DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Enchanted Underwood

Hekluð peysa úr DROPS Air. Stykkið er heklað ofan frá og niður með köðlum og stuðlakrókum. Stærð XS - XXL.

DROPS 218-32
DROPS Design: Mynstur ai-294
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-450-450-500-550-600 g litur 02, hveiti

HEKLFESTA:
14 stuðlar á breidd og 8,5 umferðir á hæðina (með annarri hverri umferð með fastalykkjum og tvíbrugðnum stuðlum) = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR UM LOFTLYKKJUR:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/tvíbrugðinn stuðull.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum eru heklaðar 4 loftlykkjur, þessar 4 loftlykkjur koma ekki í stað 1. tvíbrugðna stuðul.
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja, þessi loftlykkja kemur ekki í stað 1. fastalykkju.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.3, A.4, A.6, A.8 og A.9).

ÚTAUKNING (á við um handveg):
Aukið út um 2 lykkjur með því að hekla 3 lykkjur í lykkju.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki með því að hekla 2 fyrstu lykkjurnar í umferð og 2 síðustu lykkjurnar í umferð saman þannig:
Heklið 1 fastalykkju, en bíði með að síðasta uppsláttinn og að draga þráðinn í gegn (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju, en eftir síðasta uppsláttinn, dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður og heklað er fram og til baka í stykkjum sem eru hekluð eða saumuð saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Vinstri öxl:
Heklið 15-15-17-17-19-21 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR UM LOFTLYKKJUR, með heklunál 5 með Air. Snúið og heklið fyrstu umferð frá réttu þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR = 15-15-17-17-19-21 tvíbrugðnir stuðlar. Heklið síðan 1 umferð með 1 fastalykkju í hvern tvíbrugðinn stuðul.
Heklið nú mynstur (byrjið á umferð með ör í þinni stærð í mynsturteikningu) frá réttu þannig:
Heklið A.1 yfir fyrstu 1-1-3-1-3-5 lykkjur, A.2 yfir næstu 4 lykkjur, A.3 yfir næstu 10-10-10-12-12-12 lykkjur. Þegar umferð með ör hefur verið hekluð til loka, klippið frá og geymið stykkið. Heklið hægri öxl.
Hægri öxl:
Heklið 15-15-17-17-19-21 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR UM LOFTLYKKJUR, með heklunál 5 og Air. Snúið og heklið fyrstu umferð frá réttu þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja loftlykkju – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR = 15-15-17-17-19-21 tvíbrugðnir stuðlar. Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hvern tvíbrugðinn stuðul.
Heklið nú mynstur (byrjið á umferð með ör í þinni stærði í mynsturteikningu) frá réttu þannig:
Heklið A.4 yfir fyrstu 10-10-10-12-12-12 lykkjur, A.5 yfir næstu 4 lykkjur, A.1 yfir síðustu 1-1-3-1-3-5 lykkjur. Þegar umferð með ör hefur verið hekluð til loka, heklið næstu umferð í mynsturteikningu (= 1 lykkja fleiri við hálsmál), síðan eru heklaðar 20-20-20-24-24-24 lausar loftlykkjur (= hálsmál) og heklið síðan umferð eftir það með ör yfir vinstri öxl þannig: Heklið A.3 yfir fyrstu 10-10-10-12-12-12 lykkjur (= 1 lykkja fleiri við hálsmál), A.2 yfir næstu 4 lykkjur, A.1 yfir síðustu 1-1-3-1-3-5 lykkjur = 52-52-56-60-64-68 lykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Haldið áfram með næstu 2 umferðir í mynstri og yfir nýjar loftlykkjur fyrir hálsmáli er heklaður 1 tvíbrugðinn stuðull í hverja lykkju frá réttu og 1 fastalykkju í hverja lykkju frá röngu.
Heklið nú mynstur þannig: Heklið mynstur eins og áður yfir fyrstu 22-22-24-26-28-30 lykkjur, heklið A.2 yfir næstu 4 lykkjur og A.5 yfir næstu 4 lykkjur (stillið af að A.2 og A.5 byrji í sömu umferð eins og í mynsturteikningu í hvorri hlið á bakstykki), heklið mynstur eins og áður yfir síðustu 22-22-24-26-28-30 lykkjur. Þegar A.3 og A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina, heklið mynstur þannig: Heklið mynstur eins og áður yfir fyrstu 5-5-7-5-7-9 lykkjur, A.6 yfir næstu 17-17-17-21-21-21 lykkjur, heklið A.2 og A.5 eins og áður, A.6 yfir næstu 17-17-17-21-21-21 lykkjur, heklið eins og áður yfir síðustu 5-5-7-5-7-9 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Mynsturteikningin er endurtekin frá umferð með ör.
Þegar stykkið mælist 17-16-17-18-19-19 cm, aukið út 2 lykkjur í hvorri hlið á stykki fyrir handveg – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverri umferð alls 2-3-3-3-3-4 sinnum í hvorri hlið = 60-64-68-72-76-84 lykkjur. Í lok næstu 2 umferða eru heklaðar 3-4-5-6-7-7 lausar loftlykkjur fyrir handveg í hvorri hlið = 66-72-78-84-90-98 lykkjur. Nýjar lykkjur í hvorri hlið eru heklaðar í mynstri A.1.
Haldið áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm mælt frá öxl og niður – stillið af að endað sé eftir umferð með ör í A.6 eða eftir næst síðustu umferð í mynsturteikningu.
Heklið nú kant þannig: Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja lykkju og aukið út 1 lykkju í umferð með því að hekla 2 fastalykkjur í eina af lykkjum = 67-73-79-85-91-99 lykkjur. Heklið frá umferð með ör í A.7 þar til 1 lykkja er eftir, heklið fyrstu lykkju í A.7.
Endurtakið síðustu 2 umferðir í mynsturteikningu þar til kanturinn mælist 6 cm – stillið af að endað sé eftir umferð með stuðlum/stuðlakrókum-þríbrugðnum stuðlum. Klippið frá og festið enda. Bakstykki mælist ca 53-55-57-59-61-63 cm frá öxl og niður.

