North Star Set |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð húfa og vettlingar fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Allt settið er prjónað með norrænu mynstri. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 37-3 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Húfa og vettlingar. Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. LEIÐBEININGAR-2 (á við um vettling): Hægt er að stilla lengdina fyrir opi þumals með því að prjóna fleiri eða færri umferðir áður en er prjónuð er merking fyrir opi þumals. ÚRTAKA-1 (á við um efst á húfu): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-2 (á við um efst á vettlingum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri við prjónamerki). ÚRTAKA-3 (á við um þumla): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 96-100-104-108 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með milligrár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 3 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3,5. Sjá LEIÐBEININGAR-1 og prjónið A.1 hringinn (= 24-25-26-27 mynstureiningar með 4 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.2 hringinn (= 24-25-26-27 mynstureiningar með 4 lykkjum). Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 17-18-18-19 cm og fækkið jafnframt um 1-0-2-0 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð = 95-100-102-108 lykkjur. Setjið 5-5-6-6 prjónamerki í stykkið með 19-20-17-18 lykkjum á milli hverra prjónamerkja. Prjónið sléttprjón hringinn með milligrár. JAFNFRAMT í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki – sjá ÚRTAKA-1= 5-5-6-6 lykkjur færri. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3-2-5-3 sinnum og síðan í hverri umferð alls 4-6-3-7 sinnum = 60-60-54-48 lykkjur eftir. Prjónið 3 umferðir sléttprjón þar sem allar lykkjur eru prjónaðar saman 2 og 2 í öllum þremur umferðunum = 8-8-7-6 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 21-22-23-24 cm ofan frá og niður. FRÁGANGUR: Gerið einn dúsk með natur ca 4 cm að þvermáli. Festið hann efst á húfuna. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 28-32-36-40 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með milligrár. Prjónið 6 umferðir sléttprjón fyrir fald. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (= uppábrot). Stykkið er nú mælt frá uppábroti! Prjónið 6 umferðir sléttprjón með milligrár. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Sjá LEIÐBEININGAR-1 og prjónið A.1 hringinn (= 7-8-9-10 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.2 hringinn. A.2 er endurtekið á hæðina til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 6-8-9-10 cm frá uppábroti, prjónið merkiþráð fyrir op á þumli þannig – sjá LEIÐBEININGAR-2. Prjónið 6-8-9-11 lykkjur mynstur eins og áður, klippið frá. Prjónið 6-6-7-7 lykkjur sléttprjón fyrir op fyrir þumal með þræði með öðrum lit en litum í stykki, prjónið þær 16-18-20-22 lykkjur sem eftir eru í mynstri eins og áður. Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir allar lykkjur þar til vettlingurinn mælist ca 12-14-15-18 cm frá uppábroti (nú hafa verið prjónaðir 6-6-6-8 cm frá opi fyrir þumal). Nú eru eftir ca 2-2-3-3 cm til loka, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lend. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á stykki og 1 prjónamerki eftir 14-16-18-20 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn með milligrár. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað hvoru megin við 2 prjónamerki – sjá ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 6-7-8-9 sinnum = 4 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráð í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 14-16-18-21 cm ofan frá og niður að uppábroti. ÞUMALL: Dragið út þráðinn sem var prjónaður yfir 6-6-7-7 lykkjur fyrir opi fyrir þumal. Deilið þessum lykkjum á sokkaprjóna 3,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hvorri hlið á þumli með milligrár = 14-14-16-16 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn með milligrár. Þegar þumallinn mælist ca 3-3½-4-4½ cm, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á þumli. Nú er eftir ca 1 cm til loka, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd á þumli. Í næstu umferð er lykkjum fækkað hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-3 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 2 sinnum = 6-6-8-8 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 28-32-36-40 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með milligrár. Prjónið 6 umferðir sléttprjón fyrir fald. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (= uppábrot). Stykkið er nú mælt frá uppábroti! Prjónið 6 umferðir sléttprjón með milligrár. Sjá LEIÐBEININGAR-1 og prjónið A.1 hringinn (= 7-8-9-10 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.2 hringinn. A.2 er endurtekið á hæðina til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 6-8-9-10 cm frá uppábroti, prjónið merkiþráð fyrir op á þumli þannig – sjá LEIÐBEININGAR-2. Prjónið 16-18-20-22 lykkjur mynstur eins og áður, prjónið 6-6-7-7 lykkjur sléttprjón fyrir op fyrir þumal með þræði með öðrum lit en litum í stykki, prjónið þær 6-8-9-11 lykkjur sem eftir eru í mynstri eins og áður. Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir allar lykkjur þar til vettlingurinn mælist ca 12-14-15-18 cm frá uppábroti (nú hafa verið prjónaðir 6-6-6-8 cm frá opi fyrir þumal, stillið lengdina eftir vinstri vettlingi). Setjið eitt prjónamerki í byrjun á stykki og 1 prjónamerki eftir 14-16-18-20 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn með milligrár. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað hvoru megin við 2 prjónamerki – sjá ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 6-7-8-9 sinnum = 4 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráð í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 14-16-18-21 cm ofan frá og niður að uppábroti. ÞUMALL: Prjónið þumal alveg eins og á vinstri vettlingi. FRÁGANGUR: Brjótið uppá faldinn að röngu og saumið niður með litlu, fallegu spori. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (15)
Tina wrote:
Hei! Når jeg skal strikke tråden til tommelen. Eller etter det. Hvordan får jeg tråden fra den ene siden til den andre siden av disse trådene?
17.07.2021 - 16:41DROPS Design answered:
Hej Tina, ved ikke helt hvor du er, men jeg tror du kan få hjælp at disse videoer: tommel
04.08.2021 - 11:11Sara wrote:
Jag förstår inte instruktionen.... ska man inte sticka någon resår på vanten? Det är ju resår på bilden men i instruktionen står det bara slätstickning? Är lite förvirrad, kommer inte igång
18.02.2021 - 13:47DROPS Design answered:
Hej Sara, nej disse vanter har ingen resår, du starter der hvor der står VENSTRE VANTE, så får du den lille takkede kant som du ser øverst på vanterne :)
18.02.2021 - 15:10Gertraud wrote:
Muss ich da keinen Daumenkeil machen? Und nur die 6 Maschen stilllegen?
25.01.2021 - 15:30DROPS Design answered:
Liebe Gertraud, ja genau, es ist keinen Daumenkeil für dieses Modell, die Maschen werden zuerst mit einer Hilfsfaden gestrickt (siehe dieses Video z.B.) und dann weiter wie zuvor gestrickt. Ganz am Ende wird diesen Faden herausgezogen, die Maschen auf der Nadel nehmen und dann Daumen wird einzeln gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
25.01.2021 - 16:17Alicia wrote:
¡Resuelto el misterio en cuanto me puse a hacerlo! Gracias.
05.11.2020 - 20:29Alicia wrote:
No entiendo cómo levantando un punto a cada lado del pulgar se pasa de tener 6 puntos a 14. No termino de entender cómo hacer el pulgar. Muchas gracias.
03.11.2020 - 11:28