DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
DROPS Super Sale

Forest Whispers

Prjónuð peysa úr DROPS Delight og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með perluprjóni, sjalkraga, vösum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 230-45
DROPS Design: Mynstur de-228
Garnflokkur A + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-350-400-400-450-500 g litur 08, grænn/beige
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-225-250-250-300-325 g litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 7: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með mynsturprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 103 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 101 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 37) = 2,7.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca aðra hverja og 3. hverja lykkju slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum):
Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í A.1.

LEIÐBEININGAR:
Til að mynstrið gangi jafnt upp, prjónið 1 lykkju fleiri á milli vasa og hlið á vinstra framstykki en á hægra framstykki.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4 hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum, neðan frá og upp og saumað saman í lokin.
Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 103-109-119-129-141-153 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 12 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 37-39-41-45-49-53 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= kantlykkja). Skiptið yfir á hringprjón 7. Snúið og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið brugðnar lykkjur út umferðina og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= kantlykkja) = 68-72-80-86-94-102 lykkjur.
Prjónið nú mynstur A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af 2-2-4-5-6-8 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum = 64-68-72-76-82-86 lykkjur. Prjónið A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm, fellið af miðju 10-10-10-12-12-12 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 26-28-30-31-34-36 lykkjur fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm, fellið af – sjá AFFELLING.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

VASASTYKKI:
Fitjið upp 24 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar vasastykkið mælist 7 cm, prjónið mynstur A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar vasastykkið mælist 16 cm, fellið af 1 lykkju í byrjun á næstu 2 umferðum = 22 lykkjur – stillið af að síðasta umferðin sem er prjónuð sé 1. umferð í A.1 (þetta er mikilvægt til að mynstrið gangi jafnt upp þegar vasastykkið er prjónaður við peysuna). Setjið lykkjur á hjálparprjón og geymið stykkið. Prjónið 3 vasastykki alveg eins til viðbótar = 4 vasastykki.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 73-77-81-91-97-103 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 12 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 27-29-29-35-37-39 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= kantlykkja). Skiptið yfir á hringprjón 7. Snúið og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið brugðnar lykkjur út umferðina = 47-49-53-57-61-65 lykkjur.
Prjónið nú mynstur A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.

Þegar stykkið mælist 31 cm – stillið af að næsta umferð sem er prjónuð sé fyrsta umferð í A.1 (þetta er mikilvægt til að mynstrið passi við mynstur á vasastykki), prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið fyrstu 23-25-27-27-29-31 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér, prjónið næstu 22 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= 1 prjónamerki hvoru megin við vasaop), prjónið síðustu 2-2-4-8-10-12 lykkjur eins og áður.
Snúið og prjónið til baka frá röngu þannig: Prjónið fram að fyrra prjónamerki. Nú eru lykkjur prjónaðar ein og ein frá vasaopi saman með lykkjur eina og eina af vasastykki, jafnframt því sem fellt er af þannig (passið uppá að rangan á vasastykki liggi að röngu að hægra framstykki og að lykkjur séu prjónaðar saman í mynstri A.1):
Prjónið fyrstu lykkju á vasastykki saman með fyrstu lykkju á vasaopi, jafnframt því sem fellt er af. Endurtakið þar til allar lykkjur á vasastykki og vasaopi hafa verið prjónaðar saman og felldar af. Prjónið þær lykkjur sem eftir eru í umferð eins og áður. Takið prjónamerkin úr.
Snúið og prjónið fram að vasaopi, prjónið frá réttu yfir 22 lykkjur á öðru vasastykki, prjónið út umferðina = 47-49-53-57-61-65 lykkjur. Nú eru 2 vasastykki á hægra framstykki sem síðar eru saumuð saman.

Haldið áfram með A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm frá uppfitjunarkanti eru felldar af 2-2-4-5-6-8 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá hlið (þ.e.a.s. í næstu umferð frá röngu) = 45-47-49-52-55-57 lykkjur. Prjónið A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm, fellið af fyrstu 26-28-30-31-34-36 lykkjur í næstu umferð frá röngu fyrir öxl, prjónið síðustu 19-19-19-21-21-21 lykkjur í umferð.
Prjónið nú kraga þannig:
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 11-11-11-13-13-13 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 8 lykkjurnar.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 8 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 11-11-11-13-13-13 lykkjur.
UMFERÐ 3: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 11-11-11-13-13-13 lykkjur, snúið.
UMFERÐ 4: Prjónið mynstur eins og áður yfir 11-11-11-13-13-13 lykkjur.
Endurtakið umferð 1 til 4 þar til kraginn mælist 7-7-7-8-8-8 cm þar sem stykkið er styst (þ.e.a.s. á vinstri hlið séð frá réttu = að öxl).
Fellið af – munið eftir AFFELLING.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 73-77-81-91-97-103 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 12 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 27-29-29-35-37-39 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA, skiptið yfir á hringprjón 7. Snúið og prjónið brugðnar lykkjur út umferðina, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= kantlykkja) = 47-49-53-57-61-65 lykkjur.
Prjónið nú mynstur A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.