FRAMSTYKKI:
Hægri öxl:
Heklið 15-15-17-17-19-21 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJUR, með heklunál 5 með Air. Snúið og heklið fyrstu umferð frá réttu þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja loftlykkju – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR = 15-15-17-17-19-21 tvíbrugðnir stuðlar. Heklið síðan 1 umferð með 1 fastalykkju í hvern tvíbrugðinn stuðul.
Heklið nú mynstur (byrjið á umferð með ör og í þinni stærð í mynsturteikningu) frá réttu þannig:
Heklið A.1 yfir fyrstu 1-1-3-1-3-5 lykkjur, A.2 yfir næstu 4 lykkjur, A.8 yfir næstu 10-10-10-12-12-12 lykkjur. Þegar 3. umferð (talið frá umferð með ör) hefur verið hekluð til loka, klippið frá og geymið stykkið, Heklið vinstri öxl.
Vinstri öxl:
Heklið 15-15-17-17-19-21 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJUR, með heklunál 5 með Air. Snúið og heklið fyrstu umferð frá réttu þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja loftlykkju – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR = 15-15-17-17-19-21 tvíbrugðnir stuðlar. Heklið síðan 1 umferð með 1 fastalykkju í hvern tvíbrugðinn stuðul.
Heklið nú mynstur (byrjið á umferð með ör og í þinni stærð í mynsturteikningu) frá réttu þannig:
Heklið A.9 yfir fyrstu 10-10-10-12-12-12 lykkjur, A.5 yfir næstu 4 lykkjur, A. yfir síðustu 1-1-3-1-3-5 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka svona þar til 4. umferð hefur verið hekluð til loka, heklið síðan 16-16-16-20-20-20 lausar loftlykkjur í lok umferðar (= hálsmál) og heklið áfram frá 4. umferð (talið frá umferð með ör) yfir hægri öxl þannig: Heklið A.8 yfir fyrstu 12-12-12-14-14-14 lykkjur, A.2 yfir næstu 4 lykkjur, A.1 yfir síðustu 1-1-3-1-3-5 lykkjur = 52-52-56-60-64-68 lykkjur.
Haldið áfram með næstu 2 umferðir í mynstri og yfir nýjar loftlykkjur fyrir hálsmáli er heklaður 1 tvíbrugðinn stuðull í hverja lykkju frá réttu og 1 fastalykkja í hverja lykkju frá röngu.
Heklið nú mynstur þannig: Heklið mynstur eins og áður yfir fyrstu 22-22-24-26-28-30 lykkjurnar, heklið A.2 yfir næstu 4 lykkjur og A.5 yfir næstu 4 lykkjur (stillið af að A.2 og A.5 byrji alveg eins og í mynsturteikningu í hvorri hlið á framstykki), heklið mynstur eins og áður yfir síðustu 22-22-24-26-28-30 lykkjur. Þegar A.8 og A.9 hefur verið heklað til loka á hæðina, heklið mynstur þannig: Heklið eins og áður yfir fyrstu 5-5-7-5-7-9 lykkjur, A.6 yfir næstu 17-17-17-21-21-21 lykkjur, heklið A.2 yfir A.5 eins og áður, A.6 yfir næstu 17-17-17-21-21-21 lykkjur, heklið eins og áður yfir síðustu 5-5-7-5-7-9 lykkjur. Haldið áfram með mynstur svona fram og til baka. Mynsturteikning er endurtekin frá umferð með ör.
Þegar stykkið mælist 17-16-17-18-19-19 cm, aukið út 2 lykkjur í hlið á stykki fyrir handveg – munið eftir ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverri umferð alls 2-3-3-3-3-4 sinnum í hvorri hlið = 60-64-68-72-76-84 lykkjur. Í lok næstu 2 umferða eru heklaðar 3-4-5-6-7-7 lausar loftlykkjur fyrir handveg í hvorri hlið = 66-72-78-84-90-98 lykkjur. Nýjar lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í mynstri A.1.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist alls 47-49-51-53-55-57 cm mælt frá öxl og niður – stillið af að endað sé eftir umferð með ör í A.6 eða á eftir næst síðustu umferð í mynsturteikningu.
Heklið nú kant þannig: Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja lykkju og aukið út 1 lykkju í umferð með því að hekla 2 fastalykkjur í eina af lykkjum = 67-73-79-85-91-99 lykkjur. Heklið frá umferð með ör í A.7 þar til 1 lykkja er eftir, heklið fyrstu lykkjuna í A.7.
Endurtakið síðustu 2 umferðir í mynsturteikningu þar til kanturinn mælist 6 cm – stillið af að endað sé eftir umferð með stuðlum/stuðlakrókum-þríbrugðnum stuðlum. Klippið frá og festið enda. Hægra framstykki mælist ca 53-55-57-59-61-63 cm frá öxl og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma í lykkjurnar eina og eina, en passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. Heklið hliðarsaumana saman í gegnum bæði lögin frá röngu þannig: Festið þráðinn með 1 fastalykkju í hlið undir ermi, * heklið 2 loftlykkjur, hoppið yfir 1 cm, 1 fastalykkja *, heklið frá *-* meðfram öllum hliðarsaumnum, endið með 1 fastalykkju. Endurtakið í hinni hliðinni.

