DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Sea Foam Sweater

Hekluð peysa úr DROPS Air. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 243-14
DROPS Design: mynstur ai-453
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-400-450-450-500 litur 30, salvíugrænn

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.

HEKLFESTA:
14 stuðlar á breidd og 8,5 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju.
Til að reikna út hvernig auka á út jafnt yfir, teljið lykkjufjöldann sem auka á út yfir (t.d. 69 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 11) = 6,27.
Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla í ca 6. hverja lykkju.

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.

HEKLLEIÐBEININGAR-1 (heklað í hring):
Það á að hekla í hring án þess að enda umferðina, setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar þannig að auðvelt sé að sjá hvar umferðin byrjar.
Í 2. umferð er fyrsti stuðull heklaður í 2. loftlykkju frá byrjun á 1. umferð, heklið eins og útskýrt er í uppskrift þar til heklað hefur verið í alla hálfa stuðla frá 1. umferð.
Umferðin endar ekki, heldur er 1. stuðull í byrjun á næstu umferð heklaður í 1. stuðul frá fyrri umferð. Síðan er heklað í hring með stuðlum.
Til að koma í veg fyrir hak í skiptingunni í síðustu umferð neðst niðri á fram- og bakstykki og ermum er heklað þannig: Heklið þar til 2 stuðlar eru eftir í umferð, heklið 1 hálfan stuðul í næsta stuðul, heklið 1 fastalykkju í síðasta stuðul og endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. stuðul í byrjun umferðar.

HEKLLEIÐBEININGAR-2 (á við um kant í hálsmáli):
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul.
Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Þegar heklað er í hring kemur umferðin til með að færast til um leið og er heklað. Setjið einn merkiþráð mitt undir ermi, á milli 2 lykkja og látið merkiþráðinn fylgja með lóðrétt mitt undir ermi – það verður að færa merkiþráðinn til þannig að hann verði lóðréttur undir ermi allan tímann.
Leggið stykkið flatt og athugið hvort merkiþráðurinn sé mitt undir ermi þegar lykkjum er fækkað. Lykkjum er fækkað hvoru megin við 2 stuðla við merkiþráðinn þannig: Heklið þar til 3 stuðlar eru eftir á undan merkiþræði.
* Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (1 lykkja færri). Heklið 1 stuðul í hvorn af næstu 2 stuðlum (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 stuðla) og endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (1 lykkja færri).
Nú hefur fækkað alls 2 lykkjur í umferðinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar og stykkið er heklað áfram hringinn hvert fyrir sig. Í lokin er heklaður kantur í hálsmáli neðan frá og upp efst á berustykki, kantur í hálsmáli er síðan brotinn saman tvöfaldur og saumaður niður að innanverðu á stykki.

BERUSTYKKI:
Heklið 67-70-73-77-80-84 LOFTLYKKJA – lesið útskýringu að ofan, með heklunál 5 með DROPS Air og tengið lykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 2 loftlykkjur (koma í stað 1. hálfa stuðul), heklið 1 hálfan stuðul í hverja loftlykkju þar til heklað hefur verið í allar loftlykkjur, heklið 2 hálfa stuðla um 2 loftlykkjur frá byrjun á umferð = 69-72-75-79-82-86 hálfir stuðlar.
Setjið eitt prjónamerki í stykkið, berustykkið er nú mælt héðan!
Nú á að hekla áfram með stuðlum, lestu HEKLLEIÐBEININGAR, áður en þú heldur áfram að hekla!
UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul í hvern hálfan stuðul og aukið út 11-18-25-31-38-44 stuðla jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 80-90-100-110-120-130 stuðlar.
UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul.
UMFERÐ 4: Heklið 1 stuðul og aukið út 16-18-20-22-24-26 stuðla jafnt yfir = 96-108-120-132-144-156 stuðlar.
UMFERÐ 5: Heklið stuðla og aukið út 16-18-20-22-24-26 stuðlar jafnt yfir = 112-126-140-154-168-182 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 6: Heklið stuðla og aukið út 16-18-20-22-24-26 stuðla jafnt yfir = 128-144-160-176-192-208 stuðlar.
Nú er heklað áfram mismunandi eftir stærðum þannig:

STÆRÐ S, M, L og XL:
= 128-144-160-176 stuðlar.
UMFERÐ 7: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul.
UMFERÐ 8: Heklið stuðla og aukið út 16-18-20-22 stuðla jafnt yfir.
Heklið eins og 7. og 8. umferð alls 3-3-3-3 sinnum. Það eru 176-198-220-242 stuðlar í umferð.

STÆRÐ XXL og XXXL:
= 192-208 stuðlar.
UMFERÐ 7: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul.
UMFERÐ 8: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul.
UMFERÐ 9: Heklið stuðla og aukið út 24-26 stuðlar jafnt yfir.
Heklið eins og 7.- 9. umferð 3-3 sinnum. Það eru 264-286 stuðlar í umferð.

