Hipp Hipp Hurra Trousers |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónaðar buxur fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð 6 mánaða – 6 ára.
DROPS Children 44-4 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um innan á skálm): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 lykkjur slétt saman, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Fyrst er prjónaður mynsturbekkur/belti með faldi og mynstri. Stykkið skiptist og hvor skálm er prjónuð til loka fyrir sig. Mynsturbekkur er prjónaður og faldur fyrir saum neðst á hvorri skálm. Axlaböndin eru prjónuð fram og til baka (frá hlið) og saumuð niður í lokin. Faldurinn er brotinn inn og saumaður að röngu á buxum. FALDUR (á mynsturbekk/belti): Fitjið upp 108-120 (132-144-156) lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum dökk grár. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 10 cm, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur (uppábrot). Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! MYNSTURBEKKUR/BELTI: Prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist mynsturbekkurinn ca 11 cm og stykkið mælist alls ca 22 cm (meðtalinn faldur). BUXUR: HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Stykkið er nú prjónað í sléttprjóni með litnum svartur. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 26-24 (22-20-16) lykkjur jafnt yfir = 134-144 (154-164-172) lykkjur. UPPHÆKKUN AÐ AFTAN: Nú er prjónuð upphækkun aftan á buxum til að þær passi betur. Prjónið sléttprjón fram og til baka þannig: Byrjið mitt að aftan og prjónið 6-7 (7-8-8) lykkjur slétt, snúið stykkinu (til að koma í veg fyrir að það myndist göt lyftið 1. lykkju af prjóni þegar prjónað er til baka og hert er aðeins á þræði). Prjónið 12-14 (14-16-16) lykkjur brugðið, snúið stykkinu. Prjónið 18-21 (21-24-24) lykkjur slétt, snúið stykkinu. Prjónið 24-28 (28-32-32) lykkjur brugðið, snúið stykkinu. Haldið svona áfram með því að prjóna 6-7 (7-8-8) lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við 6 sinnum til viðbótar (alls 10 stuttar umferðir). Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. Þegar prjónaðir hafa verið 10-13 (18-20-22) cm með litnum svartur þar sem stykkið er styst (þ.e.a.s. frá mynsturbekk/belti mælt við miðju að framan, þá eru ca 5 cm eftir þar til buxurnar skiptast fyrir skálmar), setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 67-72 (77-82-86) lykkjur (merkir miðju að framan og miðju að aftan á buxum). Aukið síðan út um 1 lykkju hvoru megin við þessi prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 8 sinnum = 166-176 (186-196-204) lykkjur. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 15-18 (23-25-27) cm frá belti (mælt mitt að framan). Stykkið mælist alls 37-40 (45-47-49) cm (meðtalinn faldur). Nú eru felldar af 6 lykkjur mitt að framan og mitt að aftan (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin). Hvor skálm er prjónuð til loka fyrir sig. SKÁLM: HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Byrjið mitt að aftan, prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 77-82 (87-92-96) lykkjur og setjið þær lykkjur sem eftir eru á þráð. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið sléttprjón hringinn. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (innan á skálm). Þegar skálmin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í 4 minnstu stærðunum (þ.e.a.s. lykkjum er ekki fækkað í stærð 5/6 ára) – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 2-1 (3-2-0) sinnum = 73-80 (81-88-96) lykkjur. Í næstu umferð er fækkað um 1-0 (1-0-0) lykkju = 72-80 (80-88-96) lykkjur. Þegar stykkið mælist 4-6 (9-10-14) cm frá skiptingu, fækkið lykkjum í næstu umferð þannig: Prjónið * 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur = 54-60 (60-66-72) lykkjur. Prjónið A.2 yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist skálmin ca 10-12 (15-16-20) cm frá skiptingu. FALDUR (fyrir skálm): Síðan er faldurinn prjónaður með litnum dökk grár. Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur (uppábrot). HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Prjónið síðan faldinn þannig: Prjónið sléttprjón hringinn (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn). Fyrsta umferð er prjónuð með litnum dökk grár, skiptið síðan yfir í litinn svartur og prjónið sléttprjón til loka máls. Fellið af þegar faldurinn mælist 6 cm frá uppábroti. Prjónið hina skálmina alveg eins. FRÁGANGUR: Brjótið niður faldinn efst á buxum að röngu að mynsturbekk/belti og saumið við buxurnar með litnum svartur – það á að sauma að umferð sem prjónuð er með litnum svartur á mynsturbekk/belti, ef faldurinn er of stuttur eða of langur er hægt að jafna þetta til, saumið þá með lit í þeirri umferð sem faldurinn er saumaður að mynsturbekk/belti. Gerið alveg eins í neðri kanti á hvorri skálm. AXLABÖND: Axlaböndin mælast ca 30-34 (38-38-42) cm að lengd, þ.e.a.s. það eru reiknaðir ca 5 cm aukalega í hvorri hlið, þannig að hægt sé að lengja böndin eftir því sem barnið vex. Fitjaðu e.t.v. upp fleiri/færri lykkjur ef þú vilt hafa böndin lengri eða styttri (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4 + 2). Fitjið upp 74-82 (90-90-98) lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum svartur. Böndin eru prjónuð fram og til baka í sléttprjóni. Prjónið 6 umferðir sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni (uppábrot). Prjónið A.3 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (kantlykkjur eru prjónaðar í sama lit og fyrsta/síðasta lykkja í A.3). Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið kant fyrir uppábrot frá röngu aftur með litnum svartur þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið ca 6 umferðir (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn), brjótið kantinn niður og passið uppá að faldur fyrir saum dragi ekki axlaböndin saman, prjónið e.t.v. fleiri umferðir. Fellið af. Saumið uppfitjunarkantinn saman við affellingarkant í ystu lykkjubogana. Prjónið annað axlaband alveg eins. FRÁGANGUR: Saumið axlaböndin við fald fyrir saum efst (þ.e.a.s. frá röngu á mynsturstykki/belti) með fínu spori ca 5 cm niður í hvorri hlið, með ca 8-8 (9-10-10) cm millibili á milli axlabanda mitt að framan og mitt að aftan. FRÁGANGUR: Saumið 6 lykkjur sem felldar voru af á milli skálma, að hvorri annarri. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |