Dino Cuddles |
|
|
|
Hekluð risaeðla tyrannosaurus rex (T-Rex) úr DROPS Snow. Stykkið er heklað frá nefi að hala með einungis einum saum. Þema: Leikföng.
DROPS Children 41-29 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR (á við um loftlykkjur): 1 loftlykkja á að jafngilda 1 fastalykkju á breidd. Passið uppá að lykkjan sem er gerð í loftlykkju dragist aðeins upp á heklunálina svo að hún verði ekki of stíf. Ef loftlykkjurnar eru heklaðar of fast, kemur mynstrið til með að dragast saman í þeim einingum þar sem margar loftlykkjur eru HEKLAÐ SAMAN: Heklið 2 fastalykkjur saman að 1 fastalykkju þannig: Stingið heklunálinni í gegnum fyrstu lykkjuna og sækið þráðinn, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn (= 3 lykkjur á heklunálinni), bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). LYKKJUSPOR: Saumið með einföldum svörtum þræði. Augun eru saumuð út yfir 1. og 2. umferð í andliti og það eru 5 lykkjur á milli augna. Sjá mynsturteikningu sem sýnir hvernig lykkjusporið er gert. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- RISAEÐLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað með 2 þráðum. Heklað er frá nefi að hala með einungis 1 saum mitt undir búk. Fyrstu eru heklaðir 4 fætur sem lagðir eru til hliðar um stund. Risaeðlan byrjar við nef, síðan er höfuðið heklað. Hálsinn og búkurinn er heklað í framhaldi á höfði jafnframt því sem fram- og afturfætur eru heklaðir fastir. Síðan er neðri hlutinn heklaður á búk, halinn og bakið heklað saman. Að lokum eru gaddarnir heklaðir meðfram baki. FRAMFÓTUR: Heklið 2 loftlykkjur með heklunál 8, með 2 þráðum DROPS Snow í litnum karri – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. Í fyrstu loftlykkju eru heklaðar 5 fastalykkjur, þetta verður lítill hringur með lykkjum. Endið hringinn með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, þar með er hringurinn fastur og 1. umferð er lokið. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 2 fastalykkjur í hverja lykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, það eru 10 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn frá og skiptið yfir í 2 þræði í litnum sægrænn. UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, * 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn (= 15 lykkjur). Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. UMFERÐ 4-9: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 15 lykkjur). Klippið frá og dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Heklið annan fót á sama hátt og fyllið fæturna með vatti. AFTURFÆTUR: Heklið á sama hátt og FRAMFÆTUR, nema nú er hekluð umferð meira í litnum karrí áður en skipt er yfir í litinn sægrænn. NEF: Heklið 2 loftlykkjur með heklunál 8 með 2 þráðum sægrænn. Í fyrstu loftlykkju eru heklaðar 5 fastalykkjur, þetta verður lítill hringur af lykkjum. Endið hringinn með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, þar með er hringurinn fastur og 1. umferð er lokið. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, síðan eru heklaðar 2 fastalykkjur í hverja lykkju (= 10 lykkjur). Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, * 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, * heklið frá *-* umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 15 lykkjur). UMFERÐ 4: Heklið 1 loftlykkju, * 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 2 lykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 20 lykkjur). UMFERÐ 5: Heklið 1 loftlykkju, * 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 3 lykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 25 lykkjur). UMFERÐ 6: Heklið 1 loftlykkju, * 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 4 lykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 30 lykkjur). UMFERÐ 7-11: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 30 lykkjur). UMFERÐ 12: Heklið 1 loftlykkju, * heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af 2 næstu fastalykkjum, heklið 2 næstu fastalykkjur saman til 1 1 fastalykkju – sjá HEKLAÐ SAMAN í útskýringu að ofan *, heklið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir. Heklið 1 fastalykkju í hvora af 2 síðustu fastalykkjum og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 23 lykkjur í hring). UMFERÐ 13: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 23 lykkjur). ANDLIT: Nú er ekki lengur heklað í hring, stykkið er heklað fram og til baka héðan. UMFERÐ 1-4: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af 23 lykkjum. Snúið stykkinu. UMFERÐ 