Þegar stykkið mælist 31 cm – stillið af að næsta umferð sem er prjónuð sé fyrsta umferð í A.1 (þetta er mikilvægt til að mynstrið passi við mynstur á vasastykki), prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið fyrstu 3-3-5-9-11-13 lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR, setjið eitt prjónamerki hér, prjónið næstu 22 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= prjónamerki hvoru megin við vasaop), prjónið síðustu 22-24-26-26-28-29 lykkjur eins og áður.
Snúið og prjónið til baka frá röngu þannig: Prjónið fram að fyrra prjónamerki. Nú eru lykkjur prjónaðar ein og ein frá vasaopi saman með lykkjur eina og eina af vasastykki, jafnframt því sem fellt er af þannig (passið uppá að rangan á vasastykki liggi að röngu að vinstra framstykki og að lykkjur séu prjónaðar saman í mynstri A.1):
Prjónið fyrstu lykkju á vasastykki saman með fyrstu lykkju á vasaopi, jafnframt því sem fellt er af. Endurtakið þar til allar lykkjur á vasastykki og vasaopi hafa verið prjónaðar saman og felldar af. Prjónið þær lykkjur sem eftir eru í umferð eins og áður. Takið prjónamerkin úr.
Snúið og prjónið fram að vasaopi, prjónið frá réttu yfir 22 lykkjur á öðru vasastykki, prjónið út umferðina = 47-49-53-57-61-65 lykkjur. Nú eru 2 vasastykki á hægra framstykki sem síðar eru saumuð saman.

Haldið áfram með A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm frá uppfitjunarkanti eru felldar af 2-2-4-5-6-8 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá hlið (þ.e.a.s. í næstu umferð frá réttu) = 45-47-49-52-55-57 lykkjur. Prjónið A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm, fellið af fyrstu 26-28-30-31-34-36 lykkjur í næstu umferð frá röngu fyrir öxl, prjónið síðustu 19-19-19-21-21-21 lykkjur í umferð.
Prjónið nú kraga þannig:
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 11-11-11-13-13-13 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 8 lykkjurnar.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 8 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 11-11-11-13-13-13 lykkjur.
UMFERÐ 3: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 11-11-11-13-13-13 lykkjur, snúið.
UMFERÐ 4: Prjónið mynstur eins og áður yfir 11-11-11-13-13-13 lykkjur.
Endurtakið umferð 1 til 4 þar til kraginn mælist 7-7-7-8-8-8 cm þar sem stykkið er styst (þ.e.a.s. á vinstri hlið séð frá réttu = að öxl).
Fellið af – munið eftir AFFELLING.

ERMI:
Fitjið upp 54-58-58-60-60-64 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-18-18-18-18-20 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA = 38-40-40-42-42-44 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Nú er prjónað mynstur A.1 og 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 12 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4½-4½-3-3-2½-2 cm millibili alls 7-7-9-9-10-11 sinnum = 52-54-58-60-62-66 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 44-44-42-41-39-37 cm. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á ermi – prjónamerkin merkja byrjun á botni á handvegi.
Prjónið þar til ermin mælist alls 46-46-45-45-43-43 cm. Fellið af – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn – passið uppá að saumurinn sé ekki stífur.
Saumið ermasauma saman, en skiljið eftir smá op/klauf ca 2-2-3-4-4-6 cm efst á ermi. Saumið klaufina efst á ermi við botninn á handvegi og saumið síðan ermina við fram- og bakstykki – sjá teikningu.
Saumið hliðarsaum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni að stroffi (= 12 cm klauf í hvorri hlið). Endurtakið í hinni hliðinni.
Saumið kragann saman mitt að aftan og saumið síðan kragann við kant í hálsmáli.
Leggið vasastykkin að hvoru öðru og saumið í kringum allan kantinn.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-45

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (32)

country flag Heike Radacher wrote:

Kann es stimmen dass man nach dem Bündchen im Rückenteil 37 Maschen abnehmen soll?

