DROPS Polaris
DROPS Polaris
100% Ull
frá 1188.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

November Woodland

Prjónuð peysa með háum kraga og hringlaga berustykki úr DROPS Polaris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 216-24
DROPS Design: Mynstur po-114
Garnflokkur F eða E + E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS POLARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki F)
1000-1100-1200-1300-1400-1600 g litur 05, moldvarpa

PRJÓNFESTA:
7 lykkjur á breidd og 8 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 15: lengd 60 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 12: fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 12: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Polaris
DROPS Polaris
100% Ull
frá 1188.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

GALDRALYKKJA:
Ef prjónað er í hring á hringprjón sem er of langur fyrir lykkjufjöldann, er hægt að galdralykkju þannig: Færið lykkjurnar að miðju á hringprjóni (mitt á snúru). Deilið lykkjufjölda ca í miðju og dragið snúruna út á milli 2 lykkja.
Færið síðan lykkjurnar að þeirri hlið sem prjónað er frá fram að oddi á prjóni og prjónið fram þar sem snúran var dregin út. Dragið út miðju á snúru á milli 2 nýrra lykkja í gagnstæðri átt áður en prjónað er áfram alveg eins, haldið svona áfram þar til auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur svo hægt sé að prjóna hringinn eins og venjulega.

ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermar):
ATH: Til að úrtakan komi til skiptis í hægri og vinstri hlið á stykki er lykkjum fækkað þannig:
Fækkið lykkjum til skiptis í byrjun og í lok umferðar sem á að fækka lykkjum í.
Fækkið lykkjum frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum frá röngu þannig: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna/hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna og saumaðar saman í lokin.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 34-36-38-40-42-44 lykkjur á sokkaprjóna 12 með Polaris.
Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 12 cm.

BERUSTYKKI:
Lesið GALDRALYKKJA í útskýringu að ofan. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Skiptið yfir á hringprjón 15 og prjónið mynstur A.1 hringinn – sjá þína stærð í mynsturteikningu.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 102-108-114-120-126-154 lykkjur í umferð.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-4-2-8-10-2 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING í útskýringu að ofan = 102-112-116-128-136-156 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 24-26-28-30-32-34 cm frá prjónamerki.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 15-16-17-19-20-23 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 21-24-24-26-28-32 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 30-32-34-38-40-46 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 21-24-24-26-28-32 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 15-16-17-19-20-23 lykkjur (= hálft bakstykki).

Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 68-72-76-84-92-104 lykkjur. Prjónið í hring í sléttprjóni þar til stykkið mælist 22 cm frá skiptingu í öllum stærðum. Skiptið yfir á hringprjón 12 og prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm í öllum stærðum. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna og saumaðar saman í lokin.
Setjið 21-24-24-26-28-32 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjóna 15 og fitjið upp 2-2-2-2-3-3 nýjar lykkjur í hvorri hlið = 25-28-28-30-34-38 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka, jafnframt í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1-0-0-0-0-0 lykkjur (lykkjum er einungis fækkað í stærð S) með því að prjóna 2 ystu lykkjur í vinstri hlið á stykki slétt saman = 24-28-28-30-34-38 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 4-2-2-4-4-2 cm fækkið um 1 lykkju í hægri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum til skiptis í vinstri og hægri hlið á stykki í annarri hverri - annarri hverri - annarri hverri – hverri – hverri - hverri umferð alls 8-12-12-14-14-18 sinnum (= 4-6-6-7-7-9 sinnum í hvorri hlið) = 16-16-16-16-20-20 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 34-33-32-30-28-26 cm frá skiptingu. (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Skiptið yfir á hringprjón 12. Prjónið fram og til baka með stroffi (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saum undir ermum í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki of þykkur – deilið gjarna þræðinum þannig að hann verði þynnri þegar sauma á saman. Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 19.08.2021
Ný útskýring í mynsturtexta: prjónið 2 lykkjur brugðið í 1 lykkju slétt þannig: Prjónið 1 lykkju brugðið í fremri lykkjubogann, eftir það 1 lykkju brugðið í aftari lykkjubogann (= 1 lykkja fleiri).

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = prjónið 2 lykkjur brugðið í 1 lykkju slétt þannig: Prjónið 1 lykkju brugðið í fremri lykkjubogann, eftir það 1 lykkju brugðið í aftari lykkjubogann (= 1 lykkja fleiri).
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Hanne Jespersen wrote:

Hej Jeg tænker på at strikke denne til mit barnebarn, men hun er MEGET følsom over for uld, så Polaris går ikke. Men Merino går fint. Så jeg tænker, om det dur at strikke den i Big Merino med 4 tråde. Venlig hilsen Hanne

13.11.2023 - 22:39

DROPS Design answered:

Hej Hanne, ja det kan du, og da skal du bruge ca samme antal gram som i DROPS Polaris. Husk at overholde strikkefastheden som står i opskriften :)

