DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Irish Hill

Hekluð peysa fyrir herra úr DROPS Air. Stykkið er heklað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum og löngum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 246-5
DROPS Design: ai-468
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-450-500-550-600-650 g litur 19, skógargrænn

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.

HEKLFESTA:
14 stuðlar á breidd og 8,5 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.

HEKLLEIÐBEININGAR-1:
Í byrjun á hverri umferð með hálfum stuðlum / stuðlum eru heklaðar 2 / 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma í stað fyrsta hálfa stuðul / stuðul. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 2. / 3. loftlykkju frá byrjun umferðar.

HEKLLEIÐBEININGAR-2 (heklað í hring):
Á fram- og bakstykki og ermum á að hekla í hring og án þess að enda umferðina, byrjun umferðar færist því til eftir hverja umferð sem er hekluð. Umferð 1 endar ekki á venjulegan máta, en 1. stuðull í byrjun á umferð 2 er heklaður í 1. fastalykkju frá umferð 1.
Síðan er heklað í hring með 1 stuðul í hvern stuðul.
Á ermi er settur merkiþráður mitt undir ermi, merkiþráðurinn er settur á milli 2 lykkja.
Á fram- og bakstykki er settur merkiþráður í hlið þar sem umferðin byrjaði. Látið merkirþáðinn fylgja með lóðrétt mitt undir ermi / í hlið á fram- og bakstykki. Leggið stykkið flatt á meðan unnið er í stykkinu og athugið hvort merkiþáðurinn sé á réttum stað.
Í síðustu umferð neðst á fram- og bakstykki og ermum er heklað þannig til að koma í veg fyrir að það myndist hak í lok umferðar:
Heklið þar til 2 stuðlar eru eftir í umferð, heklið 1 hálfan stuðul í næsta stuðul, heklið 1 fastalykkju í síðasta stuðul og endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. stuðul í byrjun umferðar.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

LASKALÍNA:
Aukið er út fyrir laskalínu með því að hekla fleiri stuðla í fyrsta / síðasta stuðul í A.1. Útauknar lykkjur eru heklaðar áfram í stuðla.

ÚRTAKA-1 (á við um ermar):
Merkiþráðurinn situr mitt á milli 2 stuðla undir ermi, þegar fækka á lykkjum er lykkjum fækkað hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Heklið þar til 3 stuðlar eru að merkiþræði, heklið 2 stuðla saman þannig:
* Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (1 lykkja færri). Heklið 1 stuðul í hvorn af 2 næstu stuðlum (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 stuðla) og endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar.

ÚRTAKA-2 (á við um kanti í hálsmáli):
Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman í 1 stuðul þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykkið er heklað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki og ermar er heklað í hring hvert fyrir sig. Í lokin er heklaður kantur í hálsmáli í hring.

BERUSTYKKI:
Notið heklunál 5 og DROPS Air. Lesið LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan. Heklið 72-76-78-82-86-90 aðeins lausar loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 1 hálfan stuðul í hverja loftlykkju = 72-76-78-82-86-90 hálfir stuðlar. Nú er heklað í hring þannig: Heklið stuðla yfir fyrstu 8-9-9-10-11-13 lykkjur (ca hálft bakstykki), heklið A.1 yfir næstu 2 lykkjur (laskalína), heklið stuðla yfir næstu 16 lykkjur (ermi), A.1 yfir næstu 2 lykkjur (laskalína), heklið stuðla yfir næstu 16-18-19-21-23-26 lykkjur (framstykki), A.1 yfir næstu 2 lykkjur (laskalína), heklið stuðla yfir næstu 16 lykkjur (ermi), A.1 yfir næstu 2 lykkjur (laskalína), heklið stuðla yfir síðustu 8-9-10-11-12-13 lykkjur (hálft bakstykki). Setjið eitt prjónamerki í umferð (mitt að framan), berustykkið er nú mælt héðan.
Haldið áfram hringinn með stuðlum og A.1, jafnframt því sem í fyrstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan og heklið þannig: Heklið fram að A.1 (á milli bakstykkis og ermi), heklið 3 stuðla í fyrsta stuðul og heklið 2 stuðla í síðasta stuðul í A.1, heklið eins og áður fram að næsta A.1 (á milli ermi og framstykkis), heklið 2 stuðla í fyrsta stuðul og 3 stuðla í síðasta stuðul í A.1, heklið eins og áður fram að næsta A.1 (á milli framstykkis og ermi), heklið 3 stuðla í fyrsta stuðul og 2 stuðla í síðasta stuðul í A.1, heklið eins og áður fram að næsta A.1 (á milli ermi og bakstykkis), heklið 2 stuðla í fyrsta stuðul og 3 stuðla í síðasta stuðul í A.1, heklið eins og áður út umferðina.
Það hafa verið auknar út 4 lykkjur á hvoru framstykki / bakstykki og 2 lykkjur á hvorri ermi, alls 12 lykkjur í umferð.
Endurtakið þessa útaukningu í hverri umferð alls 6-6-5-7-8-9 sinnum = 144-148-138-166-182-200 stuðlar.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

