Garden Squares Cardigan |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Paris. Stykkið er heklað í ferningum. Stærð S - XXXL.
DROPS 241-27 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LITIR: Ferningarnir eru heklaðir í mismunandi litasamsetningum þannig: FERNINGUR 1: UMFERÐ 1 + UPPFITJUN: 02, ljós turkos UMFERÐ 2: 39, wasabi UMFERÐ 3: 62, sægrænn UMFERÐ 4: 17, natur FERNINGUR 2: UMFERÐ 1 + UPPFITJUN: 11, ópalgrænn UMFERÐ 2: 17, natur UMFERÐ 3: 71, mandarína UMFERÐ 4: 17, natur FERNINGUR 3: UMFERÐ 1 + UPPFITJUN: 31, fjólublár UMFERÐ 2: 21, myntugrænn UMFERÐ 3: 09, kóngablár UMFERÐ 4: 17, natur FERNINGUR 4: UMFERÐ 1 + UPPFITJUN: 05, syren UMFERÐ 2: 17, natur UMFERÐ 3: 02, ljós turkos UMFERÐ 4: 17, natur FERNINGUR 5: UMFERÐ 1 + UPPFITJUN: 62, sægrænn UMFERÐ 2: 100, ljós þveginn UMFERÐ 3: 21, myntugrænn UMFERÐ 4: 17, natur FERNINGUR 6: UMFERÐ 1 + UPPFITJUN: 100, ljós þveginn UMFERÐ 2: 11, ópalgrænn UMFERÐ 3: 39, wasabi UMFERÐ 4: 17, natur FERNINGUR 7: UMFERÐ 1 + UPPFITJUN: 21, myntugrænn UMFERÐ 2: 17, natur UMFERÐ 3: 61, lime UMFERÐ 4: 17, natur FERNINGUR 8: UMFERÐ 1 + UPPFITJUN: 39, wasabi UMFERÐ 2: 05, syren UMFERÐ 3: 100, ljós þveginn UMFERÐ 4: 17, natur FERNINGUR 9: UMFERÐ 1 + UPPFITJUN: 100, ljós þveginn UMFERÐ 2: 71, mandarína UMFERÐ 3: 31, fjólublár UMFERÐ 4: 17, natur FERNINGUR 10: UMFERÐ 1 + UPPFITJUN: 71, mandarína UMFERÐ 2: 62, sægrænn UMFERÐ 3: 05, syren UMFERÐ 4: 17, natur FERNINGUR 11: UMFERÐ 1 + UPPFITJUN: 09, kóngablár UMFERÐ 2: 02, ljós turkos UMFERÐ 3: 11, ópalgrænn UMFERÐ 4: 17, natur FERNINGUR 12: UMFERÐ 1 + UPPFITJUN: 61, lime UMFERÐ 2: 31, fjólublár UMFERÐ 3: 05, syren UMFERÐ 4: 17, natur LITASKIPTI: Til að fá fallega litaskiptingu þegar skipt er um lit, heklið keðjulykkjuna í lok umferðar með nýja litnum. MYNSTYKKIUR: Sjá mynsturteikning A.1 til A.6. Mynsturteikning A.3 til A.6 sýnir staðsetningu á ferningum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru heklaðir 68-68-80-80-88-88 ferningar í mismunandi litasamsetningum. Síðan eru ferningarnir heklaðir saman fyrir framstykki, bakstykki og ermar. Í stærð S og M eru heklaðir stuðlahópar fram og til baka aftan í hnakka. Í stærð M, L, XL, XXL og XXXL eru heklaðir stuðlahópar í hvorri hlið fyrir hliðarstykki. Ferningar fyrir ermar eru heklaðir saman og ermar eru heklaðar við fram- og bakstykki. Að lokum er heklaður kantur í kringum op á peysu. HEKLAÐIR FERNINGAR: Notið heklunál 5 og DROPS Paris. Sjá LITIR og LITASKIPTI og heklið ferningana eftir mynsturteikningu A.1 í mismunandi litasamsetningum. 1 ferningur mælist ca 11 x 11 cm. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Það eru heklaðir 68-68-80-80-88-88 ferningar þannig: Ferningur 1: 6-6-6-6-6-6 stykki Ferningur 2: 6-6-6-6-6-6 stykki Ferningur 3: 6-6-9-9-9-9 stykki Ferningur 4: 6-6-7-7-9-9 stykki Ferningur 5: 4-4-5-5-7-7stykki Ferningur 6: 6-6-8-8-8-8 stykki Ferningur 7: 6-6-6-6-8-8 stykki Ferningur 8: 6-6-8-8-8-8 stykki Ferningur 9: 6-6-6-6-6-6 stykki Ferningur 10: 6-6-6-6-8-8 stykki Ferningur 11: 4-4-5-5-5-5 stykki Ferningur 12: 6-6-8-8-8-8 stykki FRÁGANGUR-1: Leggið ferningana út eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.3 fyrir bakstykki, A.4 fyrir vinstra framstykki og A.5 fyrir hægra framstykki (þegar stykkin liggja flöt, sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð), passið uppá að allir ferningarnir liggi með réttuna upp. Númer í mynsturteikningu vísa í númer útskýrt í LITIR. Ferningarnir