Bob the Dinosaur |
|
|
|
Hekluð risaeðla tyrannosaurus rex (T-Rex) úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er heklað frá nefi að hala með einungis einum saum. Þema: Leikföng.
DROPS Children 37-21 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR (á við um loftlykkjur): 1 loftlykkja á að jafngilda 1 fastalykkju á breidd. Passið uppá að lykkjan sem er gerð í loftlykkju dragist aðeins upp á heklunálina svo að hún verði ekki of stíf. Ef loftlykkjurnar eru heklaðar of fast, kemur mynstrið til með að dragast saman í þeim einingum þar sem margar loftlykkjur eru. HEKLAÐ SAMAN: Heklið 2 fastalykkjur saman að 1 fastalykkju þannig: Stingið heklunálinni í gegnum fyrstu lykkjuna og sækið þráðinn, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn (= 3 lykkjur á heklunálinni), bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). LYKKJUSPOR: Saumið með einföldum svörtum þræði. Augun eru saumuð út yfir 1. og 2. umferð í andliti og það eru 5 lykkjur á milli augna. Sjá mynsturteikningu sem sýnir hvernig lykkjusporið er gert. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- RISAEÐLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað frá nefi að hala með einungis 1 saum mitt undir búk. Fyrstu eru heklaðir 4 fætur sem lagðir eru til hliðar um stund. Risaeðlan byrjar við nef, síðan er höfuðið heklað. Hálsinn og búkurinn er heklað í framhaldi á höfði jafnframt því sem fram- og afturfætur eru heklaðir fastir. Síðan er neðri hlutinn heklaður á búk, halinn og bakið heklað saman. Að lokum eru gaddarnir heklaðir meðfram baki. FRAMFÓTUR: Heklið 2 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum ólífa – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. Í fyrstu loftlykkju eru heklaðar 5 fastalykkjur, þetta verður lítill hringur með lykkjum. Endið hringinn með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, þar með er hringurinn fastur og 1. umferð er lokið. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 2 fastalykkjur í hverja lykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, það eru 10 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn frá og skiptið yfir í skógargrænn. UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, * 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn (= 15 lykkjur). Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. UMFERÐ 4-9: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 15 lykkjur). Klippið frá og dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Heklið annan framfót á sama hátt og fyllið fæturna með vatti. AFTURFÆTUR: Heklið eins og FRAMFÆTUR, nema nú er hekluð umferð meira í litnum ólífa áður en skipt er yfir í litinn skógargrænn. NEF: Heklið 2 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum skógargrænn. Í fyrstu loftlykkju eru heklaðar 5 fastalykkjur, þetta verður lítill hringur af lykkjum. Endið hringinn með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, þar með er hringurinn fastur og 1. umferð er lokið. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, síðan eru heklaðar 2 fastalykkjur í hverja lykkju (= 10 lykkjur). Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, * 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, * heklið frá *-* umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 15 lykkjur). UMFERÐ 4: Heklið 1 loftlykkju, * 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 2 lykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 20 lykkjur). UMFERÐ 5: Heklið 1 loftlykkju, * 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 3 lykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 25 lykkjur). UMFERÐ 6: Heklið 1 loftlykkju, * 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 4 lykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 30 lykkjur). UMFERÐ 7-11: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 30 lykkjur). UMFERÐ 12: Heklið 1 loftlykkju, * heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af 2 næstu fastalykkjum, heklið 2 næstu fastalykkjur saman til 1 1 fastalykkju – sjá HEKLAÐ SAMAN í útskýringu að ofan *, heklið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir. Heklið 1 fastalykkju í hvora af 2 síðustu fastalykkjum og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 23 lykkjur í hring). UMFERÐ 13: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 23 lykkjur). ANDLIT: Nú er ekki lengur heklað í hring, stykkið er heklað fram og til baka héðan. UMFERÐ 