DROPS Kid-Silk uni colour 75% Mohair, 25% Silki |
1430.00 kr /25g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Kid-Silk uni colour 75% Mohair, 25% Silki 1430.00 kr /25g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
North Woods Sweater |
|
|
|
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 216-22 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 89 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 16) = 5,6. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 4. og 5. hverja lykkju og 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki í, lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, 1 lykkja slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð. Endurtakið við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur færri í umferð). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig þar til stroffið og klauf í hvorri hlið er lokið. Síðan eru bæði stykkin sett á sama hringprjón og prjónað er í hring upp að handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón upp að handveg. Síðan eru ermar settar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki og berustykkið er prjónað í hring. Að lokum er kantur í hálsmáli prjónaður í hring á stuttan hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 91-101-109-117-129-141 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 4 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: UMFERÐ 1 (rétta): 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju snúna slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (ranga): 1 kantlykkja garðaprjón, * prjónið 1 lykkju snúna brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna brugðið og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Endurtakið umferð 1 og 2, prjónið þar til stroffið mælist 15 cm. Geymið stykkið og prjónið framstykki. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stroffið mælist 15 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið síðan sléttar lykkjur yfir næstu 89-99-107-115-127-139 lykkjur og fækkið jafnframt um 16-20-22-22-24-26 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA, prjónið síðustu lykkjuna á framstykki slétt saman með fyrstu lykkju á bakstykki (= 1 lykkja færri), setjið eitt prjónamerki hér (= í hlið), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 89-99-107-115-127-139 lykkjur á bakstykki og fækkið jafnframt um 16-20-22-22-24-26 lykkjur jafnt yfir, prjónið síðustu lykkju á bakstykki slétt saman með fyrstu lykkju á framstykki, setjið eitt prjónamerki hér (= í hlið og þetta er byrjun á umferð). Nú eru 148-160-172-188-208-228 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 33-33-34-34-34-34 cm, fellið af 8-8-10-10-12-12 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið (þ.e.a.s. 4-4-5-5-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið) = 66-72-76-84-92-102 lykkjur fyrir framstykki og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 46-48-50-52-52-56 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið nú hringinn þannig: Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-8-8-8-8-10 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA = 38-40-42-44-44-46 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónamerkið á að fylgja með í stykkinu og er notað síðar þegar auka á út undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 8-8-7-8-8-8 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 3-3-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 10-10-12-13-15-15 sinnum = 58-60-66-70-74-76 lykkjur. Þegar ermin mælist 39-38-37-35-34-32 cm, fellið af 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi (þ.e.a.s 4-4-5-5-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 50-52-56-60-62-64 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg = 232-248-264-288-308-332 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt aftan á bakstykki (= 33-36-38-42-46-51 lykkjur hvoru megin við prjónamerki á bakstykki). Þetta er núna byrjun á umferð. Setjið eitt prjónamerki í ystu lykkjuna í hvorri hlið á bakstykki og framstykki (= 64-70-74-82-90-100 lykkjur á milli prjónamerkja með prjónamerki í mitt á framstykki og bakstykki og 50-52-56-60-62-64 lykkjur á ermum). Prjónamerkin eru notuð síðar þegar fækka á lykkjum fyrir laskalínu. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar berustykkið mælist 3-4-3-3-3-4 cm, byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 18-19-21-23-25-26 sinnum = 88-96-96-104-108-124 lykkjur. Þegar allar úrtökur hafa verið gerðar til loka á berustykkið að mælast 21-23-24-26-28-30 cm ef prjónfestan passar á hæðina. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-20-16-20-20-32 lykkjur jafnt yfir = 74-76-80-84-88-92 lykkjur. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Kantur í hálsmáli er brotinn út, eða inn og saumaður niður þannig að það verði tvöfalt uppábrot þannig: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (11)
Camilla Nygren wrote:
Hei, stemmer det at str XXl bare skal strikkes til 34 cm på armene? Det står: "Når ermet måler 39-38-37-35-34-32 cm" Jeg kan ikke forstå at et erme i stor størrelse skal være kortere enn i str S. Blir de ikke alt for korte? Håper på svar raskt - jeg har sendt tilsvarende spørsmål til Garnius men de svarer ikke (eller det tar 16 dager +). Med hilsen Camilla Nygren
13.03.2024 - 14:40DROPS Design answered:
Hei Camilla, Det er kortere ermer i større størrelsene pga videre skuldervidde og lengre bærestykke. Du kan allikevel justere ermelengden hvis du vil, ved å strikke lengre før man feller av til ermetoppen. God fornøyelse!