eru heklaðir saman fyrst á breiddina og síðan á lengdina. Notið heklunál 5 og litinn natur til að hekla ferningana saman þannig: Leggið 2 ferninga kant í kant svo hægt sé að hekla þá saman. Byrjið í horni og heklið þannig: * Stingið heklunálinni inn frá réttu og niður í gegnum aftari lykkjubogann á öðrum ferningnum, síðan er heklunálinni stungið frá réttu og niður í gegnum aftari lykkjubogann á hinum ferningnum, sækið þráðinn og dragið í gegnum báðar lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* þar til þessir 2 ferningar hafa verið heklaðir saman meðfram hlið á ferningunum, heklið 2 loftlykkjur og heklið síðan frá *-* meðfram næstu ferningum alveg eins. ATH! Ferningarnir eru heklaðir saman með 1 lykkju í hvert horn og 1 lykkju í hvern stuðul/loftlykkju. Heklið svona þar til allir ferningarnir í þessari röð hafa verið heklaðir saman. Heklið allar raðirnar saman á breiddina. Þegar allar raðirnar hafa verið heklaðar saman á breiddina, heklið allar raðirnar saman á lengdina alveg eins. Í stærð S og M er nú hekluð umferð með stuðlahópum fram og til baka í hnakka á bakstykki, þetta er ekki heklað í stærð L, XL, XXL og XXXL, hoppið yfir næsta kafla í þessum stærðum. STUÐLAUMFERÐ AFTAN Í HNAKKA: STÆRÐ S og M: Það eru heklaðir stuðlahópar fram og til baka í hnakka á bakstykki, þannig að peysan verði ekki djúp aftan í hnakka. Það eru heklaðar rendur, heklið hverja umferð frá réttu í litnum natur og hverja umferð frá röngu í röndum, notið liti að eigin ósk (þá liti sem eftir eru frá hekluðu ferningunum) og heklið þannig: Byrjið í fyrsta horninu frá ferningi í lit númer 7. Heklið A.2a, heklið A.2b alveg fram að loftlykkjum í horni á ferningi í lit númer 8, heklið A.2c í hornbogann. ATH! Í horni á milli 2 ferninga eru heklaðir 3 stuðlar um loftlykkjur í horni frá fyrsta ferningi, 1 loftlykkja og 3 stuðlar í horni á næsta boga = alls 10 stuðlahópar. Heklið fram og til baka eftir A.2 þar til heklaðar hafa verið 5 umferðir á hæðina. Heklið 1 umferð með fastalykkjum meðfram hvorri skammhlið á stuðlahópum þannig: Heklið 3 fastalykkjur um hvern stuðul / 3 loftlykkjur í 4 fyrstu umferðum og heklið 1 fastalykkju um síðasta stuðul / 3 loftlykkjur = 13 fastalykkjur í hvorri hlið. Heklið þetta stykki saman með ferningum á hvorri öxl, heklið 1 fastalykkju saman með 1 stuðul / loftlykkju frá ferningum á öxl, nú eru eftir ca 3-4 cm á hverjum ferningi upp að öxl. Klippið þráðinn og festið. HÆGRA HLIÐARSTYKKI, BAKSTYKKI: Bakstykkið og framstykkin hafa nú verið hekluð til loka í stærð S, í þeim stærðum sem eftir eru er heklað hliðarstykki fram og til baka hvoru megin við bakstykki og hvoru megin við framstykkin þannig: STÆRÐ M, L, XL, XXL og XXXL: Það eru heklaðar rendur, heklið hverja umferð frá réttu í litnum natur og hverja umferð frá röngu í röndum, notið liti að eigin ósk (þá liti sem eftir eru frá hekluðu ferningunum) og heklið þannig: Byrjið í efsta horninu á 3. eða 4. ferningi frá neðri kanti – sjá stjörnu í teikningu. Heklið meðfram hlið þannig: Heklið A.2a, heklið A.2b alveg fram að neðsta hornboga (neðst á toppi), heklið A.2c í hornbogann, snúið. ATH! Í horni á milli 2 ferninga eru heklaðir 3 stuðlar um loftlykkjur í horni frá fyrsta ferningi, 1 loftlykkja og 3 stuðlar í horni frá næsta boga. Heklið alls 2-3-5-8-10 umferðir af A.2, hliðarstykki mælist ca 2-4-6-9-12 cm. VINSTRA HLIÐARSTYKKI, BAKSTYKKI: Heklið vinstra hliðarstykki alveg eins meðfram gagnstæðri hlið á ferningum, en