ERMI:
Ermar eru heklaðar fram og til baka, ofan frá og niður.
Heklið 24-24-24-25-25-27 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR UM LOFTLYKKJUR, með heklunál 5 með Air. Snúið og heklið frá umferð með ör í A.1 – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, JAFNFRAMT er aukið út fyrir ermakúpu í hvorri hlið á ermi þannig: Aukið út 2 lykkjur 3-1-2-1-0-0 sinnum og 1 lykkju 3-7-6-8-10-11 sinnum = 42-42-44-45-45-49 lykkjur. Í lok næstu 2 umferða eru heklaðar 3-4-5-6-7-7 nýjar loftlykkjur fyrir handveg = 48-50-54-57-59-63 lykkjur. Nýjar lykkjur í hvorri hlið eru heklaðar í mynstri A.1.
Setjið 1 prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið áfram fram og til baka með A.1. Þegar stykkið mælist 2 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð með fastalykkjum, fækkið lykkjum í hvorri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð með fastalykkjum alls 6-6-8-8-9-10 sinnum = 36-38-38-41-41-43 lykkjur. Haldið áfram þar til ermin mælist 39-38-38-37-35-34 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð með fastalykkjum. Heklið nú kant þannig:
Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja lykkju og aukið út 1-1-1-0-0-0 lykkjur í umferð = 37-39-39-41-41-43 lykkjur.
Heklið frá umferð með ör í A.7 þar til 1 lykkja er eftir, heklið fyrstu lykkjuna í A.7.
Endurtakið síðustu 2 umferðirnar í mynsturteikningu þar til kanturinn mælist 6 cm – stillið af að endað sé eftir umferð með stuðlum/stuðlakrókum- þríbrugðnum stuðlum.
Heklið nú ermasauma undir ermi í gegnum bæði lögin frá röngu þannig: * Heklið 1 fastalykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* upp þar sem lykkjur voru fitjaðar upp 3-4-5-6-7-7 loftlykkjur undir ermi í hvorri hlið, endið með 1 fastalykkju.
Heklið hina ermina alveg eins. Saumið ermar í við fram- og bakstykki.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
UMFERÐ 1: Byrjið mitt ofan á öxl í annarri hlið og festið þráðinn með 1 fastalykkju, * heklið 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1½ cm, 1 fastalykkja *, heklið frá *-* hringinn allan kant í hálsi og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð = ca 31 til 35 loftlykkjubogar.
UMFERÐ 2: Heklið 1 keðjulykkju um loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í sama loftlykkjuboga, síðan eru heklaðir 2 stuðlar um hvern og einn af loftlykkjubogum sem eftir eru í umferð, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í umferð.
UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju, endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í umferð. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 30.09.2020
Ný mynsturteikning A.6 (það vantaði 1 stuðul í miðju, í sömu röð og örin).