5-6: 1 loftlykkja, heklið 2 lykkjur í fyrstu lykkjuna, 1 fastalykkja í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir og heklið 2 lykkjur í síðustu lykkjuna (= 2 lykkjur fleiri í hverri umferð) (= 27 lykkjur). Snúið stykkinu. UMFERÐ 7-8: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju. Snúið stykkinu. Nú eru saumuð út 2 augu í andlitið með LYKKJUSPORI – sjá útskýringu að ofan. HÁLS: Meðfram hlið á ANDLIT hafa verið heklaðar 8 umferð, nú á að hekla áfram fram og til baka meðfram báðum að 2 hliðum á andliti, þ.e.a.s. meðfram alls 16 umferðum: UMFERÐ 1: Heklið 2 fastalykkjur í síðustu umferð sem var hekluð í andliti, * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 umferðum í andliti, 2 fastalykkjur í næstu umferð á andliti *, heklið frá *-* út umferðina = 22 lykkjur. Snúið stykkinu. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina. Snúið stykkinu. UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir, heklið 2 fastalykkjur í síðustu lykkjuna (= 2 lykkjur fleiri). Snúið stykkinu. Heklið umferð 2 og 3 þar til heklaðar hafa verið alls 6 umferðir í hálsi (= 26 lykkjur í 6. umferð). Snúið stykkinu. BÚKUR: Nú eru báðir framfæturnir heklaðir á búkinn, heklað er fram og til baka. UMFERÐ 1: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 4 lykkjum, brjótið annan framfótinn saman tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 lykkjur sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja lykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 4 fastalykkjur (= mitt að framan/á milli framfóta), brjótið hinn framfótinn saman tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 lykkjurnar sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af 4 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í síðustu lykkju (= 28 lykkjur). Snúið stykkinu. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju. Snúið stykkinu. UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir, 2 fastalykkjur í síðustu lykkju (= 2 lykkjur fleiri). Snúið stykkinu. Heklið umferð 2 og 3 þar til heklaðar hafa verið alls 5 umferðir á búk (= 32 lykkjur í 5. umferð). Snúið stykkinu. UMFERÐ 6: Í þessari umferð er aukið út fyrir maga þannig: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 8 lykkjum, * 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls 7 sinnum, heklið 2 fastalykkjur í næstu lykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 7 lykkjum, 2 fastalykkjur í síðustu lykkju (= 10 lykkjur fleiri, það eru 42 lykkjur í umferð). Snúið stykkinu. UMFERÐ 7: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina. Snúið stykkinu. UMFERÐ 8: Í þessari umferð er einnig aukið út fyrir maga þannig: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 16 lykkjum, * 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls 4 sinnum, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 16 lykkjum, 2 fastalykkjur í síðustu lykkju (= 6 lykkjur fleiri, nú eru 48 lykkjur í umferð). Snúið stykkinu. UMFERÐ 9: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina. Snúið stykkinu. UMFERÐ 10: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir, heklið 2 fastalykkjur í síðustu lykkju (= 2 lykkjur fleiri, það eru 50 lykkjur í umferð). Snúið stykkinu. UMFERÐ 11: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina. Snúið stykkinu. UMFERÐ 12: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir, 2 fastalykkjur í síðustu lykkju (= 2 lykkjur fleiri, það eru 52 lykkjur í umferð). Snúið stykkinu. UMFERÐ 13: Nú eru afturfæturnir heklaðir á búkinn. Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af fyrstu 15 lykkjum, brjótið saman annan afturfótinn tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 fastalykkjur sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja lykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 10 lykkjum (= mitt að framan/á milli afturfóta), brjótið hinn afturfótinn saman tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 fastalykkjur sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja lykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af síðustu 15 fastalykkjum. Snúið stykkinu. NEÐRI HLUTI: UMFERÐ 1-3: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju. Snúið stykkinu. UMFERÐ 4: Í þessari umferð er lykkjum fækkað fyrir flatan botn þannig: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af fyrstu 18 lykkjum, * næstu 2 fastalykkjur eru heklaðar saman í 1 fastalykkju – sjá HEKLAÐ SAMAN í útskýringu að ofan *, heklið frá *-* alls 8 