1-4: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af 23 lykkjum. Snúið stykkinu. UMFERÐ 5-6: 1 loftlykkja, heklið 2 lykkjur í fyrstu lykkjuna, 1 fastalykkja í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir og heklið 2 lykkjur í síðustu lykkjuna (= 2 lykkjur fleiri í hverri umferð (= 27 lykkjur). Snúið stykkinu. UMFERÐ 7-8: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju. Snúið stykkinu. Nú eru saumuð út 2 augu í andlitið með LYKKJUSPORI – sjá útskýringu að ofan. HÁLS: Meðfram hlið á ANDLIT hafa verið heklaðar 8 umferð, nú á að hekla áfram fram og til baka meðfram báðum að 2 hliðum á andliti, þ.e.a.s. meðfram alls 16 umferðum: UMFERÐ 1: Heklið 2 fastalykkjur í síðustu umferð sem var hekluð í andliti, * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 umferðum í andliti, 2 fastalykkjur í næstu umferð á andliti *, heklið frá *-* út umferðina = 22 lykkjur. Snúið stykkinu. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina. Snúið stykkinu. UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir, heklið 2 fastalykkjur í síðustu lykkjuna (= 2 lykkjur fleiri). Snúið stykkinu. Heklið umferð 2 og 3 þar til heklaðar hafa verið alls 6 umferðir í hálsi (= 26 lykkjur í 6. umferð). Snúið stykkinu. BÚKUR: Nú eru framfæturnir heklaðir á búkinn, heklað er fram og til baka. UMFERÐ 1: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 lykkjum, brjótið annan framfótinn saman tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 lykkjur sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja lykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjur (= mitt að framan/á milli framfóta), brjótið hinn framfótinn saman tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 lykkjurnar sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af 4 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í síðustu lykkju (= 28 lykkjur). Snúið stykkinu. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju. Snúið stykkinu. UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir, 2 fastalykkjur í síðustu lykkju (= 2 lykkjur fleiri). Snúið stykkinu. Heklið umferð 2 og 3 þar til heklaðar hafa verið alls 5 umferðir á búk (= 32 lykkjur í 5. umferð). Snúið stykkinu. UMFERÐ 6: Í þessari umferð er aukið út fyrir maga þannig: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 lykkjum, * 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls 7 sinnum, heklið 2 fastalykkjur í næstu lykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 7 lykkjum, 2 fastalykkjur í síðustu lykkju (= 10 lykkjur fleiri, það eru 42 lykkjur í umferð). Snúið stykkinu. UMFERÐ 7: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina. Snúið stykkinu. UMFERÐ 8: Í þessari umferð er einnig aukið út fyrir maga þannig: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 16 lykkjum, * 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls 4 sinnum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 16 lykkjum, 2 fastalykkjur í síðustu lykkju (= 6 lykkjur fleiri, nú eru 48 lykkjur í umferð). Snúið stykkinu. UMFERÐ 9: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina. Snúið stykkinu. UMFERÐ 10: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir, heklið 2 fastalykkjur í síðustu lykkju (= 2 lykkjur fleiri, það eru 50 lykkjur í umferð). Snúið stykkinu. UMFERÐ 11: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina. Snúið stykkinu. UMFERÐ 12: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir, 2 fastalykkjur í síðustu lykkju (= 2 lykkjur fleiri, það eru 52 lykkjur í umferð). Snúið stykkinu. UMFERÐ 13: Nú eru afturfæturnir heklaðir á búkinn. Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverjaaf fyrstu 15 lykkjum, brjótið saman annan afturfótinn tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 fastalykkjur sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja lykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 10 lykkjum (= mitt að framan/á milli afturfóta), brjótið hinn afturfótinn saman tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 fastalykkjurnar sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja lykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af síðustu 15 fastalykkjum. Snúið stykkinu. NEÐRI HLUTI: UMFERÐ 1-3: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju. Snúið stykkinu. UMFERÐ 4: Í þessari umferð er lykkjum fækkað fyrir flatan botn þannig: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 