DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 26070.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Tundra Twilight

Prjónuð peysa úr 3 þráðum DROPS Alpaca og 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni og hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 218-8
DROPS Design: Mynstur z-891
Garnflokkur A + A + A + A + A + A eða E + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-200-200-250-250-250 g litur 8120, lavender
150-200-200-250-250-250 g litur 9024, dökk blush
150-200-200-250-250-250 g litur 9026, blush
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100-125-125-150 g litur 10, grár
100-100-100-125-125-150 g litur 22, öskugrár
100-100-100-125-125-150 g litur 33, ryð

PRJÓNFESTA:
7 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með klukkuprjóni og 3 þráðum Alpaca + 3 þráðum Kid-silk = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 12.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 12: lengd 80 cm fyrir klukkuprjón og A.1.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 9: fyrir stroff í hálsmáli og á ermum.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir stroff neðst á fram- og bakstykki.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 26070.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 36 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 2.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir aðra hverja lykkju (herðið aðeins á uppslættinum til að koma í veg fyrir stór göt). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað í hring):
UMFERÐ 1: * Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina.
UMFERÐ 2: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftu 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-* út umferðina.
UMFREÐ 3: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina.
Endurtakið umferð 2 og 3.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Öll úrtaka er gerð í umferð í klukkuprjóni þar sem uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónað saman (stillið af að lykkjum er fækkað í einingum í klukkuprjóni).
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR TIL HÆGRI ÞANNIG (þ.e.a.s. byrjið 3 lykkjum + 2 uppsláttum á undan brugðinni lykkju með prjónamerki í): Lyftið yfir fyrstu lykkju slétt og uppslætti á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir brugðnu lykkjuna, lyftið til baka lykkju á vinstri prjóni, lyftið lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjuna sem sett var til baka á vinstri prjón, lyftið að lokum yfir lykkju sem eftir er á hægri prjóni (= 2 lykkjur færri).
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR TIL VINSTRI ÞANNIG (þ.e.a.s. byrjið strax eftir brugðna lykkju með prjónamerki í): Lyftið yfir fyrstu lykkju slétt og uppslátt á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (þ.e.a.s. 1 lykkja brugðið + slétt lykkja og uppsláttur), steypið síðan lyftu lykkjunni og uppslætti yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á sokkaprjóna/hringprjóna frá hægri öxl að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.
ATH: Allur lykkjufjöldi sem gefinn er upp þegar klukkuprjón er prjónað er án uppsláttar þar sem uppslátturinn er talinn sem 1 lykkja saman með lykkju sem lyft er af prjóni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp36-36-38-40-42-44 lykkjur á sokkaprjóna 9 með 1 þræði af hvoru lit og tegund (= 6 þræðir). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm.
Þegar stroffið er tilbúið, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-18-20-20-22-22 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 54-54-58-60-64-66 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna eða hringprjóna 12. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.