sinnum, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af síðustu 18 lykkjum (= 8 lykkjur færri, það eru 44 lykkjur í umferð). Snúið stykkinu. UMFERÐ 5: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina. Snúið stykkinu. UMFERÐ 6: Í þessari umferð er lykkjum fækkað fyrir flatan botn þannig: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af fyrstu 14 lykkjum, * næstu 2 fastalykkjur eru heklaðar saman í 1 fastalykkju *, heklið frá *-* alls 8 sinnum, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af síðustu 14 lykkjum (= 8 lykkjur færri, það eru 36 lykkjur í umferð). Snúið stykkinu. UMFERÐ 7: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina. Snúið stykkinu. UMFERÐ 8: Í þessari umferð er lykkjum fækkað fyrir flatan botn þannig: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af fyrstu 14 lykkjum, * næstu 2 fastalykkjur eru heklaðar saman í 1 fastalykkju *, heklið frá *-* alls 4 sinnum, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af síðustu 14 lykkjum (= 4 lykkjur færri, það eru 32 lykkjur í umferð). Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið botninn saman á lengdina og saumið lykkju í lykkju þannig að botninn verði flatur. HALI: Notið heklunál 8 og 2 þræði í litnum sægrænn. Meðfram hlið á NEÐRI HLUTI hafa verið heklaðar 8 umferðir (hvoru megin við saum), nú á að heklað áfram fram og til baka meðfram báðum 2 hliðum á neðri hluta, þ.e.a.s. meðfram alls 16 umferðum: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja umferð (= 16 lykkjur). Snúið stykkinu. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, fyrstu 2 fastalykkjur eru heklaðar saman að 1 lykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 2 lykkjur eru eftir, síðustu 2 lykkjurnar eru heklaðar saman í 1 lykkju (= 2 lykkjur færri). Snúið stykkinu. Heklið umferð 1 og 2 þar til heklaðar hafa verið alls 12 umferðir og það eru 4 lykkjur í umferð. Klippið frá og festið enda. BAK: Notið heklunál 8 og 2 þræði í litnum sægrænn. Heklið 1 umferð með fastalykkjum meðfram öllu opinu á baki, byrjið við halann (það er heklað meðfram annarri hliðinni í einu) þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 lykkju í hverja umferð eða í hverja lykkju – frá hala að toppi á höfði og aftur niður meðfram hinni hliðinni á baki að hálsi. Það eru ca 45 lykkjur hvoru megin á baki, alls ca 90 lykkjur í kringum allt opið. Snúið stykkinu. Nú verður að fylla risaeðluna með vatti á meðan heklað er áfram þannig: UMFERÐ 2: Brjótið risaeðluna saman tvöfalda og heklið 1 umferð með fastalykkjum frá hala að topp á höfði (heklað er í gegnum bæði lögin þannig að bakið er heklað saman) = ca 45 fastalykkjur. Klippið þráðinn frá í toppi á höfði og festið enda. GADDAR: Notið heklunál 8 og 2 þræði í litnum karrí. Byrjið yst á hala og heklið þannig: * Heklið 1 fastalykkju, hoppið yfir 1 lykkju og í næstu lykkju er heklað þannig: 2 stuðlar, 1 tvíbrugðinn stuðull, 2 loftlykkjur, 1 tvíbrugðinn stuðull og 2 stuðlar. Hoppið yfir 1 lykkju og heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, síðan er endurtekið frá *-* upp yfir bak, en hoppið yfir 2 lykkjur í stað 1 lykkju afgang af leiðinni að höfði. Þegar ekki eru til nægilega margar lykkjur fyrir heilan gadd í lokin á höfði þá á að hekla umferðina til loka með fastalykkjum alveg upp að toppi á höfði. Klippið frá og festið enda. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (33)
Ana wrote:
Is it ok if I sell the finished product of this pattern? I recently made one for my son's 2nd birthday and he absolutely adores it. But even moreso, I loved making it. It was one of the quickest, easiest patterns I've ever followed and I love the fact that I don't have to stitch pieces together at the end of it. I'd love to make more, and thought it might be a good way to earn a little side money, as long as that's approved by the author of the pattern.
15.12.2023 - 15:50DROPS Design answered:
Dear Ana, the sale of garments based on DROPS patterns is permitted as long as they are sold as single items or per order. Further commercial use of the patterns is not permitted. It has to be clearly stated that the garment is made based on a design from DROPS DESIGN. The use of DROPS photos for marketing purposes/sales is only permitted in connection with the use/sale of DROPS products. The photos may not be cut or edited and the logo should be clearly visible. You can see more information in the Copyright section at the bottom of our webpage, after the "Post a comment section". Happy crochetting!
