DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4488.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Audrey Vest

Prjónað vesti / slipover úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með köntum í stroffprjóni, v-hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 220-43
DROPS Design: Mynstur sk-136
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-200-200-200-250-250 g litur 15, sjávarblár

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4488.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) :
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 118 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 24) = 4,9. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 4. og 5. hverja lykkju slétt saman.

ÚRTAKA-2 (á við um handveg og hálsmál):
Fækkið lykkjum innan við 2 lykkjur. Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið lykkjum í byrjun á umferð þannig:
Prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 síðustu lykkjurnar slétt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp fyrir kant í handvegi og v-hálsmáli sem prjónað er í stroffprjóni.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 118-130-138-150-166-182 lykkjur á hringprjón 3,5 með Sky. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, síðan er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 24-26-28-28-30-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 94-102-110-120-132-146 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum. Fækkið síðan lykkjum innan við 2 lykkjur, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið 8-11-14-16-21-27 sinnum – sjá ÚRTAKA-2 = 64-66-68-70-72-74 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af miðju 34-34-36-36-38-38 lykkjurnar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 14-15-15-16-16-17 lykkjur eftir fyrir öxl. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, stykkið mælist nú 25-26-27-28-29-30 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 118-130-138-150-166-182 lykkjur á hringprjón 3,5 með Sky. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, síðan er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 24-26-28-28-30-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 94-102-110-120-132-146 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm. Setjið 1 prjónamerki í miðju á stykki, þannig að það verða 47-51-55-60-66-73 lykkjur í hvorri hlið (prjónamerkið er notað síðar þegar fækka á lykkjum fyrir v-hálsmáli). LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig:
Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum. Fækkið síðan lykkjum innan við 2 lykkjur, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið 8-11-14-16-21-27 sinnum.

V-HÁLSMÁL:
Jafnframt þegar stykkið mælist 31-33-34-36-37-39 cm byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. Byrjið frá réttu og prjónið eins og áður að framan þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Setjið síðustu lykkjurnar á þráð án þess að prjóna þessar lykkjur.
Héðan eru axlirnar prjónaðar hvor fyrir sig, ekki klippa þráðinn frá. Vinstri öxl er nú prjónuð héðan (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu).

VINSTRI ÖXL (framstykki):
Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju í lok umferðar frá réttu. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) 17-17-18-18-19-19 sinnum til viðbótar (alls 18-18-19-19-20-20 úrtökur, fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman, fyrsta úrtakan er gerð þar sem framstykkið skiptist) = 14-15-15-16-16-17 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan þar til stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

HÆGRI ÖXL (framstykki):
Setjið lykkjur til baka af þræði á prjóninn.
Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan (fyrsta umferð er prjónuð frá réttu) og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju í byrjun umferðar frá réttu. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð (fækkið lykkjum með því að lyfta 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð) alls 18-18-19-19-20-20 sinnum = 14-15-15-16-16-17 lykkjur eftir á öxl. ATH: Fyrsta úrtakan er gerð í fyrstu umferð sem var prjónuð). Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan þar til stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Byrjið undir ermi og saumið hliðarsaum innan við kantlykkju – skiljið eftir ca 6 cm fyrir klauf.
Endurtakið í hinni hliðinni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu neðst í v-hálsmáli. Notið stuttan hringprjón 3,5 og prjónið upp ca 168 til 184 lykkjur innan við 1 lykkju í kringum allt op í hálsmáli (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4), byrjið neðst í v-hálsmáli, prjónið upp lykkjur meðfram úrtöku upp yfir hægri hlið, í kringum hálsmál að aftan og niður meðfram vinstri hlið. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Leggið hægri hluta á kanti í hálsmáli mitt að framan yfir vinstri hluta, þannig að hlutarnir vefjist saman. Saumið niður í ystu kantlykkju við hálsmál. Endurtakið alveg eins að innan verðu, þannig að stykkin séu saumuð niður til hægri innan á stykkinu.

KANTUR Í HANDVEGI:
Byrjið frá réttu við hliðarsaum undir handveg. Notið stuttan hringprjón 3,5 og prjónið upp ca 124 til 152 lykkjur í kringum allan handveginn (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Audrey Vest

Joe5, France

Audrey Vest

jsultz3, United States

Audrey Vest

mrsmamastomach, Spain

Audrey Vest

Zamotana.pl, Poland

Audrey Vest

Ola, Poland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-43

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (70)

country flag Margot wrote:

Bonjour, pour la plus petite taille, le nombre de mailles 116 (sans les mailles lisières) correspond à une largeur de 58cm et non pas 49cm. Comment cela se fait-il? Merci de votre aide!

02.05.2022 - 15:36

DROPS Design answered:

Bonjour Margot, comme il faut davantage de mailles pour tricoter des côtes avec les aiguilles 3,5 que du jersey avec les aiguilles 4,5, on monte 118 mailles en taille S, mais après les côtes, on diminue à 94 mailles, soit 46 cm de large, sans les mailles lisières. Bon tricot!