18.04.2024 - 19:29

DROPS Design answered:

Liebe Frau Radacher, ja genau, für die gleiche Breite braucht man mehr Maschen für Bündchen mit den kleineren Nadeln als für das Muster mit den grösseren Nadeln, deshalb muss man abnehmen. Viel Spaß beim Stricken!

19.04.2024 - 08:36

country flag Agnieszka wrote:

Cześć. Mam pytanie. Jak zrobić tył swetra, żeby pasy kolorów były takie jak z przodu swetra. Bo rozumiem że dwie części przodu i oba rękawy zacząć nowym motkiem wełny Drops Delight. Proszę o podpowiedź. Pozdrawiam serdecznie Agnieszka

01.02.2024 - 10:33

DROPS Design answered:

Witaj Agnieszko, kiedy rzędy są krótsze, jak tu na przodach, pasy będą szersze. Jak zaczniesz robić tył, pasy będą węższe. Aby miały taką samą szerokość jak te na przodach, musisz posiłkować się nowym motkiem włóczki Delight. Pozdrawiamy!

03.02.2024 - 08:08

country flag Anke Hoffmann wrote:

Wieviel Wolle benötige ich für die Jacke in Größe M?

27.01.2024 - 18:47

country flag Anke Hoffmann wrote:

Wieviel Wolle benötige ich für die Größe M?

27.01.2024 - 18:46

DROPS Design answered:

Liebe Frau Hoffmann, die Garnmenge für jede Größe finden Sie im Kopfteil oben, das Gewicht durch 50 g (Delight) / 25 g (Brushed Alpaca Silk) teilen, um die Knäuelanzahl zu finden. Viel Spaß beim stricken!

29.01.2024 - 11:55

country flag Jessica Teunissen wrote:

Ik vind de kleur garen bij dit patroon erg mooi, maar helaas niet meer te bestellen. Ik zoek me suf naar een mooi alternatief, maar vind niets dat de kleuren op vergelijkbare afstand heeft en niet dichter op elkaar. Heeft u misschien een tip?

28.12.2023 - 21:50

DROPS Design answered:

Dag Jessica,

Kleurkeuze is heel persoonlijk en daarom lastig om te adviseren. Wat je zou kunnen doen is langs gaan bij een wolwinkel om daar de kleuren te vergelijken. Of je bestelt extra garen en de kleuren die je niet mooi vindt stuur je terug (controleer de voorwaarden voor retourneren bij de betreffende webwinkel).

30.12.2023 - 17:53

country flag Kari Ingebrigtsen wrote:

Det står ikke noe om når man skal strikke striper. Er det striper på bakstykket også?

20.12.2023 - 15:05

DROPS Design answered:

Hej Kari. DROPS Delight är ett flerfärgat print-garn så striperna kommer naturligt när man stickar. Mvh DROPS Design

21.12.2023 - 13:32

country flag Kari Ingebrigtsen wrote:

Strikkes hele Forrest Whispers med dobbel tråd, eller bare vrangborden?

18.12.2023 - 10:17

DROPS Design answered:

Hei Kari. Hele jakken :) mvh DROPS Design

18.12.2023 - 11:10

country flag Leentje De Feyter wrote:

Wat wordt er bedoeld met bv brei 13 steken zoals ze voorkomen,( en brei de laatste 8 steken )\r\nEerste deel begrijp ik maar en brei de laatste 8 steken wat of hoe moet ik dat ?

09.12.2023 - 13:15

DROPS Design answered:

Dag Leentje,

Als het goed is heb je dan nog 8 steken op de linker naald die je moet breien. De steken die je voor die 8 steken breit, brei je op dezelfde manier als je dat deed in de naalden daarvoor.

10.12.2023 - 16:19

country flag Francine wrote:

Je veux remplacer la Alpaca Silk (25 gr. / 280 mètres) par la Big mérino 50 gr. / 75 mètres) pour la grandeur Large. Combien dois-je en commander? Merci à l’avance!

01.04.2023 - 21:30

DROPS Design answered:

Bonjour Francine, utilisez notre convertisseur pour calculer la quantité dans la nouvelle laine - notez bien que la texture sera alors différente, pensez toujours bien à tricoter votre échantillon et n'hésitez pas à demander conseil à votre magasin, on pourra alors vous aider, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

11.04.2023 - 10:19

country flag Ida Gorm Hansen wrote:

Hej. Der står at lommerne skal strikkes ens. Når første lomme strikkes på, passer det med mønstret, men når 2. lommepose strikkes på, passer mønstret ikke mere, for der er jo strikket en vrang pind. Er der noget jeg har misforstået?

13.12.2022 - 13:41