17.12.2023 - 18:06Nel Bouwmeester wrote:
Kan iemand mij svp helpen met het patroon vanaf de nek. Ik heb van alles geprobeerd maar kom er niet uit! Vr groet, Nel
15.10.2023 - 10:25DROPS Design answered:
Dag Nel,
Kan je aangeven waar je precies tegenaan loopt bij het haken van de nek? Op welk punt loop je vast? Wellicht kunnen we je dan beter helpen...
15.10.2023 - 17:20Deena wrote:
I have only been crocheting for a month. I found this pattern fairly easy to follow.. there are times I had to re-read something to figure it out… but trust the process .. it all comes together!!
19.09.2023 - 06:07Lisamarie wrote:
"BODY: Now the 2 front legs are attached to the body." Uhh? No. No they are not. At no point yet has it said to attach them and we've worked the nose, face, and neck, but not the body yet so where do they even go?? Whoever said this was the easiest pattern was the biggest liar after Trump.
11.09.2023 - 23:08DROPS Design answered:
Dear Lisamarie, with this sentence we mean that the front legs will be now attached on to the body while crocheting the ROW 1, you will crochet around the body and crochet at the same time the front legs working into the 3 layers (2 layers from the front leg folded double + the stitch on the next row on body). Hope it can help. Happy crocheting!
12.09.2023 - 09:16Courtney wrote:
I dont understand how im supposed to do the neck. am i still going around the circle or am i only going across so many stitches? am i supposed o be going down the neck in the rows ive done before instead of the circle like i have been? if i do how do i continue working in a circle if im going down the rows instead of around in the stiches. am i not working in the stiches around anymore? the neck is really confusing me
17.08.2023 - 16:37DROPS Design answered:
Dear Courtney, you worked 8 rows for the head, you will now work the first row of neck crocheting in both ends of head, ie in the beg/end of the 8 rows of the head (on both sides = 16 rows). Neck is then worked back and forth (you turn at the end of each row) increasing on every other row. Happy crocheting!
18.08.2023 - 08:03Nel Bouwmeester wrote:
Er staat dat er met 2 draden wordt gehaakt. Is het aantal gram gebaseerd op die 2 draden? Nel
09.08.2023 - 15:25DROPS Design answered:
Dag Nel,
Ja hoor, de benodigde hoeveelheid garen is gebaseerd op 2 draden.
10.08.2023 - 20:54Annette Nielsen wrote:
Hej igen...det er de efterfølgende omgange jeg mener... 2...3...4 osv er det den første luftmaske der menes og erstatter den en fastmaske?..
19.06.2023 - 13:48DROPS Design answered:
Hej Annette, du hækler luftmasken for at komme op i højde. I denne opskrift erstatter luftmasken ikke fastmasken
22.06.2023 - 13:45Annette Nielsen wrote:
Når I skriver...kædemaske i den første fastmaske...er det så luftmasken der menes? På forhånd tak...
19.06.2023 - 07:02DROPS Design answered:
Hei Annette. Nei, det menes fastmaske, slik det står. Under FORBEIN hekler man 2 luftmasker, deretter hekler man 5 fastmasker i den første luftmasken og for å avslutte sirkelen hekler man en kjedemaske i den første fastmasken (av de 5 fastmaskene). mvh DROPS Design
19.06.2023 - 12:52Jessy wrote:
Hi. Just wanted to say that I finished the Dino in less than two days. The pattern is easy and well written. I'm very happy with the result. A word about fellow crocheters who had problems with the neck. I think the description could have been easier if the start of the neck had been pointed out as crocheting in the "ends" of the 16 rows. Instead of nose and face why not called it head? Just a thought. Thanks for the pattern. Will make another dino tomorrow. Jessy
02.06.2023 - 00:31Heidi Hauben wrote:
Beste, Kan deze dino in Drop snow gewassen worden ? Zonder dat deze vervilt ? met vriendelijke groeten Heidi
17.05.2023 - 15:37DROPS Design answered:
Dag Heidi,
Als je de normale voorschriften volgt voor DROPS Snow, dan zou dat moeten kunnen. Het vervilten gebeurt als je expres te heet wast. DROPS Snow is wel heel gevoelig voor vilten, dus wees altijd voorzichtig met wassen. Hoe de vulling reageert op het wassen dat weet ik niet. Daarvoor zou je de informatie op de verpakking van de vulling moeten raadplegen.
17.05.2023 - 17:33