02.05.2022 - 16:06

country flag Juleselyot wrote:

Hej, skal strikkefastheden testes på pind 4,5 mm eller 3,5 mm? Er der en regel for dette i opskrifter hvor der bruges flere pindestørrelser? Mvh Julie

19.04.2022 - 21:53

DROPS Design answered:

Hej, vi har brugt pind nr 4,5 til det glatstrikkede - god fornøjelse! :)

22.04.2022 - 12:44

country flag Ingrid wrote:

Ihre Anleitungen sind immer super gut. Ich habe schon viele nachgestrickt.

23.03.2022 - 11:37

country flag Ingrid wrote:

Es gibt einen speziellen Reissverschluss für Strickjacken. Können Sie mir sagen, wo ich diesen in Deutschland kaufen kann?

23.03.2022 - 11:36

DROPS Design answered:

Liebe Ingrid, am besten wenden Sie sich an Ihrem DROPS Laden, dort wird man Ihnen gerne weiterhelfen - auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!

23.03.2022 - 14:10

country flag Laurie wrote:

I am working on the front and have just split for the v-neck. For the armhole decreases, are these done every row, RS and WS or just on the RS? Thx.

19.03.2022 - 19:25

DROPS Design answered:

Dear Laurie, the armhole decreases are worked at the start of each row, so both in the RS and WS. Happy knitting!

20.03.2022 - 18:58

country flag An wrote:

Ik had een vraag bij de minderingen aan de armsgaten en de v-hals. Is het correct dat de minderingen bij IEDERE naald die men recht breit , moeten gebeuren? Dus naald 1 recht = minderen Naald 2 averecht = niet minderen Naald 3 recht = opnieuw minderen Enzovoort DUS: armsgaten EN V-hals minderen even snel? (voor de armsgaten is het duidelijk beschreven, maar ik ben niet zeker voor de V-hals) Bedankt voor de verduidelijking

23.02.2022 - 09:35

DROPS Design answered:

Dag An,

Nee, bij de armsgaten kant je af

aan het begin van iedere naald. Dus bijvoorbeeld bij het voorpand minder je de heengaande naald, dus de naald recht, voor het linker armsgat en de teruggaande naald minder je voor het rechter armsgat. Voor de hals minder je wel steeds in een naald aan de goede kant, naast de kantsteek. Dat betekent dus dat je voor de rechter kant (gezien zoals het kledingstuk gedragen wordt) van de v-hals steeds aan het begin moet minderen en aan de linkerkant steeds aan het eind moet minderen. Of dit gelijk op gaat met het armsgat is afhankelijk van je maat denk ik.

26.02.2022 - 13:47

country flag An wrote:

Ik had een vraag bij de minderingen aan de armsgaten en de v-hals Is het correct dat de minderingen bij IEDERE naald die men recht breit , moeten gebeuren? Dus naald 1 recht = minderen Naald 2 averecht = niet minderen Naald 3 recht = opnieuw minderen Enzovoort DUS: armsgaten EN V-hals minderen even snel? Bedankt voor de verduidelijking

22.02.2022 - 23:59

country flag Rita Jülicher wrote:

Die beidseitigen Abnahmen Gr. XL 21 x 1 Masche werden sowohl in Hin-als auch in Rückreihen gemacht? Oder nur in Hinreihen?

20.02.2022 - 22:39

DROPS Design answered:

Liebe Frau Jülicher, die Anbahmen für Armausschnitt werden nur bei Hinreihen gestrickt - siehe ABNAHMETIPP-2 (gilt für die Armausschnitte):. Viel Spaß beim stricken!

21.02.2022 - 10:09

country flag Gallet Danièle wrote:

Comment relever les mailles sur encolure en V sur l'endroit

19.02.2022 - 12:30

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gallet, cette vidéo montre comment relever des mailles le long du côté de l'ouvrage, procédez de la même façon le long de la diagonale, et cette vidéo montre comment les relever le long de l'encolure dos; si vous n'avez pas le bon nombre de mailles lorsque vous les relevez, augmentez/diminuez à intervalles réguliers au 1er rang. Bon tricot!

21.02.2022 - 09:14

country flag Ann wrote:

Ik ben een beetje in de war over de te gebruiken steek. Ik wil de panden breien met "klassieke" naalden. Is het dan altijd rechts? (maw. dan zijn er ribbels). Zo staat immers het in het begin van de beschrijving. Maar verder in de beschrijving spreekt men van tricotsteek - Dus een naald rechts en dan een naald averrechts? Op de foto lijkt het me ribbelsteek? bedankt voor de verduidelijking.

15.02.2022 - 09:20

DROPS Design answered:

Dag Ann,

Tricotsteek is steeds recht aan de verkeerde kant en averecht aan de goede kant, waardoor de steken er aan de goede kant als de letter v eruit zien. Wanneer je in de rondte breit, brei je de steken steeds recht aan de goede kant. Wanneer je heen en weer breit, brei je recht aan de goede kant en averecht aan de verkeerde kant.

17.02.2022 - 11:02