15.11.2023 - 07:54

country flag Heidi Strotkamp wrote:

Hallo, ich habe 15 Maschen bei 10cm. Ich möchte mit Nadelstärke 8 stricken. Ich kann das leider nicht umrechnen, welche Größe und welche Zu.-und Abnahmen. Ich brauche Hilfe bitte. LG Heidi Strotkamp

27.01.2023 - 12:14

DROPS Design answered:

Liebe Frau Strotkamp, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder Anfrage umrechnen, wenden Sie sich bitte an dem Laden, wo Sie Ihre Wolle gekauft haben, dort hilft man Ihnen ganz gerne - auch per Telefon oder per E-Mail. Danke im voraus für Ihr Verständnis. Viel Spaß beim stricken!

27.01.2023 - 14:19

country flag Heidi Strotkamp wrote:

Hallöchen, ich würde gerne diesen Pullover stricken. Kann ich ihn auch mit kleineren nadelstarken stricken? Viele Grüße Heidi Strotkamp

14.01.2023 - 18:06

DROPS Design answered:

Liebe Frau Strotkamp, sollte Ihre Maschenprobe nicht stimmen, dann würden die Maßen wie in der Skizze auch nicht stimmen, wenn Sie lieber eine andere Maschenprobe/kleineren Nadelstarken bevorzugen, am besten suchen Sie mal mit dieser Maschenprobe, sonnst sollen Sie die ganze Anleitung nach Ihrer eigenen Maschenprobe neu umrechnen. Viel Spaß beim stricken!

16.01.2023 - 08:52

country flag Eva wrote:

Hej, undrar över fram/bakstycket, när ökningarna på respektive del görs, då görs de bara på en sida av varje- har jag förstått rätt då? Så det ser lite ut som man stickat för långt på ena sidan medans den andra sidan följer delningen ”jämnt”?

22.05.2022 - 12:57

DROPS Design answered:

Hei Eva. Litt usikker på om jeg skjønner deg helt. Men man øker jevnt på hver omgang, mens i høyden er det økninger på ulike omganger i de forskjellige str. Bildet viser genseren som er strikket etter diagrammet i str. S-M-L . mvh DROPS Design

23.05.2022 - 10:41

country flag She,ley wrote:

It is a Drops pattern I have given you the name of it in Swedish but I can’t find it and I can’t find a contact number so I can send a photo of the pattern and see if it’s in English Looking on your website garnstudio.com there’s only a phone number and I can’t send a picture to a business phone number.

03.10.2021 - 16:45

DROPS Design answered:

Dear Shelley, Sorry for the misunderstanding. You might try asking in the Facebook group named "Drops Workshop". Happy Stitching!

03.10.2021 - 22:51

country flag Shelley wrote:

Hi, I am looking for a pattern similar to this one. It’s not in English but I have a picture of it and the name in Swedish which is ‘Efterar & Vinter 21/22’ and I wonder if you have a contact or someone who could help me find the pattern in English. Many thanks

03.10.2021 - 03:15

DROPS Design answered:

Dear Shelley, please understand that we can only help you with questions about our patterns. For other patterns you may try to see its Ravery page and get help from there. Happy Stitching!

03.10.2021 - 12:25

country flag Della wrote:

Just a question. In the increasing for the sleeve (I’m doing the largest size) it says the increases are in every first row, is that every row, or every alternate row? Thanks

27.08.2021 - 05:15

DROPS Design answered:

Dear Della, you meant "decreasing"? When sleeve measures 2 cm from the division, start decreasing alternately at the beg of each row, both from RS and from WS - see DECREASE TIP (applies to sleeves): over the next 18 rows = 9 sts increased on each side. Can this help? Happy knitting!

27.08.2021 - 08:02

country flag Della wrote:

Great explanation in both questions. A purl is a purl is a purl that’s a good one! Thanks!

22.08.2021 - 19:06

DROPS Design answered:

Dear Della, thank you. I am glad you found the answer helpful. Happy Stitching!

23.08.2021 - 03:28

country flag Della wrote:

Also in the symbols for the chart is there a reason why the slash for the purl symbol is going in the opposite direction to the chart?

22.08.2021 - 16:26

DROPS Design answered:

Dear Della, no particular reason, probably just a technical error. It is a purl, and a purl is a purl is a purl, isn't it (meaning you can't really slant a purl to one side or the other)? Happy Stitching!

22.08.2021 - 17:35

country flag Della wrote:

Hi. I’m wondering how I am going to fit 154 stitches at the end of A1 on a 15mm x 80cm circular needle. I’ve just started this garment and I’m doing the neck on the 12mm x 80cm and 44 stitches just fit 😳

22.08.2021 - 16:21

DROPS Design answered:

Dear Della, our knitters didn't really had problems fitting the stitches on the needles, but you can always use a longer circular, or even two circs, if you feel they are too crowded. Happy Stitching!

22.08.2021 - 17:33