BERUSTYKKI:
Prjónið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8-8-9-10-11-12 cm frá prjónamerki eftir kant í hálsmáli, prjónið A.1 hringinn (A.1 = ca 4 cm á hæð).
JAFNFRAMT í fyrstu umferð í A.1 er aukið út um 28-28-30-30-32-34 lykkjur jafnt yfir = 82-82-88-90-96-100 lykkjur og í síðustu umferð í A.1 er aukið út um18-22-24-24-28-30 lykkjur jafnt yfir = 100-104-112-114-124-130 lykkjur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið klukkuprjón með uppslætti (byrjið með 1. umferð, endurtakið síðan umferð 2 og 3 eins og áður).
Þegar stykkið mælist 20-21-22-24-26-28 cm frá prjónamerki, prjónið A.1 hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 0-6-8-12-16-22 lykkjur jafnt yfir = 100-110-120-126-140-152 lykkjur.
Þegar berustykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm frá prjónamerki, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan (ef málin passa, eru eftir nokkrar umferðir í A.1 þegar stykkið skiptist – afgangur af A.1 er prjónaður á fram- og bakstykki og ermum).
Nú skiptist stykkið þannig: Setjið fyrstu 21-23-25-27-29-31 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-5-7-7-7 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið A.1 yfir næstu 29-32-35-36-41-45 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 21-23-25-27-29-31 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-5-7-7-7 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið A.1 eins og áður yfir 29-32-35-36-41-45 lykkjur sem eftir eru (= bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 68-74-80-86-96-104 lykkjur. Byrjið umferð mitt í 5-5-5-7-7-7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir annarri erminni og prjónið A.1 til loka. Prjónið síðan klukkuprjón eins og áður í 9-9-10-10-11-12 cm. Prjónið A.1. Síðan er prjónað klukkuprjón eins og áður í ca 9-10-10-10-11-12 cm – endið með 2. umferð í klukkuprjónsmynstri. Stykkið mælist nú ca 25-25-26-26-28-30 cm frá skiptingu og nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd, en passið uppá að enda með 2. umferð í klukkuprjónsmynstri.
Skiptið yfir á hringprjón 9. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), en passið uppá að stroffið passi fallega yfir mynstur í klukkuprjóni – í fyrstu umferð með stroffi er uppslátturinn prjónaður frá klukkuprjónslykkjum slétt saman með sléttum lykkjum í stroffi.
Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-66-70 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 21-23-25-27-29-31 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 12 – prjóni að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 5-5-5-7-7-7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 26-28-30-34-36-38 lykkjur. Lesið allan kaflann fyrir ermi áður en byrjað er að prjóna!
Setjið 1 prjónamerki í miðju 5-5-5-7-7-7 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi.
Byrjið umferð eftir lykkju með prjónamerki í (þ.e.a.s. lykkju með prjónamerki í er nú síðasta lykkja í umferð). Prjónið A.1 til loka á sama hátt og á fram- og bakstykki.
Prjónið nú klukkuprjón hringinn í 9-9-10-10-11-12 cm. Prjónið síðan A.1 hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið klukkuprjón til loka á undan stroffi neðst á ermi.
JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur til hægri mitt undir ermi (fækkið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í) – sjá ÚRTAKA = 24-26-28-32-34-36 lykkjur.
Þegar ermin mælist 7-7-6-6-5-5 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur til vinstri mitt undir ermi (fækkið um 2 lykkjur á eftir lykkju með prjónamerki í) = 22-24-26-30-32-34 lykkjur. Fækkið lykkjum svona með 6-6-5-5-4-4 cm millibili þar til fækkað hefur verið um 2 lykkjur alls 4-4-5-6-7-8 sinnum mitt undir ermi = 18-20-20-22-22-22 lykkjur eftir.
Prjónið klukkuprjón þar til ermin mælist ca 38-37-37-34-32-31 cm frá skiptingu – endið með 2. umferð í klukkuprjóni. Þetta eru ca 6 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd, en passið uppá að endað sé í 2. umferð í klukkuprjónsmynstri. ATH: Það er styttra máli í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykki.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 9. Prjónið stroff hringinn alveg eins og neðst á fram- og bakstykki.
Þegar stroffið mælist 6 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 44-43-43-40-38-37 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Sanne Jensen wrote:

Det er ikke lykkedes mig at finde Drops Alpaca i farven 8120, lavendel mix - er den udgået? Hvis det er tilfældet, hvilken farve (eller evt. andet garn) kan jeg erstatte den med for at få nogenlunde samme farvespil?

13.07.2022 - 13:32

DROPS Design answered:

Hej Sanne. Ja den har dessvärre utgått. Du kan använda t.ex. färg 4434 istället. Mvh DROPS Design

13.07.2022 - 13:42

country flag Lena Grøvdal wrote:

Men da burde dere skrevet det i oppskriften. Etter første helpatent så skriver dere strikk A1 , dere skriver ikke at man skal strikke sammen kastene..

04.03.2021 - 08:28

country flag Lena Grøvdal wrote:

Hei. Det er noe feil med oppskriften. Dere skriver man skal øke i A1, men når man strikker helpatent så blir det jo økt automatisk. Jeg har jo flere masker i smal str enn det dere skriver....

03.03.2021 - 13:54

DROPS Design answered:

Hei Lena, Mens du strikker helpatent skal antall masker bli det samme (ingen økninger). Du lager kast den ene omgangen og strikke dem sammen med rett masken omgangen etter. Så du skal bare øke i A.1 der det står spesifisert i diagrammet. Håper dette hjelper og god fornøyelse!

04.03.2021 - 07:51

country flag María Jesús Alonso Abalde Alonso Abalde wrote:

Me parece muy elegante y diferente

07.08.2020 - 20:56

country flag Novella wrote:

Bonbon

17.07.2020 - 23:10