Nú á einungis að auka út um 2 lykkjur á hvoru framstykki / bakstykki, útaukning á ermum heldur áfram eins og áður. Þ.e.a.s. það er heklað þannig:
Heklið fram að A.1 (á milli bakstykkis og ermi), heklið 2 stuðla í fyrsta stuðul og heklið 2 stuðla í síðasta stuðul í A.1, heklið eins og áður fram að næsta A.1 (á milli ermi og framstykkis), heklið 2 stuðla í fyrsta stuðul og 2 stuðla í síðasta stuðul í A.1, heklið eins og áður fram að næsta A.1 (á milli framstykkis og ermi), heklið 2 stuðla í fyrsta stuðul og 2 stuðla í síðasta stuðul í A.1, heklið eins og áður fram að næsta A.1 (á milli ermi og bakstykkis), heklið 2 stuðla í fyrsta stuðul og 2 stuðla í síðasta stuðul í A.1, heklið eins og áður út umferðina.
Það hafa verið auknar út 2 lykkjur á hvoru framstykki / bakstykki / ermi, alls 8 lykkjur í umferð.
Aukið svona út í hverri umferð 7-10-12-12-11-12 sinnum, það hefur verið aukið út alls 13-16-17-19-19-21 sinnum á framstykki / bakstykki og ermum = 200-228-234-262-270-296 stuðlar. Útaukning á ermum er nú lokið.
Haldið áfram að auka út á sama hátt á framstykki / bakstykki 2-0-2-0-1-1 sinnum til viðbótar. Það hefur verið aukið út alls 15-16-19-19-20-22 sinnum á framstykki / bakstykki og alls 13-16-17-19-19-21 sinnum á ermum. Það eru 208-228-242-262-274-300 stuðlar.
Heklið síðan eins og áður án útaukninga þar til stykkið mælist 19-21-22-24-26-29 cm frá prjónamerki.
Festið síðustu lykkjuna á heklunálinni með prjónamerki eða þræði þannig að stykkið rakni ekki upp – nú á að nota heklunálina til að hekla saman loftlykkjulykkjur í hverju A.1.
Heklið saman loftlykkjulykkjur í hverju A.1 saman þannig:
Notið heklunálina og stingið heklunálinni í 1. loftlykkjulykkju efst við hálsmál frá réttu, dragið 2. loftlykkjulykkju í gegnum 1. loftlykkjulykkju, stingið heklunálinni í 2. loftlykkjulykkju og dragið 3. loftlykkjulykkju í gegnum 2. loftlykkjulykkju. Haldið svona áfram þar til allar loftlykkjulykkjur hafa verið heklaðar saman. Gerið þetta í öllum 4 mynstureiningum í A.1 út umferðina. Setjið e.t.v. prjónamerki eða þráð í neðstu loftlykkjulykkju til að koma í veg fyrir að hún losni.

