Red River Cave |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Heklaður toppur úr DROPS Safran. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð XS - XXL.
DROPS 223-28 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur. Þessar loftlykkjur koma ekki í veg fyrir 1. stuðul, heldur eru heklaðar sem viðbót við lykkjur í umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til að reikna út hvernig auka á út jafnt yfir, teljið lykkjufjöldann sem auka á út yfir (t.d. 94 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 5,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla í ca 5. hverja lykkju. ÚRTAKA: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla næstu 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Kantur á ermum er heklaður í hring ofan frá og niður. ATH: Það er mikilvægt að heklfestan haldist á hæðina til að mál á lengd á berustykki passi. BERUSTYKKI: Heklið 95-103-103-109-109-115 loftlykkjur – sjá HEKLFESTA FYRIR LOFTLYKKJU með heklunál 4 með Safran og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 3 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið síðan 1 stuðul í hverja af 94-102-102-108-108-114 loftlykkjum og aukið jafnframt út 18-22-22-28-40-46 stuðla jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 112-124-124-136-148-160 stuðlar. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta prjónamerki: Setjið 1. prjónamerki í byrjun á umferð. Annað prjónamerki: Hoppið yfir næstu 16 lykkjur, setjið 2. prjónamerki hér. Þriðja prjónamerki: Hoppið yfir næstu 40-46-46-52-58-64 lykkjur, setjið 3. prjónamerki hér. Fjórða prjónamerki: Hoppið yfir næstu 16 lykkjur, setjið 4. prjónamerki hér. Nú eru 40-46-46-52-58-64 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Prjónamerkin eiga að fylgja með í stykkinu. Þau eiga að vera á undan hverri mynstureiningu A.2 í umferð og eru notuð þegar auka á út jafnt yfir. Heklið nú mynstur og aukið út þannig: A.1 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar. Heklið A.2 yfir fyrstu 4 stuðla, A.3 yfir næstu 12 stuðla (= 2 mynstureiningar með 6 lykkjum), A.2 yfir næstu 4 stuðla, heklið A.3 yfir næstu 36-42-42-48-54-60 stuðla (= 6-7-7-8-9-10 mynstureiningar með 6 lykkjum), A.2 yfir næstu 4 stuðla, A.3 yfir næstu 12 stuðla, A.2 yfir næstu 4 stuðla, A.3 yfir síðustu 36-42-42-48-54-60 stuðla. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur, jafnframt er aukið út jafnt yfir: Í 6. umferð í mynstri er aukið út þannig: Heklið * A.2 eins og áður, heklið A.3 fram að næsta prjónamerki og aukið jafnframt út 0-6-6-6-6-6 stuðla jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING (= 12-18-18-18-18-18 lykkjur), heklið A.2 eins og áður, heklið A.3 fram að næsta prjónamerki og aukið jafnframt út 6-6-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir (= 42-48-54-60-66-72 lykkjur) *, heklið *-* 1 sinni til viðbótar í umferð (= 12-24-36-36-36-36 lykkjur fleiri) = 180-204-216-228-240-252 lykkjur í umferð. Í stærð XS, S og M er heklað áfram frá ALLAR STÆRÐIR að neðan. Í stærð L, XL og XXL er aukið út þannig: Í 10. umferð í mynstri er aukið út þannig: Heklið * A.2 eins og áður, heklið A.3 fram að næsta prjónamerki og aukið jafnframt út 6-6-6 lykkjur jafnt yfir (= 24-24-24 lykkjur), A.2, heklið A.3 eins og áður fram að næsta prjónamerki og aukið jafnframt út 6-6-6 lykkjur jafnt yfir (= 66-72-78 lykkjur) *, heklið *-* 1 sinni til viðbótar í umferð (= 24-24-24 lykkjur fleiri) = 288-300-312 lykkjur í umferð. ALLAR STÆRÐIR: Heklið þar til A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina. Í síðustu umferð í A.2 er sett 1 nýtt prjónamerki mitt í umferð A.2 (þ.e.a.s. 18 stuðlar hvoru megin við prjónamerki í hverri og einni af 4 mynstureiningum með A.2). Takið frá öll eldri prjónamerki (= 4 prjónamerki eftir í stykki). Lykkjur á milli prjónamerkja merkja skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (= 48-54-54-60-60-60 stuðlar á hvorri ermi). Nú eru 252-276-288-324-336-348 stuðlar í umferð. Heklið nú mynstur þannig: A.4 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar. Haldið áfram með A.3 hringinn í umferð og yfir 36 stuðla í A.2 eru heklaðar 6 mynstureiningar með A.3. Þegar A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina 1 sinni, endurtakið mynstur A.3a á hæðina. Heklið svona þar til stykkið mælist 20-20-22-24-26-28 cm frá byrjun á berustykki – stillið af að endað sé eftir 1., 3., 7., 12. eða 13. umferð í A.3a! Þetta er gert svo það verði einfaldara að hekla mynstur á fram- og bakstykki og ermum. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.3a fram að fyrsta prjónamerki (= 3 mynstureiningar fyrir bakstykki), heklið 8-8-8-10-10-10 loftlykkjur, hoppið yfir lykkjur á milli 2 prjónamerkja (= 8-9-9-10-10-10 mynstureiningar fyrir ermi), heklið A.3a fram að næsta prjónamerki (= 13-14-15-17-18-19 mynstureiningar fyrir framstykki), heklið 8-8-8-10-10-10 loftlykkjur, hoppið yfir lykkjur á milli 2 prjónamerkja (= 8-9-9-10-10-10 mynstureiningar fyrir ermi), heklið A.3a út umferðina (= 10-11-12-14-15-16 mynstureiningar – Nú eru alls 13-14-15-17-18-19 mynstureiningar fyrir bakstykki). Klippið þráðinn og festið. FRAM- OG BAKSTYKKI: Byrjið í 5. loftlykkju af 8-8-8-10-10-10 loftlykkjum undir ermi í annarri hlið. Heklið 3 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í sömu loftlykkju. Heklið síðan 1 stuðul í hverja og eina af næstu 3-3-3-5-5-5 loftlykkjur, heklið A.3a eins og áður fram að loftlykkjum undir hinni erminn, 1 stuðull í hverja af 8-8-8-10-10-10 loftlykkjum undir ermi. Heklið A.3a eins og áður fram að loftlykkjum undir ermi, heklið 1 stuðul í hverja og eina af síðustu 4-4-4-4-4-4 loftlykkjum undir ermi = 172-184-196-224-236-248 lykkjur. Þær 8-8-8-10-10-10 loftlykkjur undir ermi eru heklaðar í stuðlum. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Í fyrstu umferð í A.3a sem er hekluð með stuðlum er fækkað um 4-4-4-2-2-2 stuðla jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 168-180-192-222-234-246 lykkjur. Heklið síðan A.3a umferðina hringinn (= 28-30-32-37-39-41 mynstureiningar í umferð). Endurtakið A.3a á hæðina. Þegar stykkið mælist 12 cm, stillið af að næsta umferð sé með stuðlum, fækkið um 6 stuðla jafnt yfir = 162-174-186-216-228-240 stuðlar. A.3a er nú endurtekið 27-29-31-36-38-40 sinnum í umferð. Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá prjónamerki, stillið af að næsta umferð sé með stuðlum, aukið út 6 stuðla jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í hverri og einni af næstu 3 umferðum með stuðlum (= 24 lykkjur fleiri) = 186-198-210-240-252-264 stuðlar. A.3a er endurtekið 1 sinni fleiri á breiddina í hvert skipti sem aukið er út. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka endurtakið A.3a 31-33-35-40-42-44 sinnum á breiddina. Heklið þar til stykkið mælist 34-36-36-36-36-36 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé eftir umferð með stuðlum. Klippið þráðinn frá og festið. Toppurinn mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. KANTUR ERMI: Byrjið í 4. loftlykkju af 8-8-8-10-10-10 loftlykkjum undir ermi. Heklið 3 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í sömu loftlykkju. Heklið síðan 1 stuðul í hverja af næstu 4-4-4-6-6-6 loftlykkju, heklið næstu umferð í A.3a (þ.e.a.s. í umferð með stuðlum) þar til 3 loftlykkjur eru eftir í umferð, heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 3 loftlykkjum. Nú er eftir 1 umferð með stuðlum og 1 umferð með fastalykkjum/loftlykkjum – heklið e.t.v. áfram með 1 stuðul í hvern stuðul að óskaðri lengd. Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul og fækkið jafnframt um 10-10-8-10-6-4 stuðla jafnt yfir = 46-52-54-60-64-66 stuðla. Heklið * 1 fastalykkju í fyrsta/næsta stuðul, 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* í kringum alla ermina. Klippið þráðinn frá og festið. Heklið hinn kant á ermi á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (53)
Séverine wrote:
Bonjour Où puis-je trouver les mensurations pour savoir quelle taille choisir pour un pull au crochet merci
30.04.2024 - 21:20DROPS Design answered:
Bonjour Séverine, mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma du bas de page; vous trouverez ainsi la taille correspondante. Retrouvez plus d'infos ici. Bon crochet!
02.05.2024 - 07:50Doris Herrmann wrote:
Ich habe zu wenige Maschen nach den Zunahmen. Es sollten nach der Runde 6 252 Maschen sein. Ich habe aber nur 196 Maschen. Wo liegt denn mein Denkfehler? Ich habe für Größe XXL 115 Maschen angeschlagen, die Runde geschlossen und danach 46 Maschen zugenommen. In Runde 6 insg. 36 Maschen zugenommen. Was habe ich da falsch verstanden? Danke für die Hilfe. MfG
19.04.2024 - 11:52DROPS Design answered:
Liebe Frau Herrmann, nach der 6. Runde haben Sie: 18 M in A.2, 12+6 = 18 M A.3, 18 M A.2, 60+12= 72 M A.3, 18 M A.2, 12+6 = 18 M A.3, 18 M A.2 und 60+12=72 M A.3 = 18+18+18+72+18+18+18+72=252 Maschen. Hoffentlich kann das Ihnen helfen. Viel Spaß beim häkeln!
19.04.2024 - 12:33Giusi wrote:
Non capisco il giro numero 6: lavoro A.2 come da schema/lavoro A 3 con 18 aumenti/lavoro A 2 come da schema/lavoro A . 3 con 60 aumenti. Mi sembra sproporzionato . Poi devo lavorare tutto un'altra volta sul giro con 36 aumenti.... non riesco a capire Giusi
07.04.2024 - 12:13Giusi wrote:
Buongiorno. Ho iniziato il lavoro ma arrivata al giro numero 6 mi sono bloccata perché mi risulta incomprensibile. Ho riscontrato dalle domande delle altre signore che hanno Incontrato le mie stesse difficoltà . Sarò grata se potrete aiutarmi. Giusi
04.04.2024 - 23:22DROPS Design answered:
Buongiorno Giusi, può spiegarci meglio il suo problema? Buon lavoro!
06.04.2024 - 09:41Sandra wrote:
Hallo liebes Team, ich versuche mich gerade an diesem Modell und habe ab Reihe 6 ein Problem. Die Markierer sitzen nicht mittig über dem Schulterbereich. Rapport, Maschen Zunahmen, alles habe ich mehrfach überprüft und alles stimmt. Wo könnte der Fehler liegen??? Viele liebe Grüße, Sandra
10.01.2024 - 12:08DROPS Design answered:
Liebe Sandra, die Markierer sollen genauso wie zuvor sein, als die Zunahmen in A.3 gehäkelt werden, je nach der Grösse wird man entweder 0 (Größe S, Armel), oder 1 Rapport (6 Zunahmen) oder 2 Rapporter (12 Zunahmen) zunehmen, so gibt es 0-1-1-1-1-1 Rapport zwischen Anfang der Runde und 1. Markierer / 2. und 3. Markierer und 1-1-2-2-2-2 Rapporter mehr zwischen 1. und 2. + zwischen 3. und 4. Markierer. Viel Spaß beim häkeln!
10.01.2024 - 16:15Mette wrote:
Hei. Slik jeg tolker oppskriften så er det kunne 1 rad med staver før man går på første omg med luftmaskebuer i diagrammet, men på bildet så er det 2 rader med staver før første rad på mønsteret. Er det bare 1 rad staver før man begynner på diagram eller 2?
30.05.2023 - 18:01DROPS Design answered:
Hej Mette, jeg tror du har ret i at der skal være 2 rader med staver - tak for info :)
01.06.2023 - 14:13Maririta Bianchi wrote:
Salve, vorrei fare questo modello con un filato più sottile utilizzando al massimo uncino n. 3. ho fatto un rapido conto di quante maglie dovrei aggiungere e come suddividerle ( il mio campione è 25 ma x 14 giri = 10cm x10cm ) ma seguendo lo schema come faccio a calcolare quanti giri in più devo fare per ottenere la stessa lunghezza ?, grazie per la vostra attenzione
15.05.2023 - 18:09DROPS Design answered:
Buonasera Maririta, per un aiuto così personalizzato può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
15.05.2023 - 21:37Thea Emilie wrote:
Hei! Når en skal øke antall masker i rad 6 i diagrammet skjønar eg ikkje korleis eg skal auke, ettersom aukinga skal skje i A.3. A.2 har stavmasker i maska under i rad 6, men A.3 har ingen rad 6 og eg byrjer då på botnen av diagrammet, der rad ein er fastmasker, luftmasker og stavar, skal eg auke i denne rada? Eller hekle stavmasker slik som ein har i rad 6 i A.2?
11.05.2023 - 12:43DROPS Design answered:
Hei Thea. Jo, 6. rad i A.3 består bare av staver, samme som 6. rad i A.2. mvh DROPS Design
15.05.2023 - 11:31Christine Rivière wrote:
Bonjour au rang 4 dans A 2 commence par 2 bride s espacée d’une maille en l’air puis un arceau de 4mailles en l’air ,une maille serrés et 4 mailles en l’air alors que dans A3 c’est 1 bride et les arceaux ont 3 mailles en l’air..est ce une erreur ou dois je bien repérer ou ce situe la section A2sur tous le rang pour faire le nombre exact de brides.merci
01.04.2023 - 22:30DROPS Design answered:
Bonjour Mme Rivière, le diagramme A.2 permet les augmentations, il est donc normal qu'il soit différent de A.3. Pensez à bien suivre les diagrammes tels qu'ils sont, n'hésitez pas à ajouter des marqueurs pour bien les délimiter si besoin. Bon crochet!
11.04.2023 - 10:22Tina wrote:
Thank you for your response, Through a few trials and errors, I managed to figure it out. Your response to Larraine confirmed my final trial. I find your original instructions not detailed enough and are very hard to follow. I love the photo of the finished project, so I am persevering.
07.11.2022 - 04:17