Mynstur

symbols = byrjið hér

symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull í lykkju

symbols = STUÐLAKRÓKUR-FJÓRBRUGÐINN STUÐULL (einungis heklaður í umferð með tvíbrugðnum stuðlum): Heklið 1 fjórbrugðinn stuðul um 1 lykkju frá fyrri umferð með tvíbrugðnum stuðlum (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur utan um sjálfa lykkjuna). Hringur í enda á stuðlakrók-fjórbrugðnum stuðli sýnir í hvaða lykkju á að hekla utan um frá fyrri umferð með tvíbrugðnum stuðlum. Byrjun á línu = umferð þar sem þessi stuðlakrókur-fjórbrugðinn stuðull byrjar. Heklið 1 fjórbrugðinn stuðul þannig: Bregðið þræðinum 4 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni um lykkjuna, sækið þráðinn, * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 5 sinnum = 1 lykkja.
symbols = STUÐLAKRÓKUR-FJÓRBRUGÐINN STUÐULL (einungis heklað í umferð með tvíbrugðnum stuðlum): Heklið 1 fjórbrugðinn stuðul alveg eins og útskýrt er að ofan, en heklið þannig að þessir fjórbrugðnu stuðlar liggi aftan við fjórbrugðna stuðla með svörtum hring.

