lykkjur fyrir hálsmáli fyrir miðju. Byrjið frá réttu með vinstri öxl að aftan og prjónið mynstur eins og áður yfir 39 lykkjur, ekki snúa stykkinu, en fitjið upp 22-22-24-24-26-28 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir hálsmáli og prjónið síðan mynstur eins og áður yfir 39 lykkjur frá hægri öxl að aftan = 100-100-102-102-104-106 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur fram og til baka í garðaprjóni og A.1 eins og áður. Síðan er aukið út fyrir handveg og kaðlar eiga að færast til inn að miðju. Það er mikilvægt að lesa allan kaflann sem tilheyrir bakstykki áður en prjónað er áfram – útaukning og úrtaka er prjónað samtímis og hvort sem byrjað er að fækka lykkjum fyrst fyrir handveg eða kaðlar færðir til er mismunandi eftir stærðum. HANDVEGUR (bakstykki): Þegar stykkið mælist 19-17-16-17-14-12 cm frá öxl, aukið út um 1 lykkju fyrir handveg innan við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 1-4-6-7-10-13 sinnum. Síðan eru fitjaðar upp 4-5-7-11-13-15 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok næstu 2 umferða = alls 5-9-13-18-23-28 lykkjur fleiri fyrir handveg í hvorri hlið. Eftir útaukningu fyrir síðustu lykkjur fyrir handveg, mælist stykkið ca 20-21-22-23-24-25 cm frá öxl og það eru 110-118-128-138-150-162 lykkjur í umferð. TILFÆRSLA Á KÖÐLUM (á bakstykki): JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14-15-16-18-19-20 cm frá öxl, byrjar tilfærsla á köðlum við miðju að aftan. Til að gera þetta, verður að auka út um 1 lykkju áður en A.1 er prjónað í fyrsta skipti (séð frá réttu) og aukið út um 1 lykkju eftir að A.1 er prjónað í annað sinn (séð frá réttu). Að auki (í sömu umferð) er fækkað um 1 lykkju til vinstri eftir að A.1 er prjónað í fyrsta skipti og fækkað er um 1 lykkju til hægri áður en A.1 er prjónað í annað skipti – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA (= 2 lykkjur fleiri og 2 lykkjur færri). Aukið út og fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 7-7-7-8-8-8 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 4-4-4-2-2-2 sinnum. Þegar öll útaukning og úrtaka hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 27-28-29-30-31-32 cm frá öxl og það hafa verið auknar út alls 22-22-24-26-28-30 lykkjur í garðaprjóni á milli kaðla mitt að aftan. Haldið áfram með mynstur eins og áður án tilfærslna á köðlum. ÚRTAKA Í HLIÐUM (bakstykki): Þegar stykkið mælist 2 cm frá botni í handveg (þ.e.a.s. ca 22-23-24-25-26-27 cm frá öxl), fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið alveg eins og á framstykki. Þ.e.a.s. fækkið um 1 lykkju til vinstri innan við 3 fyrstu lykkjur í umferð (séð frá réttu) og fækkið um 1 lykkju til hægri innan við 3 síðustu lykkjur í umferð – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 3 sinnum 104-112-122-132-144-156 lykkjur. A-FORM (bakstykki): Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm frá öxl, byrjar útaukning fyrir A-formi. Aukið er út um 8 lykkjur frá réttu þannig: Aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið á bakstykki með því að auka út 1 lykkju innan við 3 ystu lykkjur í hvorri hlið, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 22-22-24-26-28-30 lykkjur í garðaprjóni mitt í báðum A.1 – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA (= 8 lykkjur fleiri). ATH: Allar nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. Haldið áfram með útaukningu hvoru megin við lykkjur í garðaprjóni mitt í A.1 með 3-3-3½-3½-3½-3½ cm millibili alls 10 sinnum á hæðina – þ.e.a.s. að kaðlarnir skiptast og prjónaða einingin á milli kaðla verður stærri og stærri. Að aukið heldur útaukning áfram í hvorri hlið á bakstykki og hvoru megin við lykkjur í garðaprjóni mitt að aftan með 6-6-7-7-7-7 cm millibili alls 5 sinnum á hæðina. Eftir síðustu útaukningu eru 164-172-182-192-204-216 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til framstykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl – munið eftir MÆLING! Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjur og fækkið JAFNFRAMT um 16 lykkjur með því að prjóna lykkjur í hverjum kaðli slétt saman 2 og 2 = 148-156-166-176-188-200 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar sem aukið er út um 37-39-41-43-47-49 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-3 = 185-195-207-219-235-249 lykkjur. ATH: Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna, dragið stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. ERMI: Ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Síðan er afgangur af ermi prjónaður í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður. Fitjið upp 38-38-38-34-30-26 lykkjur á hringprjón 4 með Merino Extra Fine. Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 14-14-14-12-10-8 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju í hverja af næstu 4 lykkjum – sjá ÚTAUKNING-2, prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, aukið út um 1 lykkju í hverja af næstu 4 lykkjum og prjónið 14-14-14-12-10-8 lykkjur brugðið = 46-46-46-42-38-34 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. Prjónamerkið á að passa við ör í A.2. Prjónið A.2 fram og til baka, en takið eftir að ermakúpan er með fleiri lykkjur en A.2, þannig að teljið út frá miðju hvar mynstrið á að byrja – jafnóðum og aukið er út, eru prjónaðar fleiri og fleiri lykkjur í A.2, síðan eru þær lykkjur sem eftir eru prjónaðar í sléttprjóni. JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir ermakúpu í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni í hvorri hlið, 2 lykkjur 2-2-2-2-3-4 sinnum í hvorri hlið, 1 lykkja 4-5-7-7-9-10 sinnum í hvorri hlið, 2 lykkjur 2-2-2-3-3-4 sinnum í hvorri hlið, 3 lykkjur 0-0-0-1-1-1 sinni í hvorri hlið og að lokum 3-5-6-6-6-6 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið = 82-88-94-100-104-110 lykkjur í umferð. Eftir að fitjaðar hafa verið upp síðustu lykkjur, mælist ermakúpan ca 7-8-9-11-13-15 cm frá uppfitjunarkanti. Takið frá prjónamerki mitt á ermi. Afgangur af ermi er prjónaður í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4. Byrjun á umferð = mitt undir ermi. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað síðar þegar fækka á lykkjum og auka út mitt undir ermi. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með mynstur hringinn með A.2 yfir miðju 56 lykkjur á ermi og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2-2-2-2-1-1 cm frá þar sem ermin er sett saman, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í 4.-3.-2.-2.-2.-2. hverri umferð alls 9-11-13-13-14-16 sinnum = 64-66-68-74-76-78 lykkjur. Þegar ermin mælist 17-16-16-16-15-15 cm frá þar sem ermin var sett saman við, aukið út um 4 lykkjur í umferð, þ.e.a.s. aukið út um 1 lykkju hvoru megin við miðju 6 lykkjur undir ermi – sjá ÚTAUKNING-1 og aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í garðaprjóni mitt í A.2. Þær 2 lykkjur undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni og 2 lykkjur mitt á ermi eru prjónaðar í garðaprjóni. Aukið svona út með 5-5-5-7-6-6 cm millibili alls 5-5-5-4-4-4 sinnum á hæðina = 84-86-88-90-92-94 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 44-44-44-43-41-40 cm frá þar sem ermin var sett saman. Nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. ermina og prjónið að óskaðri lengd. ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8 lykkjur með því að prjóna lykkjur í hverjum kaðli slétt saman 2 og 2 = 76-78-80-82-84-86 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 96-98-100-102-104-106 lykkjur. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja bruðgið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 53-54-55-56-56-57 cm frá uppfitjunarkanti og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við uppfitjunarkantinn. Saumið sjalkragann saman mitt að aftan – passið uppá að saumurinn snúi inn þegar kraginn er brotinn niður. Saumið kragann við hálsmálið að aftan í hnakka. Saumið hliðarsauma frá handvegi og niður innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram handveg. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (23)
Aschenbach, Ellen wrote:
Kreatives Modell, schön, extravagant, schlank wirkend und elegant! Werde ich gerne nachstricken...
06.06.2020 - 15:06Carmen-Gabriela wrote:
Snowflake Dance Die Taillierung ist sehr schön in Szene gesetzt, Bravo! Aus diesem Modell könnte man auch ein Kleid zaubern:)
05.06.2020 - 18:37Nicola Vaughan wrote:
This is stunning
04.06.2020 - 18:16