ALLAR STÆRÐIR:
= 176-198-220-242-264-286 stuðlar.
Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 21-22-23-24-26-28 cm frá prjónamerki, nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Heklið 26-28-31-35-39-43 stuðla, heklið 1 hálfan stuðul (hálft bakstykki), heklið 11 loftlykkjur (í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu 34-40-45-49-51-54 stuðla fyrir ermi, heklið 1 hálfan stuðul, heklið 52-57-63-70-79-87 stuðla, heklið 1 hálfan stuðul (framstykki), heklið 11 loftlykkjur (í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu 34-40-45-49-51-54 lykkjur fyrir ermi, heklið 1 hálfan stuðul, heklið 26-29-32-35-40-44 stuðla (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan heklað áfram hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 130-140-152-166-184-200 lykkjur.
Haldið áfram með 1 stuðul í hverja lykkju (í fyrstu umferð er heklaður 1 stuðul í hverja af 11 loftlykkjum sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið undir ermum) þar til stykkið mælist 29-30-31-32-32-32 cm frá skiptingu – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR-1 þegar síðasta umferðin á að enda. Klippið þráðinn og festið.
Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Nú er heklað í 34-40-45-49-51-54 lykkjur sem hoppað var yfir fyrir ermi í annarri hlið á stykki þannig: Festið þráðinn með 1 fastalykkju í 6. loftlykkju af 11 loftlykkjum sem heklaðar voru mitt undir ermi, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 4 loftlykkjum, heklið 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í síðustu loftlykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar á sama hátt um hálfa stuðulinn í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og erma, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. Þetta er gert til að það verði sem minnst sýnilegt í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og erma.
Heklið 1 stuðul í hvern stuðul fram að loftlykkjum í hinni hlið á ermi, heklið 2 stuðla saman á sama hátt í skiptingunni og heklið 1 stuðul í hverja af síðustu loftlykkjum = 45-51-56-60-62-65 lykkjur.
Nú er heklað í hring án þess að enda umferð á sama hátt og á fram- og bakstykki, byrjið næstu umferð með að hekla 1. stuðul í 1. fastalykkju frá fyrri umferð – nú er heklað í hring.
Haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 stuðla undir ermi – lesið ÚRTAKA!
Fækkið lykkjum svona með ca 11-5½-3½-2½-2½-2 cm millibili þar til fækkað hefur verið alls 3-5-7-9-9-10 sinnum = 39-41-42-42-44-45 lykkjur.
Heklið þar til ermin mælist ca 33-32-32-31-29-28 cm frá skiptingunni (það eru 8 cm að loka máli). Heklið 1 stuðul í aftari lykkjubogann í hvern stuðul umferðina hringinn. Heklið hverja umferð svona þar til ermin mælist 41-40-40-39-37-36 cm frá skiptingu – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR-1 þegar enda á síðustu umferð. Klippið þráðinn og festið.
Heklið hina ermina á sama hátt.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið heklunál 5 og DROPS Air, festið þráðinn með 1 keðjulykkju ca mitt að aftan.
Lesið HEKLLEIÐBEININGAR-2 í útskýringu að ofan.
UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul á milli hverra hálfa stuðla frá 1. umferð = 67-70-73-77-80-84 stuðlar.
UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul í aftari lykkjubogann á hverjum stuðli.
UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul (heklið í gegnum báða lykkjubogana).
UMFERÐ 4: Heklið 1 stuðul í aftari lykkjubogann á hverjum stuðli.
UMFERÐ 5: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul (heklið í gegnum báða lykkjubogana).
UMFERÐ 6: Heklið 1 stuðul í aftari lykkjubogann á hverjum stuðli.
UMFERÐ 7-9: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul (heklið í gegnum báða lykkjubogana).
Klippið þráðinn og dragið í gegnum síðustu lykkjuna á heklunálinni.
Brjótið kant í hálsmáli niður að innanverðu á stykki, þannig að kanturinn verði tvöfaldur. Saumið niður með nokkrum smáum sporum.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Ingrid Krohn-Hansen wrote:

Jeg har hekket ferdig hele bolen. Når jeg prøver den på buler det veldig ut øverst på ryggen der økningen ble gjort på bærestykket. Det skulle jo økes jevnt på omgangene, så det er jo like mange økninger bak på ryggen som på brystet… Skal det være sånn eller har jeg gjort noe feil? Videre nedover bolen virker det som den blir for trang igjen. Må uansett rekke opp igjen, og håper dere kan hjelpe meg med å få bærestykket riktig.

16.03.2024 - 01:04

DROPS Design answered:

Hej Ingrid, hvilken størrelse hækler du? Ja udtagningerne sker jævnt fordelt hele vejen rundt. Buler den kun på ryggen?

19.03.2024 - 14:42

country flag Heather wrote:

Hello I’m having trouble starting the sleeves. Specifically, I don’t understand the instructions: “work 2 double crochets together as follows: work 1 double crochet in the last chain stitch but wait with the last yarn over and pull-through, work 1 double crochet in the same way through the half-double crochet in the transition between the body and sleeve, make 1 yarn over and pull it through all 3 loops on the hook.” Could you post a video for this part? Thank you!

21.01.2024 - 18:53

DROPS Design answered:

Dear Heather, to avoid a hole at the transition between division, you will work 2 double crochet together working one of them in the first row worked on body and the other in the chain stitch under sleeve. Happy crocheting!