symbols = STUÐLAKRÓKUR-FIMMBRUGÐINN STUÐULL (einungis heklaður í umferð með tvíbrugðnum stuðlum): Heklið 1 fimmbrugðinn stuðul um 1 lykkju frá fyrri umferð með tvíbrugðnum stuðlum (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur utan um sjálfa lykkjuna). Hringur í enda á stuðlakrók-fimmbrugðnum stuðli sýnir í hvaða lykkju á að hekla utan um frá fyrri umferð með tvíbrugðnum stuðlum. Byrjun á línu = umferð þar sem þessi stuðlakrókur-fimmbrugðinn stuðull byrjar. Heklið 1 fimmbrugðinn stuðul þannig: Bregðið þræðinum 5 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni um lykkjuna, sækið þráðinn, * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 6 sinnum = 1 lykkja.
ATH: Fimmbrugðnu stuðlarnir eiga að fléttast þannig að þeir liggi aftan við hinar lykkjurnar.
symbols = heklið 2 fastalykkjur í lykkju (= 1 lykkja fleiri)
symbols = heklið 2 tvíbrugðna stuðla í lykkju (= 1 lykkja fleiri)

symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = STUÐLAKRÓKUR-ÞRÍBRUGÐINN STUÐULL (einungis heklaður í umferð með stuðlum): Heklið 1 þríbrugðinn stuðul um 1 stuðul/stuðlakróf-þríbrugðinn stuðul frá fyrri umferð með stuðlum/stuðlakrók-þríbrugðnum stuðlum (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur utan um sjálfan stuðuðl/stuðlakróf-þríbrugðinn stuðul).
Bregðið þræðinum 3 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni um lykkjuna, sækið þráðinn, * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 4 sinnum = 1 lykkja.
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Jacqueline wrote:

Muss man mit vorderen oder hinteren Reliefstäbchen häkeln? Ich hab das nirgendswo in der Anleitung gesehen

02.03.2024 - 08:27

DROPS Design answered:

Liebe Jacqueline, die Reliefstäbchen werden immer bei einer Hinreihe und beim vorne gehäkelt. Viel Spaß beim Häkeln!

04.03.2024 - 07:33

country flag Jacqueline wrote:

Ich bin gerade beim Vorderteil und verstehe nicht, wie man die rechte und linke Schulter hinlegen soll um sie mit den Luftmaschen zu verbinden. Die Seite wo zugenommen wird, durch A8/9, liegt dann an der Seite wo nicht zugenommen wird.Ich verstehe es nicht, muss ich das Stück drehen? Denn wenn ich der Anleitung folge muss ich dann A8 häkeln, was nicht passt, weil ich so wie ich es gedreht habe eigentlich zuerst A1 häkeln müsste. Vielen Dank für die Hilfe im Voraus.

19.02.2024 - 21:07

DROPS Design answered:

Liebe Jacqueline, von der Vorderseite gesehen, haben Sie beim rechten Schulter mit A.8 an der linken Seite zugenommen und bis 3. Reihe gehäkelt, und beim linken Schulter haben Sie mit A.9 an der rechten Seite zugenommen; Linke Schulter häkelt man bei der 4. Reihe = Rückreihe so: A.1, A.5 und A.9 wie zuvor, dann häkeln Sie Luftmaschen für den Halsausschnitt, dann häkeln Sie die rechte Schulter wie zuvor: A.8, A.2 und A.1; Viel Spaß beim stricken!

20.02.2024 - 08:15

country flag Jutta Klaus wrote:

Im Diagramm 218-32 gibt es in A 3 ein Quadrat auf der Spitze stehend und schwarz ausgefüllt. Ich wüßte gerne um welche Masche es sich hier handelt. Leider kann ich in der Anleitung keine Erklärung hierfür g Du finden,

24.08.2023 - 16:39

DROPS Design answered:

Liebe Frau Klaus, es handelt sich um das 6. Symbol, dh 1 Relief-Fünffachstäbchen. Viel Spaß beim häkeln!