14.03.2024 - 12:36Anne B wrote:
Hvorfor står det ikke mål i oppskriften, som overvidde, lengde m.m...?
15.07.2023 - 22:14DROPS Design answered:
Hei Anne, Du finner en målskisse på bunnen av oppskriften, med alle mål til alle størrelser. God fornøyelse!
17.07.2023 - 07:41Jetje wrote:
Als je mindert voor de raglan zoals in dit patroon beschreven, waar blijft dan de markeerdraad? De markeerdraad zit in de 2e steek die wordt afgehaald en over de volgende wordt gehaald, dus dan verdwijnt hij toch als het ware in de overhaling?
01.12.2022 - 16:04DROPS Design answered:
Dag Jetje,
De steek die je op de rechter naald hebt na het minderen (dus de steek waar je de 2 afgehaalde steken overheen haalt), die kun je gebruiken om de markeerdraad weer in te zetten.
04.12.2022 - 16:28Beatrice Mikha wrote:
I have Sky wool in pale blue,which colour would you suggest for the alpaca silk?
16.09.2022 - 07:39DROPS Design answered:
Dear Mrs Mikha, for any assistance choosing the best matching colour, please contact your DROPS Store, it will be much easier for them to help you - even per mail or telephone Happy knitting!
16.09.2022 - 09:55Charlene wrote:
Lower section of this jumper seems complicated. Where can I find a pattern for a bottom-up jumper with raglan sleeves?
16.03.2022 - 13:13DROPS Design answered:
Dear Charlene, you will find some of our jumpers worked bottom up with raglan sleeves here. Happy knitting!
16.03.2022 - 13:38Imogen Hobson wrote:
Why are the stitches in the rib knitted from the back? Could I just knit them normally or would this affect the result greatly? Also: I have quite big holes whenever I increase using the "yarn over" method. Is there a better way for increasing? (Maybe I knit too loosely.)
08.02.2022 - 23:21DROPS Design answered:
Hi Imogen, The ribbing kan be worked as normal if you wish. It won't make much difference to the overall look of the jumper. When working the yarn overs after an increase, work them twisted (work in the back loop) to avoid holes. Happy knitting!
09.02.2022 - 07:48Gordana wrote:
Hei! Dette står om økning i antall masker i ermene: "Når arbeidet måler 8-8-7-8-8-8 cm fra oppleggskanten, økes det 1 maske på hver side av merketråden." Jeg lurer på hva oppleggskant er. Er det selve starten på ermet eller er det linjen når vrangbord går over til glattstrikk?
09.04.2021 - 10:34DROPS Design answered:
Hei Gordana, Det er begynnelsen på ermet. God fornøyelse!
12.04.2021 - 07:01Beata Pakulska wrote:
I do not know how to explain it i need a tutorial on how to cast off stiches for an armhole, when i finish the round there is one extra and it is in the middle of the gap, sjall i send a photo ?
10.03.2021 - 22:19DROPS Design answered:
Hi Beata, please send a photo to poland@dropsproject.com. Kind regards
11.03.2021 - 07:27Beata Pakulska wrote:
I do not know how to cast off stiche for armholes, that is my right question, because when I have made a round and come to the place when I started casting off ( the first 4 stiches) and when I ended with casting four ( the other side of the back) it seems there is one stich right in the middle.
10.03.2021 - 16:44DROPS Design answered:
Witaj Beato, nie wiem czy dobrze zrozumiałam - czy po zamknięciu oczek na podkroje rękawów zostaje ci nadplanowe oczko?
10.03.2021 - 20:37Anita wrote:
Salve, c'è una tabella per le misure? La misura M e la misura L a quanti cm di cirf. seno corrispondono? Grazie anticipatamente
07.12.2020 - 19:13DROPS Design answered:
Buonasera Anita, in fondo alle spiegazioni può trovare il diagramma con le misure: le confronti con un capo di simile vestibilità per trovare la sua taglia. Buon lavoro!
07.12.2020 - 21:13