22.01.2024 - 10:22

country flag Sharon wrote:

Hi, do you have a sizing chart so I can work out what size to make eg XL bust would be xxx

08.01.2024 - 22:47

DROPS Design answered:

Hi Sharon, There is a size chart at the bottom of the pattern, with all the measurements for each size. Happy crafting!

09.01.2024 - 06:43

country flag Sara wrote:

I am not sure how much yarn do I need for this project for a Medium size? I am not sure if 350 is grams, yards or meters...

20.12.2023 - 22:05

DROPS Design answered:

Dear Sara, the requested amount of yarn is always given in grams, so that if you need (in M ) 350 g DROPS Air / 50 g a ball = 7 balls - read more about DROPS Air here. Happy crocheting!

21.12.2023 - 08:32

country flag Simone wrote:

In de nederlandse tekst staat : Haak toeren 7-9, 2-2 keer = 264-286 stokjes. Maar dan kom ik niet uit. In het Noorse patroon staat : Hekle som 7.-9.omgang totalt 3-3 ganger. Det er 264-286 staver på omgangen. Moet ik de Noorse tekst aanhouden?

19.12.2023 - 13:40

DROPS Design answered:

Dag Simone,

Je hebt gelijk, je moet de toeren in totaal 3 keer haken. Dus er moet staan nog 2 keer. Ik zal het aanpassen in de Nederlandse tekst!

10.01.2024 - 09:56

country flag Evelyne Bou wrote:

Merci beaucoup pour votre réponse rapide. Oui, je crochète Air et je n'arrive pas à trouver le n° de crochet qui corresponde au nombre de rangs et au nombre de brides indiqués . Dois-je privilégier le crochet qui correspond au nombre de rangs ou celui qui correspond au nombre de brides ? Je vous remercie. Bonne journée!

13.12.2023 - 10:04

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bou, il vous faut le bon échantillon en largeur pour avoir les bonnes mesures conformes au schéma; s'il est différent en hauteur, vous pourrez ajuster en tricotant des tours en plus/en moins lors de l'empiècement notamment. Vous crochetez peut-être très lâche, l'idée est de vraiment avoir les 14 brides x 8,5 rangs = 10 x10 cm pour avoir le bon résultat. Retrouvez plus d'explications ici. Bon crochet!

13.12.2023 - 16:18

country flag Évelyne Bou wrote:

Bonjour, merci pour ce beau modèle. J'ai un problème avec l'échantillon: j'ai essayé au crochet n°5 puis n°4 , n°3,5 et j'en suis au n° 3 sans parvenir à avoir 14 brides pour 10cm de largeur. Avec le crochet n°3 , 10cm= 12 brides . En hauteur, 9 rangs pour 10cm. Pouvez-vous me conseiller sur la taille de crochet à choisir ? Merci beaucoup. Bonne journée !

12.12.2023 - 18:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bou, crochetez-vous DROPS Air? Car c'est une tension assez usuelle pour cette laine; si vous crochetez une autre laine qui n'est pas de la même épaisseur que Air (autre que du groupe de fils C), vous aurez peut-être plus de mal à obtenir la bonne tension et il vous faudra alors recalculer le modèle en fonction de votre propre tension ou bien vous retourner sur un modèle correspondant à votre tension. Bon crochet!

13.12.2023 - 07:50

country flag Zuzanna Kindeusz wrote:

Robię 7 rząd i zauważyłam, że karczek nie rozkłada się zupełnie na płasko. Oczka łańcuszka robione na początku wyznaczyły wielkość okręgu, później stopniowo były dodawane słupki, ale mam wrażenie, że jest ich za dużo i całość nie mieści się dookoła okręgu. Jakby materiału było za dużo. Próbka wyszła dobrze i myślę że zachowałam takie samo naprężenie nici w trakcie robótki. Czy później sweter się wyprostuje, czy spróbować od nowa?

10.12.2023 - 03:43

DROPS Design answered:

Witaj Zuzanno, możesz teraz zblokować (uprać i wysuszyć) wykonany fragment ubrania. Jak okaże się za szeroki to sprujesz. Powodzenia!

11.12.2023 - 08:08

country flag Emma wrote:

Hvor mange nøgler garn skal jeg bruge til en str M-L?

09.12.2023 - 19:46

DROPS Design answered:

Hei Emma. Garnmengden til de ulike str. finner du under MATERIALER øverst i oppskriften (350 gram/7 nøster i str. M og 400/8 nøster gram i str. L) ved bruk av DROPS Air. mvh DROPS Design

11.12.2023 - 11:23

country flag Lova wrote:

Har precis virkat klart denna fina tröja. Jag undrar om man kan tvätta den i tvättmaskin och isånnafall vilken grad?

24.11.2023 - 10:35

DROPS Design answered:

Hej Lova, DROPS Air anbefaler vi håndvask 30 grader! Hvis du vil vaske i maskinen, så skal de vaskes separat og på uldprogram (max 30grader) og det er på eget ansvar, prøv at vaske en strikkeprøve inden du vasker blusen.

24.11.2023 - 15:07