25.08.2023 - 08:09

country flag Gaël wrote:

Bonjour, Je trouve 2 vidéos contradictoires concernant la double bride une "Comment crocheter des torsades avec des mailles en relief en suivant un diagramme" et oula DB est représentée par un cercle vide et l'autre vidéo illustrant la double bride. Dois-je réaliser ce modèle en double brides et donc en commençant par 2 jetés ou bien un seul Je vous remercie de votre retour et vous remercie pour ce partage de beaux modèles

21.10.2022 - 12:50

DROPS Design answered:

Bonjour Gaël, dans la vidéo, on crochète des brides et des mailles serrées et non des double-brides et des mailles serrées (correction faite, merci pour votre retour) comme dans le diagramme, autrement dit, crochetez bien des double-brides comme indiqué dans le diagramme. Bon crochet!

21.10.2022 - 16:39

country flag Ariel wrote:

Hej, vad menas med "Virka 1 fyrdubbelstolpe på samma sätt som förklarat ovan, men virka så att dessa fyrdubbelstolparna blir liggande bakom fyrdubbelstolparna med svart cirkel."? Hur gör man så att de hamnar liggande bakom fyrdubbelstolparna med svart cirkel?

17.09.2022 - 18:54

DROPS Design answered:

Hei Ariel. Ta en titt på denne hjelpevideoen til diagrammet. Husk å les teksten til videoen: Hur man virkar flätor med relieffmaskor enligt diagram mvh DROPS Design

19.09.2022 - 12:58

country flag Katherine Whyte wrote:

I’m confused by the instruction to add 6 chain stitches at the end of the next two rows. Doesn’t that mean that they will be at different rows thus making the arm holes uneven. Or are they mean to be worked only on one side?

30.03.2022 - 04:38

DROPS Design answered:

Dear Katherine, yes, they will be on different rows, but that is only a slight difference, will not distort the final piece. Happy Knitting!

30.03.2022 - 06:21

country flag Gabriela wrote:

Bonjour, Je suis en train faire ce pull taille L. Je suis au niveau du DOS. Il y a des différences entre ce qui est indiqué dqns le patron et ce qui est écrit au début du texte. Dans le patron il y a 17 motifs sur un rang ( A1 A2 A3) et dans les instructions vous dites faire A1 dans les trois premières mailles ce qui veut dire que je ne peux pas terminer A3. Je dois suivre le patron ou bien les instructions ? Ou bien je n'ai rien compris ? Merci d'avance

30.10.2021 - 23:52

DROPS Design answered:

Bonjour Gabriela, en L (= 4ème taille = 19 mailles) crochetez ainsi: 1 fois A.1 (= 1 mailles serrée/double-bride), puis crochetez A.2 au-dessus des 4 mailles suivantes = 1 fois A.2 (= 4 m), puis A.3 au-dessus des 12 mailles suivantes = les 12 mailles du diagramme A.3, autrement dit vous avez bien: 1+4+12=17 mailles. (En M, vous aurez: 3 mailles en A.1, 4 mailles de A.2 et 10 de A.3 = 3+4+10=17 mailles). Bon crochet!

03.11.2021 - 07:17

country flag Chantal Duverbecq wrote:

Combien fait -il de pelotes pour ce modèle, laine drops air mix 28 taille XL

16.08.2021 - 16:57

DROPS Design answered:

Bonjour Chantal, pour la taille XL vous avez besoin de 11 pelotes de DROPS Air. Bon crochet!

17.08.2021 - 00:28

country flag Carina wrote:

Hallo, bij het haken van de rechterschouder van het achterpand staat er op een gegeven moment : haak zoals hiervoor over de (in mijn geval maat L) 26 steken. Welke steken of patroon zijn dat dan juist?

27.07.2021 - 12:55

DROPS Design answered:

Dag Carina,

Je haakt over die 26 steken op dezelfde manier verder in patroon zoals de de toeren daarvoor deed.

20.08.2021 - 11:02

country flag Emma wrote:

Hola! Tengo un problema. No puedo entender el inicio de la manga. Porque 24 cadenas se me quedan a mitad del ancho de la sisa. A que parte corresponden?

21.06.2021 - 23:54

DROPS Design answered:

Hola Emma, la manga se empieza desde arriba con la parte más estrecha de la copa de la manga. Según trabajas, vas a ir aumentando para tener el tamaño total de la sisa.

27.06.2021 - 19:12