byrjið frá röngu, þannig að úrtakan komi á sama stað og á hinu hliðarstykkinu. Umferðin frá röngu er hekluð í litnum natur, umferðin frá réttu er hekluð í röndum (notið liti að eigin ósk). HLIÐARSTYKKI FRAMSTYKKI: Heklið alveg eins og á bakstykki, heklið eitt hliðarstykki í annarri hlið á hvoru framstykki (sjá mynsturteikningu A.4 og A.5). ERMI: Leggið ferningana út eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.6, passið uppá að allir ferningarnir snúi með réttuna upp. Númer í mynsturteikningu vísa í númer sem er útskýrt í LITIR. Ferningarnir eru fyrst heklaðir saman á breiddina og síðan á lengdina. Að lokum er ermin brotin saman fyrir miðju og heklað er saman mitt undir ermi (a við b í mynsturteikningu A.6) en skiljið eftir 0-2-3-4-9-12 cm efst á ermi. Heklið saman hina ermina alveg eins, en ermin er hekluð við peysuna í gagnstæða átt (ferningarnir sem eru efst við öxlina á fyrri ermi, koma til með að vera neðst við höndina á seinni ermi). FRÁGANGUR: Leggið bakstykkið og framstykkin að hverju öðru með réttuna út og heklið hliðarnar saman alveg eins og ferningarnir voru heklaðir saman. Skiljið e.t.v. eftir ca 8-10 cm neðst í hvorri hlið fyrir klauf. Heklið ermarnar við handveg, heklið fyrst 0-2-3-4-9-12 cm sem ekki var heklað saman við efri kantinn á hliðarstykki, síðan er ermin hekluð inn í handveg (c við d í mynsturteikningu A.3 og A.4/A.5). HEKLAÐUR KANTUR: Byrjið neðst á hægra framstykki og heklið kant í kringum opið á peysunni með heklunál 5 með litnum natur þannig: 1 fastalykkja um fyrsta loftlykkjuboga, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* í kringum allt opið á peysunni og endið með 3 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. Klippið þráðinn og festið. HEKLIÐ SNÚRA: Heklið eina umferð með loftlykkjum ca 60 til 80 cm með heklunál 5 með litnum natur. Klippið þráðinn og festið. Leggið snúruna saman tvöfalda, þræðið lykkjunni í gegnum loftlykkjuboga efst í hálsmáli á öðru framstykkinu, þræðið báða endana í gegnum lykkjuna þannig að snúran festist. Endurtakið á hinu framstykkinu og hnýtið snúruna saman í slaufu mitt að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (12)
Anna wrote:
Ved i hvor meget garn der skal bruges hvis man kun ønsker at bruge 1 farve udover den hvide bundfarve?
15.03.2024 - 18:47Janne wrote:
Hej Jeg er et spørgsmål mht hvordan firkanterne skal hækles sammen. Der står først på tværs og derefter på langs. Hvad betyder på tværs? Er det vandret eller lodret? Jeg vil jo mene at på langs betyder vandret/horisontalt, men kan ikke forstår at på tværs så skulle betyde lodret, altså fra bunden til toppen af arbejdet?
17.01.2024 - 16:52DROPS Design answered:
Hei Janne. Her vil jeg mene at på tvers betyr vannrett. Om du forstørrer bildet av jakken så kan du se at det først ble heklet vannrett, deretter loddrett. Man ser det på hjørnene der den loddrette sammen heklingen ligger over den vannrette sammen heklingen. mvh DROPS design
18.01.2024 - 09:25GENEVIEVE DRUART wrote:
Bonjour, j'adore ce modèle mais je voudrais le réaliser en uni, et en laine ou mélange, pas en coton. Je suppose que le calcul du nombre de pelotes est différent ? Comment faire svp ? Merci d'avance
23.09.2023 - 13:50DROPS Design answered:
Bonjour Mme Druart, la quantité va dépendre du métrage - utilisez notre convertisseur pour voir les alternatives possibles et les quantités correspondantes - retrouvez ici quelques explications. Bon crochet!