Næsta umferð er síðan hekluð frá þar sem umferðin endaði á berustykki þannig:
Loftlykkjulykkjur í A.1 eru ekki taldar með í lykkjufjölda, það er hekluð 1 fastalykkja um síðustu loftlykkjulykkju í þeim loftlykkjulykkjum sem heklaðar voru saman þannig að þær losni ekki (það er hoppað yfir þessa fastalykkju í næstu umferð og eru ekki taldar með í lykkjufjölda): Heklið stuðla yfir fyrstu 29-31-33-36-39-44 stuðla, heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul í A.1, heklið 1 fastalykkju um loftlykkjulykkju, heklið 1 stuðul í síðasta stuðul í A.1, heklið 6-6-8-8-10-10 lausar loftlykkju (= undir ermi), hoppið yfir næstu 42-48-50-54-54-58 stuðla (= ermi), heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul í A.1, heklið 1 fastalykkju um loftlykkjulykkju, 1 stuðul um síðasta stuðul í A.1, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 58-62-67-73-79-88 stuðla, heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul í A.1, heklið 1 fastalykkju um loftlykkjulykkju, 1 stuðul í síðasta stuðul í A.1, heklið 6-6-8-8-10-10 lausar loftlykkjur (= undir ermi), hoppið yfir næstu 42-48-50-54-54-58 stuðla (= ermi), heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul í A.1, heklið 1 fastalykkju um loftlykkjulykkju, 1 stuðul í síðasta stuðul í A.1, heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 29-31-34-37-40-44 stuðla. Klippið frá og festið þráðinn. Heklið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Byrjið umferð í 3.-3.-4.-4.-5.-5. loftlykkju sem var hekluð undir annarri ermi. Festið þráðinn og heklið 1 fastalykkju í þessa loftlykkju, heklið 1 hálfan stuðul í næstu loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu loftlykkjum og stuðla í umferð.
ATH! Umferðin endar ekki á venjulegan máta – lesið HEKLLEIÐBEININGAR-2. Það eru 136-144-158-170-186-204 stuðlar í umferð. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul umferðina hringinn þar til stykkið mælist ca 37-37-38-38-38-37 cm frá skiptingu – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR-2 þegar hekla á síðustu umferðina. Klippið frá og festið þráðinn. Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Byrjið umferð í 3.-3.-4.-4.-5.-5. loftlykkju sem var hekluð undir annarri ermi.
Festið þráðinn og heklið 1 fastalykkju í þessa loftlykkju, heklið 1 hálfan stuðul í næstu loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 0-0-1-1-2-2 loftlykkju (það er eftir 1 loftlykkja), heklið 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í síðustu loftlykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar á sama hátt um stuðulinn í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. Þetta er gert til að það verði eins lítið gat í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul fram að loftlykkjum í annarri hlið á ermi, heklið 2 stuðla saman á sama hátt í skiptingunni og heklið 1 stuðul í hverja af síðustu loftlykkjum – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR-2 = 48-54-58-62-64-68 stuðlar.
Heklið 1 stuðul í hvern stuðul umferðina hringinn. Þegar ermin mælist 4-4-3-3-3-2 cm frá skiptingu, byrjar úrtaka undir ermi – lesið ÚRTAKA-1 og fækkið lykkjum í ca 8.-5½.-5.-3½.-3½.-2½. hverjum cm alls 6-8-9-11-11-13 sinnum = 36-38-40-40-42-42 lykkjur.
Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til ermin mælist alls 51-50-49-48-46-43 cm frá skiptingunni – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR þegar enda á síðustu umferð.
Heklið hina ermina á sama hátt.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið heklunál 5 og DROPS Air. Byrjið umferð mitt að aftan.
UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul á milli hverra hálfa stuðla frá umferð 1 á berustykki = 72-76-78-82-86-90 stuðlar – lesið HEKLLEIÐBEININGAR-1.
UMFERÐ 2: Heklið stuðla í aftari lykkjubogann umferðina hringinn.
UMFERÐ 3: Heklið stuðla (í gegnum báða lykkjubogana) umferðina hringinn.
UMFERÐ 4: Heklið stuðla í aftari lykkjubogann umferðina hringinn.
UMFERÐ 5: Heklið stuðla (í gegnum báða lykkjubogana) umferðina hringinn.
UMFERÐ 6: Heklið stuðla í aftari lykkjubogann umferðina hringinn.
UMFERÐ 7-9: Heklið stuðla (í gegnum báða lykkjubogana) umferðina hringinn.
Klippið þráðinn og þræði í gegnum síðustu lykkjuna.

FRÁGANGUR:
Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna á heklunálinni. Brjótið niður kant í hálsmáli að innanverðu á stykki, þannig að kantur í hálsmáli verði tvöfaldur. Saumið hálsmálið niður með nokkrum sporum.

Mynstur

symbols = hálfur stuðull
symbols = byrjið í þessari umferð, fyrri umferð hefur nú þegar verið hekluð
symbols = 1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan

symbols = heklið 10 loftlykkjur – munið eftir LOFTLYKKJA, heklið 1 keðjulykkju í fyrstu af þessum 10 loftlykkjum þannig að það verði ein loftlykkjulykkja og herðið aðeins á þræði áður en heklað er áfram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 246-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (2)

country flag CICI wrote:

Hallo liebes Team! Ich möchte den Pulli in der Größe L häkeln. Beim Passe schaut es so aus, als ob am Ende ein Fehler in dieser Größe ist: die Zunahme und die Anzahl der Runden für L ist kleiner als M und S --> 144-148-138 (= Größe L) -166-182-200 Stäbchen. Können Sie mir sagen, wie die Anleitung richtig geht? Danke

02.01.2024 - 09:45

DROPS Design answered:

Liebe Cici, so stimmt es auch, die Zunahmen sind noch nicht fertig, Sie haben nur 5 Mal genommmen (6 Mal in die 2 ersten Größen), dann nehmen Sie wie unter den nächsten Absatz zu. Am Ende der Passe sind es dann 242 Stäbchen in L. Viel Spaß beim häkeln!

02.01.2024 - 12:31

country flag Rezig wrote:

Bonjour je voudrais savoir quand le graphique A1 et les arceaux doit t'on commencer à les tricoter je suis bloquée pour la suite du patron merci d'avance de votre réponse

31.10.2023 - 11:12

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rezig, nous montrons dans cette vidéo comment crocheter ce type de points (suivez bien les explications sur le nombre de mailles, la vidéo a été faite pour un autre modèle similaire); elle montre ainsi comment crocheter les ronds de mailles en l'air de l'empiècement et comment les assembler ensuite en torsades à la fin de l'empiècement. Bon crochet!

31.10.2023 - 16:13