DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2958.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Flower Wish Wrap

Prjónuð vafningspeysa úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað með gatamynstri og stuttum puffermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 222-13
DROPS Design: Mynstur fl-060
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-300-350-350-400-450 g litur 21, bleikur

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR (2 stk) NR 3: Fyrir snúru..
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2958.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (á við um í hliðum á bakstykki og framstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum innan við 3 ystu lykkjurnar í hvorri hlið.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 3 FYRSTU LYKKJUM AÐ HLIÐ ÞANNIG:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN SÍÐUSTU 3 LYKKJUM AÐ HLIÐ ÞANNIG:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 3 síðustu lykkjum og prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman.

ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál að framan):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 9 KANTLYKKJUM AÐ FRAMAN Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 9 KANTLYKKJUM AÐ FRAMAN Í GARÐAPRJÓNI:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 9 kantlykkjum að framan og prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um í hliðum á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út innan við 3 ystu lykkjur í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.
Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkin, bakstykkið og ermar er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónuð snúra.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 98-109-118-131-142-158 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 2,5 með Flora. Prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 5-6-6-8-9-8 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 9 lykkjur), prjónið A.2 yfir næstu 72-81-90-99-108-126 lykkjur (= 8-9-10-11-12-14 mynstureiningar með 9 lykkjum), prjónið A.3 (= 5 lykkjur), prjónið 5-6-6-8-9-8 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-1.
Endurtakið úrtöku í hvorri hlið þegar stykkið mælist 8 cm = 94-105-114-127-138-154 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 12-12-13-13-13-13 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-4-4½-4½-5-5 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 102-113-122-135-146-162 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 5 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 3 lykkjur 0-0-1-1-2-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-2-4-4-5 sinnum og 1 lykkja 2-4-5-6-7-9 sinnum í hvorri hlið = 84-87-88-91-94-96 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATH: Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í einu heilu gatamynstri út við handveg eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 45-47-49-51-53 55 cm, fellið af miðju 22-23-24-25-28-30 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 29-30-30-31-31-31 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 65-75-79-88-96-104 lykkjur (meðtaldar 9 kantlykkjur við miðju að framan og 1 kantlykkja að hlið) á hringprjón 2,5 með Flora. Prjónið 8 umferðir garðaprjón.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá miðju að framan): 9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 0-0-4-2-0-0 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 9 lykkjur), prjónið A.2 yfir næstu 36-45-45-54-63-72 lykkjur (= 4-5-5-6-7-8 mynstureiningar með 9 lykkjum), prjónið A.3 (= 5 lykkjur), prjónið 5-6-6-8-9-8 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju í hlið – munið eftir ÚRTAKA-1.
Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8 cm = 63-73-77-86-94-102 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 12-12-13-13-13-13 cm, á bæði að fækka lykkjum fyrir hálsmáli við miðju að framan og auka út í hliðum alveg eins og á bakstykki. Þetta er gert eins og útskýrt er að neðan:

HÁLSMÁL:
Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 8-17-17-22-31-32 sinnum og síðan í 6. hverri umferð alls 12-8-8-6-1-1 sinnum.

ÚTAUKNING Í HLIÐ:
Aukið út um 1 lykkju í hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-4-4½-4½-5-5 cm millibili alls 4 sinnum í hlið.

HANDVEGUR:
Jafnframt þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 5 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 3 lykkjur 0-0-1-1-2-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-2-4-4-5 sinnum og 1 lykkja 2-4-5-6-7-9 sinnum.

Eftir alla úrtöku og útaukningu eru 38-39-39-40-40-40 lykkjur eftir í umferð.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka með 9 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg. ATH: Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í einu heilu gatamynstri út að hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, fellið af fyrir öxl þannig: Byrjið frá röngu og fellið af fyrstu 29-30-30-31-31-31 lykkjur = 9 lykkjur garðaprjón eftir á prjóni. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þessar 9 lykkjur garðaprjón þar til stykkið mælist ca 7-7-8-8-8-9 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir öxl. Fellið af með sléttum lykkjum frá röngu.

VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 65-75-79-88-96-104 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 9 kantlykkjur að framan við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Flora. Prjónið 8 umferðir garðaprjón.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hlið): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 5-6-6-8-9-8 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 9 lykkjur), prjónið A.2 yfir næstu 36-45-45-54-63-72 lykkjur (= 4-5-5-6-7-8 mynstureiningar með 9 lykkjum), prjónið A.3 (= 5 lykkjur), prjónið 0-0-4-2-0-0 lykkjur sléttprjón og endið með 9 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju í hlið – munið eftir ÚRTAKA-1.
Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8 cm = 63-73-77-86-94-102 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 12-12-13-13-13-13 cm, á bæði að auka út í hlið alveg eins og á bakstykki og fækka lykkjum fyrir hálsmáli við miðju að framan. Þetta er gert eins og útskýrt er að neðan:
Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju í hlið – munið eftir ÚRTAKA-1.
Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8 cm = 63-73-77-86-94-102 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 12-12-13-13-13-13 cm, á bæði að fækka lykkjum fyrir hálsmáli við miðju að framan og auka út í hliðum á sama hátt og á bakstykki. Þetta er gert eins og útskýrt er að neðan:

ÚTAUKNING Í HLIÐ:
Aukið út um 1 lykkju í hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-4-4½-4½-5-5 cm millibili alls 4 sinnum í hlið.

HÁLSMÁL:
Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 8-17-17-22-31-32 sinnum og síðan í 6. hverri umferð alls 12-8-8-6-1-1 sinnum.

HANDVEGUR:
Jafnframt þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 5 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 3 lykkjur 0-0-1-1-2-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-2-4-4-5 sinnum og 1 lykkja 2-4-5-6-7-9 sinnum.

Eftir alla úrtöku og útaukningu eru 38-39-39-40-40-40 lykkjur eftir í umferð.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg og 9 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan. ATH: Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í einu heilu gatamynstri út að hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, fellið af fyrir öxl þannig: Byrjið frá réttu og fellið af fyrstu 29-30-30-31-31-31 lykkjur = 9 lykkjur garðaprjón eftir á prjóni. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þessar 9 lykkjur garðaprjón þar til stykkið mælist ca 7-7-8-8-8-9 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir öxl. Fellið af með sléttum lykkjum frá röngu.

ERMI:
Fitjið upp 66-74-82-86-94-102 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 2,5 með Flora. Prjónið 8 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan A.4. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 98-110-122-128-140-152 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni og uppsláttur er prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat).
Prjónið síðan sléttprjón.
Þegar stykkið mælist 17-16-16-15-15-13 cm, er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 5 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni og síðan 1 lykkju 13-15-16-18-19-23 sinnum í hvorri hlið = 58-66-76-78-88-92 lykkjur eftir. Nú eru eftir 2 umferðir þar til stykkið mælist 27-27-28-28-29-29 cm.
Í næstu umferð frá réttu eru prjónaðar fyrstu 4-0-4-6-4-2 lykkjur slétt saman 2 og 2 (= 2-0-2-3-2-1 lykkja færri), prjónið síðan þær 54-66-72-72-84-90 lykkjur sem eftir eru slétt saman 3 og 3 = 20-22-26-27-30-31 lykkjur eftir í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.
Ermin mælist ca 27-27-28-28-29-29 cm ofan frá og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið saman 9 lykkjur garðaprjón frá kanti mitt að aftan með sauminn inn að röngu og saumið síðan kant í garðaprjóni við hálsmál aftan í hnakka með sauminn inn að röngu.
Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram handveg. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjón, en skiljið eftir smá op í hægri hlið á stykki (þegar flíkin er mátuð) til að þræða snúruna í gegn. Opið á að vera ca 2½ til 3 cm og staðsett ca 8-8-9-9-9-9 cm frá neðri kanti og upp að handveg.

SNÚRA:
Prjónið upp 8 lykkjur meðfram framstykki á prjóna 3 með Flora, þannig að það eru ca 9-9-10-10-10-10 cm frá neðri kanti og upp að fyrstu af þessum 8 lykkjum. Á hægra framstykki er prjónað garðaprjón fram og til baka þar til snúran mælist ca 84 til94 cm, fellið af. Á vinstra framstykki er prjónað garðaprjón fram og til baka þar til snúran mælist ca 40 til 50 cm, fellið af.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Katja wrote:

Moi, kun hihoja päätellään (Päätä 5 silmukkaa 1-1-1-1-1-1 kertaa, 2 silmukkaa 1-1-1-1-1-1 kertaa ja sitten 1 silmukka 13-15-16-18-19-23 kertaa kummassakin reunassa) kuuluuko päättelykerroksen väliin neuloa yksi välikerros? Koska ilman välikerrosta päättelykerroksien pituus on noin 5cm kun ohjeessa lukee että korkeus olisi kuulunut kasvaa 10cm?

25.08.2021 - 10:17

DROPS Design answered:

Silmukat päätetään aina kerrosten alusta, joten kun olet päättänyt kummastakin reunasta ensimmäiset 5 silmukkaa, olet neulonut 2 kerrosta.

09.09.2021 - 17:20

country flag Erzsebet wrote:

Nice pattern and design. And i love the sleeves!

10.02.2021 - 11:35

country flag Odile wrote:

J'aime aussi beaucoup ce modele

18.01.2021 - 12:53

country flag Elizabeth wrote:

Delicata

16.01.2021 - 17:17

country flag Merike wrote:

Hydrangea

09.01.2021 - 09:54