25.09.2023 - 08:41Mona Johannessen wrote:
Hvordan skal jeg få festet ermet pent? Ermet har 4 ruter og ermhullet har 4 ruter + de heklede radene i siden.
20.08.2023 - 21:20DROPS Design answered:
Hei Mona. Ermet hekles inn i ermhullet. Husk å se på diagrammet (c til d på diagram A.3 og A.4/A.5). Strekk litt i ermet om det ikke passer helt inn i ermhullet. mvh DROPS Design
21.08.2023 - 13:36Kerstin Aronsson wrote:
Har skickat efter Drops Paris till en tröja. Fick hem garnet idag men ett nystan saknas, har bara fått 10 st Paris Natur, färgbad 1682-2,dock står det att 11 är levererade. Order-Id 301856 Mvh Kerstin Aronsson
04.08.2023 - 11:02Joanne wrote:
I don’t understand the instructions for the side stripes. The instruction says to start in the top corner, but in the photo it starts in the middle of the square. The diagram A2a shows one single treble crochet, but I can’t see where that is in the photo. You also talk about decreases in the instruction and I can see in the photo that the number of clusters decreases along the rows, but do I keep decreasing for each row that I do? Thank you.
07.07.2023 - 13:40DROPS Design answered:
Dear Joanne, the photo is just an example of the side stripes, it's the stripes in the Top version of this pattern. You should follow the indications in the pattern and not the photograph. It's a sample but it doesn't contain the full instructions, so continue working with the charts, instead of following what is shown in the photograph. There are no decreases either in the jacket; it seems to be a typo from the top version. We will correct it as soon as possible. Happy knitting!
10.07.2023 - 16:04Van Dyck Alfrida wrote:
Ik vind het patroon A 6 niet voor de mouw
03.06.2023 - 23:01DROPS Design answered:
Dag Alfrida,
Deze staat onderaan de beschrijving tussen alle andere telpatronen, aan de rechterkant in de tweede rij waar de patronen met de hokjes met cijfers erin staan.
04.06.2023 - 10:45Brita wrote:
Jag vill virka "Garden Squares Cardigan" men vill byta garn till Drops Muskat. Hur ska jag räkna?
03.06.2023 - 11:07DROPS Design answered:
Hei Brita. "Garden Squares Cardigan" er heklet i DROPS Paris som tilhører garngruppe C, DROPS Muskat tilhører garngruppe B (Muskat er tynnere enn Paris), slik at oppskriften vil ikke stemme om man bruker et tynnere garn. Du kan evnt tilpasse selv, hekle til rutene måler 11 x 11 cm og stavgrupper i hals/sidene/kant. Da vi ikke har heklet denne i garngruppe B har vi heller ikke den nøyaktige garnmengden. mvh DROPS Design
05.06.2023 - 06:23Pascaline wrote:
Je suis vraiment folle de ce cardigan. J'aime beaucoup. Est ce qu'il ya moyen de nous faire une vidéo qui montre pas à pas comment faire les "GROUPES DE BRIDES LE LONG DE L'ENCOLURE DOS". Je vous en serais très reconnaissante. Merci d'avance Pascaline
31.05.2023 - 23:23DROPS Design answered:
Bonjour Pascaline, vous devez simplement crocheter les diagrammes A.2a (début de rang sur l'endroit, fin de rang sur l'envers), puis répétez A.2b et terminez par A.2c (fin de rang sur l'endroit, début de rang sur l'envers), autrement dit, c'est simplement comme le dernier rang du carré, sauf que vous n'avez pas de coin mais A.2a et A.2c de chaque côté - regardez la 3ème photo, elle montre cette partie, cela devrait pouvoir vous aider. Bon crochet!
01.06.2023 - 09:14Paula Kraft wrote:
Olkapäät valuu, ei pysy paikoillaan ? miten vois korjata tilanteen ?
29.05.2023 - 20:20DROPS Design answered:
Hei, on tärkeää, että jakun ympäri virkattava reunus ei virkata liian löyhästi. Halutessasi voit virkata vielä yhden kerroksen kiinteitä silmukoita pääntien ja olkapäiden reunoihin.
01.06.2023 - 16:33