18 lykkjum, * næstu 2 fastalykkjurnar eru heklaðar saman í 1 fastalykkju – sjá HEKLAÐ SAMAN í útskýringu að ofan *, heklið frá *-* alls 8 sinnum, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af síðustu 18 lykkjum (= 8 lykkjur færri, það eru 44 lykkjur í umferð). Snúið stykkinu. UMFERÐ 5: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina. Snúið stykkinu. UMFERÐ 6: Í þessari umferð er lykkjum fækkað fyrir flatan botn þannig: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 14 lykkjum, * næstu 2 fastalykkjurnar eru heklaðar saman í 1 fastalykkju *, heklið frá *-* alls 8 sinnum, heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 14 lykkjum (= 8 lykkjur færri, það eru 36 lykkjur í umferð). Snúið stykkinu. UMFERÐ 7: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina. Snúið stykkinu. UMFERÐ 8: Í þessari umferð er lykkjum fækkað fyrir flatan botn þannig: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 14 lykkjum, * næstu 2 fastalykkjurnar eru heklaðar saman í 1 fastalykkju *, heklið frá *-* alls 4 sinnum, heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 14 lykkjum (= 4 lykkjur færri, það eru 32 lykkjur í umferð). Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið botninn saman á lengdina og saumið lykkju í lykkju þannig að botninn verði flatur. HALI: Notið heklunál 3,5 og litinn skógargrænn. Meðfram hlið á NEÐRI HLUTI hafa verið heklaðar 8 umferðir (í hvorri hlið á saum), nú á að heklað áfram fram og til baka meðfram báðum 2 hliðum á neðri hluta, þ.e.a.s. meðfram alls 16 umferðum: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja umferð (= 16 lykkjur). Snúið stykkinu. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, fyrstu 2 fastalykkjurnar eru heklaðar saman að 1 lykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 2 lykkjur eru eftir, síðustu 2 lykkjurnar eru heklaðar saman í 1 lykkju (= 2 lykkjur færri). Snúið stykkinu. Heklið umferð 1 og 2 þar til heklaðar hafa verið alls 12 umferðir og það eru 4 lykkjur í umferð. Klippið frá og festið enda. BAK: Notið heklunál 3,5 og litinn skógargrænn. Heklið 1 umferð með fastalykkjum meðfram öllu opinu á baki, byrjið við halann (það er heklað meðfram annarri hliðinni í einu) þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 lykkju í hverja umferð eða í hverja lykkju – frá hala að toppi á höfði og aftur niður meðfram hinni hliðinni á baki að hálsi. Það eru ca 45 lykkjur hvoru megin á baki, alls ca 90 lykkjur í kringum allt opið. Snúið stykkinu. Nú verður að fylla risaeðluna með vatti á meðan heklað er áfram þannig: UMFERÐ 2: Brjótið risaeðluna saman tvöfalda og heklið 1 umferð með fastalykkjum frá hala að topp á höfði (heklað er í gegnum bæði lögin þannig að bakið er heklað saman) = ca 45 fastalykkjur. Klippið þráðinn frá í toppi á höfði og festið enda. GADDAR: Notið litinn ólífa og heklunál 3,5. Byrjið yst á hala og heklið þannig: * Heklið 1 fastalykkju, hoppið yfir 1 lykkju og í næstu lykkju er heklað þannig: 2 stuðlar, 1 tvíbrugðinn stuðull, 2 loftlykkjur, 1 tvíbrugðinn stuðull og 2 stuðlar. Hoppið yfir 1 lykkju og heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, síðan er endurtekið frá *-* upp yfir bak, en hoppið yfir 2 lykkjur í stað 1 lykkju afgang af leiðinni að höfði. Þegar ekki eru til nægilega margar lykkjur fyrir heilan gadd í lokin á höfði þá á að hekla umferðina til loka með fastalykkjum alveg upp að toppi á höfði. Klippið frá og festið enda. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (40)
Peter Sandra wrote:
Ich finde den Dino cool und würde ihn gerne Nachhäkeln. Ich habe eine Stelle wo ich nicht ganz kapiere. Und zwar bei 8 Reihen am Gesicht gehäkelt, an beiden Seiten nun Maschen angehäkelt insgesamt 16 MA. Heisst das die erste und letzte MA wird verdoppelt bis 16 Ma sind? Besten Dank für eine Antwort
25.03.2024 - 17:48DROPS Design answered:
Liebe Sandra, fürs Gesicht hat man 8 Reihen gehäkelt, für den Hals wird man jetzt in den Seiten (Anfang/Ende von den Reihen fürs Gesicht) häkeln, dh in je die 8 Reihen einer Seite + in je die 8 Reihen vom anderen Seite (die letzte Reihen vom Gesicht bleibt jetzt offen, wird später zusammengehäkelt) - bei der 1. Reihe wird man regelmäßig verteilt bis 22 Maschen zunehmen; die Reihen beginnen jetzt beim oberen Teil/Rückenteil vom Dino. Viel Spaß beim häkeln!
02.04.2024 - 10:04Heidi wrote:
Hei! Jeg skal starte på underdelen men skjønner ikke hvor jeg starter?
20.03.2024 - 18:06DROPS Design answered:
Hei Heidi. Du starter der du sluttet 13. rad av Kroppen. Nå skal det hekles 1 fastmaske i hver maske, samtidig som det felles masker til en flat bunn. mvh DROPS Design
02.04.2024 - 13:28Stefania Piras wrote:
Buongiorno, non capisco come si lavora in piano...il pezzo tra il naso e il muso
30.12.2023 - 17:47DROPS Design answered:
Buongiorno Stefania, alla fine del naso deve lavorare in righe di andata e ritorto iniziando sulle 23 maglie del naso come indicato. Buon lavoro!
31.12.2023 - 13:34Handspinnerei Giftgruen wrote:
Bob ist so niedlich. Habe ihn jetzt 2 mal gehäkelt. Die Anleitung finde ich teilweise umständlich erklärt aber mit viel rücktrennen habe ich es noch hinbekommen. Ich werde ihn auch in groß häkeln. Vielen Dank für die Anleitung
29.12.2023 - 22:06Sanne wrote:
Heel leuk patroon, je moet af en toe even goed lezen maar dat maakt het voor mij juist leuk om te haken. Wel viel me op dat toen ik hem af had, hij niet rechtop kon blijven staan maar voorover op z'n neus viel. Misschien kan het patroon de tip geven om wat zwaardere vulling in de staart te doen. Ik heb het zelf opgelost met een knikker in een klein hangertje gehaakt van hetzelfde garen als de stekels, en die aan de punt van de staart vastgemaakt.
18.12.2023 - 11:49Ida wrote:
Hej. Jag håller på med halsen till Bob the Dinosaur och jag har fastnat totalt. Förstår att det ska göras på sidorna men hur, var? Ska jag göra stolpmaskor? För i såna fall står det inte med. Det skulle verkligen hjälpa om det fanns videor på nån som gjorde mönstret också och inte bara delar.
01.10.2023 - 22:19DROPS Design answered:
Hei Ida. Vi har dessverre ingen video på hele denne dinousauren nå, men vi har notert ned ditt videoønske. Om du ser på bildet av hode er det heklet fra snuten og til bakhodet, men når du skal begynne med halsen skal det hekles en annen retning. Du har heklet 8 rader til ansiktet og når du starter på halsen hekler du 2 fastmasker i siste rad/8.rad av ansiktet, så 1 fastmaske i 7. rad og 1 fastmaske i 6.rad, deretter 2 fastmasker i 5.rad, 1 fastmaske i 4. rad, 1 fastmaske i 3. rad, 2 fastmasker i 2. rad og 1 fastmaske i 1. rad. Så hekler du i 1. til 8. rad, men mottsatt side. mvh DROPS Design
16.10.2023 - 10:45Paola wrote:
Forse uncinetto troppo appuntito, punta molto sottile. E' uncinetto knit pro symfonie...
21.09.2023 - 19:12Paola wrote:
Ho trovato difficoltoso lavorare il merino extra fine con l'uncinetto, forse pechè ho uncinetto di legno, ma si infilava nelle trame della lana....chissa se sbaglio qualcosa?
21.09.2023 - 19:09DROPS Design answered:
Buonasera Paola, la tensione nella lavorazione di un pupazzetto è comunque più stretta rispetto alla normale tensione. Buon lavoro!
22.09.2023 - 23:36Tarja Kolehmainen wrote:
Vartalon 6 kerroksesta lähtien ohje väärä...kääntäjän mukaan kun tekee niin tulee oikein. Silmukat lisääntyy ei kavene ja 6 kerroksen jälkeen silmukoita on 42 yhteensä. Aloittelijalle todella vaikeaa kun ohje on käännetty väärin
28.07.2023 - 15:29Katja wrote:
In making Bob the dinosaur, I have now made the face and have 27 stiches. But moving on to the neck I am very confused. How can I get to 22 stitches without decreasing? I am very much in need of your help. Sincerely Katja.
07.07.2023 - 17:58DROPS Design answered:
Dear Katja, you don't work over the 27 stitches of the face. You work over the row end of the face. You have 8 rows on the face and you work on both sides, so you will work over 16 "stitches" or row ends. Since you work over 16 stitches and increase 6 times on the first row of the neck you should have 22 stitches. Happy crocheting!
10.07.2023 - 16:25